Morgunblaðið - 07.11.1970, Side 11
MÖKGUN’BLAOIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÖVEMBBR 1#70
11
Tillaga Sjálfstæðismanna i bæjarstjórn Hafnarfj:
Úrskurðarvald í
ágreiningsmálum
s veitar st j ór na
— verði tekið úr höndum félags-
málaráðherra — Mótmæla setu
áheyrnarfulltrúa meiri-
hlutans í bæjarráði
HARÐAR deilur urðu á
fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar sl. þriðjudagskvöld
um úrskurð félagsmálaráðu-
neytisins varðandi setu
áheyrnarfulltrúa frá meiri-
hlutaflokkunum á fundum
bæjarráðs. Stóð fundur þessi
í 7% klukkustund og fluttu
bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins tillögu um, að bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar skor-
aði á ríkisstjóm og Alþingi,
að beita sér fyrir breytingum
í þá átt, að úrskurðarvald í
slíkum tilvikum yrði tekið
úr höndum félagsmálaráð-
herra og fengið í hendur hlut
lausum aðila.
Hinn 21. júlí sl. kærðu bæj-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði þá samþykkt
meirihluta bæjarráðs frá 25.
júní sl., að fulltrúi Framsókn-
arflokksins, sem á aðild að
meirihluta bæjarstjórnar,
skyldi eiga rétt til setu á
fundum bæjarráðs sem
áheyraarfulltrúi. Til stuðn-
ings þessari kæru bentu bæj-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins á eftirfarandi:
„1. Að samþykktin um setu
umrædds áheyrnarfulltrúa sé
brot á 6. gr. fundarskapa fyrir
bæjarstjórn Hafnarfjarðar, stað-
festri 17. jan. 1963.
2. Að stofnun bæjarráðs Hafn
arfjarðar hafi verið samþykkt á
fuhdi bæjarstjórnar Hafnarfjarð
ai- 3. febrúar 1942, samkv. heim-
ild í 30. gr. laga nr. 81/1936.
Skiþan bæjarráðs sé þar fast-
ákveðin þrir menn. Ekkert
ákvæði sé þar að finna um
áheyrnarfulltrúa og eina undan
tekningarákvæðið sé réttur bæj
arstjóra til fundarsetu þar.
3- Að allir bæjarfulltrúar í
Hafnarfirði hafi, er bæjarráð
var að þessu sinni kosið 16. júní
s.L, tekið þátt í kosningu og
fengið þar sína fulltrúa.
4. Að hér sé meirihlutinn að
auka við þá aðstöðu, sem hann
þegar hefur fyrir, með því að
beita valdi sínu í algerri and-
stöðu við minnihlutann og
fjölga þeim fulltrúum, sem sitja
fiíridi bæjarráðs. Með því brjóti
meirihlutinn það hlutfall, sem
gildi innan bæjarstjómar og
byggt sé á atkvæðum kjósenda
við bæjarstjórnarkosningar.
5. Að verði fallizt á málsmeð-
ferð meirihluta bæjarstjórnar,
þá beri minnihlutanum sami rétt
ur til áheyrnarfulltrúa í bæjar-
ráði með skírskotun til fjölda
bæjarfulltrúa og þeirra hiut-
fallsreglna, sem gildir um kjör
fulltrúa í nefndir bæjar-
stjórnar."
1 úrskurði félagsmálaráðuneyt
isins um mál þetta segir svo:
,,1 umsögn meirihluta bæjar-
stjórnar um mál þetta, sem áð-
ur er á minnzt, er kröfum yðar
og málsástæðum mótmælt, og því
éindregið haldið fram, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi íengið og
notað allan þann rétt, sem hann
éigi samkvæmt sveitarstjómar
lðgum og fundarsköpum fyrir
bæjarstjórn Hafnarfjarðar með
kosningu fulltrúa í bæjarráð.
Meirihlutinn telur, að með
þeirri ráðstöfun, sem gerð var
um heimild þess flokks, sem ekki
á fulltrúa í bæjarráði, til þess
að hafa þar áheyrnarfulltrúa,
hafi verið gerð hagkvæm
ráðstöfun um starfstilhögun,
sem ekki halli rétti annarrá
flokka í bæjarstjórn. Þessi ráð-
stöfun samrýmist fyllilega að-
gerðum, sem ýmsar sveitarstjóm
ir annars staðar á landinu, svo
sem í Reykjavík, Kópavogi og
Isafirði, hafi gert um skipan
sinna mála í tilvikum, hliðstæð-
um þeim, sem hér um ræðir. í>á
er því haldið fram, að Ijóst sé,
að hér sé ekki um kosningu í
bæjarráð að ræða, heldur um
sérstaka heimild, sem bæjarráð
eða bæjarstjórn veitir og fram-
kvæmir hverju sinni og þá fyrst
og fremst eftir því, hvort hag-
kvæmt sé að viðhafa þessa skip-
an mála eða ekki. Ákvæði 6. gr.
um fundarsköp fyrir bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar varð-
andi kosningu í nefndir, eigi því
ekki að neinu leyti hér við, held
ur sé hér um almenna afgreiðslu
mála að ræða, sem farl eftir 1.
mgr. 13. gr. um fundarsköp, sbr.
27. gr. sveitarstjómarlaga nr.
58/1961 um ályktanir sveitar-
stjórna í málefnum sveitarfélags
ins.
Að framangreindri útlistun og
röksemdafærslu málsaðila athug
uðum, hefur ráðuneytið komizt
að þeirri niðurstöðu, að ráðstöf-
un sú, sem hér er um deilt þ.e.
að heimila flokki þeim, sem ekki
á fulltrúa í bæjarráði Hafnar-
fjarðar að hafa þar áheyrnar-
fulltrúa, sé i alla staði eðlileg
og brjóti hvorki í bága við
grundvallarreglur í meðferð
sveitarstjórnarmáia né ákvæði
gildandi fundarskapa fyrir bæj
arstjórn Hafnarfjarðar."
Á fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar sl. þriðjudag lögðu bæj-
arfuiltrúar Sjálfstæðisflokksins
fram svohljóðandi greinargerð:
,,í tilefni af úrskurði félags-
málaráðuneytisins frá 7. október
s.l. um rétt meirihluta bæjar-
stjómar til þess að hafa áheyrn
arfulltrúa i bæjarráði, til viðbót
ar kjörnum fulltrúum, viljum
við undirritaðir bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, leggja fram
eftirfarandi greinargerð:
1. Við mótmælum úrskurði fé-
lagsmálaráðuneytisins, sem röng
um, bæði hvað sriertir röksemd-
arfærslu og niðurstöðu. Við telj-
um, að hér sé enn á ný um póli-
tískan úrskurð að ræða, sem
brjóti í bága við allar reglur
um kosningu og skipan nefnda
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
2. Við viljum sérstaklega
vekja athygli á, að í úrskurðin-
um er vitnað til reglna, sem
gilda í þrem öðrum sveitarstjórn
um, það er, Kópavogi, Reykja-
vík og ísafirði. Leitast ráðuneyt
ið við, að rökstyðja niðurstöðu
sína, með tilvitnun í þær reglur,
sem í þessum þrem sveitarfélög-
um gilda. Hlns vegar sniðgeng-
ur ráðuneytið algjörlega fundar
sköp bæjarstjórnar Hafnarfjarð
ar og minnist hvergi í niður-
stöðu sinni á 6. grein þeirra,
sem mælir skýrt fvrir um, að
nefndir bæjarstjórnar skuli
kjósa hlutbundnum kosningum.
Er þó ljóst, að það eru fundar-
sköp bæjarstjórnar Hafnarfjarð
ar, sem gilda í Hafnarfirði, en
ekki fundarsköp einhverra ann-
arra kaupstaða. Með þvi að
heimfæra þær reglur, sem gilda
i einstaka öðrum sveitarfélögum
upp á Hafnarfjörð, en hafna
ákvæðum fundarskapa bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar, við úr-
lausn ágreiningsmáls, sem risið
hefur í bæjarstjórn Hafnarfjarð
ar, þá viðhefur félagsmálaráðu
neytið vinnubrögð, sem eru and
stæð gildandi réttarreglum og
lagasjónarmiðum.
3. Skýrast. kemur hlutdrægni
félagsmálaráðuneytisins fram,
þegar það synjar Sjálfstæðis-
flokknum um sama rétt og það
veitir meirihluta bæjarstjóraar
til að eiga áheyrnarfulltrúa á
fundum bæjarráðs. Fimm bæjar-
fulltrúar meirihlutans hafa þeg-
ar kosið sína tvo fulltrúa í bæj-
arráð. Þar til viðbótar hefur fé-
lagsmálaráðuneytið úrskurð-
að meirihlutanum rétt til áheyrn
arfulltrúa í bæjarráði, svo full-
trúar meirihlutans, sem sitja bæj
arráðsfundi eru orðnir þrír.
Fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hafa kosið einn full-
trúa í bæjarráð. Ráðuneytið neit
ar Sjálfstæðisflokknum um rétt
til áheyrnarfuUtrúa í bæjarráði
á þeim forsendum orðrétt: „að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi með
kosningu f uUtrúa í bæjarráð
Hafnarfjarðar fengið og notað
allan þann rétt, sem hann á sam
kvæmt sveitarstjórnarlögum og
fundarsköpum fyrir bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar." Hér kem
ur rökleysan í úrskurði félags-
máiaráðuneytisins skýrast fram.
Annars vegar úrskurðar ráðu-
neytið, að fimm bæjarfulltrúar
meirihlutans hafi ekki notað all-
an sinn rétt með kosningu
tveggja manna í bæjarráð og
beri því til viðbótar réttur til
áheyrnarfuHtrúa. Hins vegar úr
skurðar ráðuneytið, að fjór-
ir bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hafi notað allan sinn
rétt með kosningu eins fulltrúa
í bæjarráð og beri því enginn
réttur tU áheyrnarfulltrúa. Hér
gengur ráðuneytið algjörlega
gegn ákvæðum 6. greinar fund-
arskapa fyrir bæjarstjórn Hafn
arf jarðar, sem mælir fyrir um, að
hlutfallskosningar skuli viðhafð
ar í allar nefndir bæjarstjórn-
ar. Samkvæmt þeirri reglu ber
fjórum bæjarfulltrúum réttur til
að kjósa 2 fulltrúa í þær nefnd-
ir, sem skipaðar eru 4 mönnum
og einnig 2 fulltrúa í fimm
manna nefndir. Úrskurður ráðu-
neytisins brýtur gegn ákvseði
fundarskapanna.
4. Ljóst ér, bæði hvað snertir
reynslu bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar og ýmissa annarra sveit-
arfélagá, að ekki er unnt að
treysta félagsmálaráðuneytinu,
sem óvilhöllum dómara í deilu-
málum, er upp kunna að koma
innan bæjarstjóma, varðandi
meðferð mála og ýmsar ákvarð-
anir sveitarstjórna, er ágrein-
ingi valda. Teljum við því nauð-
syniegt, að gerð verði breyting
á skipan þessara mála, þanníg,
að úrskurðarvaldið í slikum til-
fellum og hér um ræðir, verði
tekið úr höndum félagsmálaráð-
herra og fengið I hendur hlut-
lausum aðila, annað hvort hin-
um almennu dómstólum eða sér-
stökum dómstól, sem stofnaður
væri i þessu augnamiði.“
1 framhaldi af greinargerð
þessari lögðu bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins fram eftir-
farandi tillögu:
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
itrekar fyrri samþykkt sína um
að eigi verði lengur unað þeirri
skipan, sem verið hefur, um úr-
skurðarvald i deilumálum, er
upp kunna að koma innan bæjar
stjórna varðandi meðferð mála
og ýmsar ákvarðanir sveitar-
stjórna, er ágreiningi kunna að
valda.
Lítur bæjarstjórn svo á að
endanlegt úrskurðarvald póli
tísks ráðherra um siík deiluefni,
sem aUa jafnan eru sprottin aí
átökum á milli andstæðra stjóm
málaflokka, brjóti algerlega 1
bága við nauðsynlegt réttar-
öryggi, sem byggist á hlutlausu
dómsorði.
Með hhðsjón af framansögðu
skorar bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar á ríkisstjóm og alþingi, að
gera nauðsynlegar breytingar á
skipan þessara mála þannig að
úrskurðarvaldið í slíkum tiifell-
um sé tekið úr höndum félags-
málaráðherra og það fengið í
hendur hlutlausum aðila, annað
hvort hinum almennu dómstólum
eða sérstökum dómstólum sem
stofnaðir væru í þessu augna-
miði.“
TiUögu þessari var vísað frá
af meirihluta bæjarstjórnar, en
að honum standa Alþýðuflokk-
ur, Framsóknarflokkur og Félag
óháðra borgara. 1 umræðum um
tillögu þessa bentu bæjarfulltrú
ar Sjálfstæðisflokksins á, að til-
laga þessi væri alveg samhljóða
tiUögu er bæjarstjórnin hefði
samþykkt á árinu 1967 vegna
úrskurðar félagsmálaráðuneytis-
ins um fjárhagsáætlun bæjarins
og hefði sú tillaga þá verið sam-
þykkt m.a. með atkvæðum bæj-
arfulltrúa Félags óháðra borg-
ara.
Malta
Malta súkkulaðikexið er sjálfkjörið í hópi kátra félaga. Ánægjan
fylgir Malta jafnt á ferð sem flugi, — hvert sem er.
Það leynir sér aidrei, — Malta bragðast miklu betur.