Morgunblaðið - 17.02.1971, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 17.02.1971, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FIEBRÚAR 1971 17 mmm *■ I ! Ný flugvél í til Keflavíkur Ný Vanguardflugvél flufffé- lag’sins Þórs í Keflavík leuti _ á Keflavikurflugrvelli á laug- 4 ardag. Flugvélin ber nafnið ■ ’ Þuríður sundafyllir. (Ljósm. H. St.K — Mér er spurn? Framhald af bls. 12. í úrvali T. S. Eliota voru nokkur ljóð, .sem ég gat alls ekki notið, og kerundi ég það því, að ég væri ekki nægilega að mér í ensku tiil þess að vera skyggn á ýmis mjög hndtmiðuð blæbrigði máls og stíls, en auk þeas ollu mér erfiðleikum í sumum ljóðunum svo fornleg orð og torræð, að ég taldi jafn- vel notkun þeirra vera af- sprengi þeirrar séryizku, sem gætir stundum að nokkru hjá ýmsum sérlega frumlegum lista mönnum í öllum lilstgreinum, en hún verður oft eftiröpunaraul- um háskalegt fótakefli. Kristinn Bjömsson er auðvit- að mjög heillaður af ljóðum Pounds, og auðsætt er, bæði af þýðingum og eftirmálanum, að hann er með afhrigðum vand- virkur, hefur til dæmis ekki talið eftir sér að fara í smiðju til mamna, sem eiru svolítið meira en banghagir á ljóð, þar sem eru þeir Tómas Guðmunds- son, Helgi Hálfdanarson og Snonni Hjartarson, og hann kvaðst háfa lagt sig fram um að halda háttum og hrynjandi Pounds, en hins vegar segir hanm þó, að hann hafi ekki treyst sér til að þýða í bundnu máli tvö af kvæðunum, sem skáldið hefur rímað. Ég hef lesið þessi ljóð aftur og aftur, og þau hafa unnið við hvem lestur, orðið mér æ gjöf- ulli og þekkari og ég þeim sam rýmdarii, því að hið ósagða flýg- uir þar að lokum upp í fangið á mammi, ef nógu vel er eftir því leiltað, — og þá hefur vel tekizt til hjá skáldi eða þýðanda, þeg- ar sú verður raunin . . . En samt fanin'st mér ekfei eins ýkja- mikið til um sum kvæði og hluta úr kvæðum og ég hafði búizt við. Og svo er mér þá spurn: Er þetta því að kemna, að ég sé of sljór á mjög hmitmið uð blæbrigði? Ég get ekki feng ið mig til að viðurkemna það, svo mjög sem ég hef lagt mig fram við lestur kvæðanna, held ur dettur mér í hug, að þarna rekizt ég á þann gamla og beizka raunveruleika, að vart verði náð í þýðingu öllum hin- um ósegjanlega mikilvægu og álilt að því dularfullu og undur viðkvæmu tilbrigðum í máli og stíl, sem einmitt hjá hinum sér- stæðu snillingum birta í fylli- lega samruna einingu — mér iiggur við að segja: bæði lík- ama og sál ljóðsins, en þetta er sízt auðveldara viðfangs í þýð- ingu óbundinma ljóða en rím- aðra, þvx að hrynjandina, sem þaraa er mikilvæg, er vissulega hægra að höndla, þar sem rím- aður háttur veitir ákveðið að- hald og staðgóða leiðbeiniingu. En án þess að ég vilji draga úr verðleikum Kristins Bjömsson- ar sem þýðanda, dettur mér í hug, að hanin kunni ef til vill stundum að hafa lagt of mikla áherzlu á að þýða sem allra ná- kvæmast, ekki aðeins að því er tiil tekur háttar og hrynjandi, heldur einnig sjálfra orðanna. Um þetta get ég ekki dæmt, því að ég hef ekki við höndina frumtextana, ekki heldur það fyrsta, sem ég las eftiir Pound, en það voru þýðiingar á nokkr- um kvæðum eftir hin sænsku Ijóðskáld Erik Blomberg og Johannes Edfelt. Út af þessu fór ég að hugsa um Ijóðaþýðingar yfirleitt, og þá kom mér til hugar, hve illa hefur til tekizt hjá ýmsum, sem hafa lagt sig mjög í framkróka um nákvæma þýðingu orðanna, — stundum mönnum, sem eru mjög vel að sér í móðurmáli skáldsins, — en árangurinn aft- ur á móti stundum orðið frá- bær og okkur bókmenntalega mikilvægur hjá öðrum, sem hafa leyft sér frjálsari vinmu- brögð, er raunar geta verið all- varhugaverð, nema þýðandinn sé gæddur skáldlegri ininsýn í anda ljóðamna, mikilli hug- kvæmni, leikni í meðferð máls og hrynjandi og loks þjálfaðri smekkvísi og vökulli samvizku- semi. Hinn spakvitri Stephan G. Stephansson sagði m. a. í bréfi, sem dr. Richard Beck skírskotar til í grein í Eimreið- inni í fyrra um þýðingu Guð- mundar skálds Böðvarssonar á Tólf kviðum úr Divixxa komedia Dantes: „Því meíri vandi, sem á er, þeim meiri virðing er að gera gott kvæði. En allt verður samt að víkja fyrir hinu eina nauð- synlega í þýðingu: að hún falli um farveg hiris sama andlega straumfalls og í frumkvæðinu." Og í öðru bréfi segir hann: „Mér stendur stuggur ar gálgum, þar sem skáldskapurinn hangir hengdur í orðabókaról- inni.“ Ég bar saman við frumkvæð- in allmörg af Ijóðunum í fyrstu bókunum tveimur, sem færðu okkur þýðingar Magnúsar Ás- geirssonar, og ég komist að þeirri niðurstöðu, að engum ís- lenzkum þýðanda hefði tekizt jafn vel í kvæði eftir kvæði að samræma nákvæma þýðingu orða og anda, en einnig varð ég þess vís, að sæi hann sér þetta ekki fært, lagði hann óhikað aðaláherzluna á, að þýð- ingin félli „um farveg ins sama andlega straumfalls eins og er í frumkvæðinu.“ Ég minnist þess og glögglega, að fyrsta Safnið af ljóðaþýðingum Helga Hálfdanarsonar orkaði á mig sem lyf gleði og jafnvel unaðar, og þannig hefur jafnan farið, síðan, þegar ég hef tekið mér í hönd þýðingar hans. Svo hef- ur mér þá aldrei orðið fyrir að bera þær saman við frumtexta, en ég hef glöggiega fundið ólík sérkenni hinina ýmsu fi'umhöfunda, sem ég hef á ann- að borð áður haft af nokkur veruleg kynni. Fleii'i þýðendur hafa nú á síðustu áratugum lagt rækt við ljóðaþýðxngar og sumum tekizt allvel. Stórvirk- astur þeii'ra hefur verið fram að síðustu árum hins sjöunda áratugar Þóroddur Guðmunds- son, sem auðsjáanlega legguir mikla rækt við að fylgja af slíkri samvizkusemi orðum frumkvæðisins, að það er hon- um stundum fjötur um fót. . . . Svo hverf ég frá til eldri tíma Oft dettur mér í hug séra Jón Þorláksson, þegar ég les þýð- ingar á íslenzka tungu. Svo sem kunnugt er, þýddi hann Para- dísarmissi Miltons úr þýzku, og í stað þess að halda bragar hætti höfundarins, valdi hann þessum vandþýdda og geysi- stóra kvæðaflokki eldfoman bragarhátt Eddukvæðanna, ein- faldan og sviptíginn, hafði hlið- sjón af dulfögru orðalagi þeirra og yfiirbragði, en notaði yfirleitt biæbrigðaríkt alþýðumál, sem efnivið síns auðga og mynd- ríka orðfæris — og olli svo með þýðingum sínum aldahvörfum í íslenzkri málfegrun. Jónas Hall- grímsson nam af hon-um og fet- aði í fótspor hans, þýddi undir fornyrði'slagi ljóð eftir Hora- tíus, Ossian, Schiller og Heine, og mér hefur virzt, að hinn annar mikli meistari Jónasar, Sveinbjöm Egilsson, hafi einnig lært sitthvað af séra Jóni, orð- myndunum hans og þokkafullri notkun foryrðislagsins. En báð ir þýddu þeir undir þeim hætti Ijóð á svo dásamlega fagurt og blæhreint mál, að þau munu um aldir glóa sem gimsteinar í §i!l af hendi ungs erlends fræði- manns í Skimi, tímariti Hirus íslenzka bókmenntafélags, en 5Ó að sá maður hafi rétt fyrir sér í öllum atriðum, svo langt sem það nær, breytir það engu um þá staðreynd, að stórhugur, elja, skáldleg inmlifun, orð- snilli og hagmælska Guðmund- ar Böðvarssonar hefur þarna skilað á íslenzkri tungu verki, sem er gætt andagift og krafti tónskálds — og málfegurð og orðauðgi, sem er slíku skáldi samboðin, — og vonandi endist Guðmundi orka og líf til að ljúka við að .færa allan Gleði- leikinn guðdómlega í íslenzkan bún.ing. Og enn er mér spum: Getum við ekki með fyllsta rétti verið stolt af hinum borg- firzka bónda, sem vann myrkr- anina á milli við búskap í fulla fimm áratugi og orti þá fjölda fagurra Ijóða, en réðst síðan í að þýða á móðurmál sitt eitt af stórbrotnustu skáldverkum heimsbokmenntanna og hefur þegar sýnt að þetta hefur tekizt með ólíkindum vel. Að síðustu þakka ég Kristni Bjömssyni, að hann skuLi hafa færzt í fang þann vanda og lagt við eimstaka alúð, þrátt fyrir erilisöm og ábyrgðarrík störf, að kynna ljóð Ezra Pounds, eins hin-s áhrifaríkasta og umdeild- asta skálds og persónuleika siinn ar tíðar í bókmenntum Vestur- landa. Kristinn Björnsson segir í upphafi eftirmála sínis, að sér finnist Pound „eiga eriindi við íslenzk ljóðskáld til ögunar og örvunar." Hvons tveggja er æv- inlega brýn þörf. En ekki er ég viss um, að ungum skáldum og ennþá lítt mótuðum reynist Pound heillavænlegur leiðtogi, svo mjög sem hann leggur oft- ast leiðir sínar utan við allar þjóðbrautir og fetar brattgeng ur þá þræðinga, sem fáum munu reynast færir, þó að hvorugur hinna frægustu læri- sveina hans í engilsaxneskum bókmenntum, T. S. Eliot eða Archibald MacLeish, hafi farið sér að voða, enda reyndist Eli ot ennþá brattgengari og Mac Leish vék tiltölulega fljótlega inn á aðrar leiðir, bæði í skáld- skap s’ínum og viðhorfum við samtíð sinni, varð einn af holl- ráðustu trúnaðarmönnum Roose- velts á styr j aldarárunum og áhrifamestu stjórnendum amer- , ísks áróðurs gegn nasisma og fasisma. Guðmundur Gíslason Hagalín. — Ef __________ Framhald af bls. 12. mynd eru líka altént áhrifa- meiri, ef þeir eru aðeins notaðír á köflum. Hvað viðkemur kviðafullu blaðri um skiptingu úr raunveruleika yfir i fantasíu, þá ætti það ekki að valda neinum verulegum höfuðverk. Hvaða barn hefur nokkurn tíma verið svo heimskt, að spyrja þegar graskerinu hennar Ösku- busku er breytt í gullinn vagn, hvar raunveruleikinn endi og fantasían byrji? Þetta er allt raunverulegt." En því miður er það einnig raunverulegt, að kópían, sem Háskólabíó heifuir undir hönd- um, er illa farin á mörgum stöð- um, bæði rispuð og slitin. Auk þess hefur verið klippt eltt at- riði úr henni, og er eiginlega óskiljanlegt hvers vegna. Þegar drengirnir halda í „stríðið“ (i litj sjáum við nokkrar myndiir iininan úr ákólaraum (í svart/ hvítu) m. a. stólsetu, fata- hrúgu á gólfinu og auðan skóla- gang. Siðan ekki söguna meir í þessari kópíu. 1 upprunalegu myndinni birtist nakinn kven- maður í þessum gangi og reynd- ist það vera kona yfirkennar- ans, sú sem sat uppi í rúml á kvöldin og spilaði ættjarðarlög á flautu. Með þvi að klippa þetta úr, eru hinar myndirnar orðnar marklausar, og eins gott hefði verið að feippa þeim úr í leiðinni. Annars hélt ég að hætt væri að amast við beru kven- fólki I kvikmyndum, sér í lagi þegar það gerði nú ekki annað en labba um. En þrátt fyrir þessa galla 1 kópíunni ráðlegg ég þeim, sem raunverulegan áhuga hafa á kvikmyndum, að sjá þessa mynd. Fyrir þá, sem kunna að meta hana, er hún gróðrarstía ferskra hugsana. Sigurður Sverrir Pálssomu lEsm DflCLECn Ezra Pound óforgengilegu djásnasafni ís- lenzkra bókmennta. Þeir urðu síðan margir á' 19. öldinni, sem unnu íslenzkum bókmenntum ómetanlegt gagn með þýðingum sínum, en sá, sem mest fór fyr- ir, var séra Matthías. Honum var það beinlínis lögmál að láta orðanna hljóðan frumtext- ans víkja fyrir andanum, ef honum virtist þess þörf, og þeg- ar bezt lét, féll ljóðið í þýðing- unni af stórum aukinni fyllingu „í farveg inis sama andlega straumfalls eins og er í frum- kvæðimiu.“ Loks get ég ekki stillt mig um að minnast í þessu sam- hengi hins nýjasta íslenzka þýðanda, og á ég þar við hinn sjálfmenntaða bónda á Kirkju- bóli á Hvítársíðu. Hann hreifst svo af hinu hartnær sjö alda gamla snilldarverki Dantes, Divina komedia, í erlendri þýð- ingu, að hann fékk ekki stillt sig um að freista þess að þýða þetta stórbrotna og að því er virðist óforgengilega skáldverk. Hann varð að sæta sama kosti og séra Jón Þorláksson, gat ekki farið eftir frumtextanum, en breytti ekki bragarhættin- um. Fyrir þær tólf kviður hina magnaða skáldrits, sem út komu í hitteðfyrra á íslenzku hlaut hann strangar aðfinnalur 200-300 fan. iðnaðorhúsnæði óskast á 1. hæð. Símar 13896 og 24736. NotaBar gröfur 1 >0^ Höfum til sölu notaðar JOHX DKEItE skurðgröfusanistæður árgerð ’67 og ’65. Til sýnis á staðnum. HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Sími 21240.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.