Alþýðublaðið - 29.10.1919, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
ins þar) og Ágúst Jósefsson bæj-
arfulltrúi. Fundinum, sem var hinn
fjörugasti svo sem Alþýðuflokks-
fundir jafnan eru, stýrði Hallbjörn
Halldórsson prentari.
Á Sjálfstjórnarfundinum töluðu
frambjóðendur Sjálfstjórnar Jón
Magnússon og Sveinn Björnsson,
°g þriðji frambjóðandinn Jakob
Möller, sem Sveinn Björnsson er
hvorki með eða móti. Þegar þessir
Þn’r frambjóðendur höfðu hver um
sig talað tvisvar, kom Ólafur Frið-
riksson á fundinn og talaði, en á
eftir töluðu þeir J. Möller og Jón
Magnússon. Ekki töluðu aðrir á
fundinum nema þessir viðstöddu
frambjóðendur, nema hvað Ólafur
'Fhors framkvæmdaratj. hélt stutta
ræðu úr sæti sínu. Sagði hann að
Oi- Friðr. minti sig á Jeppa á
Fjalli þegar hann hefði haldið að
hann væri greifl, og þótti það jafn
hseverskulega mælt og við var bú-
ist úr þeirri átt. Fundinum stýrði
Brynjólfur Björnsson tannlæknir,
en fyrverandi formaður „Sjálfstjórn-
ar“ Magnús Einarson dýralæknir
var fundaritari.
Um daginn og veginn.
Stúdentafélag Háskólans hélt
pólitískan fund í fyrrakvöld. Sner-
ust þar umræður aðallega um
fossamálin. Eftirtektarvert er það,
a5 atriðið um eignarréttinn á vatni
var varla nefnt á fundinum —
var skoðað sem auka-atriði, svo |
Sern það og er — heldur ræddu
Wenn hvort, og á hvaða hátt,
vii'kjun á vatnsafli ætti fram að
fara. Málið var ekki útrætt á fund-
iuum, og á bráðlega að vera fram-
haldsfundur.
Kosningaskrifstofa Alþýðu-
flokksius er á Laugaveg 18 B.
er opin fyrst um sinn 2—4 og
°g 6—8 síðd.
Baðliúsið er opið 8—8. Steypi-
höð kosta nú að eins 75 aura.
Í8land fer eftir 1—2 daga norð-
Ur um land, til útlanda.
Skjöldur fór til Borgarness í
gaermorgun.
Nýkomið:
Sængurdúkur tvibreiður, verb kr. 6,50 pr. mtr.
Efni í undirsængurver, varð kr. 18,55.
3Per\kaJ. mjög breitt, dúnhelt, í Yfirsængur.
r __
Verzl. Ær-na Eiríkssonar.
lianpirðu góðan hlut, 1»A mundu livar þú tékst honn.
Olí ufatnað ur
og annar vinnufatraður beztur og ódýrastur hjá
Sigurjóni.
Hækkun verkakaupsins. Svo
sem sjá má af grein með þessari
fyrirsögn annars staðar hér í blað-
inu, varð samkomulag í gerðar-
dóminum um vinnukaupið — að
það yrði 1 kr. 16 aurar um tím-
ann. Þessa heppilegu niðurstöðu
málsins má vafalaust að mestu
leyti þakka því, hve vel stjórn
verkmannafélagsins Dagsbrún tókst
að velja í gerðardóminn, er hún
tilnefndi þá Pótur G. Guðmunds-
son og Jón Baldvinsson.
(xullfoss fór í gær frá ísafirði.
Kemur við í Stykkishólmi og tekur
þar kjöt. Er væntanlegur hingað
á fimtudag. Fer héðan til útlanda
3. nóv.
Úr Dalasýslu fréttist að haldnir
hafi verið fimm, fundir af sjö, sem
ráðgerðir eru þar núna fyrir kosn-
ingarnar. Hefir þar verið allsnörp
deila milli Bjarna frá Vogi og
Jónasar frá Hriílu, sem er þar
vestra um þessar mundir.
Góð lieyrn. Óvenju góða heyrn
hefir ritstjóri „Vísis" hr. Jakob
Möller. Hann segir í „Vísi“ í gær
að sér hafi verið tekið með dynj-
andi lófaklappi á Sjálfstjórnar-
fundinum í Iðnó á laugardags-
kvöldið, en aðrir, sem þar voru,
urðu ekki varir við, að neitt væri
klappað að rœðum hans.
Ásgrímur Jónsson málari
liggur rúmfastur að heimili sínu
í Lækjargötu.
Kosningafundur var haldinn
í fyrradag kl. 1 að Lágafelli í Mos-
feJlssveit. Vöru þar allir fram-
bjóðendur í Gullbr. og Kjósarsýslu
nema síra Friðrik Rafnar, sem var
forfallaður. Fundurinn hafði verið
hinn friðsamasti, þó margir væru
frambjóðendurnir.
Kartöflur
17 kr. welíkuriim,
gallalausar og óskemdar
hjá
Jóh. Ögm. Oddssyni,
Laugaveg 63.
ooooooooooooooooooooooog
Húsnæði. §
OOOO=0000000000000000000
Ungur og reglusamur iðnaðar-
maður óskar eftir herbergi, einn
eða með öðrum.
Uppl. í síma 286.