Morgunblaðið - 17.02.1971, Síða 21

Morgunblaðið - 17.02.1971, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1971 21 , Handbók bænda HANDBÓK bænda er komin út. Þetta er 21. árgangur bókarinn- ar. Að þessu sinni er hún 384 blaðsíður og eru í henni grein- ar eftir 20 höfunda. Búfjárrækt- arráðunautar Búnaðarfélags Is- lands rita leiðbeiningar um hirð ingu og fóðrun búfjár. Tilrauna- stjórar í jarðrækt skýra frá nokkrum tilraunaniðurstöðum. Kaflar eru um ræktun grænfóð- urs, votheysverkun og endur- vmnslu kaltúna. Leiðbeiningar I garðrækt og ylrækt hafa garð- yrkjuráðunautarnir skrifað. Yf- irdýralæknir ritar um bandorma og sullaveiki. Sérstakur kafli er um bútækni og byggingar, stutt- ar greinar um ýmsa þætti á þvi sviði ritaðir af þeim Magnúsi Sigsteinssyni, bútækniráðunaut og Ólafi Sigurðssyni, forstjóra Teiknistofu landbúnaðarins. Margar fleiri greinar eru í Hand bókinni, stuttar en gagnlegar leiðbeiningar fyrir bændur og þá, er leggja stund á garðrækt. Bók in er gefin út af Búnaðarfélagi Islands, prentuð í Prentsmiðju Jóns Helgasonar. Ritstjóri er Agnar Guðnason. — Hvatarfundur Framhald af bls. 8. tízkufyrirbrigði. Óhugnanlegast sé, ef sá hluti þjóðarinnar, sem er I menntaskólum, ætli að gera sig óvirkan með fiknilyfja- neyzlu gera sig óvirkan til að gera nokkuð í lífinu. Nefndi Jón það sem helzt hefði verið gert í þá átt að Stemma stigu við þessum vágesti. Refsing hefur verið þyngd veru lega fyrir brot við að dreifa og selja slíkt, getur farið upp í 16 ára fangelsi. Komið hefur til greina að þyngja refsingu veru- lega við því að hafa þessi efni undir höndum, svo að fangelsis- vist liggi við. 1970 var stofnað til samstarfshóps frá ríkisvald- inu, sem ræddi við fólk, sem starfaði að félagslegri aðstoð og fleiri og gerði tillö'gur til varn- aðar. M.a. var ilagt till að upp- lýsingastarfsemi yrði aukin og hert yrði toll- og löggæzlueftir- lit. Fóru 3 menn utan til að kynna sér vamir á Norðurlönd um. Siðan hefur verið tekin upp strangari leit I farangri og pósti. í ráði er að fá hingað hund, en sérstaklega þjálfaðir hundar hafa i nágrannalöndun- um reynzt bezt við að finna fíknilyf. Þá er í ráði að efna til námskeiða með tollgæzlu og lögreglumönnum, sem eiga að glima við þennan vanda. Og þeg ar er kominn visir að deild, þ.e. 4 menn vinna saman að því að fylgja eftir ýmsum slóðum og gera kannanir. En það sem mestu máli skiptir, sagði Jón, er almenningsálitið, að menn geri sér grein fyrir vandanum og til- kynni ef þeir verða varir við meðferð þessara efna. Þvi mikil- vægast er að ná til þeirra sem dreifa þessum efnum. Atvinna Ungur maður með Samvinnuskólapróf og próf frá sænskum verzlunarskóla óskar eftir vel launuðu starfi frá 1. júní n.k. Margt kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. fyrir lok febrúar merkt: „6859", H afnarfjörður Byggingafélag Alþýðu hefur til sölu tvær íbúðir við Hólabraut. Umsóknir um íbúðir þessar sendist formanni félagsins fyrir 22. þ.m. FÉLAGSST JÓRNIN. Sölumenn Miðar að ÁRSHÁTÍÐINNI verða afhentir í kvöld kl. 6—7 að Hagamel 4. Stjórn Sölumannad. V.R. Skrifstofustúlka Óskum að ráða skrifstofustúlku allan daginn. Upplýsingar í síma 16590. afek. ■ JL* m Br** H ÆA t JF 9 G §*»#%* SSLÍF^I RMR-17-2-20-HS-MT-HT. □ Mímir 59712177 = 2 I.O.O.F. 9 = 1522178 y2 = k.s. I.O.O.F. 7 s 1522178 y2 = Kvenfélag Ásprestakalls Handavinnunámskeið (út- prjón og hekl) hefst i næstu viku 25. febrúar í Ásheimil- inu, Hólvegi 17. Kennt verður tvisvar í viku. Þriðju dagskvöld frá kl. 20.30— 21.00 og fimmtudaga frá kl. 15.00—16.30. Kennari er Margrét Jakobsdóttir. Þátt- taka tilkynnist i sima 32195. Reykvíkingafélagið Spilakvöld n.k. fimmtudag kl. 8.30 í Tjarnarbúð. Reykvíkingafélagið. Valsmenn Afmælismót í bridge verður haldið í félagsheimilinu að Hlíðarenda þrjá næstu mánudaga. Tvímenningur. Þátttaka tilkynnist Emi Ingólfssyni í síma 33880. Hörgshlíð 12 Almenn samkoma, boðun fagnaðarerindisins í kvöld, miðvikudag kl. 8. Hafnarfjörður Samkoma í húsi K.F.U.M. og K. við Hverfisgötu kl. 8,30 í kvöld. Ung rödd: Lára Guð- mundsdóttir. Kvikmynd frá kristniboðsskóla á Mada- gaskar. Friðrik Schram tal- ar. Tvísöngur. Allir velkomnir. Æskulýðs- og kristniboðsvikan. Kristniboðssambandið Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30 í Kristniboðshúsinu Betaníu, Laufásvegi 13. Eiður Einarsson viðskiptafræðing- ur talar. Allir velkomnir. HÆTTA Á NÆSTA LEITI • eftir John Saunders og Alden McWilliams Þarna fer herra P. S. Logan. Reiður skattborgari, og að því að ég held, krón- ískur vandræðagemlingur. Þú gleyntir að bæta við, einlægur hræsnari. (2. mynd). Hótanir Logans ktinna að vera orðin tóm, Monroe, en jafnvel litlir vind- beigir geta komið af stað óveðri. (3. niynd). Ef þú vilt skipta um vinnusvæðl, skal ég hlusta. Foringi, ég heyri ekkl orð af því sem þú segir. AUSTIN 1300 Þessi bifreið er framleidd til að fullnægja ströng- ustu kröfum um öryggi, aksturshæfni og þægindi. „Hydrolastic“-vökvafjöðr,un veitir óvenjuþýðan akstur. Framhjóladrif, diskahemlar og alsamhæfð- ur f jögurra gíra kassi. í innanbæjarakstri er bensínnotkun um 10 lítrar á 100 km með þessari 60 hestafla vél. Skoðið og kynnist þessari glæsilegu bifreið, því sjón er sögu ríkari. CARÐAR CÍSLASON HF.,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.