Morgunblaðið - 20.02.1969, Page 17

Morgunblaðið - 20.02.1969, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR H969 17 ERLENT YFIRLIT ★ Stjorna Shelepins hækhar í Kreml ★ Dubcek treystir sig í sessi ★ Buróttu gegn Brezhnev-kenningunni ★ ítulskir kommúnistur huínu Brezhnev BLAÐAGAGNRYNI Á VALDHAFANA ÓNAFNGREINDIR sovézkir leiðtogar hafa sætt sívaxandi igagnrýni í rússneskum blöðum ái, undanförnum vikum. Gagnrýni sem þessi á sér engar hliðstæð- ur og eru vestrænum fréttarit- urum ráðgáta. Árásirnar eru að visu faldar á milli iinanna en ekki fer á milli mála við hvað er átt, og þær virðast aðailega beinast gegn Leonid Brezhnev. Athygii vekur, að um leið og þessi gagnrýni kemur fram virð- ist fyrrverandi yfirmaður leyni- dlögreglunniar, Alexander Shelep in, hafa treyst sig í sessi og auk- ið áhrif sín. Margt bendir einnig til þess, að hann standi á bak við þessa gagnrýni. Kjarni blaðagagnrýninnar er sá að sumir þeirra 11 valdamanna, sem sæti eiga í æðstu s tjórn flokksins, taki mikilvægar ákvarð anir án þess að ráðfæra sig við fllokkinn. Blaðaárásirnar bera vott um almenna óánægju, sem ríkir í röðum flokksins með vaffidaforustuna, en eru ekki lið- xxr í baráttu fyrir lýðræði í flokknum. Óánægja í flokknum hefur aukizt til muna eftir innrásina í Tékkóslóvakíu, og gagnrýnin kemur fram á sama tíma og mikl- ar sögusagnir eru á kreiki í Moskvu um langa fjarveru nokk Brezhnev: i erflOleikum (urra valdhafa. Kosygin forsætis- ráðherra var fjarverandi í marg ar vikur, og Andnei Kirilenko, sem er fulltrúi í forsætisnefnd- inni er raunverulegur vara- maður Brezhnevs flokksritara hefur verið fjarverandi í rúma tvo mánuði. Útilokað er að hann hafi verið í orlofi í svo langan tíma, og ekki hefur verið gefið í skynv að hann sé veikur. Talið er, að Kirilenko sé „harðlínu- otnaður“ í Tékkóslóvakíumálinu. „HÆFARI LEIÐTOGA" Síðasta gagnrýnin á valdafor- ystuna kemur fram í ritdómi í „Sovietskaya Rossya“ málgagni miðstj órnarinnar, og er þar rætt um nauðsyn þess, að flokkurinn fái hæfari leiðtoga. f greininni segir meðal annars, að persónu- legir hæfi'leikar leiðtoga skipti meginmáli og að brýna nauðsyn beri til, að forystan verði stöð- ugt endurnýjuð og efld. í þess- um árásum er stöðugt vitnað til Leníns, og þannig segir „Kom- somolskaya Pravda“, að einn helzti kostur Leníns hafi verið sá, að hann hafi alltaf farið að vMlja meirihlutans í flokknum, jafnvel þótt hann væri honum ósammála. Jafnvel í „Pravda“ hefur gagnrýni skotið upp koll- inum. f bréfi frá gömlum flokks- félaga segir að of lírtið samband Sh-elepin: á uppleið sé á milli forystunnar og flokks- félaganna. Skorinorðasta gagn- rýnin kemur þó fram í tímarit- in „Flokkslíf“, þar sem segir að flokksleiðtoginn, þ.e. Brezhnev, ráði ekki einn, heldur sé hann fulltrúi flokksins og hlutverk hans sé að framfylgja vilja meiri hlutans. Gagnrýnin stafar annað hvort af því, að þeir sem gagnrýna vilja harðskeyttari stefnu eða að þeim finnst æðsta forystan hafa verið of duglítil í ýmsum mál- um, ekki sízt í Tékkóslóvakíir- málinu. Flest er þó á huldu um þessa blaðaherferð, og einkum tvö atriði eru mönnum ráðgáta. í fyrsta lagi: hvaða sovézkur valdamaður er svo valdamikill, að hann getur komið slíkri blaða herferð af stað, og nýtur her- ferðin stuðnings leynilögreglunn ar (KGB) ag hersins? í öðru lagi: er æðsta forystan svo á- hrifalítil og svo klofin í mikil- vægum málum eins og Tékkósló vakíumálinu og deilunum við Kínverja, að hún getur ekki stöðv að gagnrýnina? SHELEPIN SÆKIR A Athygli vekur, að um leið og erfiðleikar valdaforystunnar auk ast jafnt og þétt, aukast stöð- ugt áhrif Alexanders Shelepins, sem hljótt hefur verið um síðan hann lét af embætti yfirmanns KGB fyrir einu og hálfu ári og tók við forystu verkalýðshreyf- ingarinnar. Málgagn hains „Trud“ hefur að undanförnu haldið fram öðrum skoðunum en flokksmál- gagnið „Pravda" og meðal ann- ars verið hófsamara í Berlínar- málinu. Það hefur gagnrýnt að of langt hafi verið gengið í því að draga úr vissum landbúnaðar tilraunum, sem gerðar voru á valdadögum Krúsjeffs, og það hefur látið í ljós vanþóknun sína á Brezhnev með því að sleppa nafni híins, er það taldi upp ýmsa leiðtoga sem tóku á móti tékkóslóvakískri sendinefnd. Loks hefur „Trud“ birt dulbúna gagnrýtnii á hina samvirku for- ystu og er hún mjög í anda þeirr ar gagnrýni, sem birzt hefur í öðrum blöðum. Þannig benda sterkar líkur til þess, að Shelep- in standi á bak við núverandi baráttu gegn æðstu forystunni og að nú standi yfir valdabarátta, sem sennilega mun skýrast á næstu vikum. SLAKAÐ UM HRÍÐ Á TAUMUNUM RÚSSAR virðast eitthvað hafa glakað á taumunum í Tékkósló- vakíu, þótt enn sé þar 100.000. manna sovézkt herlið, þótt þeir sleppi ekki tangarhaldi sínu á hinum umbótasinnuðu leiðtogum í Prag og geti hvenær sem er hert tökin á nýjan leik. Það sem gefur þetta til kynna er, að flokksleiðtoginn Alexander Dub eek hefur aftur stigið fram á sjónarsviðið eftir alllangt hlé og talsvert hik og hafið nýja hug- myndafræðilega baráttu ti'l stuðnings þeim hugmyndum, sem komu honum til valda. f athygiisverðri ræðu, sem Dub cek hélt í síðustu viku, hélthann fram rétti Tékka og Slóvaka til að fara sínar eigin leiðir og sagði, að kommúnistaflokkurinn yrði að breyta stefnu sinni í samræmi við óskir þjóðarinnar, en ekki öfugt. Þessi ræða hefur verið túlkuð sem bein ögrun við valdhafana í Moskvu, og hún stakk mjög í stúf við aðrar ræð- ur, sem tékkóslóvakískir leið- togar hafa haldið eftir innrás- ina. f þessum ræðum hafa leið- toganniir heitið því að leitast við að varðveita þau réttindi, sem þegar hafa verið tryggð, en í ræðu sinni sagði Dubcek að kommúnismi í Tékkóslóvakíu yrði að halda áfram að þróast í samræmi við frjálslynda og lýð ræðislega hefð, sem saga lands- ins hefði mótazt af. Hann sagði, að það væri til einiskis að verja þá frjálslyndu stefnu, sem fylgt hefði verið síð- an í janúar í fyrra, heldur væri nauðsynlegt að þróa og efla öll Dubcek: nýr tónn þau verðmæti, sem fælust í þess- ari stefniu, í glímunni við þann raunveru'leika sem nú blasti við og væri langtum flókniari. Varn- arstefna væri gagnslaus og þrótt meiri afstaða nauðsynleg. BYLTINGU HRUNDIÐ Fréttaritarar eru samdóma um, að Dubcek hafi talað eins og hann væri öruggur um valda- stöðu sína. Athyglisvert er, að viku áður talaði hann einnig af myndugleik á fundi með yfir- mönnum hersins, sem hann skýrði frá því, að hann og aðrir leið- togar hefðu afstýrt hættuástandi sem ef til vill hefði verið alvar- legasta hættan sem steðjað hefði að eftir innrásina. Hann hvatti einnig til þess, að íhaldsmenn, sem væru andvígir stefnu flokks ins, yrðu reknir úr flokknum. Sú ályktun er dregin af þess- um tveimur ræðum, að íhalds- samir kommúnistar, sem fylgja Rússum að málum, hafi reynt að taka völdin í sínar hendur, og að Dubcek hafi farið með sigur af hólmi í þessari valdabaráttu. Fréttaritarar í Vínarborg segja, að austur-evrópskar heimildir staðfesti þetta, Samkvæmt þess- um heimildum áttu reiknimigsskil ins sér stað um það leyti sem Jan Palach brenndi sig til bana og útför hans var gerð. Samkvæmt þessum heimildum reyndu íhalds menn að færa sér í nyt þá ólgu, sem rikti í landinu eftir dauða Palachs, till þess að gera bylt- ingu gegn Dubcek. Almennt er talið, að Jan Pill- er, fulltrúi í forsætisnefnd komm únistaflokksins hafi átt að taka við af Dubcek. Piller er íhalds- samur, en hefur ekki fengið eins mikið óorð á sig og sumir þeirra ihaldsmanna sem Rússar reyndu að skipa í leppstjórn eftir inn- rásina. Samkvæmt sumum heim- ildum lognaðist byltingin ú-t af vegna þess, að sovézkir leiðtog- ar neituðu að leggja blessun sína yfir hana. Þessi misheppnaða byltingartil raun treysti Dubcek í sessi, en hanabendi sovétstjórnarinnar hafa enn mikil áhrif að tjalda- baki. Stuðiningsmenn sovétstjórn arinnar hafa á ný náð undirtök- unum í hinu valdamikla innan- ríkisráðunéyti. Margir metnaðar gjarnir starfsmenn kommúnista- flokksins, sem enn hafa ekki komizt í valdastöður, telja væn- legustu leiðina til frama í flokkn um vera þá að styðja sovétstjórn ina, og sumir þeirra eru önnum kafnir við að safna um sig fylg- ismönnum og tryggja sér pólitísk áhrif. Þannig hefur Dubcek tak- markað svigrúm, en alvarlegasti veikfleiki hans er sá, að hanm verður að halda sér innan vissra marka sem eru óljós og hafa aldrei verið nákvæmlega skil- greind. Líklegt er, að Rússar hafi aðeins slakað á taumunum til bráðabirgða og herði á þeim aft- ur þegar þeir telja öllu óhætt. AUKIÐ ÁRÆÐI A-EVRÖPULANDA Rúmenar hafa að undan- förnu hafið mikla herferð gegn hinni svokölluðu „Brezhnev- kenningu", sem er á þá leið að fullveldi kommúnistaríkja sé tak markað og notað var til að rétt- llæta innrásina í Tékkóslóvakíu. Athyglisvert er, að nokkrum dög um áður en Alexander Dubeek hélt fram rétti Tékka og Sló- vaka til þess að fara sínar eigin leiðir, flutti Ceusescu Rúmeníu- forseti ræðu, þar sem hann hélt fram þeim „helga rétti" aflihra landa að njóta óskoraðs sjálf- stæðis. Kenninguna um „takmark að fullveldi“ kommúnistaríkja kallaði hann „ómarxistíska“. Þessi ræða var haldin eftir ó- væntan fuind, sem Ceusescu átti með Tito Júgóslavíuforseta, og hinn nýi herskái tónn í ræðum Dubceks, Ceusascus og einnig Títós gefur til kynna, að þeir bindi vonir við það, að valda- streita sú, sem nú virðist eiga sér stað í æðstu forystu Sovét- ríikjanna leiði til þess að stefna Rússa í Austur-Evrópu verði eindurskoðuð. Aukið áræði jafnt Rúmena og Júgósilava sést meðafl. anniars á því, að Júgósl- avar hafa ákveðið að senda op- inbera viðskiptasendinefnd til Kína, sem þeir hafa ekkert beint samband haft við um tíu ára skeið, og einnig á því, að Rúmen- ar hafa gert nýjan viðskiptasamn ing við f srael. Báðar þessar ráðstafanir hljóta að valda Rússum þá nokkrum áhyggjum. Kínverjar hafa lit- ið á Júgóslava sem svörnustu fjandmenn sína, en á þessu vii'ð- ist nú eiga sér stað breyting, sem Rússum hlýtur að verða áhyggjuefni. Vegna stuðnings síns við Araba hljóta þeir að 'líta samning Rúmena og ísraels- manna illu auga. Samkvæmt þess um samningi munu ísraelskir verkfræðingar og tæknifræðing- ar vinna við áveitu- og fram- ræsluframkvæmdir í Rúmeníu. SAMEININGU MÓTMÆLT Tveir rúmenskir hugmynda- fræðingar, Gheorghe Apostol, pró fessor við Búkarestháskóla, og dr. Gheorghe Mooa, hafa í tíma- ritsgreinum ráðizt harðlega gegn Brezhnev-kenningunni og tilraun um Rússa til að stuðla að auk- Longo: gagnrýnir Brezhnev. inni sameiningu Austur-Evrópu- landanna. Apostol segir, að til- laga Rússa um, að yfirþjóðleg stofnun samræmi efnahag komm- únistalandanna jafngildi tak- mörkun á fullveldi landanna verði hún að veruleika og brjóti í bága við meginreglur marx- isma og lenínisma. Dr. Moca held ur því frarn, að Brezhnev-kenn- ingin brjóti í bága við alþjóða- lög og sé tifl þess eins fallin að hamla þróun góðra milliríkja- samskipta, sem verði að grund- vallast á algeru sjálfstæði og gagnkvæmum hagsmunum. Aðrir kommúnistaforingjar hafa lýst yfir stuðningi við af- stöðu Rúmena, og er greiniíegt að ástæðan er sú að margt bend ir til þess að Brezhnev eigi í vök að verjast í þeirri valdabaráttu, sem nú virðist fara fram að tjaíldabaki í Moskvu. Stuðning- ur við Rúmena og Tékkóslóvaka var meðal annars látinn í ljós á þingi ítallska kommúnistaflokks- ins í Bologna. STEFNA AÐ STJÖRNARAÐILD NOKKUR óvissa ríkir um fram tíð ítalska kommúnistaflokksins eftir þing hans í Bologna, þar sem Rússar voru gagnrýndir fyr ir innrásina í Tékkóslóvakíu og lýst yfir þeim ásetningi flokks- ins að losa sig undan áhrifavaldi Rússa. Sumir fréttaritarar eru þeirrar skoðunar, að ítölskum kommúnistum geti nú orðið að þeirri von sinni að fá fulltrúa í ríkisstjórn og binda enda á einangrun sína í ítölskum stjórn málum. Einn af hörðustu and- stæðingum kommúnista, Adolfo Battaglia, einn af leiðtogum Lýð vefldisflokksins, hefur jafnvellát við svo um mælt, að breytingar þær, sem gerðar hafa verið á stefnu kommúnistaflokksins, feli í sér að stigið hafi verið stórt skref í þá átt að gera hann að lýðræðis'legum kommúnistaflokki Það vakti athygli að á þing- inu var farið viðurkeniningarorð um um stjórn Mariano Rumors fyrir alvarlegar tilraunir henn- ar til að vaðveita grundvallar- þætti lýðræðis á ftalíu. Á þing- inu var mörkuð stefna, sem á að flýta fyrir því að kommúnistum verði boðin þátttaka í ríkisstjórn Einn mikilvægasti liðurinn í þess ari stefnu er að nota þjóðfélags- lega ólgu fyrir tæki til þess að koma umbótum ti'l leiðar og leita um leið eftir samstarfi við aðra flokka og hópa á ýmsum sviðum. Sérstök áherzla verður lögð á að vinna samúð ef ekki fylgi framfarasinnaðra kaþólskra manna. Kristilegir demókratar voru hvattir til samvinnu í Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.