Morgunblaðið - 07.11.1970, Síða 4
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1970
> 4
f; -
WIIWB/fí
BILALEIGA
HVEHFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW ðmanna-Landrover 7manna
22 0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
V---------------/
bilaleigan
AKBJIA UT
car rental scrvice
S* 8-23-41
fí sendum
Bílaleigan
UMFERD
Sími 42104
SENDUM
PALL S. PALSSON, HRL.
Málf lutn ingsskrif stofa
Bergstaðastræti 14.
Málflutnrngur, innheimtustörf
og fleira.
FÆST UM
LAND ALLT
7V\ORNY
er eins
og þúsund
dásamlegir
draumar
£ 1
Sex ferskar, aðlaðandi
ilmtegundir og mildir litir
fagurra blóma láta
drauma yðar verða að
veruleika.
Hve dásamlegt er að svífa
á vængjum draumana yfir
burkna lundum
blómskrýddra dala, þar
sem léttur andvari
skógarilms lætur drauma
yðar blandast
veruleikanum. Morny . . .
og draumar yðar rætast.
Ó. JOHNSON
&RAABERP
0 Leiðin heim
„EKJ“ skrifar:
„Nú er rjúpnaveiðitíminn haf
inn með tilheyrandi dauðaleit.
Flestir veiðimenn eru öruggir,
þegar þeir leggja af stað, gjör-
þekkja svæðið, og geta bókstaf
lega ekki villzt. En þegar
skyggir, þá eru hraunhólamir
og holtin hvert öðru lík,
og jafrrve! kunnugir geta látið
blekkjast. Og þá er það afskap
léga notaleg tilfinning að þurfa
ekki annað en að stinga hend-
inni í vasann og taka upp átta-
vitann og spyrja hann: „Hvar
er leiðin heim?“
Og áttavitinn svarar! Aðeins
þarf að halda honum í hend-
inni þannig, að örin vísi beint
fram, snúa sér síðan til, þar til
að N og rauða nálin standast
á! Búið! Engir útreikningar,
engar tölur, sem þarf að muna.
Bara að ganga eins og örin
bendir. Að sjálfsögðu þarf að
segja áttavitanum svarið, um
leið og lagt er af stað í ferð-
ina, en það er jafnauðvelt og
aflesturinn.
0 Með áttavita á
rjúpnaveiðar
Það er vitað, að alltof fáar
rjúpnaskyttur hafa með sér
áttavita á veiðiferðum sínum,
þær þykjast ekki kunna með
þá að fara, það þurfi svo mik-
inn lærdóm á slíkt tæki o.s.frv.
Þetta er misskilningur. í>að er
hægt að hafa fullt gagn af
áttavita, til þess „að rata heim,“
án þess að þekkja áttirnar,
hvað þá meira.
Flestir vasaáttavitar eru fest
ir á aflanga plötu úr plasti eða
málmi. Á plötuna er mörkuð ör,
sem á að vísa göngustefnuna.
Síðan er hægt að snúa áttavita
húsinu til á þessari plötu. Flest
ir vasaáttavitar munu sýna
nokkurn veginn rétt, sé þeim
Tœkifœriskaup
Sófasett, tvöfaldur klæðaskápur ásamt
Singer saumavél til sölu.
Upplýsingar í síma 30949.
HIS
MASTER'S
VOICE
NÝJAR GERÐIR AF HINUM GLÆSILEGU
H. M. V. SJÓNVARPSTÆKJUM. TÆKNI-
LEGAR NÝJUNGAR, S. S. TRANSISTORAR
í STAÐ LAMPA AUKA ÞÆGINDI OG
LÆKKA VIÐHALDSKOSTNAÐ.
HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR.
FÁLKINN HF.
SUÐURLANDSBRAUT 8, REYKJAVÍK.
haldið í útréttri hendi, þó að
maður hafi byssu á bak-
inu. Þetta þarf þó prófunar
við í hverju tilfelli, fjarlægja
byssuna og sjá, hvort nálin
hreyfist.
Þegar nú veiðimaðurinn legg
ur af stað frá bílnum, þarf
hann að stilla áttavitann á
„heimleið". Og það er mjög auð
velt og fljótgert.
1. Halda áttavitanum i út-
réttri hendi (vegna byssunnar)
og láta örina vísa beint á sig,
(„heim").
2. Snúa sér í átt að miðju
veiðisvæðinu.
3. Snúa áttavitanum, þar til
N og rauða nálin standast á.
Búið!
Þegar veiðimaðurinn nemur
staðar til að hvíla sig, ætti
hann að líta á áttavitann, og
leiðrétta stillingu hans, þ.e. ef
hann sér bílinn. Sjái hann bíl-
inn ekki, getur verið varasamt
að breyta stillingunni eftir
ágizkun. En endurstillingin er
framkvæmd þannig:
1. Vísa örinni í átt að bíln-
um.
2. Snúa áttavitahúsinu þann
ig, að N og rauða nálin stand-
ist á.
Með þessu móti ætti öllum
að vera unnt að finna stefn-
una að bílnum. Að visu ekki
beint á bílinn, þvi að veiðimað-
urinn hefir að sjálfsögðu geng
ið til hliðar við stefnuna, síðan
siðast var miðað, en nægjan-
lega nálægt þó, til að átta sig,
sé aðgát viðhöfð.
Ef menn finna það, að þeir
eru orðnir villtir, mega þeir
undir engum kringumstæðum
breyta stillingu áttavitans eða
vantreysta honum, heldur
fylgja stefnu örvarinnar,
hversu fráleit sem þeim finnst
hún. Það er staðreynd, að villt
um manni finnst jafnvel, að
vatnið renni upp í móti.
0 Notkun neyðarblysa
Oftast munu skyttur mæla
sér mót við bílinn í rökkur-
byrjun. En ekki þarf mikið út
af að bera, svo að skyttu
seinki um klukkutíma eða svo,
og þá er orðið dimmt. Skyti sá,
sem bíða kynni við bílinn upp
neyðarblysi, sem margar skytt
ur hafa nú orðið, og ætti að
vera skylda að hafa, gæti það
aðstoðað þann, sem ókominn
er, við að finna bílinn. En þar
þyrfti reglu á, og mætti hugsa
sér, að aðstoðarblysum væri
skotið upp á hálfum og heilum
tímum, en blysum nauðstaddra
og týndra á korterunum. Ef
einhver sæi neyðarblys á lofti,
ætti hann samstundis að
merkja stefnuna á blysið með
tveimur steinum, eða hverju
öðru, sem tiltækt er. Það gæti
verið afar mikilsvert fyrir leit
arflokk, jafnvel daginn eftir,
að hafa örugga miðun á blysið.
Svona væri hægt að telja
upp mörg fleiri smáatriði, sem
rjúpnaskyttum gætu orðið að
liði, en ég læt hér staðar num
ið.
E.K.J."
0 Hundar finna fé og fólk
í fönn
„Gamall sveitamaður“
skrifar:
„Vegna leitar að rjúpnaskytt
um án árangurs, langar mig til
að benda á, að oft var áður
leitað til þeirra manna, sem
áttu hunda með þá sérgáfu að
finna fé í fönn. Var þá maður,
sem átti slíkan hund, fenginn
til að ganga um þá staði, þar
sem líklegast þótti, að sauðfé
væri undir fönn. Var oft bjarg
að mörgu fé á þennan hátt, og
fundu hundar þessir oft fé á
ólíklegustu stöðum.
Gætu svona hundar ekkl
komið að liði við leit að mönn
um undir svona kringumstæð-
um?“
0 Svik í teppi
Frá Akranesi er skrifað:
„Velvakandi góður!
Ég get ekki lengur orða
bundizt og verð að segja frá
viðskiptum mínum við gólf-
teppagerð í Reykjavík. Þetta
fyrirtæki hefur gert mikið af
því að auglýsa sína góðu þjón
ustu. Fyrir um fimm árum
keypti ég gólfteppi í nokkuð
dökkum lit. Tjáðu þeir mér í
teppagerðinni, að það væri lit
arekta.
Þegar fyrsta sumarið upplit
aðist teppið og varð allt flekk
ótt. Ég hringdi þá í forstjór-
ann og kvartaði yfir þessu, og
sagði hann mér, að hann skyldi
senda mann til að líta á tepp-
ið, en aldrei kom sá maður, þó
að ég hringdi oft.
Fyrir um það bil ári kbm
nýr yfirmaður í fyrirtækið, og
talaði ég við hann. Lofaði hann
með mörgum fögrum orðum að
senda mann mjög fljótlega til
að líta á teppið. Þetta var I
fyrrahaust. Þegar veturinn
leið svo, að enginn kom, fór
ég til Reykjavíkur, hitti for-
stjórann og sagðist vera kom-
inn til að sjá framan í svona
menn, sem gætu, að því er virt
ist með góðri samvizku, svikið
allt, sem þeir segðu. Lofaði
hann þá, að þeir kæmu eftir
nokkra daga og litu á teppið.
Nú er komið haust aftur, og
ég hef ekkert frétt frá þeim.
Svona framkoma finnst mér
óþolandi, og mega þeir góðu
herrar gæta sín, ef þeir ætla
að hafa þetta svona við við-
skiptavini sína.
Með þökk fyrir birtinguna.
Húsmóðir af Skaga".
Glœsileg raðhús
til sölu á hornlóðinni við Sundlaugaveg og Laugalæk. I kjall-
ara er stórt sjónvarpsherbergi .vinnuherbergi, geymsla o. fl.
Á 1. hæð er dagstofa, borðstofa, eldhús með borðkrók, and-
dyri, skáli og snyrting. Á 2. hæð eru 4 svefnherbergi, bað,
þvottahús og gangur. Tvennar svalir. Bílskúrsréttur. Afhendast
fokheld vorið 1971. Beðið eftir Veðdeildarláni.
Teikning til sýnis á skrifstofunni. Opið til kl. 19 í dag.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.