Morgunblaðið - 04.07.1969, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FöSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1969
MAGIMÚSAR
4K1PH01T»21 SIMAR21190
eftirlokuntlmi 40381
BÍLALEIGANFALURHF
car rental service ©
RAUDARÁRSTÍG 31
Hverfisgöta 103.
Siml eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
Steypustððin
41480-41481
VERK
bilaleigan
AKBBAUT
car rental service
8-23-4?
senctum
Golfkúlur
45 kiónur stykkið
HOBART
RAFSUÐUTRANSARAR
Höfum aftur fyrirliggjandi
hina vinsælu HOBART
rafsuðutransara, stærðir:
R. GUDMUNDSSON S KVARAN Hl
VÉLAR VEOKFÆRI . IDNAOARVÓRUI
ARMUIA 1«. REVKJAVÍK, SÍMI 3072;
O Enn um Egil
Kæri Velvakandi
í dálkum þínum fyrsta maí, var
tekinn upp hanzkinn fyrir Egil
Skallagrímsson, vegna þess að
hann í nýútkominni íslandskynn-
ingu var kallaður „rogue“, og
þótti það auðsjáanlega mjög mið-
ur. Ég er sammála þér um að
máske hefði mátt tíunda meira
hans skáldskap, en það hefur
kannski bara ekki verið plássfyr
ir það. Hins vegar held ég að það
sé óþarfi að móðgast svo mjög út
af orðinu „rogue“. Það er nefni-
lega alls ekki alltaf notað í niðr-
andi merkiingu. Þegar rætt er um
gamla kappa eða vígamenn á
enskri tungu er oft sagt „He was
a great rogue“, og þar er alls
ekki átt við að hann hafi verið
fantur, illmenni, svikari eða flakk
ari, heldur einfaldlega átt við að
hann hafi verið maður stórbrot-
inn í skapferli og öllum háttum.
Hvað ölið snertir held ég að eng-
inn geti neitað því að gamla mann
inum þótti það harla gott.
— Óli Tynes.
O Hann var áreiðanlega
skáld
Velvakandi þakkar kærlega fyr
ir bréfið og þær viðbótarmerk-
ingar, sem bréfritari hefur að
leggja í orðið „rouge“ fram yfir
þær sem íslenzk-enska orðabókin
hafði tiltækar. En hins ber að
geta, að kvæði Egils og vísur eru
betri og öruggari heimild um hann
en sagan, eins og fram kom í orð
um Sigurðar Nordal, sem hérvar
vitnað til. Egill var þvi áreiðan-
lega mikið skáld, það fer ekki
milli mála, en allt annað, sem um
hann er sagt, er á vafasamari
heimildum byggt.
O Þær hefðu betur setið
heima
Vonsvikinn leikhúsgestur skrifar:
Góði Velvakandi!
Nú er svo komið, að ég get
ekki lengur orða bundizt.
I>ótt ung séum förum við hjón-
in mjög sjaldan í leikhús. Hinn
24. júní s.l. létum við það þó eft-
ir okkur og fórum í Þjóðleikhús-
ið og víst skemmtum við okkur
að flestu leyti mjög vel. Ég segi
að flestu leyti, en það, sem öðru
Verzlunorhúsnæði ósknst
Húsnæði fyrir barnafataverzlun óskast i Miðborginni eða í
fjölmennu úthverfi.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 7. þ. m. merkt: „Verzlun — 334".
Viljum kaupa
20—40 hestafla loftkældar Deutch- eða Lister-vélar. Upplýs-
ingar í síma 1-74-00 frá kl. 9—17 daglega.
Höf.um ,á boðstóliim og skTp'uléggjum einstqk.jjngsferSir_um ollon heim. Réynið
Telex ferðaþjónustu okkar. örugg'férðaþjónusta: Aídrei dýrari en oft óáýrari
en annars staðar. _ ___________________________ .. .
ieróirnar sem fólkið velnr
VIÐARÞILJUR
Eik 250 x 24 cm
Gullálmur 250 x 24 cm
spónlagðar með úrvals spæni. tvílakkaðar með plastlakki.
Hagkvæmt verð, úrvals vara.
Timburverzlunin Völundur
Skeifan 19. Sími 18430 og 36780.
vísi varð en við ætluðum, var
hvorki leikurum né leikriti að
kenna, því það hvort tveggja var
alveg stórkostlegt, a.m.k. það, sem
við heyrðum.
Já heyrðum. Við heyrðum svo
sem margt, og kannski helzt til
margt, því sessunautar okkar
vor m.a. tvær eldri konur, sem
ég veit nú raunar ekki, af hverju
fóru i leikhús.
Nei, þær hefðu betur setið heima
því annað eins málæði hef ég
sjaldan heyrt.
Þetta hefði nú (kannski) verið
sök sér hefðu samræður þeirra snú
izt um það, sem fram fór á fjöl-
unum, en því var ekki til að
dreifa. Það var sko: „hvemig
hefur N.N. það núna“, og „mikið
er langt síðan ég hef séð hana“
o.þ.h.
Að vísu töluðu þær minna eftir
hlé (ég skrifaði minna en ekki
lítið), og þá heldur meira um
það sem fram fór á sviðinu, en
það var lítið betra.
Sem betur fór sat enginn fyrir
aftan okkur, því við vorum á aft
asta bekk, en ég sá, að fólkið
fyrir framan okkur hugsaði rétt
eins og við: Það er lífsreynsla
út af fyrir sig, að hafa heilan
málfund við hliðina á sér þegar
farið er í Þjóðleikhúsið. Það eru
sérréttindi, sem maður borgar
ekki fyrir, en samt sérréttindi,
sem ég vildi borga fyrir að hafa
ekki.
Q Ekki í leikhús til að
hlusta á persónulegt
kjaftæði
Þegar maður fer í leikhús, fer
maður til að njóta þess, sem þar
er sýnt og sungið, en ekki til
að fara á málfund.
Og það verð ég að segja, að
margt fór fyrir ofan garð og neð
an hjá okkur hjónunum af þess-
um sökum.
Fjaðrir. fjaðrablöð, hljóðkútar,
púströr og fleiri varahlutir
i margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. - Sími 24180.
„Þær hefðu heldur átt að hitt-
ast annað kvödl, blessðar, þá
hefðu þær haft helmingi meira
til að tala um“, sagði maðurinn
minn í hléinu, og þar er ég svo
sannarlega sammála.
Ég býst við, að það þyki dóna-
skapur, að biðja svona fólk að
þegja, en hitt að eyðileggja fyr-
ir manni alla ánægju, það er
versta tillitsleysi.
Og hvort er þá verra, að vera
talinn dóni eða aö vera tillits-
laus?
Mig langar til að biðja þessar
heiðurskonur, sem þarna áttu í
hlut, og hvern þann, sem getur
tekið þetta til sín, að minnast
þess, næst þegar þær fara í leik-
hús, að þær eru nú ekki einar í
heiminum, og að fólkið við hlið-
ina á þeim getur verið fólk eins
og við, það er að segja fólk, sem
vill njóta listarinnar, sem þar er
sýnd, en ekki hlusta á persónu-
legt kjaftæði.
Vonandi móðgast ekki þessar
heiðurskonur, hverra nafn
við fengum að vísu ekki að heyra,
en þær eru líklega ekki þær einu,
sem tala í leikhúsi, sem ætti raun
ar að vera stranglega bannað að
gera. Ef þær lesa þetta, kann-
ast þær vonandi við málæðið og
skilja, að það er til fólk, sem
vill hlusta á fleira en þær.
Virðingarfyllst
Vonsvikinn leikhúsgestur
O Ekki skella allri skuld-
inni á umboðið
Reykjavík 27.6 69
Velvakandi góður
Mig langar til að leggja nokk-
ur orð í belg en ástæðan er skrií
manns nokkurs úti á landi, en
hann er að kvarta útaf lélegri
þjónustu Bifreiða og Lanbúnaðar
véla. Ekki veit ég um þjónustu
þessara blessuðu manna, en eitt
finnst mér athugavert, að skella
allri skuldinni á umboðið. Líkur-
nar eru alveg eins miklar að
hann hafi sjálfur skemmt gír-
kassann og væri það svo sem
engin furða eins og vegimir eru
hér á landi, að hann hafi hrokk-
ið í sundur, eða laskazt, ég skil
ósköp vel að blessaður maður-
inn vilji fá þetta endurbætt.
En ég held að hann hafi notað
vitlausa aðferð til þess.
Með þökk fyrir birtinguna.
Reykvlkingur.
Bókhald
Skrifstofa borgarverkfræðings óskar eftir manni vönum bók-
haldsstörfum. Verzlunar- eða Samvinnuskólamenntun æskileg.
Laun samkv. kjarasamningi starfsmanna Reykjavikurborgar. —
Upplýsingum ekki svarað í síma. Umsóknum sé skilað til skrif-
stofu borgarverkfræðings að Skúlatúni 2 fyrir 15. þ. m.