Morgunblaðið - 20.02.1969, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1969.
ið. Þegar Peter spurði hana,
hversvegna hún vildi ekki koma
með þeim, svaraði hún: — Ég er
bara þreytt og mér er illa við
að vera að fara út að skemmta
mér kvöldinu áður en lagt er
af stað.
— Æ, þú ert alveg eins og her
Ikerling, elskan! sagði Joy —
En ef þú ætlar ekkert út, má
ég þá ekki lána bláa herðasjalið
þitt aftur?
— Vitanlega, sagði Lísa, en
þessi ófeimni hjá Joy gekk samt
alveg fram af henni.
Á leiðinni til gistihússins stað
næmdust þau við umferðarljós.
Lísa tók eftir gömlum manni,
sem beið við stéttarbúrnina. Hann
líktist mjög einum flóttamann-
anna, sem þau höfðu verið að
flytja, en nánar aðgætt sá hún,
að henni hafði missýnzt.
Hún fór að hugsa um gamla
manninn í flugvélinni. Hann
hafði verið elztur allra flótta-
mannanna og var alltaf að lesa
þangað til gleraugun hans brotn
uðu. Þau voru gömul og slitin
og önnur spöngin var brotin, svo
að hann gat ekki haldið þeim á
nefinu. Hún var að velta því
fyrir sér, hvenær hún gæti feng-
ið gert við þau fyrir hann, þeg-
ar hún sá Blake McCall halla
sér að gamla manninum og at-
huga gleraugun. Hann fór svo
út en kom aftur með töng og
vírspotta. Þannig gerði hann við
gleraugu gamla mannsins.
Hann hafði beðið meðan gamli
maðuirinn setti þau upp, horfði á
Atvinno
Innflutningsfyrirtæki vill ráða stú'ku um óákveðinn
tíma, hálfan eða allan daginn. Þarf að geta skrifað ensk
verzlunarbréf og unnið við bókhald.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Dugleg — 2424“.
tannduftið
sem gerir
tóbaks -
litaðar
tennur
HVÍTAR
KRI8TJAN JÓHANNESSON. h«ildv«rzlun. iohastlg 10. Sfmi 22710
PEEL flWflY
Vökvi er myndar
Vinyl plasthúð,
sem auðveldlega
má fletta af síðar.
Hentugt til verndar
krómi og fl.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
hann brosti allur af gleði og
velti vöngum til þess að sýna, að
rnú dyttu þau ekki 'lengur af
honum. Síðan fór hann aftur að
lesa.
Lísa hrökk upp úr þessum hug
leiðinigum við það, að bíllinn
staðnæmdist fyrir utan gistihús-
ið. Hún vissi, að hún bagaði sér
óviðeigandi, vissi, að Peter var
móðgaður, en gat bara ekkert
við því gert. Hún þakkaði Am-
eríkumanninum og þegar Peter
myndaði sig ekkert til að fara
með henni, tók hún sundfötin
sín og gekk inn í gistihúsið.
Hún átti enn eftir að skrifa
bréfið til Símonar, ög auk þess
langaði hana til að lesa meira í
bókinni sinni. Hún flýtti sér að
þvo sér hendur og andlit, fór í
slopp og lagðist á legubekkinn
með skrifblökk og penna í hönd
unum.
Joy kom inn, fór úr kjólnum
og tók að setja digrar rúllur í
hárið á sér. Þegar hún hafði lok
ið því, setti hún þykka grímu úr
36
deigi á andlitið á sér. Þá leit
hún út eins og einhver jap-
önsk leiksviðsfúgúra. Hún leit
til Lísu og rak upp hlátur.
— Æ, reyndu að stilla mig!
sagði hún. — Það stendur hér í
forskriftinni, að maður eigi að
vera rólegur með andlitið í tutt-
ugu mínútur til þess að skemma
ekki grímuna. Ég get víst ekkí
einusinni fengið mér sígarettu.
— Nei, sagði Lísa og leit al-
varlega á hana.
— Þú .ert svo heppin að vera
svana ágætlega só'lbrennd, hélt
Joy áfram. En þessi sólbruni ger
ir mig bara rauðari og flekkótt-
ari en nokkru sinni áður. Segðu
mér nú að halda mér saman, ef
ég fer aftur að tala.
Hún kom sér fyrir á hinu
rúminu og setti marga kodda und
ftlTfriTfr
Ms. Esja
fer austur um land til Seyðis-
fjarðar 26. þ. m. Vörumóttaka
fimmtudag, föstudag og mánu
dag til Breiðdalsvíkur, Stöðv-
arfjarðar, Fáskrúðsfj., Reyð-
arfjarðar, Eskifjarðar, Norð-
fjarðar og Seyðisfjarðar.
Ms. Herðubreið
fer austur um land í hring-
ferð 28. þ.m. Vörumóttaka
mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag til Djúpavogs, Mjóa-
fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna
fjarðar, Bakkaf jarðar, Þórs-
hafnar, Raufarhafnar, Kópa-
skers, Húsavíkur, Akureyrar,
Ólafsfjarðar, Siglufj., Norður-
fjarðar og Bolungavíkur.
Ms. Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og
Hornafjarðar 26. þ.m. Vöru-
móttaka mánudag og þriðju-
dag.
Speglagerðin ÆCIR
Gamla giiða merkið
ÁLÍMD-SJÓSTÍG-
VÉL OG LÁG.
GRANDAGARÐI.
ir höfuðið, til þess að ýfa ekki
á sér hárið.
— Þú skalt bara sofna og ég
skal segja þér til, þegar þessar
tuttugu mínútur eru liðnar, sagði
Lísa.
Hún byrjaði nú á næstu blað-
síðu af bréfinu til Símonar og
fór að segja honum frá brúnni
og öllum herlegheitunum í
Bondi. Gæti þetta virkilega ver
ið skemmtilegt fyrir sex ára
dreng, mörg þúsund mílur i
burtu, eða gerði hún þetta bara
sjálfri sér til skemmtunar? Hún
leit á stúlkuna í hinu rúminu.
Joy hafði sofnað, enda' þótt ekki
færi sem bezt um hana. Allt í
einu fann Lisa til einhverrar vel
vildar í hennar garð, þrótt fyrir
ósmekklega framkomu hennar.
Lísa hafði alltaf talið sig sæmi-
legan mannþekkjara, en í seinni
tíð virtist hún hafa misst þanm
hæfiiteika. Þegar hún hafði hitt
Joy Francis í fyrsta sinn, hafði
hún alils ekki kunnað við hana
og Joy hafði ekkert farið í
'launkofa með andúð sína á Lísu.
Samt sem áður var samkomulag-
ið hjá þeim ágætt.
Joy var heimsk og jafnvel dá
lítið ósiðuð, en hún var hrein
skilin og hömlulaus. Lísa sagði
við sjálfa sig, að hún gæti haft
gott af því að aðhyllast að ein-
hverju leyti lífsspeki stallsystur
sinnar.
Lísa teygði úr langa, granna
og brúna fótleggnum á sér og
virti hann fyrir sér. Það gat ver
ið gaman að koma heim, veru-
| lega vel sólbrunninn innan um
j allan vetrarfölvann á fólkinu
heima.
Mikið er ég orðin hégómleg,
hugsaði hún með sjálfri sér, og
hvað stoðar það? Ég er bjáni.
Ég fæ tækifæri til að skoða heim
inn og hitta nýtt og nýtt fólk
og hér sit ég og ergi mig út af
vonlausum, eigingjörnum og erf-
iðum karlmanni, sem tekur varla
eftir því, að ég er til. Ég er
enn að fela mig í stað þess að
leita. En hann var nú líka svo
Fró Breiðfirðingoiéloginu
Félagsvist og dans í Breiðfirðingabúð laugardaginn
22. febrúar kl. 9.Ú0. — Góð verðiaun.
Félagar fjölmennið.
STJÓRNIN.
Ía'
Hrúturirn, 21. marz — 20. apríl
Allir eru neldur skapstirðir, svo að gott er að sigla á milli
skers og báru.
Nautið, f 0. apríl — 20. maí
Bezt er að hafa næg verkefni til að dreifa huganum, en fitja
ekki upp á neinu nýju.
Tvíb jrarnir, 21. maí — 20. júní
Allt er í uppnámi fyrri hluta dags. Ef þú heldur þér við
efnið verður þér dagurinn mjög árangursríkur.
Kabbinn, 21. júní — 22. júlí
Sam'.inna gengur vel í dag, þótt viðskipti gangi heldur hægt,
en mar kvisst.
Ljónið, ?3. júlí — 22. ágúst
Þú getur komizt að kostakjörum, en ekki þó með ýtni, því að
það fer í taugarnar á fólki.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september
Þú skalt höggva eftir þvi, sem þér sýnist arðsamt, en ekki
láta neitt uppi um fallval'tleika þinn. Reyndu dálitla hagsýni.
Vogin, 23. september — 22. október
Á bessum furðu degi virðast framkvæmdirnar og persónu-
sambönain merkilega samanslungin öllum aðgerðum þínum má
skjótlega breyta. Haltu þér við það fólk og efni, sem þér er
hugfó’gið.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember
Gamall kunningi kemur langt að og flytur þér merkar fréttir.
Láttu ekki tilfinningarnar hiaupa með þig í gönur.
Bogamaðurinu, 22. nóvember — 22. desember
Unga íólkið verð'tr þér til mikillar gleði I dag. Gleðstu.
Steingeitin, 22 desember — 19. janúar
Gefðu gaum að smáatriðunum, eldra fólki og heimilisþörfum.
Taktu allt eftir röð, og þá mun vel fara. Hugsaðu ráð þitt í
kvöid.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar
Það er betra að flýta sér hægt Þótt þér líki miður fréttirnar,
eru þær engu að síður uppbyggilegar. Vertu bjartsýnn. Ekkert
þras við gagnstæða kynið, er á líður.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz
Reyndu að njóta lífsins, vertu geðgóður, og komdiu til móts
við aðra Heiisan lagast, beittu skynseminini. Það hjálpar.