Morgunblaðið - 20.02.1969, Qupperneq 28
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA.SKRIFSTOFA
SÍMI 10.100
FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1969
2500 TN AF SALTFISKI
SELD TIL PORTÚGALS
Verð á loðnu og
síld ákveðið
— loðnan 63 aura kg — síld 1,10 kr. kg
í brœðslu og 2,60 í salt
YFIRNEFNDIR Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hafa ákveðið lág
marksverð á loðnu og Suðurlands
síld. Lágmarksverð á loðnu í
braeðslu á vertíðinni 1969 skal
vera 63 aurar hvert kg við skips
hlið auk 5 aura í flutningsgjald
frá skipshlið í verksmiðjuþró. —
Lágmarksverð á síld veiddri við
Suður- og Vesturland frá 15. nóv
ember 1968 til 28. febrúar 1969
skal vera, sild í bræðslu kr. 1,10
hvert kg. auk 5 aura í flutnings-
gjald frá skipshlið í verksmiðju-
þró — síld í söltun kr. 2,60 hvert
Samkomulag varð í yfirnefnd-
um síldarverðin en loðnuverðið
var ákveðið af oddamanni og
Framhald á bls. 27
áhuga á vinnslu steinsins
Jóhann Hafstein iðnaðarmála-
ráðherra skýrði frá því á Al-
þingi í gær, að ríkisstjómin
hefði nýlega gert samþykkt um
að kannaðar yrðu tii hlítar mögu
leikar á nýtingu perlusteins og
mun það verða gert á þessu
ári. Er gert ráð fyrir að nám-
an i Loðmundarfirði verði ná-
kvæmlega könnuð með borunum
og á annan hátt og 400 sýnis-
hom þensluprófuð og rannsök-
uð.
Unnið hefur verið að rann-
sókn á perlusteini með tilliti til
vinnslu í langan tíma hérlend-
is, en verulegur skríður hefur
veríð á þessu máli nú undan-
farin 2 ár. Kom fram áhugi hjá
fyrírtækinu John Manville í
Bandaríkjunum, sem er hluthafi
í Kísiliðjunni við Mývatn, um
byggingu verksmiðju, ef efnið
reyndist nægilega gott, Niður-
staða rannsókna sem fyrirtæk-
ið lét gera, og rannsókna er
gerðar voro af hálfu iðnaðar-
málaráðuneytisins liggja nú fyr
ir og sýna þær að efnið er gott
til einstakra vinnslugreina, en
hefur hins vegar ekki gæði í
verðmætustu framleiðsluna sem
eru ýmis síuefni. Hefur John Man
ville fyrirtæki nú endanlega til-
kynnt að það hafi ekki áhuga
á þátttöku í vinnslu efnisins hér
á landi.
Upplýsingar þessar komu fram
er iðnaðarmálaráðherra svaraði
fyrirspum er komið hafði fram
frá Jónasi Péturssyni alþingis-
manni um þessi mál. Þá hefur
Tómas Árnason einnig lagt fram
tillögu til þingsályktunar um að
Jóhann Hafstein
þcssum rannsóknum verði haldið
áfram.
I ræðu sinni sagði iðnaðar-
málaráðherra m.a.:
Framhald á hls. 12
— vonir um svipaðar sölur til ítaliu og
Portúgals og á sl. ári
TÓMAS Þorvaldsson, stjóraar-
formaður Sölusambands íslenzkra
fiskframleiðenda, tjáði Morgun-
Scotice
kominn í lag
SCOTICE, talsímastrengurinn
milli íslands og Skotlands, komst
aftur í notkun klukkan 21 í gær-
kvöldi og hafði þá verið óvirkur
í mánaðartíma. Er það lengsta
bilun, sem orðið hefur síðan
strengurinn var tekinn í notkun,
að því er Pétur Brandsson, varð-
stjóri, tjáði Morgunblaðinu, en
verður hefur mjög hamlað við-
gerð nú. —
blaðinu í gær, að það, sem eftir
er af vertíðarfiski frá í fyrra-
vetur, um 2500 tonn, hafi nú ver
ið selt til Portúgals Innflutnings-
Ieyfi hafa fengizt fyrir þennan
saltfisk og verður honum skipað
út á næstunni. Verður útskipun
lokið síðari hluta marzmánaðar.
Þá sagði Tómas, að gert væri
ráð fyrir, að það, sem eftir er
af sumar- og haustfiski fari til
Spánar innan tíðar. Innflutnings
leyfi eru ekki enn fyrir hendi en
unnið er að því að fá þau.
Tómas Þorvaldsson sagði, að
vonir stæðu til, að unnt yrði að
selja álíka magn af saltfiski í
ár til Ítalíu og Portúgals og á
sl. árl. Hins vegar er enn allt
á huldu með markaðinn á Spáni.
95 MILLJÓNIR
— tuðruðu upp hjá íslendingum árið 1968
A sl. ári fluttum við fslending-
ar inn tóbak og unnar tóbaks-
vörur fyrir 95,2 millj. krónur.
Mest var reykt af amerískum
sigarettum, því tóbaksvörur voru
ASÍ-fundur á
föstudaginn
— um samningaviðrœður
fluttar inn frá Bandaríkjunum
fyrir 79 milljónir árið 1968. Frá
Hollandi komu tóbaksvörur fyrir
8,6 milljónir, frá Danmörku fyrir
6,5 miHj., frá Bretlandi fyrir 908
þúsund kr., frá Frakklandi fyrir
68 þúsund, frá Sviss fyrir 37
þúsund kr. og frá öðrum löndum
fyrir 148 þúsund kr.
Skógerð Egilsstaða:
SAMNINGAR verkalýðsfé-
laga og vinnuveitenda féllp
úr gildi um sl. áramót, en
hafa verið framkvæmdir
óbreyttir til þessa. Morgun-
blaðið hafði í gær samband
við Hannibal Valdimarsson,
forseta ASÍ, og Barða Friðriks
son hjá Vinnuveitendasam-
bandinu og spurðist fyrir um,
hvont nokkrar viðræður hefðu
átt sér stað milli þessara að-
ila. Kvað Barði svo ekki vera
og Hannibal sagði, að viðræð-
ur gætu ekki faafizt fyrr en að
loknum fundi ASÍ á föstudag.
Á þann fund mæta fulltrúar
allra helztu aðila innan ASÍ
til að ræða, hvernig standa
skuli að málum í samninga-
viðræðum við vinnuveitend-
Samningaviðræð-
ur við hollenzka
— um aðstoð og útflutning
Egilsstöðum, 19 .febrúar.
LÍKUR benda til, að Skógerð
Egilsstaða hefji starfsemi eftir
um það bil tvo mánuði. Hafa for-
ráðamenn Skógerðarinnar snúið
Iðnaðarmálaráðherra á Alþingi í gœr:
Rannsóknum á perlusteins-
vinnslu haldið áfram
— þensla efnis ekki nœgileg r
— John Manville fyrirtœkið hefur ekki ;
sér til hollenzks skógerðarfyrir-
tækis og farið fram á að fá það-
an tæknimenn og skó-sýnishorn.
Einnig hafa þeir óskað eftir
samningaviðræðum við þetta
fyrirtæki um sölu á skóm frá
Skógerð Egilsstaða. Tóku Holl-
endingar þessum málaleitunum
vel og eru allar líkur á, að af
samningaviðræðunum verði.
Forráðamenn Skógerðarinnar
hafa leitað fyrir sér um hráefnis
kaup frá Hollandi og Finnlandi
og hafa fengið loforð þar um, ef
með þarf.
Skógerð Egilsstaða hefur nú til
umráða 260 fermetar húsnæði en
eftir er að ganga frá því þannig
að hægt sé að setja niður vélarn-
ar. Er áætlað, að kostnaður við
frágang húsnæðisins nemi um
Framhald á bls. 27
I BERLINARBJÖRNINN baðað |
ur i vetrarsólinni í gær, þar
* sem hann stendur við Tjörn-
1 ina. Björninn er gjöf til
I Reykjavíkur frá Vestur-Ber-
línarborg. í baksýn gnæfir
turn Hallgrímskirkju. Ljósm:
Ól. K. M.
Húsvíkingur
stækku flotonn
Húsavík, 19. febrúar .
HÚSVÍKINGAR hafa staðið í
bátakaupum og sölum undan-
farið.
Ásgeir Kristjánsson og félagar
seldu m.b. Grím, átta tonna bát
til Siglufjarðar og keyptu í stað-
inn Ver, tíu tonna bát frá Norð-
firði. Útgerðarfélagið Vísir seldi
m.b. Svan, 19 tonna bát, til Suð-
urnesja og keyptu í staðinn Bene
dikt Sæmundsson, 36 tonna bát
frá Gerðum í Garði.
Olgeir Sigurgeirsson og synir
seldu m.b. Kristbjörgu, 22 tonna
bát, til Suðurlands og keyptu í
staðinn 37 tonna bát. Kristjón
Jónsson frá Stykkishólmi. Eiður
Guðjohnsen og Pálmi Karlsson
hafa keypt m.b. Brúna, 19 tonna
bát, frá Grenivík og ber hann nú
nafnið Nausti. — Fréttaritari.