Morgunblaðið - 07.11.1970, Side 20
20
MORGUN'BLAÐIÐ, LAUGARDA.GUR 7. NÓ'VKMBER 1970
Samkomulag
um stjórn
bæjarins
Svandísarmálið
FORMÁLI
Það hefur orðið samkomu-
lag milli mín og ritstjórnar
Morgunhlaðsins, að ég muni
. skrifa 3 greinar með hálfs
mánaðar millibili, um Kópa-
vogsmál almennt, þar sem
fram komi þau helztu verk-
efni er núverandi bæjar-
stjórn hyggst vinna að, gerð
verði grein fyrir fjármálaút
tekt á bæjarsjóði og einstök-
um bæjarfyrirtækjum svo og
tillögum að bættum rekstri
þeirra. Það verður og varla
hægt að komast fram hjáfþví
að gera nokkra grein fyrir
einstökum málum, sem helzt
er haldið á loft af andstæð-
ingum okkar, enda þótt þau
séu varla svaraverð, þar sem
þau snerta á engan hátt hags
muni bæjarfélagsins, en eru
oftast til þess að þjóna sér-
hagsmunum einstakra manna
og það er furðulegt siðgæði
að bjóða upp á slíkan mál-
flutning, enda mun það sizt
verða málefnum Kópavogs til
hagsbóta.
UMRÆÐUR UM STJÓRN
BÆ.IARINS
Það verður ekki í þessum
þáttum farið ítarlega út í þær
viðræður sem áttu sér stað
milli Sjálfstæðisflokksins og
annarra stjórnmálaflokka um
myndun meirihluta, sem voru
allítarlegar og málefnalegar.
Það kom einnig í Ijós, að hin-
ir svokölluðu vinstri flokkar
lögðu höfuðkapp á samstarf
og virtust framan af mjög
bjartsýnir um árangur, en
fljótlega fóru að berast fregn
ir af ósamkomuiagi þeirra um
val á bæjarstjóra og skip-
an einstakra embætta, en það
vill oft henda fleiri af þess-
um vinstri flokkum en Al-
þýðuflokkinn að höfuð-
áherzla þeirra er lögð á að
koma gæðingum flokkanna í
embætti, en minna er hugsað
um velferð bæjarins. Lauk
svo þessum einstöku og við-
frægu samkomulagstilraunum
vinstri aflanna hér í bæ með
algjörum slitum og voru þá
ekki spöruð skammaryrðin.
SAMKOMULAG SJÁLF-
STÆÐISFLOKKSINS OG
FRAMSÓKN AR-
FLOKKSINS
Það tókst þó að lokum að
mynda starfhæfan og sam-
stilltan meirihluta, sem vænta
má mikils af og var það tví-
mælalaust mikið gæfuspor fyr
ir Kópavogsbúa, enda lang-
þreyttir á stjórnleysi undan-
farinna ára.
Það lofar einnig góðu
hversu vel hefur tekizt til um
val á bæjarstjóra, en hann
hefur góða menntun og
reynslu til þess að gegna
þessu starfi, auk þess sem
komið hefur í ljós, að hann
er gæddur einstökum skipu-
lagshæfileikum og góðri inn-
sýn almennt í fjármál.
Sjálfstæðisflokknum si,óð
einnig til boða samstarf við
Alþýðubandalagið á svipuð-
um grundvelli og hér hefur
verið rakið, en það varð of-
an á í fulltrúaráði flokksins
að taka heldur upp samstarf
við Framsóknarflokkinn, en
þar sem helzt er að skilja á
blaði þeirra í Kópavogi að
svo hafi ekki verið, tel ég
nauðsynlegt að það komi
fram, að þeir Þormóður Páls
son, Björn Kristjánsson og
Sigurður Grétar Guðmunds-
son, höfðu samband við
samninganefnd Sjálfstæðis-
flokksins, þar sem þeir
kynntu þeim tillögur sínar,
sem þeir sögðu, að væru ekki
samþykktar endanlega í
þeirra flokki, en varla kæmu
þeir umboðslausir til þess-
ara samræðna.
MÁLEFNASAMNINGUR
Hann er eftirfarandi: Sam-
komulag hefur orðið milli
Sjálfstæðisflokksins og Fram
sóknarflokksins í Kópavogi
um samstarf í bæjarstjórn-
inni og er það einkum reist
á eftirfarandi sex atriðum:
1. Kjöri bæjarstjóra, forset
um bæjarstjórnar svo og
kjöri í nefndir.
2. Til grundvallar samstarf
inu verða lagðar málefnayfir
lýsingar flokkanna fyrir
kosningar.
3. Nú þegar verði gerð út-
tekt á fjármálastöðu bæjar-
ins, þar sem skýrt komi i
ljós, hver framkvæmdageta
hans sé án lántöku, svo og
hvernig greiðslum á lausa-
skuldum er háttað.
4. Gerð verði framkvæmda
áætlun fyrir komandi kjör-
timabil, sem lokið verði eigi
síðar en um næstu áramót.
Sérstök áherzla verði lögð á
varanlega gatnagerð og iagn
ingu gangstétta. Þegar verði
hafnar viðræður við lána-
Þingliólsskóli við Kópavogsbraut.
bæjarverkfræðingur, voru
einnig þeir starfsmenn á veg
um bæjarins, sem mest reið á
að hafa gott taumhald á og
eðlilega brást algjörlega sú
yfirstjórn á bænum, með
þeim afleiðingum að fyrrver-
andi meirihluti féll úr 55%
fylgi meðal Kópavogsbúa nið
ur í 43% auk þess sem nýir
menn að mestu höfðu tekið
við forystunni í Framsóknar-
flokknum.
Að lokum vil ég sérstak-
lega þakka Hjálmari Ólafs-
syni fyrir ánægjulega sam-
vinnu undanfarin tvö kjör-
timabil og viðskilnaður hans
á starfi sínu sem bæjarstjóri
sýnir enn betur hvílikur
drengskaparmaður hann er.
KVEÐJUR FRÁ
BLAÐINU KÓPAVOGI
1 blaði sínu reyna kommún
istar hér í bæ, að gera mik-
ið úr söknuði sínum vegna
fráhvarfs Hjálmars sem bæj-
arstjóra, en ferst það þó illa
úr hendi.
Það er öllum ljóst, sem
þekkja til bæjarmála í Kópa
KÓPAVOGSBRÉF
stofnanir um möguleika á að
fjármagna aðkallandi fram-
kvæmdir.
5. Leitað verði álits sér-
fróðra manna um endurskipu
lagningu á rekstri bæjarskrif
stofunnar og tæknideildar og
fyrirtækja bæjarins með það
fyrir augum að lækka rekst-
urskostnað og koma í veg fyr
ir óþarfa þenslu í stjórnkerf
inu.
6. Höfð verði sem bezt sam
vinna við þá flokka innan
bæjarstjórnar, sem ekki eru
aðiiar að þessu samkomulagi,
við framvindu ofangreindra
mála, svo og annarra, sem til
heilla horfa fyrir Kópavog.
ÞÖKKUM HJÁLMARI
ÓLAFSSYNI
Það er eðlilegt að þakka
Hjálmari Ólafssyni fyrir
mörg ágæt störf hans, sem
bæjarstjóra, en þvi starfi
hefur hann gegnt um 8 ára
skeið og komið mörgu góðu
til leiðar. Þar er til fyrir-
myndar reglusemi hans í emb
ættisrekstri og þess gætti
hann mjög, að halla ekki á
rétt minnihlutans í bæjarmál
um. Aftur á móti var það
stjórnarfyrirkomulag óþol-
andi, sem hann starfaði und-
ir, að yfirmenn hans, þ.e. bæj
arráðsmennirnir Ólafur Jóns
son, forstjóri strætisvagna
Kópavogs og Ólafur Jensson,
vogi, að Ólafur Jónsson, for-
stjóri strætisvagna Kópavogs
hefur ætlað sér þetta starf
fyrir löngu og starfað að því
leynt og ljóst að komast í
embættið. Þessi ásetningur
hans átti þó að fara með
leynd og hvergi að koma fram
opinberlega, en svo heppi-
lega vildi þó til, að þegar
bæjarstjórn Kópavogs sam-
þykkti að segja bæjarstjóra
upp starfi sinu og ákvað að
auglýsa það til umsóknar, þá
sátu bæjarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins hjá við atkvæða
greiðsluna, þ.e. þau Svandís
Skúladóttur og Sigurður G.
Guðmundsson og með því
sýndu þau meðal annars tví-
skinnung sinn í þessu máli.
Á líkan hátt sýna þau inn
ræti sitt í bréfi til Fram-
sóknarflokksins í Kópavogi
dagsettu þann 25. júní 1970,
en þar láta þau í veðri vaka,
að staðið hafi framsóknar-
flokknum til boða að
gera Ólaf Jensson að bæjar-
stjóra. 1 þessari sömu grein
bjóða þau einnig Al-
þýðuflokknum að tilnefna bæj
arstjóra og er það sanni nær
en fyrri fullyrðing, en þá
var það gert með því skilyrði,
að Framsóknarflokkurinn réði
bæjarritara og ætluðu þá Al-
þýðubandalagsmenn að endur
skipuleggja tæknideildina,
eins og það var nefnt hjá
þeim og ráða Björn Ólafsson
sem bæjarverkfræðing.
Þannig verður hlutur Al-
þýðubandalagsmanna hér i
þessum bæ í sambandi við
myndun meirihluta, engan
veginn góður og er þess
vegna engin furða, þótt gagn
rýni þeirra á störf núver-
andi meirihluta veki furðu
allra hugsandi manna og
kvenna, og er á lægra menn
ingarstigi en ætla mátti jafn-
vel af þeim.
FÖSTRUMÁLIÐ
Á borgarafundi sem hald-
inn var í Víghólaskólanum og
sóttu um 700 manns, þar sem
fluttar voru framsöguræður
og leyfðar fyrirspurnir
voru þau Sigurður G. Guð-
mundsson og Svandís Skúla-
dóttir spurð að því, hvort
þau væru á launum hjá Kópa
vogsbæ sem starfsmenn og
svöruðu þau bæði þessari
spurningu á svipaðan hátt,
Sigurður sagðist vera formað
ur Byggingarnefndar Hafnar
fjarðarvegar og sem slíkur
fengið greitt aukalega og
Svandís sagðist sem formað-
ur Leikvallanefndar hafa %
hluta af launum fóstru og
voru þessar skýringar þeirra
taldar fullnægjandi og tæm-
andi.
Hér voru þau bæði að
skýra rétt frá staðreyndum og
var áðurnefndur skilningur
þeirra algjörlega réttur að
flestra dómi. Nú bregður svo
við, að Alþýðubandalags-
menn hér í Kópavogi höfðu
ekkert mál til þess að koma
fram með og gripu þá for-
svarsmenn þeirra samtaka til
þess ráðs, að gera Svandísi
Skúladóttur að píslarvætti í
augum almennings í Kópa-
vogi og því miður virðast
alltof margir hafa látið glepj
ast af falsrökum þeirra í
þessu máli.
Nú skyldi maður ætla, að
reynt hafi verið af þeirra
hálfu að grípa til þess ráðs
að segja, að Svandísi Skúla-
dóttur hafi orðið á mismæli,
var það raunverulega eina
von þeirra til þess að byggja
upp málið, en þess i stað
reyna flokksmenn hennar að
halda því fram, að hún hafi
aldrei sagt þessi orð, þrátt
fyrir, að 700 vitni voru við-
stödd og heyrðu hið gagn-
stæða, og eðlilega, þegar
þannig er staðið rangt að mál
um í upphafi, verður eftir-
leikurinn svipaður.
Nú vill svo til, að í lögum
um réttindi og skyldur starfs
manna ríkisins sbr. 1. gr.,
þar sem skilgreint er hverjir
eru opinberir starfsmenn,
eru þeir einir nefndir, sem
hafa starf á vegum hins op-
inbera, sem talið verður aðal
starf, en það liggur í augum
uppi, að Svandís hafði að-
eins % úr starfi og þvi gilda
lögin engan veginn um starf
hennar, og allt tal fylgis-
manna hennar um lögleysu
er þar með úr gildi fallið
sem dautt og ómerkt.
Auk þess segir í sömu
grein, að ef starfsmaður hef-
ur uppi ágreining um gildi
starfs síns, þá sker fjármála-
ráðherra úr. Hinir ötulu mál
svarar Svandísar Skúladótt-
ur í hinu margnefnda .fóstru
máli hafa aldrei gert neitt til
þess að ná rétti sínum þann-
ig á lagalegan hátt, enda
eðlilegt þar sem þeim hafa
verið ljósar þessar ofan-
greindu staðreyndir.
Á HVERJU BYGGIST
STARFIÐ?
Þá kemur að lokum að sið
ustu röksemd andstæðinga
okkar í þessu máli, en hún
byggist á því að menntun
Svandísar Skúladóttur, sem
er lærð fóstra, ætti að ráða
úrslitum um þetta starf henn
ar. Einnig þessi röksemd er
algjörlega úr lausu lofti grip
in, þvi að starf formanns leik
vaiianefndar er í því fólgið,
að stjórna fundum nefndar-
innar og hafa með höndum
eftirlitsstörf með dagheimili
og leikvöllum og vera þann-
ig tengiliður við bæjarskrif-
stofurnar. Jónas Pálsson, sál-
fræðingur, var og einnig
þeirrar skoðunar, að þetta eft
irlitsstarf væri bezt rekið af
skrifstofu bæjarins. Það vek
ur aftur á móti furðu allra
bæjarbúa hvaða sérmenntun
Svandís Skúladóttir hefur
nýlega öðlazt í byggingar-
list, þar sem flokkur hennar
telur sig sérstakan málsvara
fagmanna, að hún skuli hafa
orðið til þess að reka hinn
kunna byggingarmeistara Leó
Guðlaugsson úr byggingar-
nefnd Kópavogs, en hann
hafði átt sæti i henni um 8
ára skeið og starfað þar af
mikilli prýði.
ÁSTHILDUR
PÉTURSDÓTTIR
Það hlýtur að vera ósk
okkar Kópavogsbúa að hin-
um glæsilega formanni leik-
vallanefndar, Ásthildi Pét-
ursdóttur, gangi vel og verði
allt til heilla i starfi sínu,
en hún og nefndin hafa þeg-
ar tekið til starfa af miklum
skörungsskap og dugnaði.
Einnig er gott að hafa i huga
að Svandís Skúladóttir hefur
góða reynslu í þessum mál-
um og vænti ég þess, að þeg
ar stríðshamurinn verði far-
inn af henni, þá leggi hún
starfskrafta sína af mörkum
eftir beztu getu, hvort sem
hún er í meirihluta eða minni
hluta.
Sig. Helgason hrl.