Morgunblaðið - 20.02.1969, Page 15

Morgunblaðið - 20.02.1969, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 20. FEBRÚAR 1969. 15 Skipulagsmál byggingariönaðarins þarf að færa í betra horf — stœkka þarf rekstrareindirnar — framkvœmdanefnd byggingaáœtlana virðast hafa misskilið hlutverk sitt — viðtal við Otto Schopka, fram- kvœmdastjóra FYRIR skömmu flutti Otto Sch- opka, framkvæmdastjóri, athyglis vert erindi um skipulagsmál bygg ingariðnaðarins á fundi í Rot- aryklúbbi Reykjavíkur. f erindi sínu gerði Otto að umtalsefni þróun byggingariðnaðarins und- anfarin ár, svo og hvort breyt- inga væri þörf og hvaða leiðir kæmu þá helzt til gr-eina. Mbl. leitaði til Ottós og fékk hann til að svara nokkrum spurn ingum um þessi mál, og fcr við- talið hér á eftir. MESTA FRAMKVÆMDASKEIÐ IÐNGREINARINNAR — Nú hefur á undanförnum árum verið mjög ör vöxtur í byggingariðnaðinum? — Það má segja, að vöxtur byggingariðnaðarins hafi verið stöðugur frá árinu 1961. Orsak- irnar eru öllum kunnar, þær eru fyrst og fremst sú hagstæða tekjuþróun, sem hér varð á þessu tímabili til ársins 1966 og um leið síbatnandi fyrirgreiðsla íbúða- lánakerfisins, sem hefur náð að fleyta vaxtarskeiði byggingar- iðnaðarins fram á árið 1968, eða tveimur árum lengur en hins al- menna tekjuauba naut við. En um leið naut byggingariðnaður- inin góðs af öðru og sumu leyti athyglisverðu fyrirbæri. Aukn- ing eftirspurnar eftir íbúðarhús- næði jókst mjög hratt í byrjun velgengisáranna og miklu örar en byggingariðnaðurinn gat auk ið afköst sín og þar með fram- boð. Þetta leiddi til verulegra verðhækkana á íbúðarhúsnæði, verðhækkana, sem voru miklu ör ari en aðrar verðlagshækkanir, og gerðu íbúðarhúsnæði að enn girnilegri eign en ella. Þetta varð til þess að fjármagn ieitaði í byggingariðnaðinn meira en áð- ur og þannig magnaðist innan byggingariðnaðarins. Kapphlaup milli eftirspurnar og framboðs á íbúðarhúsnæði, sem gat af sér mesta framkvæmdaskeið innan þessarar iðngreinar, sem um get ur. Á sama tíma voru gerð stór átök í lánamálum húsbyggjenda og Byggingarsjóði útvegað stór- aukið fjármagn, sem þegar var beint til byggingariðnaðarins. EðLILEG EFTIRSPURN — En nú hefur eftirspurnin minkað? — Á árinu 1967 fór að gæta samdráttar í sparif jármyndun og bankarnir urðu að draga úr út- lánaaukningu sinni. Það hafði óhjákvæmilega áhrif á verðlags- þróunina í byggingariðnaðinum, auk þess sem almenn minnkun kaupgetu hafði sín áhrif. Það má því segja að nú sé að mestu horfin sú eftirspum, sem átti rætur að rekja til þess, að fjár- magnseigendur vildu festa fé sitt í húsnæði í von um verðhækk- unarágóða. í næstu framtíð mun eftirspurn vera sem svarar til eðlilegrar fólks- og fjölskyldu- aukningar og endurnýjunar á húsnæði sem tekið er úr notk- un. En eitt veigamesta atriðið sem kemur til með að hafa á- hrif á þessa eftirspurn, er frammistaða húsnæðismálalána- kerfisins. LENGRI VINNUTÍMI — Hvaða áhrif hafði hin aukna eftirspurn á íbúðarhúsnæði, auk verðhækkanna? — Afkastageta byggingariðnað arins varð fljótlega fullnýtt þeg ar hinnar öru eftirspurnaraukn- ingar varð vart í byrjuin vel- gengnisáranna og byggingariðn- aðurinn reyndi að sjálfsögðu að færa sér eftirspurnaraukninguna í nyt eftir föngum og auka af- köstin eins og hægt var. Ein það varð ekki gert þegar í stað nema með aðgerðum, sem óhjá- kvæmilega höfðu í för með sér hækkun ýmissa, kostnaðarliða. Þnanig lengdist t.d. vinnutíminn leitað var eftir auknu vinnuafli til annarra atvinnugreina, en spenna var mikil fyrir á vinnu- markaðinuim og leiddi þetta af sér tölluvert launaskrið og ýtti undir frekari kaupkröfur. Fljót- lega bar einnig á skorti á fag- lærðu vinnuafU í einstökum iðn- greinum, en þeim skorti var fyrst og fremst mætt með lengingu vinnutíma. Akvæðisvinna leiðir til AFKASTAAUKNINGAR — Telur þú að ákvæðisvinnu- all fjölmennra stétta launþega. sem ef að líkum lætur, munu ekki láta taka það af sér þegj- andi og hljóðalaust, sem þær hafa náð með langri og oft erf- iðri baráttu. Og það má líka bæta því við, að sú skoðun, að uppmælingartextarnir séu ein- göngu af því illia, fær ekki stað- izt í meginiatriðum. Það er t.d. ekki vafamál, að ákvæðisvinna leiðir til afkastaaukningar og sennilega hafa taxtarnir átt drjúg an þátt í því að byggingariðnað- urinn gat afkastað öllu því, sem af honum var krafÍ2!t á árunum 1962—1967. Þegar unnið er sam- kvæmt taxta, er ekki greitt fyrir aðra vinnu en þá, sem er af hendi leyst, en sé greitt tíma- kaup eða vikukaup er greitt fyr ir liðinn tíma og þá geta af- köstin sjálf verið með ýmsu móti og hvert unnið verk orðið miklu dýrara en ef það er unnið í ákvæðisvinnu. Auðvitað eru á- væðisvinnutextarnir misjafnlega vel uppbyggðir, en iðnaðarmenn hafa vissulega haft talsvert að- hald í mörgum tilvikum, þar sem yfir vofir sú hætta, að þeir verð leggi vinnu sína of hátt og hús- byggendur — með aðstoð arki- tekta og verkfræðinga — reyna að finna aðrar leiðir til þess að komast hjá því að nota vinnu iðnaðarmannanna. MARGIR SMAIR AðlLAR — En hafa ekki skipulagsmál arar þróunar? — Hama te'l ég að sé að finna í fyrirkomulagi lóðaúthlutunar- innar. Miðað við hana hefur sá rekstur verið hagkvæmastur frá sjónarmiði byggingarmeistaranna sem minnstan fastakostnað hefur haft í för með sér. Með fyrir- komulaginu voru byggimgameist ararnir sviptir allri hvöt til þess að taka tæknina í sína þjónustu, því að aukin tækni þýðir óhjá- kvæmilega aukna fjárfestingu og um leið aukinn fastakostnað. Enginn byggingameistari óg ekk ert byggingarfyrirtæki telur sér hagkvæmt áð leggja í mikla fjár festiingu, sem mjög tvísýnt er, að hægt verði að nýta að mokkru marki. Allan stofnkostnað við sérhverja byggingarframkvæmd hefur þurft að afskrifa að fullu um leið og byggimgin hefur ver- ið reist. Til þess að draga úr byggingarkostnaði hafa bygging armeistararnir því leitast við að hafa allan stofnkostnað í lág- marki. Afleiðingin af þessari starfsaðstöðu hefur því einfald- lega orðið fjölmargir litlar rekstr areindir með takmarkaða getu og takmarkaðan áhuga á að auka og færa út reksturinn. Lóðaúthlutanir hafa jafnan ver ið stopular, og það hefur þótt hlýða að láta hvern sem er fá byggingarlóð, meðan þær entust — þeir sem hafa lífsframfæri af að framleiða íbúðir og íbúðar- hús hafla alls ekki verið látnir sitja fyrir. Ég tel það fásinnu að smala saman 6—8 ólíkum ein staklingum og úthluta þeim lóð uindir stigahús og láta þá um að koma sér upp þaki yfir höfuð ið. Húsbyggingar eiga ekki að vera tómstundagaman heimilis- feðra úr öllum stéttum þjóðfé- Byggingaframkvæmdir framkvæmdanefndarinnar í Breiðholti hafa ekki borið tilætlaðan árangur. * taxti iðnaðarmanna hafi átt s'inn þátt í háum byggingarkostnaði? — í umræðum um málefni bygg ingariðnaðarins var oftast rætt um orsakir hækfeunar húsnæðis- kostnaðar og þá jafnframt leiðir til lækkunar. Mönnum hættir mjög til þess að einfalda málin fyrir sér og svo fór líka í þess um umræðum. Athyglin beindist mjög að þætti byggingariðnaðar manna og varð það almenn skoð un, að hinn hái byggingarkostn aður væri annars vegar sprott- inn af óraunhæfum og ósann- gjörnum uppmælingatöxtum, en hins vegar af ríkjandi skipulagi eða skipulagsleysi í byggingar- iðnaðinum, þ.e. starfsemi um eða yfir 300 sjálfstæðra byggingar- meistara hér í Reykjavík og ann ars eins fjölda af meisturum í öðrum greinum byggingariðnaðar ins, þ.e. málara, rafverktaka og pípulagningamanna. Að því hlaut því að koma að reynt yrði að gera atlögu að þess um tveim þáttum, sem taldir voru bera svo mikla ábyrgð á hækkun húsnæðiskostn. Atlaga að sjálfum uppmælimgatöxtunum hefur að vísu ekki verið gerð ennþá og vel getur svo farið að hún verði aldrei gerð í neinni alvöru. Til þess liggja ýmsar ástæður, t.d. sú að hér er um að ræða hefðhelgaða bagsmuni byggingariðnaðarins staðið hon- um fyrir þrifum? — Að vissu leyti má segja það. Mörgum byggingariðnaðar- mönmum hefur lengi verið ljóst, að þörf væri á að hér risu upp stór byggingarfyrirtæki, sem að væru fær um að taka að sér meiri háttar verkframkvæmdir og stunda byggingarstafsemi á þann hátt, að hægt væri að beita meiri tækni og hagræðingu en hér hafa náð fótfestu. Það er skemmst frá því að segja, að slík fyrirtæki hafa ekki náð að vaxa hér á landi, svo nokkru nemi. Segja má, að aðeins eitt fyrirtæki, sem starfar á innlend- um markaði, sé sæmilega stórt, en það fyrirtæki hefur eingöngu fengist við opinberar framkvæmd lagsins. Það er ekki leiðin til að betrumbæta skipulagsmál byggingariðnaðarins, eða lækka byggingarkostnaðinn. STARFSEMI FRAMKVÆMD- ARNEFNDAR BYGGINGAA- ÆTLAN HEFUR ENGAN VANDA LEYST — Hefur ekki orðið breyting á þessu með byggingarfram kvæmdum hins opinbera í Breið- holtshverfinu? — Með byggingaráætluninni mun hafa átt að sýna í eitt skipti fyrir öll, að hinn hái byggingar kostniaður væri fyrst og fremst sök skipulags eða skipulagsleys- is í byggingariðniaðinum og ætti rætur að rekja til hinna mörgu ir en hefur ekki fengist við smáu «*strareinda. Þar sem íbúðarhúsabyggingar. Önnur fyr irtæki í byggingariðnaðinum, sem hafa aðallega fengist við íbúðar byggingar og hafa náð einhverri verulegri stærð, hafa venjulega orðið að draga saman seglin eft- ir nokkurt árabil, vegna stop- ulla verkefna. Ymsir bygginga- meistarar hafa oft haft allveru- lega umfangsmikinn rekstur, en það hefur einnig verið breyt- ingum undirorpið. GALLAð FYRIRKOMULAG LÓðAÚTHLUTUNAR — Hver er meginorsök þess- ekkert fyrirtæki var til, sem var nægilega stórt til þess að geta tekið að sér 1. áfanga áætlun- arinmar, byggimgu 300 íbúða, var slíkt fyrirtæki búið til og samið við það um framkvæmdir. Það er staðreynd að starfsemi þessarar framkvæmdar mun ekki leysa þann vanda, sem mesta þörf er þó á að leysa, — að koma skipulagsmálum byggingar iðnaðarins í það horf, að hann verði fær um að fram'leiða nægi- lega margar íbúðir á hverjum tíma með hóflegum kostnaði Byggingaráætlunin sem slík Otto Schopka, framkvæmdastj. hefði áreiðamlega getað leitt til bættrar skipulagslegrar upp- byggingar og hugmyndin, sem lá að baki henni er lofsverð út af fyrir sig. En framkvæmdanefnd- in virðist hafa misskilið verk- efni sitt og kosið að gerast sjálf framkvæmdaraðili i byggingar- iðnaðinum — en ekki verður séð að nein þörf hafi verið á því, og má leiða að því rök, að serani iiega hefði verið hagkvæmara fyr ir hana að láta aðra aðila um allar framkvæmdir. Sú stað- reynd, að framkvæmdanefndin hyggst bjóða út verkframkvæmd ir á breiðari grundvellli en áður við næstu áfanga verksins, gef- ur vissulega til kynna að búizt sé við betri árangri á þann hátt. Ég tel, að framkvæmdanefnd- in hefði getað náð jákvæðari árangri eftir öðrum leiðum. Ekki með þeirri stórfelldu þjóðnýt- imgu byggingariðnaðarins, sem þarna átti sér stað, heldur með því að hvetja liið frjálsa fram- tak einstaklinganna, bygginga- meistaranna, til stærri átaka en nokkru sinni fyrr, laða þá til samstarfs um stækkun rekstrar- einda og ná hagkvæmum bygg- ingarkostnaði með því að láta þá keppa innbyrðis um verkefn- in. f stað mikillar stofnunar með fjölmemrau starfs'liði átti nefnd- in að einskorða sig við að hanna byggingarnar og bjóða þær síð- an út og gefa jafnvel bjóðend- um kost á að gera sjálfir til- lögur um einstaka liði, t.d. ýms ar inmréttingar, svo og valfrelsi um framkvæmdaraðferðir, í því skyni að ná sem lægstum kostn- aði. Eitthvað í þessa áttiraa er ætlunin að reyna að gera í næsta áfanga og er það vissulega vel, ef aðstandendur byggingaráætl- unarinnar verða svo fljótir að læra af reynslunni, sem ástæða er til að ftla. BYGGINGARAÆTLUNIN FJÁRMAGNSFREK —1 En hafa þessar framkvæmd ir ekki dregið úr öðrum bygg- ingarframkæmdum, m.a. á þaran hátt að menn verða að bíða leng ur eftir Húsnæðismálastjórnar- láni en áður? — Húsnæðismálalánakerfið var komið í allgott horf fyrir 2—3 árum, en nú hefur slegið heldur betur í bakseglin. Til þess liggja ýmsar ástæður. Ein er sú, og reyndar sú veigamesta, að bygg- ingaráætlunin hefur verið afar fjármagnsfrek en sem kunnugt er, eru 80% af kostnaðar- verði íbúðanna lánuð til 33 ára. en 20% greiðast á fyrstu 4 árunum. Þetta þýðir m.ö.o. að finna verður lánsfé fyrir 95—100 % af kostnaðarverði hverrar íbúðar. Nú er þetta fjármagn vissulega ekki allt fengið frá Húsnæðismáiastjórn, hún lánar aðeins sömu upphæð til hverrar íbúðar innan byggingaráætílun- arinraar eins og láraað er til í- búða annarra aðila. En til við- bótar hefur Byggingarsjóður, er sér Húsnæðismálastjórn fyrirfjár magni, orðið að lána beiint til Framhatd á bls. 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.