Alþýðublaðið - 13.07.1958, Síða 3
Sunnudagur 13. júlí 1958
f^F>sw-
AlþýSnb TaSiS
'PP^T'' 3
Alþýíiubldöiö
Útgefandi:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Ritstjórnarsímar:
Auglýsingasími:
Afgreiðslusími:
Aðsetur:
Alþýðuflokkurinn.
Helgi Sæmundsson.
Sigvaldi Hjálmarsson.
Emilía Samúelsdóttir,
14901 og 14902.
1 4 9 0 6
1 4 9 0 0
Alþýðuhúsið
Frentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu 8—10.
Finnsku kosningarnar
NÚLEGA fóru fram þingkosningar í Finnlandi, og voru
úrslit þeirra gerð heyrinkunn fyrir nokkrum dögum. Þau
leiða ekki í ljós miklar breytingar, en samt hefur öfga-
flokkunum til hægrj og vinstri aukizt nokkuð fylgi. Vekur
sér í lagi athygli, að kommúnistar standa betur að vígi
eftir kosningarnar en fyrir þær, þrátt fyrir síðustu atburði
á vettvangi heimsstjórnmálanna, en þeir leggjast eins og
skuggi á löndin austan járntjaldsins og eru mikið áhyggju-
efni á Vesturlöndum.
Öllum ber saman um orsakir þessarar þróunar á Finn-
landi. Efnahagsmálin eru þar í óviðunandi ófremdará-
standi, og atvinnuleysj hefur farið mjög vaxandi. Óttinn
og óvissan hefur svo orðið vatn á myllu kommúnista, sér
í lagi meðal fátækustu stéttanna. Kennist hér einu sinni
enn hættan af upplausn og ringulreið. Finnar eru senni-
lega dugmesta þjóð Norðurálfunnar. Samt eiga þeir í vök
að verjast vegna tvísýnu og erfiðleika. Og vandamál þeirra
geta vissulega orðið fleirum áhyggjuefni. íslendingar
þekkja af reynslunni þá óheillaþróun, sem nú bitnar á
Finnum. Við þurfum iafnframt að gera ráðstafanir til þess
að sú saga endurtaki sig ekki.
Stjórnmálaflokkarnir í Finnlandi eru margir og sund-
urþykkir eins og hér á íslandi. Þess vegna er erfitt þar
eins og héi- að mynda samhenta ríkisstjórn, er tekið geti
viðfangsefnin föstum tökum. íslendingum er því hollt að
íhuga þann vanda, sem frá segir í fréttunum af finnsku
þingkosningunum. Hann getur orðið hlutskipti okkar með
óþægilegum hætti í náinni framtíð, ef við berum ekkj gæfu
til að gera skynsamlegar og raunhæfar ráðstafanir í tíma.
Tímahcért íhugunarefni
VALDHAFARNIR í Búdapest bera á mótj því, að frú
Júlía Rajk hafi verið tekin af lífi, Og munu vissulega allir
fagna því, ef rétt reynist, að saklausu blóðj hafi ekki
enn á ný verið úthellt í Ungverjalandi. Þjóðvilj-inn talar
um lygafréttir af þessu tilefnj og er stórhneykslaður á
því, að nokkur skuli ætla ungversku kommúnistunum aðra
eins svívirðu og þá að hafa dómsmorð á samvizkunni!
Með öðrum orðum: Ef hæpið reynist eða rangt, að af-
tökur hafi verið framkvæmdar í Hngverjalandi, þá skiptir
Þjcðviljinn skapi fyrir hönd samheria sinna og vina þar
austur frá. En reynist satt og rétt, að dómsmorð eigj sér
stað í Ungverjalandi, þá lætur Þjóðviljinn sér þau tíðindi
í léttu rúmj liggja. Auðvitað er Ijótt að ætla öðrum dóms-
morð. En hitt er þó sýnu ljótara að hafa dómsmorð á sam-
vizkunni. 1
Þetta ætti að vera tímabært íhugunarefni fyrir Þjóð-
viljann eins og atburðum heimsmálanna er háttað þessa
dagana. 1 ; 1 t., 1
Samtal við Sfeinþór Benjamínsson á Þingeyri.
•i
STEINÞÓR BENJAMÍNS-
SON hafnarvörður á Þingeyri
við Dýrafjörð er staddur í
Reykjavík þessa dagana. AI-
þýðublaðið frétti af ferðum
hans, náði tali af honum í fyrra
dag ag bað hann að segja les-
endum helztu tíðindi úr heima-
högum.
Vegna þeirra, sem ekki
þekkja til á Vestfjörðum, er;
rétt að geta þess, að Steinþór j
hefur verið hafnarvörður á
Þingeyri allt frá því að hrepp-
urinn eignaðist hafnarmann-
virkin þar. Hann er Þingeyr-
ingur f húð og hár, fór fimmtán
ára gamall á sjóinn og stund-
aði sjómennsku meira og
minna í fjörtíu og fimm ár.
Hann var á skútum, línuvteið-
urum og vélbátum. Hann hefur
verið háseti, stýrim'aður og
skipstjóri. Síðustu árin hefur
hann verið fiskimatsmaður á
Þingeyri. Hann hefur lengi átt
sæti í hreppsnefnd fyrir Al-
þýðuflokkinn og á mörgum svið
um verið framámaður í sinni
sveit. Hann hefur lengstum ver
ið teinn áhugasamasti forustu-
maður Alþýðuflokksins á Þing-
eyri og í Vestur-ísafjarðar-
sýslu.
Þrjú hundruð íbúar
á Þingevri.
— „Þingeyri hefur verið í
nokkurri lægð síðustu árin,“
segir Steinþór, — „Það hefur
verið heldur erfitt um atvinnu.
Þess vegna htefur átt sér stað
töluverður fólksflutningur úr
hreppnum. Nú eru á eyrinni
um það bil þrjú hundruð íbúar
og þeim fækkar heldur. Þing-
eyri hefur tapað sinni gömlu
stöðu meðal fjarðanna.“
— Hvenær var helzta blóma-
skeið Þingeyrar?
— „Þingeyri var einn af sel-
stöðuverzlunarbæjunum. Þar
var blómlegt athafnalíf á skútu
öld. Þingeyri var lang blómleg-
asti bær á Vestfjörðum á þeim
tímum, Fjöldi Breiðfirðinga
sótti þangað sumaratvinnu,
bæði sjómenn og kvenfólk.
Proppe-bræður gerðu Iengi vel
út þilskip á handfæraveiðar og
botnvörpunginn Clementínu,
sem á sinni tíð var stærsti botn
vörpungur á landinu. En
Proppebræður urðu gjaldþrota
árið 1926 ef ég man rétt, og
síðan þeir fóru á hausinn, hef-
ur aldrei komizt á fastur at-
vinnurekstur á Þingeyri: Þá
komust byggingarnar í hendur
manns, sem ekki gerði sjálfur
út, heldur keypti fiskinn. Sá
maður fór úr þorpinu að loknu
seinna stríði.“
Séð yfir Þingeyri við Dýrafjörð. -Ljósm. V. Nathanaelssara).
Vélbátaútgerðin heppilegust
— Hvað um vélbátaúígerci
frá Þingeyri?
— „Um 1930 komu þrír línu- !
veiðarar til Þingeyrar. Þeir
hétu Fróði, Fjölnir og Venus. :
Þeir voru gerðir út allt fram á
stríðsár og Fjölnir þan^að til ]
að hanní sökk eftir árekstur í
lok stríðsins. Ég var á honum
þá. Flmrn fórust. *Fimm komus.t
af.“
— Fenguð þiðtogara?
— „Nokkru síðar kom togar-
inn Guðmundur Júní. Um hann
var stofnað hlutafélag, sem
starfaði í eitt ár. Þá varð fyrir-
tækið gj'aldþrota og við rnisst-
um togarann. Hann er nú gérð-
ur út frá Flateyri. Honum var
hreinlega skilað.“
— Hvað tók þá við?
— „Eiríkur Þorsteinsson, nú-
verandi alþingismaður, keypti
þrjá báta frá Danmörku. Tveir
þeirra komu til Dýraffarðar.
Einn átti hann sjálfur. Sá bátur
hefur aldrei . sézt þar við
bryggju, heldur gerður út su:o:a
anlands, nú frá Vestmannateyj
um. Síðast reis upp nýtt útgexö-
arfélag, „Fiskiðja Dýrafj'arð-
ar.“ Hún gerir út tvo báta.“
— Hvernig hefur vélbátaút-
gerðin gengið?
— „Hún hefur gengið yél...
Mjög vel. Flestir telja, að við
ættum aðallega að halla okkijr
>ð vélbátunum. Vélbátaútgeið-
in er heppilegust. S'tækkun
landhelginnar árið 1952 gerði
það mögulegt, að smærri bátar
gætu þrifizt á handfærum yfír
sumarmánuðina. Handfæraveið
in er töluvert sóít og í vaxandi
m.æli.“
f
Handfæraveióar á
gefa góðan arð.
— Hvernig eru handfæravc-ið
amar stundaðar?
— ..Þær eru stundaðar á 'jill—
urn trillum. Á Þingeyri eru
nú í sumar tíu trillur og
á handfæraveiðum. Með tóíf
mílna landhelgi myndi tr'il’u-
fiskiríið friðast algjörlega. Tnll
| urnar cru á þetta þremur upp
í sjö •— átta mílur frá landi.
Við áiítum, að stækkun land-
i helginn.'ar komi að góðum hot-
um. Við viljum ekki togskip inn
' í iandhelgina. ... ekki hetóur
íslenzk. Enda eru ísIénzku'L -g-
! ararnir sjaldan uppi á grúnn-
; miðum.“
j •— Eru handfæraveiðarnar
, erfiðar? j
— ...ú hverri trillu eru tyeij
I eða þrír menn. Þeir leggja
• sig. miklar vökur. Þeir gru úli
í .sólarhring eftir sólafhrœg.
j — Aflinn er' líka mik-
I ill. Þeir fá þetta 300 til .500
| kíló á hvert færi. Nú fá þeir
! held ég 1,90 krónur fyrir kilo
! ið, svp að sólarhringsafli geiir.
j 600 til 1000 krónur. Eq. bátvti-
i inn tekur sinn hlujt. Afkoman
• er samt góð, afbrag'ðsgóð. Það
í Framhald á 4. síðtt.
I?
s
s
FRAM
KSI
KRR
ö
]S
]S
S.
!V
,S
ft
ft
s
A n n a r 1 e i k u r
Danska úrvalsliðsins SJ.U,
verður á Melavelli'num kl. 8,30 annað kvöld
-mánudag) við
# íslandsmeislarana frá Akranesi
Dómari: Haukur Óskarsson.
Línuverðir: Jór. Þorsteinssno og Karl Bergmann.
Aðgöngumiðasala frá kl. 1 á morgun. — Verð aðgöngu-
miða: Stúka 50 kr. — Stólar: 35 kr. — Stæði 20 kr. Börn 5 kr.
Komið og sjáið spennandi leik.
NEFNDIN.