Morgunblaðið - 20.02.1969, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 11909.
Vestmannaeyjar:
1000 tn
UM ÞÚSTJND tonn af loðnu bár-
ust á land í Vestmannaeyjum í
gær. Tíu bátar lönduðu loðnu,
sem þeir fengu á móts við Dyr-
hólaey, og var Jón Garðar GK
aflahæstur með 200 tonn. Hinir
voru: Þórður Jónasson EA, Höfr
ungur AK, Jörundur RE, Þor-
steinn RE, Haraldur AK, ísleif-
ur VE, ísleifur IV VE, Reykja-
borg RE og Gígja RE.
Afli línubáta frá Eyjum var
þetta frá 4 upp í 9 tonn en sjór
var alveg dauður 1 botnvörpuna.
★
Fjórtán línubátar voru á sjó
frá Keflavík í gær og voru 8
komnir að, þegar Morgunblaðið
frétti. Afli þeirra var frá 2 upp
af loðnu
í 4 Vi tonn en þeir reru með
gamla beitu.
★
Frá Sandgerði reru í gær 13
bátar og var afli línubáta frá 1,8
upp í 6,7 tonn. Um 30 bátar róa
frá Sandgerði í vetur.
★
Fimmtán bátar reru frá Grinda
vík í fyrradag og 22 í gær. Aflinn
á línu í fyrradag var frá 3%
tonni upp í 6,2, en í gær var atfla
hæsti línubáturinn með 10 tonn.
Afli trollbáta var sáralitilL
Þrír bátar frá Grindavík eru
búnir að leggja net og vitjaði
einn um í gær, en afli var lítill
sem enginn.
Gert er ráð fyrir, að um 40
bátar rói frá Grindavík í vetur.
Frá fundi Samstarfsnefndar í orkumálum 19. febrúar 1969. Talið frá vinstri; Steingrímur Her-
mannsson, Jakob Gíslason, Eiríkur Briem, Dr. Jóhannes Nordal, Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, Bjarni B. Jónsson, Knútur Otterstedt, Brynjólfur Ingólfsson, Árni Þ. Ámason.
Samstarfsnefnd í orkumálum
Borgarafundur um
mjólkursölumál
STJÓRN Heimdallar F.U.S. hef-
ur ákveðið að efna til almenns
borgarafundur um mjólkursölu-
mál miðvikudaginn 26. febrúar
kl. 20.30 í Sigtúni v/Austurvöll.
Á fundinum mun aðallega
verða fjallað um tilhögun dreif-
ingar mjólkurafurða, mjólkur-
umbúðamál og mjólkursölulög-
gjöfina. Framsögumenn á fund-
inum verða Björg Stefánsdóttir,
húsmóðir, Höskuldur Jónsson,
deildarstjóri, Sigurður Magnús-
son, framkv.stj. og Vignir Guð-
mundsson, blaðamaður.
Til fundarins hefur sérstak-
lega verið boðið stjórn og fram-
kvæmdastjóra Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík, Búnaðarþings
fulltrúum öllum, helztu forystu-
mönnum bændasamtakanna í
landinu svo og stjórn og með-
limum Húsmæðrafélags Reykja-
víkur.
Efni það, sem fjallað verður
um á fundinum, er brýn,t hags-
munamál vel flestra lands-
manna, jafnt bænda og neytenda
og vænta fundarboðendur, að ým
is mál, sem ekki hafa verið nægi
lega Ijós til þessa muni skýrast
verulega.
(Fréttatilkynning frá Heim-
dalli F.U.S.)
DBSD AÐ ÞREIFA SIG ÁFRAM
FLUTNINGASKIPIÐ Isborg
tilkynnti Veðurstofunni ki.
18 í gær, að á svæðinu frá norð
anverðum Bakkaflóa að Rauða-
núpum værj dreifður ís og ís-
spangir; 3/10 að þéttleika. Mik-
ið rek var á ísnum og urðu tog-
aramenn að þreifa sig áfram eft
ir vökum og spöngum.
Fyrir Norðurlandi voru í gær
stakir jakar víðast hvar og á
einstaka stað sást ísspöng. Frá
Harni bárust þaer fréttir að opið
svæði væri með landi í átt að
Kögri °g eins langt til suð-
austurs og séð varð. Mjóst var
svæðið 2-3 sjómílur norður af
Horni en breikkaði til austuæs.
Fundnr kjördæmnrnðs
Reykjnneskjördæmis
A LAUGARDAGINN kl. 2 hefst
aðalfundur kjördæmaráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör
dæmi. Verður fundurinn haldinn
í samkomuhúsinu í Grindavík,
og er þess fastlega vænzt að
kjömir fulltrúar mæti stundvís-
lega, en þeir aðalfulltrúar sem
ekki geta komið því við að mæta
eru beðnir að hafa samband við
formann þess félags eða full-
trúaráðs sem þeir eru fulltrúar
fyrir, svo hægt verði að boða
varamenn í þeirra stað.
Að loknum aðalfundastörfum
kjördæmaráðs mun Pétur Bene-
diktsson alþingismaður flytja
ræðu er fjallar um kjördæmaskip
un á íslandi.
Línuveiða-svæði
í Faxaflóa
Sjávarútvegsmálaráðuneytið
setti í gær auglýsingu um sér-
stök veiðisvæði fyrir línu í Faxa-
flóa og Breiðafirði.
Samkvæmt henni er skipum,
sem veiðar stunda með öðrum
veiðarfærum en línu, bannaðar
veiðar til 30. apríl 1969 í Faxa-
flóa á svæði, sem takmarkast af
línum, sem hugsast dregnar milli
eftirgreindra punkta:
Punktur 1.
Ennfremur er netaveiði bönn-
uð aílt árið í Breiðafirði innan
línu, sem hugsast dregin úr Skor
í Eyrarfjall við Grundarfjörð.
Auglýsing þessi er sett sam-
kvaamt lögum um vísindalega
verndun fiskimiða landgrunns-
ins og lögum um bann gegn ve:3
um með botnvörpu og flotvörpu
og öðlast hún þegar gildi.
64 gr. 28 mín. N 23 gr. 57 mín V.
2. 04 gr. 27 mín. N 24 gr. 43 mín V
3. 04 gr. 18 mín. N 24 gr. 43 mín V
4. @4 gr. 1® mín. N 24 gr. 23 mín V
EINS og kunnugt er hefur Ið-
þróunarráð starfað tvö síðustu
ár, en tilgangur Þess var að taka
við verkefni stóriðjunefndar og
vera iðnaðarmálaráðuneytinu til
styrktar í iðnþróunarmálum.
Hefur síðan komið í ljós, að
nauðsyn þykir til bera að sam-
ræma betur en áður starfskrafta
og vinnuáætlanir ýmissa þeirra
helztu stofnana, sem vinna að
áætlanagerð, sem er grundvöll-
ur að uppbyggingru á orkufrek-
um iðnaði. Eftir áramótin lagði
iðnaðarmálaráðherra fram í rík
isstjórninni tillögur, er stefna að
þessu marki.
Tillagan, sem var endanlega
samþykkt í ríkisstjórninni 4. fe-
brúar. er svohljóðandi:
„Stofnað sé til samstarfsnefnd
ar, sem hafi það höfuðmarkmið
að athuga möguleika til uppbygg
ingar á orkufrekum iðnaði og sé
að því stefnt að gera sem fyrst
SLYS í GÆR
KONA meiddist mikið, þegar
bíll, sem hún var í, valt út af
Reykjanesbraut, skammt norðan
við afleggjarann í Voga um miðj
an dag í gær. Konan var flutt í
sjúkrahúsið í Keflavík, en Morg
unblaðið gat ekki fengið nánari
upplýsingar í gærkvöldi um
meiðsl hennar eða líðan.
Óhappið varð með þeim hætti,
að ökumaður bílsins missti vald
á honum, þegar annar bíll ók
fram úr. Fór bíllinn nokkum
spöl eftir vegarbrúninni en
lenti svo út af og valt þar í urð.
Konan kastaðist við þetta út úr
bílnum. Böm voru í aftursæt-
inu o g mun eitt þeirra hafa
meiðzt smávegis, en hitt bamið
og ökumaður sluppu ómeidd
með öllu. Bíllinn skemmdist mik
ið.
Sigllirðingoi
AÐALFUNDUR Siglfirðinga-
félagsins er í kvöld í Þjóðleik-
hússkjallaranum og hefst klukk-
an 20.30.
Kortið sýnir bannsvæðin tvö,
úti fyrir Faxaflóa og innan línu
á Breiðafirði, sem dregin er úr
Skor í Eyrarfjali við Grundar-
fjörð.
áætlun, sem tæki til 10—20 ára.
Er þá aðeins við það miðað að
gera sér lauslega grein fyrir
hugsanlegum ramma fram-
kyæmda. sem hlyti að vera mjög
sveigjanlegur.
Gengið er út frá því, að hinn
eiginlegi kjarni iðnaðarmögu-
leika þjóðarinnar sé í sambandi
við nýtingu vatnsafla landsins
og varmaorku.
Iðnaðarmálaráðherra hafi með
höndum foTstöðu þessarar athug
unar, en eftirfarandi aðilar sam
vinnu um hana:
Iðnaðarmálaráðuneytið, Orku-
stofnun íslands, Landsvirkjun,
Laxárvirkjun, Efnahagsstofnun.
in, Rannsóknaráð ríkisins, Seðla
banki íslands.
Þeir ráðherrar. sem viðkom-
andi stofnanir heyra undir, til-
nefni menn í samstarfsnefndina,
sem síðan sé ákveðin eða sett á
laggirnar af ríkisstjórninni.
Nefnd'in sjálf setji sér starfs-
áætlun í upphafi og skal hún
sendast rikisstjórninni til athug
unar, Ríkisstjórninni sé gerð
grein fyrir framvindu mála jafn
óðum en meginatriði að ljúka
sem fyrst rammagerð þeirrar á-
ætlunar á þessu sviði, sem hægt
væri að hafa til viðmiðunar í
samningagerðum um iðnþróun á
grundvelli mikillar orkunotkun
ar á næstu árum“.
Framangreind samstarfsnefnd
er nú fullskipuð og hélf hún
sinn fyrsta fund í dag 19. febrú-
ar.
Eftirtaldir menn eiga sæti í
nefndinni:
JÓHANN HAFSTEIN iðn-
aðarmálaráðherra, formaður.
Bjarni Bragi Jónsson, skrifstofu-
stjóri, Efnahagsstofnunin, Eirík-
ur Briem, framkvæmdastjóri,
Landsvirkjun, Jakob Gíslason,
orkumálastjóri Orkustofnun, Dr.
Jóhannes Nordal, Seðlaibanka-
stjóri, Seðlabanki íslands, Knút-
ur Atterstedt, rafveitustjóri, Lax
árvirkjun, Steingrímur Her-
mannsson, framkvæmdastjóri,
Rannsóknaráð ríkisins.
Auk þess sitja fundi: Brynjólf-
ur Ingólfsson, deildarstjóri, Iðn-
aðarmálaráðuneytinu.
(Frá Iðnaðarmálaráðuneytinu)
Bohdan Wodiczko. Philip Jenkins.
Wodiczko stjórnar
Sinfóníuhljómsveitinnl
einleikari: Philip Jenkins
AÐRIR tónleikar síðara misseris
Sinfóniuhljómsveitar Islands
verffa í Háskólabíói í kvöld og
hefjast klukkan 20:45. Stjóm-
andi verffur Bohdan Wodiczko og
einleikari á tónleikunum brezki
píanóleikarinn Philip Jenkins.
Flutt verffa: Konsert fyrir þrjár
fifflur og strengjasveit eftir Viv-
aldi, Píanókonsert nr. 3 eftir
Beethoven, Sinfónía nr. 1 eftir
Hvdn og Galanta, dansar eftir
Kodaly.
Bahdan Wodiczko er nú aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm
sveitar útvarps og sjónvarps í
Katowice í Pöllandi og hefur
hann stjórnað þeirri hljómsveit
síðan hann fór héðan — eftir
þriggja ára starf.
Philip Jenkins er nú tónlistar-
kennari á Akureyri. Hann hefur
hlotið fjölda vi'ðurkenninga fyrir
píanóleik sinn, m.a. vann hann
1958 alþjóðakeppni ungra píanó-
leikara, sem stórblaðið „Daily
Mirrpr" gekkst fyrir og 1964
vann hann alþjóðakeppni píanó-
leikara um Harriet Cohen-verð-
launin og var veitt „Marjorie
Whyte Memorial Award". Jen-
kins hefur haldið fjölda tónleika
í mörgum löndum og hann var
einn þriggja stofnenda „Trio of
London.“ Þá hefur enkins leikið
inn á hljómplötur verk eftir
Chopin, Liszt, Braihms, Ravel og
Bach.