Morgunblaðið - 20.02.1969, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.02.1969, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1069. íslénzkur kvenfatnaður kynntur erlendis 10 fyrirtæki taka þátt í vörusýningu Lopapeysur frá Peysunni. TÍU íslenzkir fataframleið- endur munu nú í fyrsta sinn taka þátt í kaupstefnunni Fashion Week í Bella Centret í Kaupmannahöfn, sem þar verður haldin í marzmánuði nk. Samkeppnisaðstaða þess- arar iðngreinar hérlendis hef- ur nú batnað verulega, og því hafa forstöðumenn fyrirtaekja á þessu sviði mikinn hug á því að reyna að vinna vörum sín- um markaði erlendis. Kaup- stefnan í Kaupmannahöfn er liður í þessari tilraun. Morgunblaðið ræddi við forstöðumenn þessara tíu fyr- irtækja, og fékk hjá þeim upplýsingar um vörur þær, sem fyrirtækin ætla að kynna á þessari norrænu tízkuviku. Fjrrirtækin eru: Ullarverk- smiðjurnar. Hekla og Iðunn, Álafoss, prjónastofa önnu Þórðardóttur, Margrét Árna- dóttir, Peysan, Belgjagerðin, verksmiðjan Dúkur, Barna- fatagerðin og Model Magasín. Hér á eftir fara viðtöl við forstöðumenn þessara fyrir- tækja: GÆRUÚLPUR OG LEÐURJAKKAR Fyrst lögðum við leið okk- ar 1 Belgjagerðina, þar sem við hittum að máli Árna Jónsson, fulltrúa. Við spurð- um hann hvaða vörur Belgja- gerðin hyggðist sýna á þessari kaupstefnu. — Við leggjium höfuð- áherzlu á að sýna þarna í Kaupmannahöfn vörur, sem unnar eru að mestu leyti úr íslenzku hráefni. — Hvaða vörur eru það helzt? — Fyrst og fremst eru það gæruskinnsúlpur, bæði fyrir karla og konur, þá leðurjakk- ar úr íslenzku skinni og loks kerrupokar. Allt eru þetta vörur, sem við erum búnir að vera með í framleiðslu milli 20 og 30 ár, og gæruúlpurnar höfum við flutt út í nokkur ár. — Er þetta í fyrsta s'kipti, sem Belgjagerðin sýnir vörur sínar á erlendri kaups’tefnu? — Nei, tvívegis áður höfum við kynnt framleiðslu okkar erlendis. Fyrir nokkrum ár- um sýndum við á kaupstefnu í Brússel, og á síðasta ári tók- um við þátt í norrænni viku í Leipzig, sem fór svipað fram og ítalska vikan hér í fyrra — Sölumaður frá Belgjajgerðinni meðgæruúipu og kerrupoka. Margrét Ámadóttir með slá i íslenzku sauðalitunum. Kvendragt frá verksmiðjunni Dúk. þar sem framleiðsla ýmissa fyrirtækja var sýnd í búðar- gluggum. — Hefur þú trú á, Árni, að það hafi raunhæfa þýðingu fyrir íslenzka iðnrekendur að taka þátt í slíkum kaups'tefn- um erlendis? — Já, tvímælalaust. Okkar álit er, að við náum aldrei utanlandsviðskiptum n e m a með mikilli kynningarstarf- semi á framleiðslu íslenzks iðnaðar. í>ó hef ég ekki trú á, að okkur takizt að vinna okk- ur sess á erlendum mörkuð- um nema með vörur úr ís- lenzku hráefni, eins og ull og skinni. PEYSUR í SAUÐALITUNUM Prjónastofan Peysan hefur verið starfrækt í 27 ár. For- stöðukona hennar er Soffía Vilhjálmsdóttir, og fengum við hana til að segja frá þeim vörum, er Peysan ætlar að sýna. — Eins og nafn fyrirtæk- isins bendir til erum við nær eingöngu í peysuframleiðslu, efndi til hér meðal tízku- teiknara. Við erum nú rétt um það bil að hefja fram- leiðs’lu á þeim, og vonum að þeir muni líka vel. SLÁR f ÍSLENZKU SAUÐAUTUNUM Margrét Árnadóttir hefur í nokkur ár fengizt við að gera flíkur úr íslenzkri ull, sem ýmsar minjavöruverzlanir hér hafa haft hér á boðstólum fyrir ferðamenn. Á kaupstefn- unni í Danmörku mun hún sýna slá í íslenzku sauðalit- unum sem hún kveðst nýlega hafa hafið framleiðslu á. — Ef ég man rétt, þá eru um 6—7 ár frá því að ég fór að gera flíkur úr íslenzkri ull að ráði, og ég hef haft alveg s’érstaka ánægju af því að skapa úr íslenzku sauðalitun- um. Ég fór smátt af stað, en nú hef ég um 20 konur sem vinna við þetta, tjáði Margrét okkur. og peysur eru það sem við munum sýna á norrænu tízku- vikunni. f>að verða væntan- lega tvær til þrjár gerðir í íslenzku sauðalitunum. — Hefur Peysan áður átt vörur á kaupstefnum erlend- is? — Nei, við höfum ekki sýnt áður erlendis. Á hinn bóginn höfum við nýlega byrjað á því að selja smá- vegis til útlanda — Banda- ríkjanna og Danmerkur, en það er svo ný tii komið, að varla getur heitið að farnar séu út nema prufur. PEYSUR ÚR ERLENDU HRÁEFNI Þessu næst hittum við að máli Hörð Sveinsson, sem rekur prjónastofu Önnu Þórð- aTdóttur. — Fyrst og fremst verða það peysur, sem við ætlum að sýna þarna í Kaupmanna- höfn — sennilega 3—4 teg- undir. Þær eru unnar úr akrilþræði, en framleiðslan ber nafnið Odelon. Við höf.um ekki farið út í framleiðslu á íslenzkri ull. — Hafið þið ekki sýnt vör- ur erlendis áður? — Nei, við höfum aldrei kynnt vörur okkar erlendis fyrr en nú enda þótt fyrir- tækið eigi bráðum 30 ára reynslu að baki á þessu sviði. Þetta er því á algjör.u byrj- unarstigi hjá okkur, en ég er sannfærður um, að hægt er að framleiða hér fyrir út- lendan markað úr erlendum hráefnum. Mestu máli skiptir hvernig til tekst með módelið, — hvort varan nær sölu eða ekki. — En verðið þið með fleira á boðstólum en peysur? — Já, ég geri ráð fyrir, að við verðum þarna einnig með skjólkraga á kápur úr ís- lenzkri gæru. Þessi skjólkragi er árangur af samkeppni, er Peysa úr akril-þræði frá Jrjó Félag íslenzkra iðnrekendanastofu Önnu Þórðardóttur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.