Morgunblaðið - 09.11.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1971
Snjóflóð á veghefil
— og bar hann niður
20 metra halla á réttum kili
VDB stórslysl lá sl. sunnudag, er
snjóflóð féll á stóran veghefil,
sem var við snjóruðning á
Hrafnseyrarheiði. Flóðið ruddi
þessu 19 tonna tæki fram af veg-
inum og niður bratta hlíðina.
Hefillinn valt þó ekki og stöðv-
aðist sjálfkrafa og sakaði veg-
hefilsstjórann, Sigurð Jónsson
frá Þingeyri ekki.
Morgunblaðið náði tali af Sig-
urði í gær og spurði hann nánar
um þetta atvik. — Þetta gerðist
um hádegisbilið á sunnudag,
sagði Sigurður. — Ég var kom-
inn niður heiðina vestanverða á
leið niður í svonefndan Skipadal.
Talsvert kóf var og ekki gott að
sjá út. Skyndilega buldi flóðið á
heflinum og hann barst með
því á þungum akriði út af veg-
inum og niður 20—30 metra
halla, Þá stöðvaðist hann af
sjálfsdáðum, en fyrir neðan er
hlíðin snarbrött.
| — Já, þetta var mikið flóð —
— Finninn
Framhald af bls. 1
blaðið í gærkvöldi, að á fundin-
<uim hiefði verið rætt um ráðningu
þessara manna, sem veita æititu
forsitöðu fræðslumáladeild, rann-
sólknadeild og almennri menning
armáladeiid en ekki hefði verið
itékin ákvörðun í þeim efnum.
Þvi yrði þó hraðað, eins og kost-
ur væri.
MIKILL ÁHUGI I FINNLANDI
1 simaviðtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi sagði hinn nýskip-
aði forstöðumaður Norrænu
menningarmálastofnunarinnar,
Magnus Kull, að of snemmit væri
að segja nokkuð ákveðið að sivo
stöddu um skipulag þessarar
nýju stofnunar. Nálkvæm fyrir-
maeli þess efnis væri að finna
í norræna menningarsáttmálan-
um, En Kuil kvaðst sannfærð-
ur um, að þessi nýja stofnun
myndi ná þvi takmarki að verða
samnorræn stofnun, er starfaði
að margvíslegum verkefnum á
mennimgarsviðinu.
Magnus KuH sagði ennfrem-
ur, að í Finnlandi væri fyrir
hiendi mjög miikiil áhugi á Norr-
ænu menningarmálastofnuninni.
Þannig hefði verið mikið um
hana skrifað og rætt á opinber-
tim vettvangi og greinilegt væri,
að Finnar væntu sér mikils aí
starfsemd hennar og væri það ef
táft vill ein ástæða þessa áhuga,
að Finnland eins og Island væri
I útjaðri norræna menningar-
svæðisins.
Þá sagði Magnus Kull einnig,
að þeir þrir deildarstjórar, sem
starfa ættu við menningarmála-
sitafnunina, yrðu sennitaga sinn
af hverju norræna þjóðemimu.
Einn þeirra á að veita forstöðu
fræðslumáladeild stofnunarinnar,
arnnar rannsóknadeild og sá þriðji
aLmennri menningarmáladeiid.
Magnus Kull er fæddur 1924
Hann hefur bæði starfað við
blaðamennsku, kennslumál og
stjómmál. Hann vax um skeið
ritstjóri sveitarstjórnatíðinda í
Finnlandi en síðan rektor
félags- og sveitarstjórnaskóla.
Hann hefur tekið mikinn þátt í
stanfi samnorrænu nefndarinnar,
sem vinnur að skipulagningu og
samræmingu náms í þjóðfélags-
fræðum á Norðurlöndum. En
starfsferill Magnusar Kulls hef-
ur ekki hvað sízt verið á vett-
vangi stjórnmáia. Hann hefur átt
sæti á þjóðþingi Finnlands og
gegnt embætti félagsmálaráð-
herra í ríkisstjórn landsins.
50—60 metra breiibt og um mann-
hæðar hátt. Seninilega hefur það
bjargað því að hefillinn valt
ekki, að flóðið lenti aftan á hon-
um og dró hann þannig með sér
niður. Hefiltönnin var þversum
og safnaði í sig snjó á niðurteið-
inni. Þarna hefur myndazt sú
mótstaða, sem nægði til þess að
hefillten stöðvaðist. Þetta má
því teljast vel sloppið, sagði Sig-
urður.
Hann sagði að stór ýta hefði
brotizt áleiðis tii hefilsins í gær,
og yrði semnilega reynt að ná
honum upp í dag.
Leiðrétting
í MINNINGARGREIN, sem ég
sikrifaði sl. föstudag um Hervöru
Ásgrímsdótitur, kom inn sú mis-
sögn, að faðir hennar var sagð-
ur soniur hjónanna Péturs Fr.
Jónssonar og Ingibjargar Haf-
steinisdótitur frá Ytri-Löngumýri,
Pétur Fr. Jónsson var tvl-
kvæntur. Með fyrri konu simni,
Ingibjörgu, átti hann einn son,
Hafsitein, síðar prest í Winnipeg.
Inigibjöng andaðist 23. ágúst 1861.
Hinn 11. nóv. 1862 kvænJtist
Pétur Guðrúnu Þorsteinsdóttur
og áttu þau sex böm saman og
var Ásgrímur fjórði í röðinni,
Guðrún Þorsteinsdóttir var
fædtí í Svínavallakoti i Hofssókn,
Skagafirði, hinn 23. febr. 1832,
dóttir hjónanna Þorsteins bónda
þar Asgrímssonar og Sigríðar
Styrbjömsdóttur. Guðrún lézt
hjá Þorsteini syni sLnum á Mána
sikál Vindíhælflshreppi 18. febrú-
ar árið 1900, 68 ára að aLdri.
Ég bið ættingja og aðstand-
endur velvirðingar á þessum mis
tökum.
Halldór Blöndal.
Hjörtur Hjartarson.
Hjörtur Hjartar-
son formaður
Verzlunarráðs
Á FUNDI nýkjörinnar stjómar
Verzlunarráðs Islands, sem hald-
irm var 4. nóv. sl. fór fram kosn-
ing formanns, varaformanna og
skipun framkvæmdastjómar.
Formaður var kjörinn Hjörtu"
Hjartarson, framkv.stj. 1. vara-
formaður Björgvin Schram, sitór-
kaupm., 2. varafonmaður Gunnar
J, Friðriksson, framikv.stj.
Auk formanns og varafor-
manna tóku sæti í framkvæmda-
stjóm: Árni Gestsson, Hjörtur
Jónsson, Harald-ur Sveinsson,
Othar Ellinigsen, Gunnar Ásgeirs
son og Ámi Ámason. Varamenn
í framkvæmdastjóm eru: Ingi-
mundur Sigfússon, Þorvaldur
Guðmundsson, Sverrir Norland,
Björn Hallgrimsson, Magnús J.
Brynjólfsson, Sveinn B. Valifells,
Matthías Bjarnason og Amold
Bjamason.
Menntamálaráðh.fundurinn;
Eldf j allar annsókna-
stöðin fær jákvæð-
ar undirtektir
ELDFJALLARANNSOKNA-
STÖÐIN á íslandi kom til um-
ræðu á fundi menntamálaráð-
herra Norðurlandanna í Osló í
gær, að þvi er Magnús Torfi Ól-
afsson, menntamálaráðherra,
sagði í símtali við Morgunblaðið
í gær.
MagnÚ3 sagði, að á fundinum
hefði verið gefin Skýrsla um mál-
ið, og lagðar fram umsagnir frá
ýmsum stofnunum á hin-um
Norðurlöndum — einkum nátt-
úrufræðistofnunum. Hefðu þær
undantekningalaust verið mjög
jákvæðar, en þó væri enm beðið
umsagna fáeinnia stofnana. Þess
yrði því vonandi ekki langt að
bíða að endanleg ákvörðun yrði
tekin í þessu máli, og kæmi þá
m. a. til kasta hinn-ar nýstofn-
uðu menningarmálastofnuniar
Norðurlanda.
Mannskæðar
kosningar
Manila, 8. nóvember — AP NTB
I DAG gengu Filippseyingar til
kosninga að lokinni maimskæð-
ustu kosningabaráttu í sögu
landsins. Talið er, að rúmlega 160
manns hafi látið lífið þá fjóra
niánuði, sem kosningabaráttan
hefur staðið.
Á kjörskrá voru um ellefu
milljónir, og tóku um 80% þátt
í kosningunum. Úrslit eru ókunn,
en allt virðist benda tál þess, að
stjómarandstaðan, frjálslyndi
flokkurinn, hafi unnið talsvert
á.
Kosnir voru átta af 24 þing-
mönnum öldungadeildarinnar,
fylkisstjórar í öllum 66 héruðum
eyjanna og þúsundir fulltrúa í
bæjar- og sveitarstjómir. Fyrir
kosningamar skiptust þingsæti í
öldungadedildinni þannig, að þjóð-
emdssinnaflokkur Ferdinands
Marcos forseta átti þar 12 þteg-
menn, frjáislyndir 9, framfara-
flokkurinn 2 og borgaraflokkur-
inn eitt þingsæti.
Um 40 þúsund manna herlið
var á verði til þess að hindra
alvarleg átök í sambandi við
kosmingamar, en engu að síður
féllu að minnsta kosti 15 manns
siðasta sólarhringinn og kvartan-
ir bárust viða að vegna meintra
ofbeldisaðgerða og kosninga-
svika.
Ófærð á fjallvegum
og nyrztu nesjum
ÓFÆRÐ er nú farin að segja til
sín á hæstu f jallvegum landsins
og nyrztu nesjum. Vegurinn yf-
ir Hrafnseyrarheiði er lokaður,
svo og Breiðadals- og Botnsheið-
ar, en reyna átti að ryðja þær
í gær. Svo og hefur vegurinn
til Siglufjarðar lokazt við Mán-
árskriðu og Ólafsfjarðarmúli er
einnig lokaður, en reynt verður
að opna þessar leiðir ef veður
ieyfir.
Þá hafa vegirnir báðum meg-
in Eyjafjarðar lokazt veigna
smjóa og er því ófært til Dalvik-
ur og á Svalbarða, en verið var
að ryðja þessa vegi I gær. Hins
vegar er fært um Dalsmynni og
austur til Húsavíkur og þaðan
allt tii Raiufarhafmar. Þar fyrir
austan er hins vegar ófært við
Háisa. Enn mun fært stórum
bilum yfir Möðrudalsöræfin, en
talsverð ófærð var á hinn bóg-
inn í Náimaskarði i gær. Einnig
er leiðin til Vopnaf jarðar ófær.
Á Austfjörðum lokuðust Odd-
slkarð og Fjarðarheiðin, en reyna
átti að moka Fjarðarheiði í
gær. Þá var Lónshieiði þung-
fær, og dálítili snjór var í Afr
mannaskarði.
ILLFÆRT AF BALLI
SauðárkráJki 8. nóvember.
ILLVIÐRI skall á hér um mið-
bik Skagafjarðar með miikilli
fannkomu upp úr miðnætti að-
faranótt sunnudags. Olli þetta
verulegum erfiðleikum á vegum
úti, eirkuim fyrir fólk stm um
kvöldið hafði sótt dansleik að
Miðgarði í Varmablíð. Tók það
flesta um fimm kluikkustundið
að komast út á Sauðárkrók, með
- VR
Framhald af bls. 28
og samninganefndar félagsins i
yfirstandandi kjaradeiiu.
Jafnframt lýsir fundurinn yfir
fyllsta stuðninigi sínum við verk
failsaðgerðir, ef stjóm og trún-
aðarmannaráð telja þær nauð-
syntegar til að knýja fram samn
inga.“
Umræður urðu á fundinum
um hvenær væri heppilegur timi
til aðgerða, og var rætt um tima
bilið upp úr 22. nóvember eða
síðar, ef ekki yrði breyting tll
hins betra í samninigamálum
VR og verkalýðshreyfinigarinnar
á næstunni.
Viðskiptatengsl Islendinga við EBE:
Vænta má að samningsgrund-
völlur verði birtur á næstunni
BÚAST má við, að í þessum eða
næsta mánuði, liggi fyrir á-
kvörðun framkvæmdastjórnar
Efnahagsbandalags Evrópu um
samningsgrundvöll frá þeirra
hálfu um viðskiptatengsi milli ís
lands og aðildaþjóða bandalags-
ins. Kom þetta fram á fundi við-
skiptaráðherra með fréttamönn-
um í gær, þegar hann greindi
Skipstjórar - utgerðarmenn
Fiskverkunarhús á Suðurnesjum óskar eftir bát í viðskiptí
á naestkomandi vetrarvertíð, sameiginleg verkun kaemi til greina.
Upplýsingar í síma 92-7064 eftir kl. 7 á kvöldín.
frá för sinni á ráðherrafund
EFTA-landanna í Genf í síðustu
viku.
Ráðherrann sagði, að í áliti
framkvæmdastjórnar EBE frá
því í sumar hefði komið fram,
að hún teldi að viðskiptatengsj
gætu skapazt milli aðildarríkj-
aruna og íslands. Féllust þeir að
mestu á þær tillögur fslendinga,
að við veittum aðildarþjóðum
fríverzlunarrétt hér, gegn því
að njóta sömu hlunnimda hjá
þjóðum Efnahagsbamdalagsins,
einkum fyrir útfluttar sjávartaf-
urðir.
Þá sagði ráðherra, að komið
hefði fram á fundinum, að full-
trúar Noregs og Danmerkur
hefðu lýst því yfir, að saTnmiinga-
viðræður þeirra við Efnahag3-
bandalagið væru það langt á veg
komniar, að stefnt væri að því,
að saimintegagerð lyki fyrir ára
mót. Um hugsanlega aðild væri
hins vegar ekfki að ræða fyrr en
á næsta ári, þar sem í Danmörku
þyrfti að bera rmálið undir þjóð-
aratkvæði, og væri mikil óvissa
ríkjandi í báðum löndunum um
þetta mál.
Ennfremur sagði ráðherra, að
lögð hefði verið áherzla á, að í
samningum þeton, sem gerðir
hefðu verið milli EFTA-land-
amrna héldust fríverzlunarákvæð-
in, þótt löndin gengju í Efn*a-
hagsbandalagið. Lofcs sagði hann,
að fulltrúar þeirra ríkja, sem
ekki hyggjast sækja uim aðild að
EBE, hefðu lagt á það áherzlu
að EFTA ætti að starfa áfram,
þótt þrjú ríki þess gerðust aðil
ar að EBE.
stórum fólksflutningabíl. Minni
bila varð að skilja eftir. Vega-
tengdin er um 24 km og tekur
yfirleitt u. þ. b. 20 mteútur að
komast á milli.
Veðurhæð var gífurleg og
ákaflega mikil hálka á veguim.
Einn árekstur varð vestantil í
Hegranesi. Rákust þar á tveir
fólksbílar með þeim afleiðinguim,
að farþegi í öðrum bíLnum mieidd
ist nokkuð í andiiiti. Aðrir
sluppu með minni háttar Skrám-
ur.
Á sunnudeginuim var hafizt
handa um að sækja þá bila sem
skildir höfðu verið eftir, ýmist í
Varmaíhlflð eða á veginum. Voru
bílamir ýmist á veginum, eða
utan hans, en síðdegis i gær
voru þeir allir komnir hver tcfl
sins heima.
f dag er bezta veður, mjólkur-
bilar hafa komizt hingað óhindr-
aðir i dag, og verið ?r að ryðja
veginn fcil Sigluf jarðar. — jón.
— Gjótan
Framhald af bls. 2
felli hvað sem það kostaði til að
koma I veg fyrir frekari náttúru
spjöll, og reyna að útvega nauð-
synlegan ofaníburð með öðrurn
hætti.
Þá gat Magnús þess, að stefrat
væri að því að fylla upp í gjót-
umar í Helgafelli með því að aka
í þær brotajárni og uppgreftri,
og reynt að hylja þær eftir beztu
föngum með þvi að sá grasfræi
yfix þær.
— Formósa
Framliald af bls. 3
anríkismálum. Nixon forseti
stjórnar rétt eins og væri hann
forseti í Luxemborg, segir Mal-
raux.
Malraux, sem var menningar-
málaráðherra á dögum de Gaulles
forseta, heimsótti Mao síðast í
Peking árið 1965. „Fyrsta vanda-
mál hans er að sjá um að alldr
Kínverjar hafi til hnifs og skeið-
ar,“ segir Malraux, „og þar næst
nauðsyn þess að skapa þjóðemis-
kennd meðal 800 milljóna Kin-
verja. Á þessu sviði leggur Mao
allt sitt traust á æsfcuna," segir
Malraux loks í viðtalinu.