Morgunblaðið - 07.11.1970, Blaðsíða 30
30
MORGXJNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1970
Danirunnu 12-11
er íslenzku stúlkurnar mættu
þeim á Norðurlandamótinu í gær
ISLENZKU stúlkurnar í norrænu kvennakeppninni í handbolta
stóðu sier m.jóg: vel í f.vrsta leik sínum, en mótið liófst í Moss í
Noregfi í ffær. ísland ok Danmörk &ttu annan leik mótsins og varð
þegrar hörkubarátta. En bó sigru þær dönsku fram úr í mörkum og
var staðan 7:4 Dönum í vil í leikhléi. En ísL stúlkurnar létu það
ekki á sig ffe, sóttu á og ógnuðu verulega sigri dönsku stúlkn-
anna sem eiga m.jög gott lið, sem fengið hefur ákjósanlegan
undirbúning. T.okaiirslitin urðu 12:11 Dönum í vil — og höfðu
þá isl. stúlkurnar unnið síðari hálfleikum með 7:5. Er þetta betri
úrslit en búizt hafði verið við.
egi O'g síðan í næsta leik — en
þó með góðu hléi — liði Svía.
Á sunnudaginn eiga svo ísl.
stúlkurnar að leika við Finna.
En það fór ekki milli mála að
það var lið Noregs sem er bezt
á mótiinu. í fyrsta leik mótsins
vann Noregur lið Svía með 13:3
(8:2 í hléi) og sýndu frábæran
leik. Síðar í gær mætti norska
liðið hinu finnska. Höfðu norsku
stúlkumar algera yfirburði og
unnu 22:2 (10:0 í hálfleik) og
mun það fátítt ef ekki einsdæmi
í kvennaleik að þau úrslit komi
upp.
NTB-fréttastofan segir að ísl.
stúlkumar hafi byrjað mjög
ha^San leik einkum í vöm og síð
an hafi Danir leikið slíkt eftir.
Harkan hafi eyðilagt léttleik
danska liðsins.
Sylvíu Hallsteinsdóttur og Guð
rúnu Helgadóttur var vikið af
velli í 2 mín. fyrir hörku.
Mörk Dana skoruðu Anne-Mar
ie Nielsen, K. Rasmussen, Aase
Jensen og B. Hansen 2 hver, L.
Sörensen og L. Nielsen sitt hvor.
Mörk íslands: Sylvía 4, Sigrún
Guðmundsdóttir 3, Björg Guð-
mundsdóttir og Sigrún Ingólfs-
dóttir 2 hvor.
í sérflokki í ísl. liðinu þótti
Sylvía Hallsteinsdóttir, en mjög
er rómaðúr leikur Jónínu Jóns-
dótt-ur í marki ísl. liðsins.
Dómarar voru norskir.
í gær átti að fara firam 4. leik
ur mótsins milli Dana og Svía.
f dag er erfitt prógramm hjá
ísl. liðinu, það mætir fyrst Nor
Ágóða-
leikur
fyrir UL
UNGLINGALANDSLIÐIÐ í
knattspyrnu sem nú undirbýr ut
anför til Skotlands og Wales leik
ur á morgun „ágóðaleik" fyrir
förina í HafnarfirSi. Mótherjar
liðsins verða þá úrvalslið Hauka
og FH. Leikurinn hefst kl. 2 á
sunnudag á vellinum í Hafnar-
firði.
Hér má sjá ákveðnina í leik Eyjamanna þá er þeir kepptu við
Keflavik. Friðfinnur Finnbogason miðvörður skallar frá en Páll
Pálmason markvörður er tilbúinn að baki. Haraldur „gullskaili“
fylgist með. —Ljósm. Sv. Þorm.
U r slitaorr ustan
um bikar KSÍ er milli Fram og ÍBV í dag kl. 2
Harkan eykst
í handboltanum
í*rír leikir í meistaraflokki
verða leiknir annað kvöld
NÆSTU leikir í meistaraflokki
karla í Reykjavíkurmótinu í
Haraldur Kornelíusson, TBR
handknattleik verða n.k. sunnu
dag, 8. nóvember og leika þá
Víkingur — KR, lR — Fram og
Ármann — Þróttur. Valur hef-
ur nú forystu með 8 stig eftir 5
ieiki, en Fram stendur hins veg
ar bezt að vígi með 6 stig eftir
3 leiki, og er það eina liðið sem
ekki hefur tapað stigi í mótinu.
ÍR-ingar hafa einnig 6 stig, en
hörð barátta verður væntanlega
um 4. sætið miili KR, Víkings og
Ármanns.
Á sunnudaginn verða einnig
leikir í 3. flokki karla, 2. flokki
kvenna og 1. flokki karla.
1 1. flokki karla er Ármann
efst með 8 stig eftir 4 leiki, en
Valur næstur með 6 stig eftir 4
leiki.
1 2. flokki karla hefur Valur for
ystu með 6 stig eftir 4 leiki en
KR og Fram koma næst með 5
stig.
1 3. flokki karla er Fram efst
með 10 stig eftir 5 leiki en næst
koma Ármann og Víkingur með
8 stig eftir 5 leiki.
Á DAG kl. 2 hefst úrslitaorrust-
an um bikar KSÍ. Það eru Fram-
arar og Vestmannaeyingar sem
úrslitaorrustuna heyja. Ef að lík
um lætur verður mikil og góð
„bikarstemmning" á Melavellin-
um, þvi hún hefur fylgt Vestm.-
eyingum alla þeirra erfiðu braut
fram til úrslitaleiksins. Og þó
Fram leild á sínum heimavelli,
mun áreiðanlega hcyrast í Vest-
mannaeyingum sem hópast til
leiksins og bregða upp sínum
hvatningarkór — svo jafnvel er
hætta á að þeir „steli“ heimaveB
Inum frá Fram.
Sem fyrr segir hafa Vest-
mannaeyingar vakið athygli fyr-
ir þá sigurgöngu sem þeir hafa
gengið fram til þessa úrslita-
leiks. Þeir lögðu fyrst Akureyr-
inga að velli, siðan Islandsmeist
ara Akraness og loks Keflvik-
inga. Þetta telst erfiðari braut
en hin liðin hafa gengið. En þessi
braut hefur líka stappað stálinu í
liðið og aðdáendur þess og eng-
inn vafi er á að þeir mæta tví-
efldir til leiks í dag.
En Fram-liðið er heldur ekk-
ert lamb að leika sér við. Það
hefur sannarlega náð þeim sigr-
um er til boða stóðu síðara hluta
sumars. Sýndi festu og náði 2.
sætinu i Islandsmótinu og KR
varð þeim ekki hindrun í undan-
úrslitum.
Þetta ætti því að verða hörku
leikur — eins og sönnum bikar-
úrslitaleik ber að vera. Verði
50 manna mót í badmin-
ton 1 Laugardal 1 dag
Keppt í einliðaleik karla
og tvíliðaleik kvenna
TENNIS- og badmintonfélag
Reykjavíkur efnir til mikils op-
ins móts í Laugardalshöil í dag.
Verður keppt í einliðaleik karla
og í tvíliðaleik kvenna. I karla-
flokki eru keppendur 38 talsins og
verðnr þar um eins konar út-
sláttarkeppni að ræða. í flokki
kvenna eru keppendur 12 tals-
ins. Verðnr þetta með meirihátt
ar eins dags mótum og gerir
Laugardalsliöllin kleift að ljúka
keppninni á einum degi.
1 karlaflokki fara fyrst fram
18 leikir, en tveir keppendur sitja
hjá. Þeir sem sigra í fyrstu leikj
unum halda áfram keppni í að-
alflokki, en hinir sem tapa
mynda „aukaflokk" þar sem þá
hefst sérstök keppni milli þeirra.
Eftir þessa skiptingu fer keppn-
in fram á venjulegan hátt — sá
er úr leik sem tapar í báðum
flokkunum.
Meðal keppenda á mótinu má
nefna Harald Kornelíusson, Jón
Árnason og Steinar Petersen frá
TBR, Óskar Guðmundsson, Is-
landsmeistara í einliðaleik og
Reyni Þorsteinsson báða frá
KR og þá Hörð Ragnarsson og
Jóhannes Guðjónsson en þeir eru
frá Akranesi, þar sem badmint-
on er á mikilli uppleið, þó enn
muni þeir varla blanda sér í
stríðið um sigurlaunin. Frá þess
um 3 félögum eru keppendur 38
og í þeim hópi eru flestir ungl-
ingameistararnir sem látið hafa
mikið að sér kveða á sl. tveimur
árum.
1 tvíliðakeppni kvenna eru
keppendur frá TBR og KR og all-
ar með sem oftast hafa sigr-
að á liðnum árum.
jafnt að leiktíma loknum verð-
ur framlengt í 2x15 mín. en verði
enn jafnt þá fer fram nýr leik-
ur.
En fáist nú úrslit verður sið-
asti leikur ársins á sunnudag á
Melavelli kL. 1.30. Þá Leika til úr-
slita í bikarkeppni 2. flokks liið
ÍBV og Þórs á Akureyri. Vest-
mannaeyingar eru sem sé alls
staðar með puttana í bikurun-
um.
Luigi Riva, sem talinn er meðal beztu og marksæknustu fram-
herja heims, brotnaði á ökkla í landsleik ítalíu og Austurríkis,
sem fram fór í Vín sl. laugardag og lauk með sigri ítalíu,
tveimur mörkum gegn einu. Riva verður því frá knattspyrnu í
vetur og er það mikill skaði fyrir ítalska knattspymu. Á mynd-
inni hér að ofan sést Riva hníga niður ökklabrotinn eftir hart ná-
vígi við austurrískan leikmann.
ítölsku meistararnir
slegnir út
ANNARRI umferð Evrópukeppn
innar í knattspyrnu lauk í fyrra-
kvöld. Atletico Madrid sigraði ít
ölsku meistarana, Cagliari, með
þremur mörkum gegn engu.
Leikurinn fór fram í Madrid, en
fyrri leik liðanna sem fram fór
á Sardiníu, lauk með sigri Cagl-
iaris tvö mörk gegn einu. Sport-
ing Lisbon tapaði á lieimavelli
fyrir austur-þýzku meisturunum,
Carl Zeiss Jena, með tveimur
mörkum gegn einu. Fyrri leik
liðanna vann Carl Zeiss Jena
með sömu markatölu og lieldur
því áfram í keppninni.
í. 3. umferð Evrópukeppnanna
leika því eftirtalin lið:
Evrópukeppni meistara:
Everton (England)
Celtic (Skotland)
Red Star (Júgóslavía)
Legia Varsjá (Pólland)
Panaþinakos (Grikkland)
Ajax (Holland)
Carl Zeiss Jena (A-Þýzkaland)
Atletico Madrid (Spánn)
Evrópukeppni bikarhafa:
Chelsea (England)
Manc. City (England)
Cardiff (Wales)
Real Madrid (Spánn)
Vorwarts Berlin (A-Þýzkal.)
PSV Eindhoven (Holland)
Cornik Zabrze (Pólland)
Royal Bruges (Bélgía)