Morgunblaðið - 07.11.1970, Síða 21
MORGUN'BLAÐIÐ, UAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1970
21
— Tunglgrjót
Framhald af bls. 32
þórsson, jarðfræðingur nokkra
grein fyrir gripnum og ferð hana
til jarðar. Hann sagði m.a.:
24. júlí 1969 lenti Apolló 11. í
Kyrrahafi með 22 kg farm af
tunglbergi. Sýnum þessum var
dreift meðal meira en 500 vís-
indamanna í 140 rannsóknastof
um í 9 þjóðlöndum. Til að fyrir
byggja tvíverknað hafði hlut-
verkum verið skipt mörgum ár-
um áður og tíminn notaður til
að byggja upp sérhæfðan tækja-
kost, aðstöðu og rannsóknafimi
stofnananna.
Fyrstu rannsóknaniðurstöð-
urnar voru ræddar og kynntar
á tunglþingi í Houstotn í janúar
1970, og birtar skömmu siðar í
tímaritinu Science.
Við rannsóknirnar var beitt
öllum þeim vélum og kunnáttu,
sem þróazt hefur í jarðfræðum
síðasta áratuginn, auk klassiskra
aðferða.
Fram til þessa tíma byggðust
hugmyndir manna um uppruna
og eðli sólkerfisins að miklu
leyti á rannsókn og efnagrein-
ingu loftsteina, en hátt á annað
þúsund steinar hafa verið ítar-
lega kannaðir. Tunglsýnin komu
í flestu á óvart. Rannsókn þeirra
hefur leyst ýmsar gátur, en þó
vakið fleiri.
Yfirborð tunglsins skiptist í há
lendi og láglendar flatneskjur
eða sléttur, sem nefndar eru mar
ia eða höf. Apolló 11. lenti í
Mare tranquillitatis — Hafi
kyrrðarinnar — en Apolló 12. á
hálendi. Hefur lítið kvisazt um
niðurstöður rannsókna úr ferð
hins síðarnefnda enn sem komið
er.
Bergfarmur Apolló 11. skiptist
í 3 flokka: basiskt gosberg (blá
grýti eða grágrýti), ryk og fín-
gert þursaberg, sem er sam-
breyskja smákorna af ýmsum
uppruna. Steinn sá, sem hingað
er kominn, er úr fyrsta flokkn
um.
Aldur þursabergsins og ryks-
ina reyndist vera um 4500 millj
ón ár, eða svipaður aldri jarðar
og sólkerfisins. Hraunlagið, sem
undir liggur, er hins vegar 3700
milljón ára, eða 800 milljón ár
um yngra.
Við fyrstu sýn líkist gosberg
ið venjulegu jarðargrágrýti —
frumsteinar þess eru hinir sömu
þótt í öðrum hlutföllum séu. En
þó er mikill munur á, og veldur
þar einkum tvennt. Tunglbergið
inniheldur miklu minna vatn,
og miklu meira títan en jarðar-
berg. Vatnsleysi bergkvikunnar
olli afarlágum súrefnisþrýstingi,
sem leiddi til óvenjulegrar stein
efnasamsetningar. Þrjár áður ó-
þekktar steintegundir hafa fund
izt í tunglberginu, en þær eru
til orðnax vegna hins lága súrefn
isþrýstings. Ýmsar aðrar stein-
tegundir, sem eru afar sjaldgæf-
ar í jarðarbergi, eru algengar þar
af sömu ástæðu.
Tilraumk með tunglberg sýna,
að það storknaði að mestu milli
1200 og 1060°C, sem er svipað
hitastigi hraunkviku á jörðinni.
Þær hafa ennfremur leitt í ljós,
að tunglkvikan var mjög þunn-
fljótandi, svo að engir hraunjaðr
ar mynduðust. Aðalrökin gegn
þ-ví að „höfin“ séu hraunflóð
hafa einmitt verið þau, að engir
hraunjaðrar eru sýnilegir. Hins
vegar mátti vænta þess, að hraun
með seigju jarðkviku hefðu háa
jaðra í hinu veika þyngdarsviði
tunglsins.
f Mare tranquillitatis eru tvö
lögmál jarðfræðinnar brotin: —
Rykið og þursabergið er eldra
(4500 milljón ára) en hraunið,
sem undir liggur (3700 milljón
ára), og eðlisþyngd yfirborðs-
hraunanna er meiri en meðal-
eðlisþyngd tunglsins sjálfs. Af
hinu síðarnefnda er sú ályktun
dregin, að samsetning gosbergs-
ins í Mare tranquillitatis gefi
ekki rétta hugmynd um sam-
setningu tunglsins.
Flestir munu hallast að því, að
árekstrar við stóra loftsteina
hafi valdið myndun „hafanna",
enda má ætla, að meiri óreiða
hafi ríkt í sólkerfinu í árdaga en
nú, og reikistjörnurnar hafi á
fyrstu þúsumd milljón árum ævi
sinnar „sópað upp“ meiri hluta
þeirra stóru loftsteina, sem á
sveimi voru.
Talið er að 1000 til 10.000 tonn
af loftsteinum og „geimryki"
falli inn í andrúmsloft jarðar á
degi hverjum. Mestur hlutinn
brennur upp í andrúmsloftinu.
Á tunglinu er engin slík vöm,
enda ber yfirborð þess merki
slíkrar loftsteinahríðar, sem stað
ið hefur i 4500 milljón ár.
Þursabergið og rykið, sem
þekja gosbergið í Mare tran-
quillitatis, eru af þessu tagi: sam
sett úr brotum loftsteina, tungl-
hrauna og bergtegunda, sem
taldar eru ættaðar úr hálendum
tunglsins.
Um uppruna tunglsins eru
fjórar meginkenningar: a) Tungl
ið „rifnaði út úr“ jörðinni, b)
jörðin og tunglið mynduðu:V
saman sem „tvístirni", c) tungl
ið myndaðist annars staðar í sól
kerfinu, en lenti síðar innan
þyngdarsviðs jarðar, og d) tungl
ið myndaðist utan sólkerfisins og
barst inn í það síðar. Ferð Ap-
olló 11. hefur ekki leyst þessa
gátu. Þó bendir aldur mánans
til þess, að hann hafi myndazt
með sólkerfinu. Ef hann rifnaði
frá jörðinni, átti sá aðskilnaður
sér stað mjög snemma.
Tunglið er „dauður hnöttur“,
og hefur verið það lengi. í berg-
inu er vottur af segulmögnun,
sem gæti annað hvort hafa mynd
azt í segulsviði jarðar, þegar
tunglið og jörðin voru nær hvort
öðru, eða á þeim tíma, er tungl
ið hafði bráðinn kjarna eins og
jörðin.
Þrátt fyrir víðtæka leit hafa
engar lífverur né verksummerki
iífs fundizt á tunglinu.
Elzta berg jarðarinnar er um
3500 milljónir ára, eða u.þ.b. jafn
gamalt og yngsta berg tunglsins.
Þannig mun tunglið veita mikil-
væga vitneskju um fyrstu 1000
milljón ár sólkerfisins. Ef höfin
á tunglinu eru 3700 milljón ára,
og sum jafnvel yngri, og mynduð
í árekstrum við stóra loftsteina,
hefur jörðin væntanlega orðið
fyrir sama aðkasti fram til þess
tíma. Virðist ekki hafa verið væn
legt fyrir myndun lífs á jörðinni
fyrr en dró úr loftsteinahríðinni,
en af þeim niðurstöðum má marg
77/ sölu
Af sérstökum ástæðum er lítil nýlenduvöruverzlun til sölu
á mjög góðum kjörum. verzlunarleyfi fylgir.
Tilboð merkt ..Verzlun — 6374" sendist afgr. Mbl.
Óskum eftir að ráða
2 aðstoðarmenn á renniverkstæði.
Vélaverkstœði Sig. Sveinbjörnssonar
Arnarvogi, Garðahi-eppi.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Klöpp við Blesugróf, þingl eign Gunnars
Árnasonar, fer fram á eigninni sjálfri, miðvikudag 11. nóv. nk.
klukkan 11.00
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
N auðungaruppboð
annað og síðasta á Skipasundi 33. þingl. eign Gunnars Sig-
urjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri, fimmtudag 12. nóv.
nk. kl. 11 f. h.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
an lærdóm draga.
Jarðfræðin er gömul vísinda-
grein. Eftir áratuga rannsóknir
á jörðinni hefur margt skýrzt,
þótt enn sé mikið starf fyrir
höndum. Þess er vart að vænta
að nákvæm rannsókn á 22 kg af
bergi frá smásvæði á tunglinu
geti leyst allar gátur þess hnatt
ar. En merkilegt skref hefur ver
ið stigið.
Ekið á hallamæli
EKIÐ var á Zeiss-hallaimæli utm
kl. 15 í gær þair semn hann var í
kassa viið þrífót þainn, sem hann
er settur á. Umih'verfis þrífótiinn
voru gulir hælar til viðvörunar.
Tækin sikeimimdust mikið, en þau
eru mjög verðmæt. Gerðist þetta
á mótuim Nýbýlavegar og Breið-
holtsvegair. Okumaiður bifreiðair-
innar sem sikeimimdum olii, eða
vitni eru beðin um að gefa sig
fraim við rann'SÓknarlögregliuna.
Hafnarfjörðui
Samkoma í Góðtemplarahúsinu sunnu-
daginn 8. nóvember kl 20,30.
Sigurður Bjarnason talar um efnið:
Er endurreisn fsraelsríkis tímanna
tákn?
Er stórtíðinda að vænta frá lönd-
unum við Miðjarðarhafsbotn?
Einsöngur: Árni Hólm.
Allir velkomnir.
HEY-LO
OLÍUOFNARNIR
KOMNIR AFTUR
PANTANIR ÓSKAST
SÓTTAR
Byggingavöruverzlun Kéguvogs
Kársnesbraut 2. — S'mi 41000.
Sköfum útihurðir
og utanhússklæðninga.
HURÐIR & PÓSTAR
Sími 23347.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á B-götu 20, Vesturlandsbraut, þingl. eign
Gunnvarar Skarphéðinsson, fer fram á eigninni sjálfri, mið-
vikudag 11. nóv. nk. kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 18., 20. og 22. tbl. Lögbirtingablaðs 1970
á hluta í Grýtubakka 28, talinni eign Sigurðar Jenssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar, Jóns Finnssonar hrl., Verzl-
unarbanka fslands h.f. og Veðdeildar Landsbankans á eign-
inni sjálfri. miðvikudag 11. nóv. nk. kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 66., 67. og 69, tbl. Lögbirtingablaðs 1969
á Bragagötu 38 A, þingl eign Gunnars B. Jenssonar, fer fram
eftir kröfu Iðnaðarbanka fslands h.f. og Gjaldheimtunnar í
Reykjavík á eigninni sjálfri, miðvikudag 11 nóv. nk. kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Kertamarkaðurinn
NÚ GEFUM VIÐ NOKKRUM ÁNÆGÐUM VIÐSKIPTAVINUM
OKKAR ORÐIÐ.
„ERU bETTA HILLINGAR EÐA ERU ÞETTA ALLT KERTI" . . .?
„ÉG HEF ALDREI A MINNI ÆVf SÉÐ ANNAÐ EINS
KERTAÚRVAL" . . .
„HVERNIG f ÓSKÖPUNUM GETIÐ ÞIÐ SEI.T KERTIN
SVONA MIKIÐ ÓDÝRARI . . .?
„KOSTA ÞESSI KERTI, VIRKILEGA EKKI MEIRA" . . .?
SVONA UMMÆLI OG ÖNNUR SLÍK ERU
OKKAR REZTU MEÐMÆLI.
EINA KERTASÉRVERZLUN LANDSINS.
ÚRVAl. KERTASTJAKA.
MATAR- OG KAFFISERVIETTUR
f KERTALlTUNUM.
BLÓMAVERZLUIMIIM EDEN
DOMUS MEDICA.
OPIO ALLA DAGA