Morgunblaðið - 19.02.1969, Side 27

Morgunblaðið - 19.02.1969, Side 27
MORGUNBOLAÐIÐ, M3ÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969. 27 - NY LOGGJOF Framhald af bls. 19 sem verða grundvöllur dieilda- skiptinga, eru flokkar samstæðra greina, og skal hver nemandi velja einn slíkan flokk í heild. Frjálsar valgreinar eru það náms efni hvers nemanda, sem ekki telst til kjarnans eða kjörsviðs hans. Er gert ráð fyrir að þar geti bæði verið um að ræða við- bótarnám í skyldugreinum og nýjar greinar. Af 144 svonefndum einingum heildarnámsefnisins má kjarninn nema allt að 100 einingum, kjör- svið a.m.k. 24 einingum og frjáls ar valgreinar a.m.k. 14 eining- um. Heimilað er að skipta skóla árinu í námsáfanga eða annir og skal í lok hvers áfanga úr- skurðað um hæfni nemenda tiá að hefja nám í næsta áfanga Gert er ráð fyrir að losa um ákvæði varðandi árspróf og halda lokapróf í hverri grein, þegar kennslu í henni lýkur að fullu. Stúdentsprófi er náð, þegar nem andi hefur staðizt öll einstök lokapróf. Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra kvaddi sér næstur hljóðs og sagði að fjárframlög til menntamála hefðu á undanföm um árum aukizt um 275%. Til menntamála ætti ekki að spara og það hiefur ekki verið gert, sagði ráðherrann. Fjárveiting bara til byggingaframkvæmda hefði verið 43 milljónir króna á síðasta ári. Aldrei hefði verið unnið eins mikið að uppbygg- ingu skólahúsnæðis og á undan- förnum árum. Hins vegar sagði ráðherrann að athuga ætti, hvort ekki reyndist unnt að fá meiri nýtingu í fjármagnið. Hann taldi að nýi Kennaraskólinn væri dæmi um skólabyggingu, sem sýndi hvernig ekki ætti að öyggja skóla. Ráðherrann sagði að allt væri ekki fengið með að einsetja skóla. Sú þörf gæti ver- ið fyrir hendi, ekki sízt með fá- tækri þjóð, að tvísetja skóla. Ræðumenn, sem tóku til máls á fundinum voru: utan frummæl enda og forystumanna mennta- mála, sem hér hafa áður verið nefndir: Geir Rögnvaldsson, MH, Jón Ingimarsson, MH, Kári Stef ánsson, MR, Gunnar Ingólfsson, KÍ, Björn Bergsson, ML, Sigurð ur Tómasson, MH, Ingólfur Ás- björnsson, KÍ, Haukur Ólafsson, MR, Hrafn Gunnlaugsson, MR, ÍFreyr Þórðarson, MIH, Gestur (Jónsson, MH, Lárus Óskarsson, MR, Jón Gunnar Ottósson, MH Gestur Guðmundsson, MR, Stef- án Unnsteinsson, MH, Hilmar Ingólfsson, Kf, og að lokum fyrir hönd frummælenda Ólafur Þórð arson, KÍ. Lýsti hann ráðherrun- um sem korktöppum, sem reynt hafi verið að hella á vatni í stríð um straum, en svo hefði ávallt farið að þeir hafi flotið. Fund- inum var slitið kl. 00.20. - ALÞINGi Framhald af bls. 13. þarna var um sanngjarna og eðli lega leið að ræða. Þegar það kom á daginn, að ekki stóð á öðru en því að sjó- menn töldu of þröngan stakk skorinn varðandi ákvörðun mat- arfjárins, þá beitti ríkisstjórnin sér fyrir þvi, að sú upphæð skyldi hækkuð, þó að nokkur fjárhagsleg áhætta fylgdi því. Þegar talað er um að ríkisstjóm in hafi látið eitthvað ógert tíi að leysa þetta mál, er það al- gjör misskilningur, svo ekki séu notuð önnur sterkari orð. Ríkisstjórnin 'hefur þvert á móti fylgzt með deilunni frá upp hafi. Hún lagði stöðugt áherzlu á, að henni yrði lokið sem fyrst og vair í stöðugu samibandi við hinn þrautreynda sáttasemjara, Torfa Hjartarson, og hafði enn- fremur samband við þá aðila, sem talið var að gætu greitt fyr- ir lausn málsins. Hún átti því hiklaust mestan þátt í þvi að lokum, að hægt var að hafa sátta tillöguna þannig að sjómenn töldu sér fært að ganga að henni. Þetta er sannleikur málsins. Einnig er mjög þýðingarmik- ið að menn átti sig á því að yfir gnæfandi meirihluti þeirra há- seta, sem tóku þátt í atkvæða- greiðslum, voru samþykkir því sem samningur hafði verið gerð- ur um. Það liggur fyrir nú, að aðeins um Vi hluti allra yfir- manna á flotanum, sem héir eiga hlut að máli, hafa fellt tillöguna, og því að flotinn er stöðvaður, ef ekki er að gert. Ég vil að lokum taka það fram i tilefni þess sem komið hefur fram við umræður, að eftir því sem ég skil þetta lagafrumvarp, þá takmarkar það ekki á nokk- urn h’átt, rétt aðila til bairáttu fyrir vísitöluuppbót, umfram það, sem þeir hefðu takmarkað rétt sinn sjálfir, ef þeir hefðu gengið að samningum, eins og hásetanir hafa gert. Og sannast að segja, sé ég ekki að það sé eðlilegt, að þingmenn ætli yfir- mönnum í þessu rýmri rétt en hásetarnir hafa skammtað sjálf- um sér. - SKOTÁRÁS Framhald af bls. 1 Öryggisverðir og slökkvilið flug- vallarins br.ugðu við hart og skutu á mennina og segir, að einn hafi látizt. Þó ber fréttum ekki saman um, hvort hann hafi fallið fyrir kúlu öryggisvarða eða farþega, sem hafi stokkið út um neyðardyr vélarinnar. Sjónarvott ar segja, að tilræðismennirnir hafj einnig kastað handspengjum að vélinni, en þær hafi ekki spr.ungið. Svissneska lögreglan segir að fjórir menn hafi verið handteknir, en vel megi vera, að fleiri hafi verið með í hópnum, en hafi komizt undan. NTB fréttastofan segir, að til- ræðismennirnir hafi verið í hvítri Volkswagen bifreið, en ekki hefur upplýstst, hvern- ig þeir komust inn á flug- vallarsvæðið, þar sem sérstakar öryggisráðstafanir eru jafnan viðhafðar við komu og brottför ísraelskra flugvéla. Voru þær ákveðnar, eftir árásina á EL AL vélina í Aþenu í desember sl. og síðan hefndarárás ísraela á flug- völlinn í Beirut í Líbanon nokkru síðar. Abba Eban, utanríkisráðherra fsraels, sagði í Tel Aviv í kvöld, að Gideon Rafael, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, hefði verið meðal farþega í flug vélinni. Eban sagði, að árásin sýndi hið rétta andlit þeirra hryðjuverkasamtaka, sem Ness- er forseti hefði lofað svo mjög fyrir nokkrum dögum. I kvöld gáfu samtök þau, sem segjast berjast fyrir frelsun Palestínu út orðsendingu, þar sem þau segjast standa að baki árásinni. „Arásin er gerð í hefnd arskyni fyrir þær ofsóknir og pyndingar, sem ísraelsk yfirvöid hafa í frammi við vopnlausa og saklausa borgara á hernumdum arabiskum svæðum". Samtökin sendu út myndir af tilræðismönn unum og sögðu, að árásin í dag væri liður í ásetningi samtak- anna að herja á ísraelskar flug- vélar hvar og hvenær sem tæki- færi byðust. Á blaðamannafundi í Ziirich í kvöld staðfesti svissneska lögregl an, að einn maður hefði beðið bana og fimm særzt. Af hinum fimm særðu voru fjórir áhafnar- meðlimir. Þá var skýrt frá því að dreifibréf hefðu fundizt við bifreið tilræðismannanna þar sem segir, að viðkomandi séu fé- lagar í samtökunum sem berjast fyrir frelsun Palestínu. — Öldufall áranna Framhald af bls. 20 í 1. bindi ævisögunnar sér höfundur bernsku sína í hæfi- legri fjarlægð. Þar á imyndim- arafl hans því léttan leik að skýra línur og fylla í eyður. Þess nýtur sú bók. í 3. bindi eru atburðir og persónur nálæg og ágeng; þau þrengja sér inn í frá- sögn, sem þau eiga ekki erindi í, svo að hún nálgast á köflum upptalningarkennda skýrslu. Bókin er vönduð að öllum frá- gangi, prýdd nokkrum mynd- um, prófarkalestur í bezta lagi. 31. janúar 1969 Matthias Jónasson. - AFLYSA Framhald af bls. 1 sitt, og bandaríska leyniþjón- ustan stóð sifðan fyrir því að maðurinn væri fluttur til Bandaríkjanina. Óneitanlega verð ur þetta að teljast glæpsamlegt afihæfi af hálfu Bandaríkjastjórn ar. Samt sem áður héldu Banda- ríkin áfram uppteknum ófyrir- leitnum hætti sínum í því að ala á úlfúð í garð Kína og lét mótmæli kínversku stjórnarinnar sem vind um eyru þjóta.“ Þessir fundir Bandaríkjmanna og Kínverja hafa verið einu opin beru tengslin milli landanna og hófust í Genf árið 1955, en fund- imir vom fluttir til Varsjá þrem ur árum síðar. Allt gíðast liðið ár hafa þó fundir legið nfðri, en alls hafa fulltrúar landanna hitzt þannig 134 sinnum. William Rogers, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna lét í kvöld í ljósi vonbrigði vegna þessrar ákvörðunar kínversku stjórnar- innar. f orðsendingu ráðherrans segir, að Bandaríkin hafi verið reiðubúin til að bera fram til- lögu sem miðaði að bættri sam- búð Bandaríkjanna og Kína, á Varsjárfundinum. Þá hefðu Bandaríkin og haft í huga að at- huga möguleika á skiptum á blaðamönnum, kennurum og vís indamönnum og koma betra lagi á póst- og símaþjónustu milli Kína og Bandaríkjanna. - KOMU AÐ Framhald af bls. 28 tveggj a stóru hr aðf rystistöð v- anna. Gunnar Bjarnason í H.Ó. kvaðst ánægður með að deilan væri leyst. Hann sagði, að heima fólk annaði ennþá öllum þeim afla sem kemur og aðspurður kvaðst hann ekki geta svarað því hve mikið yrði tekið hér af- aðkomuifólki í vetur. Víglundur Jónsson, sem er með Hróa h.f. og tekur við úr 4 bátum í vet- ur, telur að koma muni til með að vanta sjómenn á Ólafsvíkur- báta í vetur. En hann álítur ekki að fólk muni vanta í landi. — Hinrik. TVEIR NÝIR BATAR A HELL- ISSANDI Hellissandi, 18. feb. — Þrír bátar fóru út í gærkvöldi, en veður var hart. Hafa bátarnir róið síðan samið var við sjó- mennina. Afli hefur verið all- sæmilegur, línubátar haft um 6 tonn. Netabátur einn, sem lagt hefur upp tvisvar hefur haft 7 og 8V2 tonn. Skarðsvík var að landa hérna og var með 13 tonn. Hingað var að koma nýtt skip, smíðað í Stálvík h.f. í Amar- nesi. Eigendur eru Útnes h.f. Skipstjóri verður Sævar Frið- þjófsson á Rifi. Þetta er 110 smá lesta stálbátur samkvæmt nýj- ustu mælingaregilum. Hann er að sjálfsögðu útbúinn öllum nýtízku siglingatækjum og útbúnaði. Bát urinn heitir Saxhamar og mun hafa kostað 14—16 milljónir. Hann fór í sinn fyrsta róður í kvöld. Fyrir helgina kom annar bátur hingað, keyptur af Kristófer Snæbjörnssyni, en sonur hans Gunnar Már verður skipstjóri á bátnum. Þessi bátur er 53 smá- lestir, nýuppbyggður og heitir Guðrún María. Hann hefur þeg- ar hafið róðra með línu. — Rögnvaldur. ÍS í STYKKISHÓLMI Stykkishólmi, 18. febr. Einn bátur er nú þegar tilbú- inn og mum fara út í kvöld eða fyrramálið. Vegn þess hve mik- ill ís er í höfninni og nágrenni Stykkishólms, er alls óvíst h/vort hann getur lagt upp afla í Stykk ishólmi og mun hann þá verða að leggja á land afla sinn í Rifi. Er þá hugmyndin að aka aflan- um til Stykkishólms um 80 km. leið. —• Frétitaritari. STÓÐ EKKI í NEINUM Hornafirði, 18. febr. Homafjarðarbátar fóru ekki út í nótt, enda ekki veður. í dag hafa þeir verið að skrá á bát- ana, og þeir verið að fara út. Fimm fara með línu, en 4 með troll og einn með net. Seinna bæt ast 2 bátar við. Ekki stóð á nein- um að fara út, allir voru búnir að fá nóg af biðinni. — Gunnar. AKRANESBÁTAR í ÚTILEGU OG Á LOÐNU Akranesi, 18. febr. Bátarnir eru að fara út í dag, en í gær var stormur og ekki róið. Stærri bátarnir fara með línu í útilegu og ísa fiskinn um borð og munu svo leggja bann upp hér til vinnslu, a.m.k. fyrst um sinn. En aðrir bátar fara með nót á loðnuveiðar. Minni bátarn ir róa daglega með línu. Sá bát- urinn, sem hefur mátt róa, hafði ÞO-12 síðast. — Július. FRYSTIHÚSID Á EYRAR- BAKKA BYRJAR AFTUR. Eyrarbakka, 18. febr. Frystihúsið hér hefur verið stopp í fimm mánuði vegna fjár hagsörðugleika, en nú er það að hefja starfrækslu á ný. Verður væntanlega byrjað á fyrstu vinnslu 'á morgun. Tveir bátar hafa þegar hafið róðra, annar með línu og hefur hann fengið 3—7 tonn í róðri. Annar hefur lagt net og veitt um 3 tonn . vitjun. Von er til að bátar hraðfrystistöðvarinnar getf hafið veiðar alveg á næst- unni, þannig að hér verða gerðir út 5 bátar í vetur, auk þess sem einn bátur mun leggja hér upp afla til vinnslu á Stokkseyri. Hér hefur verið heldur líflegt við höfnina, því nokkrir að komu bátar hafa lagt afla sinn hér á land, þó hann færi í vinnslu annars s’taðar. Sem kunnugt er, eru hér í gangi framkvæmdir við hafnargerð. Það sem þegar hefur verið gert lofar mjög góðu um að hér megi gera góða höfn. Það eru Eyrbekkingum hins vegar mikil vonbrigði, að ekkert fé fil hafnargerðar á Eyrarbakka hefur verið veitt á þessu ári. Að gefnu tilefni vil ég taka það fram, að frétt um kosningu í verkalýðs'félaginu er ekki frá mér komin. — Óskar AFLI ÞORLÁKSHAFNARBÁTA SÆMILEGUR ÞORLÁKSHÖFN, 18. febrúar. Bátarnir hér hafa ekkert stöðv- ast. þeir héldu áfram róðrum eft- ir að verkfallið var dæmt ólög- legt. Afli hefur verið sæmilegur. í gær var landlega, en nú eru allir bátar á sjó. — Franklin. - SJÖSTJARNAN Framhald af bls. 28 átt vfðskipti við hann. Hefur fyrirtæki hans á sér gott orð í hérlendum bönkum fyrir skilvís- ar greiðslur, og eins bvað Þor- steinn Gíslason, framkvæmda- stjóri Coldwater-verksmiðjanna, Mogelberg þykja áreiðanlegur kaupsýslumaður vestan hafs í umsögn sinni til SH um leyfis- veitinguna. Að sögn þeirra bræðra hljóðar samnimgur Mogelbergs við Sjö- stjörnuna um, að hann kaupir alla framleiðsluna fyrir hæsta fáanlegt verð á Bandaríkjamark- aði. Kváðust þeir búast við a’ð þessi samningur yrði til fram- búðar, og að fenginni reynslu í viðskiptum við Mogelberg með humar á tveimur undanförnum árum, sögðust þier líta björtum augum á framtíðina, þar sem hann hefði ætíð staðið við allar sínar skuldbindingar. Alls hefur Sjöstjarnan selt Mogelberig Foods SJÚKRABÍLAR Reykjavíkur- deildar Rauða krossins fóru í 7.879 sjúkraflutninga á síðasta ári, eða að jafnaði 21 ferð á dag. Á Rauðf krossinn nú fjóra bíla til sjúkraflutninga í Reykjavík og nágrenni og voru tveir þeirra keyptir nýir á síðasta ári. Slökkvistöð Reykjavíkur annast sem kunnugt er sjúkraflutning- ana. Nýlega eignaðist Reykjavíkur- um 70 tonn af humar þessi tvö ár. Einar gat þess t.d. áð í fyrra hefðu greiðsluerfiðleikar á fryst- um fiski valdið því, að frystihús Sjöstjörnunnar var engan vegin rekið með ful'lum afköstum, held ur hefði meiri áherzla verið lögð á saltfiskinn, en þeir bræður eiga söltunarstöð í Grindavík. Útflutningsleyfið hefur nú breytt viðhorfunum mjög. Ljóst er, að full afköst verða í frystihúsinu í Keflavík, og einnig hafa þeir bræ'ður tekið á leigu eina frysti- hiúsið í Ytri-Njarðvík, það hefur ekki verið starfrækt í nokkur ár. Loks verður söltunar stöðin í Grindavík rekin áfram fyrir hinn lakari fisk, þannig að í vetur er búist við að alls starfi um 140 manns hjá Sjö- stjörnunni. Kristinn kvaðst áætla, að frysti húsið muni geta sent vestur um 00—100 þúsund kassa af freð- fisk og humair á þessu ári. Svo er um hnútana búið, að engu maigni verður útskipáð fyrr en greiðs'lur eru bamnar til banik- anna. Kristinn sagði ennfremur, að helzta söksemd Sjöstjörnunn- ar fyrir því að fá útflutnings- leyfið, hefði verjð sú, að Mogel- berg hefði að öðrurn kosti að- eins þurft að leita til Kanada til að fá aukið magn fisks. Allri framlefðslu frystihússins verður pakkað í þrjár gerðir neytenda- umbúða, undir vörumerkínu Nordan, og varan þannig send fullunnin á Bandaríkjamarkað. Sjöstjarnan mun verða með um 10 báta á þessari vertíð, og í gær kváðust þeir bræður vona að bátarnir færu út þá um kvöldið. Ætti því vinna að geta hafizt í frystilhúsinu í Keflaivík á fimmitu dagsmorgun, en þann dag er bandaríski kaupandinn einmitt væntanlegur hingað tii lands til skrafs og ráðagerða við þá bræ'ð- ur. Radíóvinna og Ijósmyndaiðn hjá Æskulýðsráði EINS og undanfarna vetur efnir Æskulýðsráð Reykjavíkur til námskeiða fyrir unglinga í radio- vinnu og ljósmyndaiðju. Nám- skeiðin verða að Fríkirkjuvegi II Og hefjast næstu daga. Innritun og upplýsingar verða á skrifstofu Æskulýðsráðs, sími 15937, virka daga kl. 2—8 e. h. Hnppdræltisleyfi S.Í.B.S.íramlengt 'í FYRRADAG mæltj Magnús ’Jónsson, fjármálaráðherra fyrir stjórnarfrumvarpi um vöruhapp- dætti fyrir Samband íslenzkra 'berklasjúklinga. Miðar frumvarp ið að því að heimild S.Í.B.S. til að reka vöruhappdrætti verði framlengd í 10 ár, og gildi til árs loka 1979. í ræðu sinni ræddi ráðherra um hið mikla hlutrverk ér samtökin hefðu gegnt og gegndu, en fjárhagur þess hefur grundvallazt á tekjum af happ- drættinu. deildin sjúkrabifreið, sem nota má við erfiðar aðstæður, einkum þegar snjóþungt er og verður hún tekin £ notkun innan skamms. Hefur drifbíll, sem slökkvistöðin á verið notaður undanfarið við erfiðar aðstæður, en nú mun hinn nýi bill Rauða krossins leysa hann af hólmi, enda er bill Slökkvistöðvarinnar fyrst og fremst ætlaður til anh- ars. Flufftu að jafnaði 21 sjúkling ú dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.