Morgunblaðið - 20.02.1969, Síða 8

Morgunblaðið - 20.02.1969, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1:069. • • Markús Orn Antonsson, tréttamaöur: FLUGVALLAMÁL Á fSLANDI Flugvallamál á íslandi, og þá einikum öryggismál á Keflavíkur flugvelli hafa nýlega verið til umræðu í Morgunblaðinu og frétt um sjónvarps. Það hlýtur vissu- lega að vekja álmenna athygli þegar einn helzti, elzti og reynd asti flugstjóri á íslandi gerir op- inberlega athugasemdir við þá meðferð, sem flugmál og sérstak lega öryggismál á íslenzkum flug völlum hafa hlotið hjá viðkom- andi yfirvöldum, — hverju sé á- bótavant og hversu álvarlegs eðl is hinir ýmsu annmarkar kunni að vera. Nú verður að játa að margt af því sem á var minnzt í grein um og viðtölum, þar sem þessi mál bar á górna,, er gvo sér- fræðilegs eðlis að almenna les- endur og hlustendur skortir tækniþekkingu til að geta gert séj- viðhlitandj grein fyrir einstökum atriðum málsins. Svo er um mig. Það er líka augljóst, að greinar Jóhann esar Snorrasonar, flugstjóra hafa fyrst og fremst verið skrifaðar til að hnekkja ummælum fliug- val'Iarstjórans á Keflavíkurflug velli um aðbúnað þar syðra. Öðr- um þræðk er um skoðanaskipti milli sérfræðinga að ræða, en með tilliti til þess að þau hafa farið fram á opinberum vett- vangi er eðlilegt að líta svo á, að Jóhannes Snorrason og Pét- ur Guðmundsson flugvallarstjóri hafi viljað ná til almennings í landinu, þar á meðal flugfarþeg anna, sem eiga í þessu tilviki enigu minni hagsmuna að gæta en flugáhafnirnar sjálfar. Mér finnst því sjálfsagt, að leikmenn, sem lesa og hlýða á rök þeirra, skýri líka frá sjónarmiðum sín- um, er mótazt hafa að einhverju eða öllu leyti af þeim upplýsing- um sem fram hafa komið um þessi mál að undanförnu. Vitað er, að erlendir flugmála sérfræðingar telja framfarir í smíði og búnaði flugvélanna sjálfra hafa orðið mun örari en í öryggismálum flugvalla. Þessj skoðun er ekki ný af nálinni. Hún rifjast upp fyrir mönnum þegar álys ber að höndum og fyrir skemmstu var enn á ný vakin athygli á tækni'egum vand kvæðum flugumferðarstjórnar í fréttum um flugslysin í San Fran sisco og Los Angeles, þegar þot ur frá Japan Airlines og SAS lentu í sjónum í aðflugi að flug- völlunum. Flugumferðarstjórar á svæðinu við New York hafa líka mjög skorinort sagt hug sinn allan um starfsski'Iyrði sín og þá augljósu hættu sem flugfarþeg- um sé búin ef ekki verði þegar í stað ráðin bót á flugstjórnar- málum þar vestra. Jóhannes Snorrason hefur lagt áherzlu á það í skrifum sínum, að véfengja staðhæfingar for- ráðamanna á Keflavíkurflugvelli um að völlurinn sé fyllilega sam- bærilegur við alþjóðlega flug- velli erlendis. En jafnframt hef- ur komið fram margvísleg gagn rýni á þær núverandi aðstæður í málum flugvallarins, sem flug- liðar og farþegar verða að una við. Lýtur hún að öryggi og ann arri aðstöðu og þjónustu á vell inum. Ég veit ekki, hvort samanburð ur við erlenda flugvelli getur talizt réttlætanlegur í þessu til- viki. Það hlýtur að vera rök- rétt ályktað, að miðað sé við þá flugvelli, sem íslenzkir flugliðar hafa helzt kynni af, eða nokkrar fjölförnustu flughafnir í Evrópu og Ameríku. Mér finnst því í fljótu bragði ekki firnum sæta þó að Heathrow flugvöllur við Lundúnir t.d. sé búinn fullkomn ari aðflugs- og lendingartækj- um en Keflavíkurflugv'llur. Kröfurnar um fullkomnustu og dýrustu öryggistæki hljóta að fara nokkuð eftir umferðarþung anum og hann hlýtur sem slík- ur að ráða hér nokkru um nauð- synina. Mér finnst tæplega raun hæft að bera saman aðstæður á urnýja flugflota sinn með véla Keflavíkurflugvelli annars veg- ar og hinum stærstu flugvöllum hins vegar, þar sem nokkrir tug ir flugvéla kunna að vera í bið- flugi í skýjaþykkni og umferð á flugvellinum svo gífurleg að starfsmenn hans telja hana geigvænlega. Eru flugum- sjónarmenn á Keflavíkurflugvelli eða flugmenn þeirrar skoðunar, að ástandinu þar sé hægt að líkja við það sem gerist á stærstu flugvöllum austan hafs og vest- an eins og erlendir flugstjórn- armenn hafa lýst því svo eftir- minnilega? Um þjónustu við farþega eða útbúnað flugstöðvarinnar sem slíkrar gilda tæpast nokkur við- urkennd alþjóðleg lögmál. Arki- tektar eiga í þeim efnum við mörg óleyst vandamál að glíma og reyndar má segja að ný til- raun sé gerð með hverri nýrri flugstöðvarbyggingu. Þær eru miðaðar við þörfina, — við það hversu afgreiðsluhættir þurfa að vera skjótir með tilliti til um- ferðar um hvern einstakan flug- völl. Eins og Marinó Jóhanns- son, flugumsjónarmaður bendir á í sinni grein hafa sums staðar verið smíðaðir færanlegir armar eða fálmarar sem teygja sig frá stöðvarbyggingum að dyrum flug véia á biðstæðum. Þannig er inn angengt um borð í vélarnar. Sums staðar eins og á Dulles flugvel'li í Washington eru vagn ar lika hafðir í förum milli stöðv arhúss og flugvélar. Þurfa far- þegar aldrei að fara undir bert loft á því ferðalagi. Á Kastrup kosti, sem. alls ekki getur at- hafnað sig á Reykjavíkurflugvell og hins vegar það stórvirki Flug félags ísiands að kaupa til milli landafkigs fullkomna þotu, sem ekki er þó leyft að fljúga með farþega til Reykjavíkurflugvall ar eða frá honum. Öll sú máls- meðferð hefur þótt nokkuð sér- stæð með tilliti til þeirrar heimildar sem Flugfélag.-menn þurftu að fá til skamms tíma vegna einstakra 'lendinga með farþega í Reykjavík, og í annan stað ef litið er til þess algjöra banns, sem lagt var við slíkum lendingum fyrir skemmstu og var byggt á niðurstöðum rannsókna á burðarþoli flugbrautar. Þó var vitað áður en þotan var keypt að veikir blettir voru á suður- og vesturendum flug- brautarinnar. Mun kosta á ann- an milljónatuginn að styrkja þá. Flugfélagsmenm hafa ekki get að fellt sig við þetta lendingar- bann í Reykjavík enda miðaðist val þeirra á Boeing þotunni við, að hún yrði gerð út frá Reykja víkurflugvelli. Jóhannes Snorra son er óánægður með þessi mála lok eins og aðrir samstarfsmenn hans og í ljósi þess er ekki ó- eðlilegt að skrif Jóhannesar um Keflavíkurflugvöll að undan- förnu verði skoðuð sem fram- háld þess mikla hita- og tilfinn- ingamáls. Jóhannes Snorrason hefur lýst yfir því áður, að á Reykjavíkur- flugvelli séu skilyrði til þotu- flugs í alla staði fullnægjandi. flugvelli eru smáarmar við nokkÞegar skrif hanis um Keflavík- vekja almenna athygli og skoðan ir hans verða teknar til greina fremur en álit leik- manna. Er það vel, að flug- stjóri skyldi segja frá reynslu sinni og áliti á málefnum flug- valla á íslandi. Það fer allt of lítið fyrir slíkri opinberri álits- gerð sérfræðinga á aðstæðum í landinu. Hún er einmitt til þess fallinn að vekja áhuga borgar- anna á ólíkum vandamálum, fá þá til að hugsa um eigin hags- munamál, sem kannski væri látið ógert ella. Hún getur líka ráðið miklu um fastmótun skoðana hins álmenna lesanda á umtalsefninu. Af skrifum kunnáttumanna um íslenzk flugmál hef ég ráðið, að stóraukna fjárveitingu þurfi til þess að verða við kröfum og ósk um þeirra, sem að flugmálum á íslandi starfa. En í íslenzkum flugmálum eins og öðru efni verður eflaust að leitast við að gæta ráðdeildar og hagræðingar. Benda ekki ummæli flugmálasér- fræðinganna til þess, að með nauman fjárhag þessarar fá- mennu þjóðar í huga sé okk- ur tæpast annars úrkosta en að takmarka nokkuð umsvif- in í flugvallarmálum og ein- beita okkur fremur að því að ná viðunandi árangri á færri stöðum? Keflavíkurflug- völlur er millilandaflugvöllur okkar og þar lenda flugvélar Loftleiða og erlendra flugfélaga sem engan veginn gætu athafnað sig í Reykjavík. Flugvélar ti'l inn anlandsferða og bæjarflugs flug nema eru þó enn gerðar út frá Reykjavíkurflugvelli. Bera skrif flugmálasérfræðinganna það ekki Markús Örn Antonsson. miðbænum í Reykjavík. Það er óneitanlega þægilegt að bregða sér upp í flugvé’l rétt við bæjardyrnar eins og nú gerist í innanlandsfluginu. En frá þjóðhagslegu sjónarmiði er það að lifa um efni fram. Það kostar þjóðina milljóna útgjöld vegna viðhalds og nauðsynlegra/r starfsemi á flugvellinum, sam- tímis því að milli'landaflugvöll- urinn í Keflavík er stórlega van ræktur að mati fróðra manna. Við höfum í þessum efnum bú- ið við óvenjumikil þægindi, er óvíða þekkjast. Mörgum kann að vaxa það í augum að aka til Keflavíkur á 45 mínútum til að faira í jafnlanga flugferð til Ak ureyrar. En svo er til dæmis í Kaupmannahöfn, að farþegar, er ætla að fljúga í 15 mínútur yf- ir sundið til Málmeyjar, þurfa að aka í 20 mínútur frá miðborg Kaupmannahafnar út á flugvöll, og í innanlandsflugi í Bretlandi er um að ræða klukkustundar akstur í bíl eða klukkustundar Við flugstöðina á Keflavíkurflug velli. ur útgönguhlið en farþegar ís- lenzku flugfélaganna að minnsta kosti verða að láta sér lynda að þramma óravegalengdir um langa ganga til að komast út á stæði og upp í flugvél. Finnst mörg- um nóg um þessar gönguferðir sem eðlilegt er. Af umhyggju við farþega leitast forráðamenn flugstöðvarinnar í Kastrup við að taka af mönnum þetta erfiði með því að hafa hlaupahjól til taks á göngunum. í sumum öðr- um flugstöðvum geta farþegar brugðið sér upp á hraðgeng færi bönd og gengið með ógnarhraða út þessa ranghala. Á Keflavík- urflugvelli kvarta menn undan óblíðri veðráttu á leið út til flugvélanna, í öðrum fflugstöðv- um eru það önnur atriði, — þrengsli í biðsölum, ónóg bíla- stæði eða seinagangur í afgreiðsl unni, sem farþegar telja ábóta- vant. Það virðist því ekki hafa fund izt nein algild lausn á vanda- málum farþegaþjónustu á flug- völlum. Hún kann ef til vill að vera í sjónmáli, það veit ég ekki, en sem stendur sýnast mér fram kvæmdir sniðnar eftir efnum og ástæðum á hverjum stað. Framtíðarskipan flugvallar- mála á Reykjavíkursvæðinu er erun óráðin og vekur það óneit- anlega furðu manna, hve allt virðist enn á huldu í þeim efn- um og hversu trauðla gengur að taka endanlega ákvörðun um þau mál. Tilefni hafa sannarlega gefizt til endanlegs úrskurðar og á ég þar við breytt viðhorf, þegar Loftleiðir ákváðu að end- urflugvöl'l eru höfð í huga, hlýt ur hjá hinum almenna lesanda að vakna áhugi á að fá samanburð á öryggis- og þjónustumálum á þessum tveimur völlum. Er að- staða sem fyrir hendi er á Reykja víkurflugvelli slík, að flugliðar, fiugval'larstarfsmenn og almenn ir farþegar megi vel við una? Eru öryggisbúnaður og önnur skilyrði til lendingar og flug- taks á þeirri einu flugbraut í Reykjavik, sem hæfir þotunni, verri, jafngóð eða betri en á brautum Keflavíkurflugvallar? Eða eru skilyrði í Reykjavík nógu góð og þá ef til vill á Keflavíkurflugvelli líka? Alla vega sýnist leikmönnum minna fara fyrir lendingartækjum í Reykjavík en við Keflavíkur- flugvöll og vart er veðursæ'ld- in svo mikil við höfuðborgina að þau teljist með öllu óþörf. Með fullri virðingu fyrir af- greiðsluháttum Flugfélags fs- lands á Reykjavíkurflugvel’li þá dylst engum, að þar er oft ó- þægilega þröngt á þingi á anna- tíma innanlandsflugsins, hvað þá ef allir farþegar í millilanda- fluginu væru afgreiddir þar sam tímis. Það hefur verið sagt ó- sköp einfalt að hefja þotuflug frá Reykjavíkurflugvelli, en mig grunar þó, að ekki liði á löngu þar til háværar kröfur heyrð- ust úr ýmsum áttum um bráð- nauðsynlegar en kostnaðarsam- ar framkvæmdir Flugfélagsins og hins opinbera á vellinum. Ég veit að skrif kunnáttu- manna eins og Jóhannesar Snorra sonar um Keflavíkurflugvöll með sér, að íslendingar hafi ekki ráð á því að halda opnum tveim flugvöllum á jafnlitlu svæði og hér við Faxaflóann? í þessu efni getum við ekki til frambúðar treyst á persónulega vináttu flugmálastjóra íslands og flugmálastjóra Bandaríkjanna og gjafmildi hins s'íðarnefnda. Eftir lestur blaðagreinanna um flug- vallarmálin hef ég komizt að þeirri niðurstöðu, að allt innan- landsflug verði að flytja til Keflavíkurflugvalar og 'leggja Reykjavíkurflugvöll þar með nið ur. Það er ekki til neins að bíða endanlegrar ákvörðunar um byggingu nýs flugvallar á Álfta- nesi fyrir innanlandsflugið. Fram tíðaráform í þeim efnum virð- ast mjög óljós og stórframkvæmd ir á Á'lftanesi eða annars stað- ar í nágrenni höfuðborgarinnar á næstu árum fyrir þúsund millj- ónir eru óhugsandi. Nú virðist einnig stöðugt vera þrengt að Reykjavíkurflugvelli. Flugmála- yfirvöldin grípa til sérstakra ráðstafana vegna stórbygg- inga, sem rísa í nágrenni vódlar ins. Framtíð hans virðist því býsna tvísýn. Sem hetur fer hafa ekki orðið hin síðari ár slys á íbúum þeirra borgarhverfa, sem næst liggja flugvel'linum, vegna óhappa í flugi. Það hafa hins vegar orðið slys og óhöpp á flugvellinum sjálfum og ég leyfi mér að fullyrða, að með tilliti til þess hvernig málin standa nú, yrði framtíð Reykjavíkur- flugvallar í mikilli óvissu ef flug vél, smá eða stór, ylli slysi á fólki eða tjóni á mannvirkjum í lestarferð á flugvellina við Lund únir. Mér finnst engan yeginn raunhæft að gera ráð fyrir því að eitthvert ákveðið hlutfáll flug tíma milli staða og vegalengdar á fflugvöll höfuðborgarsvæðisins geti haldist hér á íslandi, jafn- vel þó að reynslan sanni, að landsmenn fljúgi hlutfal'lslega meira en aðrar þjóðir. Flugtím- inin styttist og að mínu viti krefjast aðstæður í landinu þess, að vegalengdin á flugvölll leng- ist. Það hafa orðið framfarir i flugsamgöngum innanlands síð- ustu árin. Á það skal hins veg- ar bent, að margir landsmenn kunina að hafa kvartað yfir lak- ari þjónustu um leið og flug- vélakosturinn fór batnandi og ör yggi fór vaxandi. Fyrir 15 árum eða svo hélt Flugfélag fslands uppi föstum áætlunarferðum til rúmlega 20 staða á íslandi, nú eru þeir 12 eða 13. Þá var flog- ið reglulega á flugvélli á Hellis- sandi, hjá Akri í Húnavatns- sýslu, á Hellu og á Skógasand og sjóflugvélar lentu hjá Flat- eyri, Þingeyri, Hólmavík og Siglu firði. Þó að viðkomustaðirnir séu færri hefur enginn haldið því fram að um afturför hafi verið að ræða. Endurnýjun flugvéla- kosts og aukin hagræðing til að treysta _ rekstrargrundvöll Flug- félags íslands gerði það nauð- synlegt að fækka lenrlingarstöð um. Og ég hugsa. að Flateyring- ar og Þingevringar hafi fullan skilning á því. þegar þeir aka Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.