Morgunblaðið - 16.03.1969, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 196©
- STRÍÐ OG FRIÐUR
Ffamhald af bls. 12
kommúnistisk ríki — tötra-
skapnum, roluskapnum, niður-
níðslunni.
Ástæðan er auðvitað sú að
hvergi örlar á kynferðislegum
örvunarmeðulum, engin klám-
rit í bókhlöðum eða blaðatum-
um, engar nektarsýningar eða
boð um að sjá saurlífskvik-
myndir eða leiki, þessi sefa-
sýkislegi, allt-gleypandi áhugi
á kynlífinu, sem hangir eins og
kæfandi ilmgufa yfir svo mikl-
um hluta hins vestræna heims,
einkum stöðum eins og Kali
forníu og Skandinavíu, er
hvergi sjáanlegur — og ó, hví-
líkur léttir! Sama er að segja
um þessa kvikmynd, sem er
ekkert annað en hægfara, fag-
urkeraleg, einlæglega leikin og
töfrandi myndræn útgáfa af
einu hinna miklu snilldarverka
síðari tíma, gerð ef til viil af
umbúðarlausri en engu að síð-
ur ósvikinni lotningu fyrir höf-
undinum og sköpunarverki
hans.
Þá er ég kominn að Tolstoy,
sem er, þegar allt kemur til
alls, þungamiðjan í öllu saman.
Ég sagði áður, að mestallan
tímann hefði aðeins einn maður
auk mín verið viðstaddur þessa
kvikmyndasýningu í París, en
í rauninni voru þeir tveir. Alla
KARLMANNASKÓR AUSTURSTRÆTI6.
DAMAS
Nýjar gerðir af DAMAS
kven- og karlmannaúrum.
Höggvarin með 17, 21 & 25
steinum. — Vatnsþétt.
Svissnesk gæðavara, kær-
komin fermingargjöf.
FRANCH MICHELSEN HF.
Laugavegi 39.
• Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pea with Smoked Ham
• Chicken Noodle
• Cream of Chicken
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• 11 Vegetables
• 4 Seasons
• Spring Vegetable
Bragðið leynir sér ekki
MAGGI súpurnarfrá Sviss
eru hreint afbraqð
MAGGI súpurnar frá Sviss eru búnar til eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meginlandinu,
og tilreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hinum
étján fáanlegu tegundum.
MAGGI
SÚPUR
FRÁ
SVISS
Hinn aldni sagnameistari skemmtir tveimur barnabörnum sín-
um. Tolstoy átti 13 börn, en fjölskyldulíf hans var spillt af
ófriði og óhamingju.
sýninguna fann ég mjög sterkt
til nærveru Tolstoys — hins
Aldraða Tolstoys með úfið
skegg og glampa í augum og
bæmdabúninginn, yfirbragð
hans, sem svo snilldarlega er
lýst í minningum Gorkys og
gerði það að verkum að hann
virtist ódauðlegur, eins og gam
all klettur, eða öllu heldur
gamalt tré, sem er holt innan
og þakið vafningsviði, en skýt
ur engu að síður fram græn-
um frjóöngum úr kræklóttum
greinunum með hverju vori. Ég
ætla að láta fylgja hér lýs-
ingu Gorkys á Tolstoy, sem
hann rifjaði upp fyrir sér er
eitt það bezta af sínu tagi, sem
ég heif nokkurn tíma lesið:
„Ég sá hann einu sinni eins
og hann hefur ef til vill aldrei
borið öðrum fyrir augu. Ég
gekk áleiðis til hans að Gaspra
og handan við landareign Yus-
opovs, niðri í fjörunni milli
steinana, sá ég hann, lítinn
og beinaberan, í gráum, kryppl
uðum, tötralegum fötum með
krypplaðan hatt. Hann sat og
hvíldi höfuðið í höndum sér og
vindurinn blés silfurhvíbu
skegginu gegnum greipar hans:
hann horfði í fjarska út yfir
hafið og litlar, græn'leitar öld-
urnar féllu þegar að fótum
hans og gældu við þá, eins og
þær væru að segja gamla töfra-
manninum eitthvað um sjálfar
sig. Þennan dag var sólskin og
skýjafar og skuggarnir af skýj
unum liðu um steinana og það
ýmist birti eða dimmdi yfir þeim
eins og gamla manninum. Fjöru
steinarnir voru stórir, alsettir
sprungum og vaxnir lyktsterku
þangi, það ‘hefði verið háflæði.
Mér virtist hann sjálfur vera
stór steinn, sem vaknað hefði
til lífsins og þekkti upphaf og
endi allra hluta, sem íhugaði
hvenær og hver yrðu endalok
allra steinanna, grasa jarðar-
ininar og vatna hafsins og
heimsins alls, frá sandkorni til
sólar. Og hafið er hluti af sálu
hans og allt í kringum hann
er frá honum, af honum kom-
ið. í hreyfingarlausri íhygli
gamla mannsins skynjaði ég eitt
hvað örlagaríkt, einhvern töfra
mátt, sem lægi niður í djúpið
fyrir neðan hann og teygði sig
upp eins og leitarljós í blátt
tómið ofan jarðar — eins og
það væri hann, einbeittur vilji
hans, sem drægi að sér öldurn-
ar og varpaði þeim burt aftur,
sem stjórnaði hreyfingum skýja
og skugga, sem vekti steinana
til lífsins. Skyndilega, eitt fjar-
stæðulegt andartak fannst mér
það mögulegt, hann myndi
standa á fætur, veifa hendinni
og sjórinn yrði sléttur sem gler,
steinarnir færu að hreyfast og
allt í kringum hann lifnaði við,
fengi mál og talaði hvert með
sínum rómi um sig, um hann,
við hann. Ég get því ekki með
orðum lýst hvað ég skynjaði
fremur en hugsáði á þeirri
stundu, í sál minni var fögn-
uður og ótti og að lokum ranh
allt saman í eina ljúfa hugsun:
„Ég er ekki munaðarlaus á jörð
Aðalfundur
Byggingasamvinnufélags vélstjóra (síðari fundur) verður hald-
inn að Bárugötu 11 fimmtudaginn 20. marz kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsstjóm.
Shrilstoiumaðnr óskost
Fiskvinnslufyrirtæki úti á landi vantar skrifstofumann sem fyrst.
Tilboð með uppl. um menntun og aldur, ^ndist Mbl., merkt:
„2967".
Kaffiscala kvenskátanna
Hallveigarstöðum í dag
er að