Morgunblaðið - 17.02.1971, Side 24

Morgunblaðið - 17.02.1971, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1971 . . 15 . . hörunds. Bara hún vildi nú hætta þessum bölvuðum hávaða. Heyrið þér, frú Horning, það er ekkert gagn í því að láta svona. En það var ekki fyrr en rödd- in bilaði, að hún þagnaði og tók svuntuna frá andlitinu. — Og hver á að sakna hans, ef ekki ég, sagði hún, hás. Ég sem var eini vinurinn hans siðan móðir hans fæddi hann. Ef ekki væri ég yrði ekkert tár fellt á kistuna hans. — Hann á nú bæði föður og bróður, sagði Appleyard. En svo datt honum nýtt í hug: — Að maður ekki nefni hana ungfrú Blackbrook. — Faðir hans, þó þó! öskraði frú Horning með óhugnanlegum hlátri, sem stakk mjög i stúf við kvalaveinin áður. — Hann Simon gamli, sem situr alltaf í stólnum sínum og hugsar út allt það illt, sem hann gæti gert af sér! Hann ætti kannski að fara að syrgja soninn, sem hann hef- ur hatað, síðan hann var reifa- barn! Og hann Benjamín með alla sérvizkuna sína, sem þykist of góður tii að vera heima, en þarf að vera að flækjast um öll heimsins höf. Trúiegt, að hann fari að syrgja Caleb, nú þegar hann er orðinn erfinginn að Farningcote. Og hvað snert- ir Blackwoodstelpuna, þá er hún ekki annað en dækja, og þið megið gjarna segja henni það frá mér. Nei, það verð- ur enginn til að syrgja hann Caleb nema hún Mary gamla Horning, sem ruggaði honum í vöggunni hans. Hún virtist ætla að fara að fá annað kast, en Appleyard flýtti sér að grípa fram í: — Ég virði alveg sorg yðar, frú Horning, sagði hann, — en okkur væri þökk í, ef þér vilduð segja manninum yðar, að okkur langi að tala við hann. — Ef þið viljið tala við hann, verðið þið að bíða, svaraði hún ug. Hann er önnum kafinn við að klæða hann Símon gamla og koma honum í stólinn. Og ég ætla mér ekki að gera mér það ómak að fara að kalla á hann. Nú virtist hún allt í einu taka eftir skaftpottinum, sem hún hafði misst niður og pollinum, sem fór sístækkandi við fætur hennar. — Hananú! sagði hún. — Þarna hafið þið látið mig missa niður súpuna, sem hann Símon gamli átti að fá í hádeg- isverð. Nú verð ég að skafa hana upp eins og ég bezt get og koma henni upp í pottinn aft- ur. Og þið getið fært ykkur til hliðar þangað til maðurinn minn kemur. Hún kinkaði kolli í áttina að hálfopnum dyrunum, og Appley- ard og Jimmy tóku bendingunni og gengu inn í næsta herbergi. Þar var hellugólf, berir sagga- blautir veggir og loft, sem mest- allt gipsið var dottið úr. Engin húsgögn voru þarna, nema brotnir trékassar, og svo var gluggi hátt uppi með járngrind- um fyrir, svo að mest minnti á fangaklefa. Liklega hafði húsa- meistarinn ætlað þetta fyrir vistarveru þjónustufólksins. Varla voru þeir komnir þarna inn, þegar frú Horning, sem nú hafði tekið upp skaft- pottinn, kom á eftir þeim. Hún gekk að Jimmy, sem hún virtist tortryggja heldur minna en Appleyard. Hún lagði andlitið fast að eyra hans, svo að hann gat fundið velgjulegan andar- drátt hennar á hálsinum. — Þér hafið víst ekki einhverja hress- ingu i vasanum? hvíslaði hún hásum rómi. Jimmy hristi höfuðið. — Þvi miður, frú Homing, það er ég hræddur um að ég hafi ekki. Hún hopaði á hæl með reiði- svip. — Nei, ég átti von á því, sagði hún og vonzkan sauð niðri í henni. •— Þið hafið víst hvor- ugur hugsun á því að hafa með ykkur einhverja hressingu handa veslings konu til að hugga hana í hörmum hennar. Svo þaut hún út og skellti á eft- ir sér hurðinni, svo að glumdi í. — Húh! sagði Appleyard um leið og hann settist niður á þann kassann, sem honum þótti liklegri. — Bærileg húsmóðir þetta! Nú er hún aftur byrjuð á sálmalaginu sinu. Og þetta stóð heima. Sónninn barst til þeirra með nokkr- um þögnum í milli. Jimmy hló: — Þetta er þó skárra en öskrin i henni. Eigum við að bíða hérna, eða eigum við að leita í húsinu að Horning? — Betra að doka hérna svo- lítið, sagði Appleyard. — Ég vil heldur ná í hann einan og tala við hann. Við heyrum fótatakið hans undir eins og hann nálg- ast. Það liðu einar fimm minútur áður en Jimmy gat greint óstöð- ugt fótatak á hellugólfinu. — Þarna kemur hann, sagði hann. — Ég skal koma með hann hingað. Nokkrum minútum siðar kom hann með Horning inn í herbergið. Brytinn skalf á bein- unum, hvort sem það nú var af veikindum eða hræðslu, og horfði hræddur á rannsóknar- dómara sína á vixl. — Þið herrarnir eru sjálfsagt komnir til að tala við hr. Glap- thome? sagði hann, stamandi. — Ekki núna, Homing, svar- aði Appleyard vingjarnlega, og stóð upp af kassanum, sem hann hafði setið á. — Sannast að segja áttum við erindið við þig. Seztu nú bara niður og svaraðu spurningunum, sem ég legg fyr- ir þig, — og sannleikanum sam- kvæmt fyrst og fremst. Hann lagði höndina á öxl Hornings og brytinn hneig nið- ur á kassann, sem hinn hafði rýmt. Lögreglumennirnir tveir gnæfðu þarna yfir hann, rétt eins og ákærendur. Appleyard gerði nokkra þögn áður en hann hóf máls aftur. Og þá var hann álika hátíðlegur og dómari, sem kveð- Ráðskonustarf Ung kona með 2 drengi, 4ra og 6 ára viil taka að sér að sjá um heimili. Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Friðbergsdóttir Framnesi, Reyðarfirði. Vön skrifstofustúlka óskast til almennrar skrifstofuvinnu, vél- ritunar, símavörzlu o. fl. Upplýsingar í síma 18592. Vinnuveitendasamband íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.