Morgunblaðið - 17.02.1971, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1971
^%%%4tj%%%%%%4tj4ttttrttt%%%%%%%%%%%%%4tit%4tr4ijt%%%^í
9
ͻi_VEROLAG I
✓ i\ BRENNIDEPLI
Barnamjöl
TIL hverra rennur það verð, sem hús-
mæður greiða íyrir barnamjöi?
Eins og sésit á hjálagðri mynd, er inn-
kaupsverðið, sem fer til erlenda fram-
leiðandans stærstur hluti vöruverðsins
eða 34.8%. En ýmis kostnaður, sem fell-
ur sérsfaklega á hverja vörusendingu,
eins og flutningskostnaður, vátrygging
og bankakostnaður 6.3%.
Rikið tekur með tollum og sköttum
næst stærsta hluta vöruverðs eða 29%.
Eru þar í innflutningstollar og sölu-
skaíbtur.
Til verzlunarstarfseminnar rennur
6.6% og 23.3%. Fyrri prósentan 6.6%
gengur til heildverzlunarstarfseminnar,
sem er fólgin í innkaupsstarfi, fjár-
magnsbindingu, sölu og dreifingu. Sið-
ari prósentam gengur til smásölunnar
fyrir þá þjónustu að hafa birgðir af
vörunni á boðstólum fyrir neytendur
sem næst heimili þeirra.
Helztu kostnaðarliðir verzlunarstarf-
seminnar, sem álagnimgu er ætlað að
standa undir, eru: laun og launatengd
gjöld einis og launaskattur og Mfeyris-
sjóðsgjald, akstur, símakostnaður, burð-
argjöld, auglýsingar og annar sölukostn-
aður, pappír, prenitun, ritföng, hiti, raf-
orka, ýmis'leg tryggingariðgjöld, félags-
gjöld, hreinilætisvörur, viðhald áhalda,
vextir, afskriftir af vélum, tækjum og
byggingum, skat.tar (eignaskattur, eigna
útsvar, aðstöðugjald, tekjuskattur og
tekjuútsvar).
Álagning verzlunarinnar er þannig
bundin fastri prósentu, sem leggst ofan
á kostnaðarverð vörunnar í samræmi
við ákvarðanir opinbers aðila — verð-
lagsnefndar. I>að eru hin svonefndu op-
inberu verðlagsákvæði.
Er slík tilhögun neytendum ávaRt í
hag? Nei, því miður. Við fasta prósentu-
álagnimgu bera þeir, sem gera hagstæð
innkaup minna úr býtum i krónutölu
en þeir, sem gera óhagstæð innkaup.
Opinber verðlagsákvæði geta þvi dregið
úr viðleitni til hagstæðra innkaupa.
Frá fræðslunefnd Félags ísl.
stórkaupmanna.
'%%%%
— íslenzkir
verkfræðinemar
Framhald af bls. 15.
— 1 Reykjavík lækkar í öll-
um borholunum á vetrum, þegar
dælt er upp úr þeim, en á sumr-
in þegar hætt er að dæla vegna
minni notkunar, þá hækkar í
þeim öllum. Þorsteinn Þorsteins-
son, verkfræðingur hjá Orku-
stofnun hefur gert mjög ná-
kvæmar mælingar á vatnsstöðu í
borholum í Reykjavik á fjög-
urra ára tímabili og er vatns-
staðan mjög regluleg, lækkar í
öllum borholum á vetrum, með-
an dælt er upp meiru en kem-
ur í staðinn, en hækkar aftur á
sumrum. Slikar hreyfingar er ég
að reyna að finna, í þeim til-
gangi að hægt verði að sjá
fyrir hve hröð hreyfingin verð-
ur í borholu, sem maður vill
virkja.
— Nýtt? Já, þetta hefur ekki
verið gert fyrr en Þorsteinn fór
að mæla þetta. Ég kom svo 1968
inn í þessa útreikninga. En um
Matreiðslumaður
Ungur matreiðslumaður óskar eftir atvinnu.
Tilboð merkt: „6855" sendist Mbl. fyrir 22. þ.m.
Viljum kaupa
felgunurvél
Byggingarfélag verkamanna,
Reykjavík.
Til sölu
þriggja herbergja íbúð 4. byggingarflokki.
Þeir félagsmenn, sem vilja neyta forkaupsréttar að íbúð þess-
ari, sendi umsóknir sínár til skrifstofu félagsins, Stórholti 16,
fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 23. febrúar n.k.
Félagsstjórnin.
geymslu jarðlaganna í Reykja-
vik skrifuðum við grein. Mjög
víða í heiminum er not fyrir
það, ef hægt er að segja fyrir
um hvernig járðlögin gefa frá
sér vatn, geyma það og skammta
það út. Það gildir jafnt um heitt
vatn og kalt.
— Geymsla vatnsins verður á
tvennan hátt, útskýrir Jónas. 1
fyrsta lagi hækkar grunnvatns-
borðið og lækkar og veldur
breytingu á grunnvatnsforðan-
um. 1 öðru lagi getur grunn-
vatnsforðinn breytzt þannig, að
jörðin pressast saman og gefur
frá sér vatn. Holrúmið minnkar.
Það vex líka aftur og jörðin
tekur i sig vatn.
Þetta er sem sagt viðfangs-
efni Jónasar, sem hann er að
vinna að 1 Kaupmannahöfn, og
mun leggja fram sem doktors-
ritgerð við verkfræðideild
Kaupmannahafnarháskóla eftir
tveggja ára rannsókn, reiknar
hann með. Þarna hefur hann
góða vinnuaðstöðu, skrifstofu í
skólanum og aðgang að tækjum
og einni stærstu tölvu Danmerk
ur — og síðast en ekki sízt laun
hjá skólanum. En Verkfræðiskól
inn hefur áhuga á viðfangsefni,
sem svo ótvírætt hefur vísinda-
lega þýðingu.
Á næsta sumri flytja síðustu
deildir Verkfræðiskólans í nýju
byggingarnar í Lyngby, en þang
að er mestur hluti skólans þeg-
ar kominn. Á um 100 hektara
svæði eru þar fallegar stórar
byggingar, þar sem ekkert er til
sparað, að því er virðist, til að
gera líf stúdenta og prófessora,
sem þægilegast og ánægjulegast.
Og var reglulega gaman að fá
að líta þangað með þeim Jónasi
og Júlíusi, sem auðvitað sýndu
fréttamanni fyrst stærstu tölvu
í Evrópu er þeim notast
svo nijög að, en hún tekur upp
stóran sal. — Hún er ekki ólik
tölvunni í raunvísindadeildinni
heima, segja þeir, sama kerfið,
bara 30 sinnum stærri. Þessi
geymir auðveldlega i sér
milljón tölur. Það hlýtur að
vera mikill munur fyrir vísinda
mann að hafa aðgang að svona
hjálpargögnum, þó leikmaður
geti varla áttað sig á slíku
apparati. — E.Pá.
- TRIMM
Framhald af bls. 13.
nágrannar aka þeim til skólans.
Of hættulegt er fyrir þau að
ganga í umferðinni, viða er veð-
urfarið slæmt o.s.frv. Mestan
hluta skóladagsins situr barnið
við kennsluborðið og fer svo
heim i strætó, I bíl eða skóla-
bílnum. Það situr meðan það
matast, situr meðan það les lex-
iumar, og svo er það sjónvarp-
ið og myndablöðin, sem setið er
við. Að kvöldi dags er barnið
orðið þreytt, en kemst þó sjald-
an nógu snemma í svefn. Það er
ekki að furða þótt mörg börn
verði þannig eirðarlaus, baldin
og jafnvel taugabiluð á þessum
timamótum. Ekki er ólíklegt, að
námsleiði barna eigi rót sína að
rekja til þessa. Það er þvi ákaf-
lega mikilvægt, að TRIMM-
hreyfingin nái til barnanna
þegar á þessu aldursstigi, áður
en námsleiðinn segir til sín.
TRIMM hefur engan eða svo
til engan kostnað í för með sér.
Og einn höfuðkostur TRIMM er,
að hreyfingin nær til alls fólks,
á hvaða aldri sem er, —- til-
gangur hennar er, að menn við-
haldi svokölluðum „normal"
líkamshreyfingum. Lítum nán-
ar á þetta atriði:
Siðustu 30-40 árin hefur hlut-
fallsleg tíðni dánarorsaka
breytzt gífurlega, jafnvel í há-
þróuðu löndunum. Smitsjúk-
dómar, þar með taldir berklar,
sem áður voru helztu dánaror-
sakirnar, eru nú komnir neðar á
listann, en efstir á listanum eru
hjartasjúkdómar, kransæða-
stífla, æðasjúkdómar. Númer 2
er nú i flestum löndum: illkynj-
uð æxli, og númer 3: dauðaslys
á heimilinu, í fríum, í umferðinni
og í iðnaðinum.
Mest ber nú á hjartaæðasjúk-
dómum, en þessum sjúkdómum
fylgir aukin kviðatilfinning. Af
löndunum í Vestur-Evrópu
hefur Noregur einna lægsta
dánartölu af völdum hjartasjúk-
dóma. Einn af helztu sérfræð-
ingum Stóra-Bretlands á þessu
sviði, próf. Norris, ferðaðist fyr-
ir u.þ.b. 15 árum um Noreg til
þess að komast að því, hvers
vegna blóðtappi væri tiltölulega
sjaldgæfur sjúkdómur í Noregi.
Hugði hann að það myndi einna
helzt stafa af mataræði Norð-
manna. Máski var of lítið fitu-
magn í fæðunni. En þegar hlut-
fallstölur fitumagns í mataræði
þjóðarinnar voru birtar honum,
blöskraði honum. Það hlutu því
að vera aðrar orsakir, og það
eina, sem hann fann, sem ekki
samræmdist rannsóknum hans í
eigin iandi og öðrum löndum
Vestur-Evrópu, var hin mikla
almenna líkamshreyfing Norð-
manna. Þó er ekki vitað með
vissu ennþá, hve mikla þýðingu
þetta hefur. Noregur er nú far-
inn að ná hinum löndunum í
tíðni hjartasjúkdóma, og síðast-
liðið ár var kransæðastífla
helmingur dánarorsaka allra
karlmanna í Noregi yfir 45 ára
aldri og sýna þær tölur,
að meðalaldur karlmanna í
Noregi er að lækka. Og áhrifa-
mesta ráðleggingin til þess að
fyrirbyggja kransæðastíflu er
sú, að hreyfa sig meir, reyna
meira á sig. Af hreyfingarleys-
inu leiðir offita, þ.e.a.s. að lík-
aminn burðast með of mikla fitu,
og afleiðingin af því er of hár
blóðþrýstingur, eins og sjúkra-
skýrslur sýna. Offitunni fylgir
stóraukin matarþörf, og af mat-
arþörfinni leiðir stress-tilfinn-
ing, sem m.a. veldur stóraukn-
um sígarettureykingum
Margir hafa velt fyrir sér, þá
ekki sízt læknar, hvemig á
því standi, að eftir leik eða
hlaup eða einhverja aðra teg-
und íþrótta þá er öruggt, að
manni líður betur en fyrir
áreynsluna, og það þótt komið
sé langt fram á kvöld. Hvað er
það, sem gerist í líkama og
sál við slík tækifæri? Við vitum
það ekki ennþá. Framtíðin mun
örugglega skera úr um það,
hvers vegna líkamleg hreyfing
við þessar aðstæður hressir svo
mjög andlega og líkamlega. Við
getum auðvitað rekið upp stór
augu út af því, hvers vegna rann
sóknir á áhrifum af líkamlegri
áreynslu hafa verið hafðar út-
undan í öðrum rannsóknum. Á
öðrum sviðum getum við skilið
þessa afstöðu. Á sama hátt hef-
ur fjölgun mannkynsins verið
höfð útundan og vandamál, sem
þvi fylgja, sitja á hakan-
um. Margs ber hér að gæta á
sviði tilfinningalífsins og t.d.
trúmála, en við ættum ekki að
þurfa að vera að bollaleggja um
það í sambandi við TRIMM.
Iþróttastjörnur geta verið for-
dæmi, en ættu ekki að vera ann-
að og meira. 1 dag eru beztu
íþróttamannsefni okkar tind út
úr, og við reynum að gera úr
þeim afburðamenn. En hverjir
eru það, sem reyna þetta? Eru
það vísindamenn? Nei, ósjaldan
er það þjálfari eða sjálflærður
stjórnandi, sem með sitt eigið
heimatilbúna þjálfunarkeifi
leiðbeinir og skipuleggur æfing-
ar og stjórnar íþróttamanninum.
Veit hann hvað hann er
að gera? Veit hann hvort hann
getur fengið íþróttamann í há-
punktsæfingu á vissum degi eoa
viku á árinu? Vafalaust ekki.
Hann vonar bara að honum tak-
ist það. Reynslan hefur sýnt,
að við og við kemur það fyrir,
að þjálfunin verkar öfugt að
því er virðist, og allt í einu er
maðurinn langt fyrir neðan sitt
bezta. Einn dag er allt í
hámarki, næsta dag getur allt
verið gjörbreytt. Við höfum
alltaf einhverjar aðferðir til að
skýra það óskýranlega, og þeg-
ar íþróttamaður, sem eftir guðs
og manna lögum ætti að ná ör-
uggum árangri, er skyndilega
langt frá honum, þá búum við
til ný orð. Við tölum um tima-
bundinn árangur eða að einhver
sé langt frá sínu bezta, og liggja
þá alls konar ótúlkaðar hug-
myndir undir yfirborðinu. Hvað
er það sem veldur? Eru það
hvatir eða hormónar, eða er
þetta andlegs eðlis, vilja-
atriði? Aftur eru þetta bara
orðin tóm, því vafalítið byggist
allt slíkt á lífsefnafræði.
En þó að kransæðastíflan sé
enn alvarlegur sjúkdómur, þá
lifa þó fleiri og fleiri af eftir
fyrstu áföllin. Þegar þetta fólk
fer að ná sér, langar það auð-
vitað aftur til vinnu og venju-
legs lífs. Þar til fyrir skömmu
var það talið útilokað að slikt
væri æskilegt. Kyrrð og ró var
læknisráðið, og mér er enn
minnisstætt, hve hneykslað-
ur einn góður hjartalæknir var
fyrir nokkrum árum þegar ég
sagði honum að nú hefði ég góð
tíðindi að færa honum, því að
ég hefði séð að nú hefðu hjarta-
læknar i Melbourne í Ástralíu
fallizt á að leyfa sjúklingum
sínum að stofna róðraklúbb í
því skyni að endurheimta heilsu
sína og sjálfstraust. Nú er víða
ritað og rætt um endurhæfingu
sjúkra, og hér á TRIMM vafa-
laust miklu hlutverki að gegna
á ókomnum árum. Það er gott til
þess að vita, að íslenzk lækna-
stétt með prófessor Sigurð
Samúelsson í broddi fylkingar,
hefur lagt áherzlu á gildi
TRIMM til að koma í veg fyrir
heilsutjón af kransæðastíflu, og
einnig bent á gildi TRIMMS til
endurhæfingar þeirra sem hafa
veikzt en lifað það af. Við get-
um sagt í sem stytztu máli að
TRIMM geti verið í senn fyrir-
byggjandi og læknandi hvað
snertir hjarta- og æðasjúkdóma.
En hvort sem það eru heilbrigð-
ir eða sjúkir, sem taka upp
TRIMM á skynsamlegan hátt,
án öfstækis, en ákveðnir í því
að láta ekki þátttöku sinni lok-
ið eftir nokkrar vikur eða mán-
uði, en gera TRIMM að föstum
lífsþætti, verður það eins ómiss-
andi þáttur i vellíðan hvers og
eins og tært vatn og hreint loft.