Morgunblaðið - 11.04.1972, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.04.1972, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LRIÐJUDAGUR 11. APRlL 1972 7 illllllllllllllllllllllllllllllllllllililllfllllllfllilllll!llllllllillFlllllilltlllllllll!illllllllllllilllillllll|l| ÁÉNAÐ HEIIXA lllll!ll<llllll!lllllllll!llll[lilllllllll!l!llll!lllll!llll!lllllltlll!l<IIIIEI!li|jl!llll!lilllffll!IH]|||||llll[|| 70 ára er á mongun 12. april, ft'jiöm Stefíensen, endiurskloð- andá, ÁiÆheim'Uim 27. Hanin er að he'Qnan á afmæiisclaiginn. í>amn 30.12. voru gefin saman i bjönaband í Neskinkju af séra Jóni Thorarensein unigfrú Brna IBeng'limd Si.giurðardöttir hjúikr- ■unannemi og Heðgi Hjá'marsson rafviirlki. Heimili þeinra er að Eintiimél 2. Stiudio Guðtm’undtar Garðasír. 2. Laugardaginn 29. jan. voru tgieíin saman af Rngnari Fjaiar Lár'US'Symi ungfrú Mjö'X Hólm og Þórhai'j'úr E'ríkason. Heim'li þeinra er á Vífi’iSigöt'U 22. Þann 20. nóv. voru igefiin sam an í hjónaibamd í LanighoCits- Ikkrkjru af séra Sigurði Hauki Guðjónssynd Biiiinóira Siigiurðar- dótitir og Siiglhvat'Ur Siig'urðsson. Heim'iSii þeirra veiður að Vestur bengi 120. Studio Guðumnnidar Gairðastr. 2. DAGBOK B4RNAMA BANGSIMON og vinir hans 7. KAFI.I TÍGRISDÝRIÐ A AÐ FA RAÐNINGU Einn góðan veðurdag sátu Kaninka og Grisling- urinn fyrir utan dyrnar hjá Kaninku og hlustuðu á það, sem Kaninka var að segja. Bangsímon var líka hjá þeim. Þetta var sóÞ bjartur sumardagur og um allan skóginn ómuðu lítil hljóð og Bangsímon fannst þau segja við sig: „Vertu ekki að hlusta á Kaninku. Hlustaðu heldur á mig.“ Hann hagræddi sér því betur til að heyra ekki, hvað Kaninka sagði, en við og við opnaði hann augun og sagði: „Nú,“ eða „ein- mitt,“ og við og við sagði Kaninka: „Þú skilur, hvað ég á við, Grislingur?" og Grislingurinn kinkaði kolli alvarlegur á svip til að sýna, að hann skildi Kan- inku. „Það er því í stuttu máli þannig,“ sagði Kaninka, sem loksins virtist vera að ljúka máli sínu, „að Tígris- dýrið er orðið svo fyrir- ferðarmikið og ókyrrt, að tími er til kominn, að það fái ærlega ráðningu. Ertu ekki sammála mér, Grisl- ingur?“ Grislingurinn sagði, að Tígrisdýrið væri mjög fyr- irferðarmikið og alltaf á þönum og ef hægt væri að gera eitthvað til að stilla það, þá væri það auðvitað ágæt hugmynd. „Einmitt það, sem ég á við,“ sagði Kaninka. „Hvað finnst þér, Bangsímon?“ Bangsímon hrökk við, opnaði augun og sagði: „Fyrirtak.“ „Hvað er fyrirtak?" spurði Kaninka. „Þetta sem þú sagðir,“ sagði Bangsímon. „Það er ekki nokkur vafi.“ - Grislingurinn gaf Bang- símoni olnbogaskot og Bangsímon stóð á fætur og fór að leita að sjálfum sér, því honum fannst hann sjálfur bæði vera þarna viðstaddur og líka staddur einhvers staðar langt í burtu. „Hvernig eigum við að fara að?“ spurði Grisling- urinn. „Hvernig ráðningu á það að fá, Kaninka?“ „Það er aðalatriðið?" sagði Kaninka. „Hvað er aðalatriðið?" spurði Bangsímon. „Bangsímon,“ sagði Grislingurinn ávítandi. „Hlustaðir þú ekki á það, sem Kaninka var að segja?“ „Ég hlustaði, en það fór eitthvað inn í eyrað á mér. Viltu ekki endurtaka það, sem þú sagðir, Kaninka?“ Þar sem Kaninka var því aldrei mótfallin að endurtaka sín eigin orð, spurði hún bara, hvar hún ætti að byrja. Bangsímon sagði, að hún ætti að byr ja, þar sem hún var komin, þegar eitthvað fór upp í eyrað á honum, og Kan- inka spurði, hvar hún hefði verið þá, en Bang- símon sagði, að það vissi hann ekki, því þá hefði hann ekki hlustað nógu vel. Þegar svo var komið, tók Grislingurinn til sinna ráða og sagði, að það sem um væri að ræða, væri það, að nú þyrfti að venja Tígrisdýrið af því, að vera svona fyrirferðarmikið og alltaf á þönum. Að vísu þætti honum mjög vænt um það, en því væri ekki að neita, að það væri of fyrirferðarmikið. „Einmitt,“ sagði Bang- símon. „Það er alls staðar og alltaf á þönum,“ sagði Kaninka. „Það er nú gall- inn.“ Bangsímon reyndi að láta sér detta ráð í hug, en honum datt ekkert í hug, nema þessi vísa, sem hann fór að raula fyrir munni sér: Úti á víðavangi vappar Tígrisdýr Grislings agnarangi undan hræddur flýr. Ekki er á því hemja ef það gerist byrst taka þarf og temja Tígrisdýr sem fyrst. „Hvað var þetta, sem Bangsímon sagði?“ spurði Kaninka. „Var það nokk- ur lausn á málinu?“ „Nei“, sagði Bangsímon. „Þetta var bara lítil vísa.“ „Nú dettur mér ráð í hug,“ sagði Kaninka. „Við förum með Tígrisdýrið í langan leiðangur, þangað sem það hefur aldrei kom- ið áður, og þar látum við það villast, og næsta morg- un finnum við það aftur og .... ykkur er óhætt að treysta því þá verður það orðið nýtt og betra Tígrisdýr.“ „Hvers vegna?“ spurði Bangsímon. „Vegna þess að það verð ur orðið auðmjúkt Tígris- dýr, alvarlegt Tígrisdýr og íhugandi, lítið og óttasleg- ið Tígrisdýr, sem segir: „Kaninka, mikið er gott að þú komst.“ Það er þess vegna.“ „Verður það líka fegið, þegar það sér mig og Grislinginn?“ FRflMHflLÐS Sfl&fl EJflRNflNN-fl DRATTHAGI BI.VANTTTJRJNN FERDINAND ?i^úx • ' - ■ ' i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.