Morgunblaðið - 07.11.1970, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVBMÍBER 1970
19
- Spjallað við
í*órhildi
Framhald af hls. 14
húss og muna og þarf að vera
í stöðugu sambandi við fóstr-
ur og annað starfsíólk og börn
in. Sjálf hef ég aldrei verið
við barnagæzluna, þ.e.a.s. ég
hef aldrei verið með heila
deild, en ég reyndi að eyða
alltaf einhverjum tima dagsins
hjá börnunum. Til dæmis þeg-
ar fóstrurnar fóru í mat eða
kaffi tók ég þau oft og lét þau
syngja.
— Hefur þetta ekki verið
skemmtilegt starf ?
— Jú, það hefur verið mjög
ánægjulegt og lifandi starf. Og
það á ég mest að þakka því
að ég hef alltaf haft gott starfs
fólk, lært og ólært, og sam-
vinnan hefur verið góð og góð
ur andi ríkjandi. Án samstarfs
fólksins hefði ég lítið getað
gert.
— Hafa orðið miklar breyt-
ingar á uppeldisaðferðum á
þessum 30 árum?
— Nei, uppeldisaðferðirnar
eru að miklu leyti þær sömu
og börnin leika sér enn að leir,
byggingakubbum og öðrum
uppeldisleikföngum. Fyrstu ár
in var erfiðleikum bundið að
fá leikföng, en svo var farið
að kaupa þau frá Svíþjóð þar
til Reykjalundur hóf fram-
leiðslu sína.
• BÖRNIN OG BLÓMIN
Þórhildur hefur reynt að
beina áhuga barnanna víðar en
að leikjum og leikföngum. Hún
hefur reynt að kenna þeim að
meta blóm og annan gróður og
í því skyni hefur hún komið
með mikið af íslenzkum fjalla-
plöntum og gróðursett í garð-
ana við dagheimilin, fyrst
Tjarnarborg og síðan Laufás-
borg. Plönturnar hefur hún að
allega haft með sér úr fjalla-
ferðum, en sumarleyfunum seg
ist hún bezt hafa varið með
því að ferðast á hestum um
óbyggðir Islands.
— Krökkunum þótti gaman
að kynnast plöntunum og
fylgdust vel með, þegar ég var
að koma þeim fyrir í görðun-
um. Ég hef aldrei skilið fólk
sem ekki vill leyfa börnum að
leika sér í görðum af hræðslu
við að þau eyðileggi blómin. Ef
maður fær börnin til að vinna
með sér i görðunum, fá þau
áhuga á blómum og læra að
umgangast gróður.
Þórhildur hefur nú formlega
yfirgefið börnin sín og blóm-
in, þótt hún heimsæki Laufás-
borg og aðrar stofnanir Sumar
gjafar öðru hverju. Er ég
spyr hana hvort ekki sé sökn-
uði blandið að hverfa frá starfi
sem þessu segir hún:
— Það er ekki alveg átaka-
laust að hætta. En það er bót
í máli að þegar ég lit yfir
þessi 30 ár finnst mér ég vera
búin að gera það, sem ég ætl-
aði mér, og þannig sé lífsstarf
inu eiginlega lokið. Það hefur
verið mjög skemmtilegt að fá
tækifæri til að vinna að þess-
ari uppbyggingu og samvinn-
ain við Sumargjöf, borgair-
stjórnir og borgarstjórana hef-
ur verið mjög ánægjuleg. —
Það hefur hjálpað mér að ég
hef alltaf verið mjög heilsu-
hraust og getað gert það sem
ég hef ætlað mér — þar til í
fyrra. Þá veiktist ég, er ég var
á ferðalagi í Tyrklandi, og
fékk upp úr því gulu, og eftir
að ég komst á fætur gat ég
ekki beitt mér eins og ég vildi
geta gert. Ég var löngu búin
að ákveða að vinna ekki leng-
ur en ég væri manneskja til —
og því hæfti ég í s'Uimaí, 1.
ágúst.
• ENGINN TfMI TIL
SKRIFTA
Nú hefur Þórhildur nægan
tima til hannyrða og lestrar
en meðan hún situr og hnýtir
teppi rifjar hún upp endur-
minningarnar. Og þegar hún
les í blöðunum fréttir af framá
mönnum, sem eitt sinn voru
litlir og léku sér í leikstofun-
um hjá henni, spyr hún sjálfa
sig: Hvernig voru þeir nú þeg-
ar þeir voru litlir?
Þegar Þórhildur fylgir mér
út að lyftunni segir hún:
— Ég ætlaði alltaf að reyna
að halda skrá yfir börnin, sem
voru hjá mér og lýsa þeim þar
jafnframt svolitið. Það hefði
verið svo gaman að geta flett
þar upp og borið lýsingar mín
ar á börnunum saman við þá
eiginleika, sem komið hafa í
Ijós eiftir 'a@ þaiu urðu. fuillorð-
in. — En það var alltaf of mik
ið að gera til að hægt væri að
taka sér tíma til skrifta.
ÞÁ.
Efnahagsstofnunin vill ráða
vana vélrítunarstúlku
og ungling til sendiferða kl. 2—6.
Umsækjendur leggi nöfn, heimilisfang og upplýsingar um fyrri
störf inn á afgreiðslu blaðsins merkt: „6372",
Ú tvarpsvirkjar
Óska eftir útvarpsvirkja til viðgerða aðallega á segulbands-
tækjum og plötuspilurum.
Umsókn sendist blaðinu merkt: „Útvarpsvirki — 6373".
EINKAUMBOÐ Á ISLANDI
HEIMSÞEKKT FYRIRTÆKI
sem framleiðir undir heimsþekktu vörumerki reiknivélar, sam-
lagningavélar, bókhaldsvélar og alls konar skrifstofuvélar og
pappír óskar eftir einkaumboðsmanni á Islandi.
Þeir, sem áhuga kunna að hafa á þessu eru beðnir að senda
nöfn sín og aðrar upplýsingar á afgreiðslu Morgunblaðsins
merkt: „Bókhalds- og skrifstofuvélar — 6098" sem allra fyrst.
R aftœkjaverzlun
vor verður opin til kl. 4.00 í dag laugardaginn 7. nóvember.
Komið og skoðið okkar fjölbreytta úrval af raftækjum, eitt-
hvað við allra hæfi.
Staðgreiðsluafsláttur af öllum stærri tækjum, einnig hagkvæmir
greiðsluskilmálar.
DRÁTTARVÉLAR H.F.
Hafnarstræti 23, sími 18395.
Oskilahestur
Hjá lögreglunni í Kópavogi er óskilahestur, bleikskjóttur með
stóra blesu. Mark, blaðstýft aftan hægra, biti.aftan vinstra.
Verði hestsins ekki vitjað fyrir 15. nóvember n.k. verður hann
seldur fyrir áföflnum kostnaði.
Nánari upplýsingar gefur Gestur Gunnlaugsson Meltungu,
sími 34813.
Nýleg 4ra herb. íbúð
Til sölu er nýleg 4ra herbergja íbúð (2 stofur og 2 svefriherb.)
á hæð í húsi vestast við Hraunbæ. Vandaðar innréttingar.
Lítur út sem ný. Stutt í verzlanir. Laus strax. Tvennar svalir.
Opið til kl. 19 í dag.
ARPJI STEFANSSON, hrl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
£ BLÚMAHÚSIÐ
f ALFTAMÝRI 7
Sími 83070.
Blómaunnendur venja komu sína í Blóma,-
húsið. Þar er skreytingameistari sem raðar
blómunum saman í vönd eða aðra skreyt-
ingu eftir yðar smekk.
Verð við allra hæfi.
Opið alla daga, öll kvöld og um helgar.
HafnarfjörBur
Aðalfundur Félags óháðra borgara
verður á morgun sunnudaginn 8. nóvember kl. 3.00 e.h.
í Góðtemplarahúsinu.
Venjuleg aðalfundarstörf, tillögur til lagabreytinga
og önnur mál.
Nýir félagar velkomnir.
STJÓRNIN.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 42., 44. og 45. tbl. Lögbirtingablaðsins 1970
á Síldarverksmiðjunni Rauðku á Goosreit á Siglufirði, ásamt
tilheyrandi, þinglesinni eign Siglufjarðarkaupstaðar, fer fram
eftir kröfu Útvegsbanka íslands, Ríkisábyrgðasjóðs Trygginga-
stofnunar ríkisins og Fiskveiðasjóðs Islands og hefst í dóm-
salnum Gránugötu 18 Siglufirði, fimmtudaginn 12. nóvember
1970 kl. 14.00 og verður síðan fram haldið á eigninni sjálfri.
Bæjarfógetinn á Siglufirði, 3. nóvember 1970.
Opið til kl. 4 í dag
FYRIR DÖMUR:
Maxi og midi pils,
maxi kjólar,
dragtir með pokabuxum.
FYRIR HERRA:
Safari jakkar,
midi frakkar,
föt með og án vesti.
Mikið úrval af peysum, bolum, buxum, skyrtum,
beltum o. fl., o. fl„ o. fl.
POPHÚSIÐ Grettisgötu 46, simi 25580.
^ crítakt
víÓ timann
18. öldin ?
Nei 20. öldin