Alþýðublaðið - 29.10.1919, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.10.1919, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið Grefið tit af A1 þýðuilokkmim. 1919 Miðvikudaginn 29. október 1. tölubi. Alþýðufiokksmemi! GJ-erist allir meðlimir í Kaupfélagi verkamanna. Langaveg 33 A, Sími 'J'38. Dagblað það, sem hefur göngu sína með blaði þessu, er ætlað að bæta úr þeirri þörf, sem Al- þýðuflokkurinn lengi hefir fundið -á því, að hafa blað í Reykjavík, sem kæmi tít daglega, Reyndin hefir orðið sú sama hér og er- lendis, að alþýðan á við ramman reip að draga, þar sem htín dag- folaðslaus þarf að etja kapp við •auðvaldið. Og þó vikublað bæti að mestu tír þörfinni tít um iand, í>á þarf alþýðan dagblað, þar sem •orustan er snörpust — í Reykja- vík. Blað þetta er Jangtum minna ■en þurft hefði að vera, en Al- býðuflokkurinn verður að sniða sór stakk eftir stærð sjóðs síns, eg altaf er opin leiðin að stækka blaðið, þegar hagur þess vænkast. Stefna blaðsins er ákveðin. Það er, eins og „Óagsbrtín", gefið út ■af Alþýðuflokknum, sem ennþá sem komið er, er einasti flokkur- inn í landinu, sem hefir ákveðna stefnuskrá í innanlandsmálum. Alþýðuflokkurinn berst fyrir mál- stað alþýðunnar, en það er í raun og veru sama sem að berjast fýrir málstað íslenzku þjóðarinnar, Því alþýðan og þjóðin er eitt, og sá sem berst á móti alþýðunni, eða í eiginhagsmunaskyni, af aft- urhaidssemi eða nýfælni, leggur stein í götu á leið hennar mót betri lífskjörum, hann er óvínur -íslenzku þjóðarinnar, hversu hátt svo sem hann hrópar um ætt- jarðarást og verndun þjóðernisins. Blaðið verður selt á 10 aura í lausasölu, en áskriftargjaid er 1 'króna um mánuðinn, og er fast- lega vonast eftir því, að verka- lýðurinn og aðrir, sem eru mál- efnum alþýðunnar hlyntir, gerist sem fyrst áskrifendur. Auglýsingar býst blaðið við að fá nokkrar; ekki af því að það ætli, að aug- iýsendur verði alment hlyntir stefnu þess, heldur af því að þeir af þeim, sem eru hygnir at- vinnurekendur, sjái sjer hag í því að auglýsa í blaði alþýðunnar, án tillits til hvaða pólitiska skoðun þeir hafa, og í samræmi við það, sem reyndin hefir sýnt erlendis um blöð jafnaðarmanna. varðaði við lög, og taldi hann tvímælalaust að svo mundi vera. Skýrði hann frá að lögreglan væri þegar farin að rannsaka málið. Mun siðar verða skýrt frá á- rangri þeirrar rannsóknar hér í blaðinu. Skepnur myrtar á svívirðilegan hátt. í vikunni sem leið var sú ó- hæfa framin, að svo mörgum kindum var þjappað í eitt htís hjá sláturfélaginu, að 10 kindur drápust. Mun tvent hafa verið orsökin, — sumpart hafa þær kafnað af loftleysi, en sumpart hafa þær verið troðnar undir í þrengslunum og þannig smámurk- ast tír þeim lífið. Auk þeirra kinda, sem drápust alveg, voru margar kindur hálfdrepnar og meira en það, því þær voru síðubrotnar, ýmist á annari hliðinni eða báð- um. Slík hermdarverk sem þetta eru með öllu óafsakanleg, og varða vafalaust við lög. Viðtal við lögreglustjóra. Yér spurðum lögreglustjórann, hr. Jón Hermannsson að þvi, hvort hann áliti ekki víst að þetta Með samingi milli verkamanna- fél. Dagsbrtín og Félags atvinnu- rekenda í Reykjavík dags. 5. jan. þ. á. var ákveðið að tímakaup verkamanna að degi til skyldi vera 90 aur. um klst. Þó kaup þetta væri miklum mun fyrir neðan rétt hlutfall við dýrtíðina, gengu verkamenn að því samt í þeirri trtí, eða öllu heldur vissu, að vöruverð mundi bráðlega lækka hröðum fetum þegar lokið væri ófriðnum. Enda mun nálega hver maður á landinu hafa verið þeirrar skoðunar þá. En þetta fór á annan veg, sem kunnugt er. Á uthallandi sumri varð það lýðum ljóst, að dýrtíðin mundi ekki að eins haidast óbreytt, heldur fara stórum versnandi. Síðast í ágtíst sendi Dagsbrtín at- vinnurekendum kröfu um kaup- hækkun, sem varð til þess að báðir málsaðilar gengu til samn- inga upp tír mánaðamótunum. Stóðu þeir samningar yfir nærfelt 3 vikur og lauk svo, að ekki

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.