Morgunblaðið - 20.02.1969, Blaðsíða 1
28 síður
42. tbl. 56. árg. FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins
„ENGAR FLUGVÉLAR
ARABA ÖRUGGAR
— meðan farþegaflugvélum ísraels er ógnað''
Ziiurich og Tiel Aviv, 19. feb.
—AP—NTB —
• Árás arabiskra ofbeldis-
manna á farþegaþotu frá fs-
rael á flugvellinum við Ziirich
í Sviss í gær, þriðjudag, hefur
vakið mikla gremju í ísrael og
viðar. Hófu ofbeldismennirnir,
fjórir karlar og ein kona, skot-
hríð á þotuna þegar hún var að
hefja flug, og særðust fjórir far
þegar og tveir menn úr áhöfn-
tnni. fsraelskur öryggisvörður,
sem var með þotunni, skaut einn
árásarmanninn til bana, en hin
voru handtekin.
• Ýmsir talsmenn rikisstjóma
vestrænna ríkja hafa skorað
á yfirvöld í ísrael að sýna still-
ingu og gripa ekki til hefndar-
ráðstafana, jafnframt þvi sem
þeir fordæma árásina. Stjómir
Arabarikjanna hafa hins vegar
fátt viljað um árásina segja.
• Heima í fsrael hafa flest dag-
blöð ráðizt harkalega á Ar-
aba vegna árásarinnar, og hvetja
mörg þeirra til hefnda. Segja
blöðin að Arabar muni misskilja
það ef ísraelsstjórn lætur ekki
hart mæta hörðu, því eina boð-
orðið, sem Arabar skilji sé auga
fyrir auga og tönn fyrir tönn.
• Lögreglan í Zúrich skýrði
frá því í dag að ofbeldis-
mennirair, sem handteknir vora
hafi sagzt koma frá Damaskus í
Sýrlandi, og að þeim hafi verið
fyrirskipað að eyðileggja flug-
vélina án þess að skaða farþeg-
ana.
Svissneska lögreglan segir að
ofbeldismennirnir hafi skýrt svo
frá að þeir hafi verið þjálfaðir í
skemmdarverkum í sérstökum
skæruliðabúðum í Jórdaníu.
Ekki er fyllilega ljóst hvenær
þeir komu til Sviss, en á einum
árásarmannanna fannst flugfar-
seðill frá Damaskus til Zurich
dagsettur 6. febrúar. Allir eyði-
lögðu skæruliðarnir vegabréf sín
eftir komuna til Sviss.
Vitað er að ofbeldismennirn-
ir voru á flugvellinum við Ziir-
ich fyrir viku, og við lá að þeir
yrðu handteknir við það tæki-
færi. Segir talsmaður lögreglunn
ar að einn af öryggisvörðum flug
vallarins hafi hringt til lögregl-
unnar 13. þéssa mánaðar og skýrt
frá fjórum grunsamlegum náung
um, sem fylgdust með flugtaki
þotu frá ísrael, Stóðu fjórmenn-
ingarnir á nákvæmlega sama
stað þá og ofbeldismennirnir
voru á í gær, þegar þeir skutu
á ísraelsku þotuna. Eitthvað
gekk erfiðlega að ná sambandi
við lögregluna, og þegar hún loks
kom á vettvang, voru náungarn-
ir fjórir farnir.
VIÐBRÖGÐ í ÍSRAEL
Viðbrögð í ísrael hafa að sjálf-
sögðu öll verið á einn veg, það
er að segja allir hafa fordæmt
árásina í Zúrich.
Moshe Carmel samgöngumála
ráðherra flutti Knesset (þing-
inu) skýrslu stjórnarinnar um
árásina í dag, og varaði um leið
stjórnir Arabaríkjanna og flug-
félög í Arabaríkjunum við því
að fsraelsmenn hefðu fullan sið
ferðislegan rétt til áð brjóta nið-
ur starfsemi skæruliða hvar sem
væri á flugleiðum þeirra. Sagði
ráðherrann að Arabar gerðu
sjálfum sér mestan greiða með
þvi að koma í veg fyrir frekari
árásir á farþegaflugvélar. Beindi
hann orðum sínum sérstaklega
til stjórnar Líbanons, og sagði
að yfirvöldum í Beirut bæri
skylda tiil að hreinsa til í hreiðr
um ræningjaflokka þar í landi.
HUGAÐUR ÖRYGGISVÖRÐUR
— bjargaði fífi farþega þotunnar
ÞEGAK skæruliðar Araba
hófu skothríð á farþegaþotuna
frá El Al flugfélaginu á flug-
vellinum í Zúrich á þriðjudag,
höfðu þeir komið sér fyrir við
snjóskafl hjá flugbrautinni.
Skutu þeir þaðan úr hríð-
skotabyssum sínum, og vörp
uðu handsprengjum og í-
kveikjusprengjum að þotunni.
Nam þotan staðar og stökk
þá maður út um dyr aftast á
þotunni, vopnaður skamm-
byssu. Segir talsmaður sviss-
nesku lögreglunnar að mað-
ur þessi hafi verið öryggis-
vörður í ísraelsku þotunni.
Þegar öryggisvörðurinn
kom út úr þotunni, skaut
hann að arabisku skæruliðun
um, og hæfði einn þeirra í
höfuðið. Beið sá þegar bana,
en svo kornu slökkviliðs-
menn flugvallarins á vettvang
og handtóku hina Arabana
þrjá. Segjast slökkviliðsmenn
irnir hafa neyðzt til að af-
vopna öryggisvörðinn, „því
annars hefði hann drepið alla
Arabana", eins og þeir kom-
ust að orði.
Bandaríski læknirinn Mar-
vin Bacaner var meðal far-
þega í ísraielsku þotunni og
fylgdist með atburðinum. „Ég
hef aldrei fyrr séð annað
eins hugirekki og þessi ungi
maður sýndi“, segir hann um
öryggisvörðinn, sem einn síns
liðs bauð fjórum skæruliðum,
vopnuðum hríðskotabyssum
og handsprengjum byrginn.
„Skotið var á flugvélina“, seg
iir Bacaner. „Svo sé ég þenn
an unga mann ganga aftur í
vélina. Brytinn opnaði fyrir
honum neyðarútgang, og mað
urinn renndi sér út. Gekk
hann áleiðis til skæruliðanna,
sem höfðu búið um sig í
skaflinum. Skæruliðarnir sáu
hann koma. Kom á þá fát,
en svo tóku þeir til fótanna.
Skaut vörðurinn einn þeirra
tii bana. Ef vörðurinn hefði
ekki burgðið svo fljótt við er
viðbúið að skæruliðunum
hefði tekist að sprengja flug
vélina í loft upp og alla, sem
í henni voru“ sagði læknir-
inn. Svissneska lögreglan gaf
í gær upp nafn öryggisvarðar
ins, sem enn er í haldi i Zúr
ich. Heitir hann Mordeohai
Ravhamim og er 22 ára.
Ræðu Carmels var beðið með
mikilli eftirvæntingu, því hann
varð fyrstur ráðherra ísraels-
stjómar til að saka yfirvöld í
Líbanon um ábyrgð á árás ana-
biskra skæruliða á farþegaþotu
frá E1 A1 á flugvelli við Aþenu
í desember sl. Leiddi sú árás til
þess að hermenn frá fsrael gerðu
árás á flugvöilinn við Beirut og
eyðilögðu þar 13 farþegaþotur
Araba.
Carmel sagði að fsraelsmenn
litu svo á að flugvélaránið í
Framhald á bls. 27
Brezka freigátan H.M.S. Exmouth er fyrsta skip brezka flotans,
sem knúið er gas-túrbínuhreyflum. Eru hreyflarnir smíðaðir hjá
Rolls Royce verksmiðjunum. Freigátan hefur verið á reynslusigl-
ingu á Norður-Atlantshafi að undanförnu til að reyna vélamar,
og hefur reynsluferðin gengið mjög vel.
Sovézk menntakona
dæmd fvrir „óhróður
1
Verðir fjarlœgðu blómvendi frá
vinum hennar
Moskvu, 19. febr. AP-NTB.
IRINA Belogorodskay,
sem er 29 ára gömul og
verkfræðingur að mennt,
var í dag dæmd til eins árs
vinnubúðarvistar, ákærð
fyrir að hafa dreift óhróðri
um Sovétríkin. Þegar hún
gekk út úr réttarsalnum
fleygðu vinir hennar til
en
hennar hlómvöndum,
verðir flýttu sér að fjar-
lægja blómin. Hún brosti
og veifaði til vina sinna.
Sagt er, að unigtfrú Belo-
gorodskaya verði ef til vill
ekki send í vinnuibúðir, þar
sem bún hefur verið í gæzlu-
varðhaldi síðan í ágúst í fyrra.
Dómstóllinn vísaði á bug
beiðni um ná'ðun. Lögfræðing
Gífurlegur Viðbúnaður
fyrir heimsókn Mixons
Sérstakar gœtur hafðar á ofstœkismönnum
London, 19. febrúar (AP).
GRIPIÐ hefur verið til mjög víð-
tækra varúðarráðstafana í þeim
sex löndum sem Richard Nixon
forseti heimsækir í Evrópuferð
sinni, bæði til þess að verja hann
gegn skipulögðum mótmælaað-
gerðum og ofstækisfullum ein-
staklingum. Hvarvetna hafa ver-
ið rannsakaðir staðir, þar sem
hugsanlegir tilræðismenn kunna
að hreiðra um sig, og gerðar hafa
veríð skrár um ofstækismenn,
sem líklegir era til alls.
Bandarískir leyniþjónustu-
menn hafa haft náið samstarf við
yfirvöld í London, Brússel, Bonn,
Vestur-Berlín og Róm til þess að
tryggja sem bezt öryggi forset-
ans. í London 'hafa herskáir and-
stæðingar Víetnams'stríðsins boð-
að „heitar móttökur" og fjöl-
mennar mótmælaaðgerðir. En
lögreglan verður við öllu búin,
og henni til aðstoðar verða banda
rískir leyniþjónustustarfsimenn,
sem hafa fengið sérstakt leyfi til
að bera skotvopn.
í París verður gripið til sömu
viðtæku varúðarráðstafanna og
viðhafðar eru þegar de Gaulle
forseti á í hlut. Fjölmennt lög-
reglulið verður á götunum, óein-
kenni'sklæddir lögreglumenn
verða í mannfjöldanum, sem fylg
ist með ferðum Nixons, aðrir lög
reglumenn koma sér Æyrir á hús-
þökum og bílalest Nixons mun
aka á miklum hraða. Komi til
einhverra átaka verður mann-
fjöldinn leystur upp og búast má
við að þá verði ekki beitt nein-
um vettlingatökum.
Belgar hafa fengið töluverða
reynslu í þvi að gæta öryggis
háttsettra stjórnm'álamanna.
enda eru þar höfuðstöðvar Efna
ur hennar hélt því fram í vam
arræðu sinni, að það eina sem
vaikað hefði fyrir sakbomingn
um hetfði verið að hjálpa
manni, sem lent hetfði í vand-
ræðum.
Ungfrú Belogorodskaya var
handtekin þar sem hún hafði
sikilið etftir í leiguibifreið flug-
rit, þar sem mótmælt var með
ferð sem annar menntamáður,
Anatoli Marchenko, hafði
sætt. Hann var handtekinn í
júlí fyrir að brjóta bann við
Framhald á hls. 27
hagsbandalagsins og Atlantshafs
bandalagsins. Við sérstök vanda-
mál verður að glíma í Bonn og
Vestur-Berlín vegna nábýlisins
við Austur-iÞjóðverja og návistar
herskárra vinstrisinnaðra stúd-
enta frá mörgum löndum er
stunda nám við vestur-þýzka há-
skóla. 13.000 einkennisklæddir
lögreglumenn verða til taks í
Vestur-Berlín etf á þarf að halda
auk bandarískra 'hermanna. Þó
er ekki búizt við að Austur-
Þjóðverjar reyni að koma af stað
vandræðum, þar sem Rússar
hafa venjulega hvatt þá til að
fara að öllu með gát þegar kunn-
Framhald á bls. 27
Ofbeldi gegn
Dubceksinnum
Prag, 19. febrúar (NT!B).
SAMTÖK manna sem börðust í
andspymuhreyfingunni í Tékkó-
slóvakíu á stríðsárunum hafa
sakað lögregluna um að veita
ekki borgurum vemd gegn of-
beldi Moskvusinna, að því er
tékkóslóvakísk blöð skýra frá í
dag.
Nýlega réðust tveir menn inn
á heimili eins félaga í samtökun-
um og misþyrmdu honum, þar
sem hann hefði opinberlega stutt
umbótastefnu Alexanders Dub-'
ceks. í yfirlýsingu tfrá samtökun-
um segir, að þessi atburður sé
ekkert einsdæmi, og harmað er
að lögreglan hafi ekki fylgt yfir-
lýsingum stjórnarinnar um að
enginn tékkóslóvakískur borgari
megi sæta ofsóknum vegna
stjórnmálaskoðana. .Samtökin
hafa ákveðið að bera málið upp
við ríkisstjórnina og formann
öryggismálanefndar þjóðþings-
ins.