Morgunblaðið - 14.06.1973, Page 2
MÖRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGU’R 14. JÚNl 19T3
Nýtt skóladagheimili
í Vesturbænum
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
iReykjavíkUrborgar hefur lengi
3 umferð-
arslys
MIKLAR skemmdir urðu á
þremur , bifreiðum í hörðum
árekstri á mótum Grensásvegar,
Felismúla og- Skeifunnar um kl.
16.30 í gær. VW-bifreið stór-
skemrndist og Opel- og Mercury-
bifreiðar skemmdust talsvert.
Ganrall maður og tvö barnabörn
lians voru í VW-bifreiðinni og
hlutu minniháttar meiðsli, en
önnur slys urðu ekki á fólki.
2Vi árs gamalit bam hl'jóp í
veg fyrir jeppabifreið á Dreka-
vogi um kl. 18.30 í gær, en
meiðsli þess voru okki talin
aivarlegs eðlis. — I fyrrakvöld
k'ntu saman piltur á vélhjóli og
hestur á vegi sikammt frá Víði-
völium, athafnasvæði hesta-
manna við Vatnsenda. Pil'turinn
var fluttur í slysadeild, en var
eiklki talinn alvarlega siasaður.
t»egar loks tókst að handsama
hesitinn, fékk dýralæknir hann
til skoðunar.
Mývatnssveit:
*
Astand
vega
óþolandi
Björk, Mývatnssveit, 13. júní.
ÁSTAND margra vega hér er
orðið gjörsamlega óþolandi, —
og þó er aðal umferðartíminn
framundan. Engum ofaníburði
hefur verið ekið ofan í veginn í
tnörg ár, þótt víða sé nú bert
grjót og óslétt mjög. Vegheflar
eru hættir að sjást, enda á mörg-
um köflum ekkert til að hefla.
Menn muna ekki annað eins til-
litsleysi og nú á sér stað með við
hald veganna hér. Þó eru menn
krafðir síhækkandi vegaskatta,
og það jafnt hvort heldur ekið er
á Siteyptum fyrsta flokks vegum,
eða þeim óvegum, sem við hér
fáum að búa við. Hverjir eru
ábyrgir fyrir því ástandi, sem
hér ríkir í vegamáium?
— Kristján.
verið að leita eftir hentugu húsi
undir skóladagheimili í Vestur-
bænum og hefur nú svo skip-
azt að áform eru um að taka
húsið Skála við Kaplaskjólsveg,
rétt við Sundlaug Vesturbæjar,
fyrir skóladagheimili næsta vet-
ur.
Húsið á Skála er rúmgott, á
tveimur og hálfri hæð og góð-
ur garður í kring óg mun þvi
hægt að taka þar fleiri börn,
en í hinum skóladagheimiiUm
borgarinnar tveimur eða yfir 20
böm.
Húsið er í eigu Reykjavikur-
borgar, en þar héfur verið fjöl-
skylduheimili með 6 börnum, sem
þá mun flytjast í annað hús,
sem keypt verður í Smáíbúða-
hverfi.
Mikil eftirspum hefur verið
eftir skóladagheimilum, þarsem
börn geta dvalizt utan sköla-
tíma, siðan það fyrsta hóf starf-
semi sina á Langholtsvegi, en
annað tók til starfa í fyrra í
Smáíbúðahverfi, og nú verður
bætt úr þessari þörf í Vestur-
bænum.
Þessi mynd var tekin í Esbjerg í gær. Eiturskipið Grindal liggur við hafnargarðinn, en fyrir
framan það hafa danskir fiskibátar raðað sér og varna því, að skipið komist frá hafnargarð-
inum. (Símamynd Nordfoto.)
— Ekkert eitur
Framhald af bls. 1.
Um leið settú þeir dönsku stjörn-
inni þau skilyrði, að hún kæmi
í veg fyrir að úrgangsefnum
yrði kastað I sjóimn á miðum
• danskra fiskimanna i framtíð-
inni.
Danskir fiskimenn eru einhuga
í þessum aðgerðum, og fyrir há-
Banvænum eiturefnum
og 7-8 þús. töflum stolið
— úr Háaleitisapóteki í fyrrinótt
BROTIZT var inn í Háaleitis-
apótek í fyrrinótt og stolið 7—8
þús. töflum af ýmsum tegund-
um, og 10 litlum glösiim með
banvæntim eiturefnum. Töflurn-
ar voru aðallega örvandi eða
deyfandi Iyf og svefnlyf. Auk
þess var rótað til í mörgum
öðrum hirzlum apóteksins og
stolið nokkrum þúsundnm króna
í peningum. Málið er í rannsókn,
en eiturefnin og lyfin voru
ófundin í gærkvöldi.
Tilkynnt var til lögreglunnar
um innbrotið á sjöunda tíman-
um í gæranorgum. Við rannsókn
kom í ijós, að brotin hafði verið
rúða í hurð og farið þar inn
og um allt apótekið. f lyfja-
geymislu hafði verið rótað til í
öllutm hiliuim, skúffum og" skáp-
urn og töfluglös tekin. Þá hafði
læstur eiturefnaskápur apóteks-
ins verið spenntur upp og úr
honum tekin 10 Mtil glös með
banvænum eiturefnum. Þá hafði
verið rótað í flestum öðrum
hirzlum apóteksins og stolið
hafði verið nókkruim þúsundum
króna sem voru andvirði
seldra mininingarkórta.
Andrés Guðmundsson, lyfsali
í Háaleitisapóteki, sagði í við-
tali við Morgunblaðið í gær, að
ijóst væri, að þjófurinn
eða þjófarnir hefðu eitthvað
þekkt til lyfja, því að valin
hefðu verið svefnlyf o. fl. lyf,
sem oft eru misnotuð, en að
öðru leyti hefði val lyfjanna
virzt nokkuð handahófsikennt. —
Eiturefnin, sem stolið var, eru
notuð í örsmáum skömimtum í
lyf, en í stórum slköimimtum eru
þau banvæn. Þannig getur eitt
grarrum af þessum efnum banað
státhraustum manni. Eiturefnin
voru í duftformi í 10 litlum
giösum, yfirleitt lítið magin í
hverju glasi, eða frá 4 grömm-
um og upp í 25 grömm, samtals
108,5 grömrn. Var þarma um
að ræða m.a. atrópín, stryfcnin,
adrenalín o. fl.
Þjófabjöll'ukerfi var í apótek-
Alþjóðleg tónlistar-
vika haldin hér
dagana vika International Society for
. ^ _ Contemporary Music (I.S.C.M.)
{)• m. hcr í Reykjavík. ■ Verður efnt til
DAGANA 18.—24. þ.m. verður j tónleikahalds víða í borginni, þar
haldinn aðalfundur og tóniistar-1 sem flutt verður nótíma tónlist
Þessi mynd er af Lyric art trio, sem mun halda Iiljómleika liér á
tónlistarvikuiuu meðal annarra.
af þekktum inniendum og erlend
um listamönnum.
I.S.C.M., sem er alþjóðleigt fé-
lag nútímatónlistar er hálfrar
aldar gamaM og hafa ýmsir af
þekktustu listamönnum nútím-
ans verið i því. ísland var ákveð
inn fundarstaður félagsins að
þessu sinni, til þess að fólk mætti
kynnast nútímatónlist, en í sum
um stórborgum erlendis hafa tón
leikar félagsins ekki vakið þá
eft'rtekt, sem þeir verðskulda,
vegna þess fjölda tónleika, sem
boðið er upp á daglega.
Á þessari tónlistarviku hér
verða flutt ýmis einleiksverk
og ópera sem hefur verið
upp færð sérstaklega til sýning-
ar hér og mun fjalila um landhelg
ismálið, Vestmannaeyjagos o. fl.
Mikil breidd er í verkefnaval-
inu og gefst vafalausit öllum kost
ur á að hlýða á eitthvað við sitt
hæfi. Fyrstu tónleikamir verða
í Kjarvalssal þann 20. þ.m. kl.
17.00 og mun þar verða flutt elek
trónisk tónlist. Ókeypis verður á
þá tónleika. Námar verður sagt
frá tónlistarviku þéssari í blaðimi
síðar.
inu, en þjófurinn eða þjófarnir
höfðu klippt á vira þess fljót-
lega eftir að það fór í gang,
þannig að fólik í nágrenniniu
vaknaði ekki við hávaðann.
Andrés sagði, að eríitt væri að
koma öðrum vömurn við í apó-
tekinu, því að það væri í ný-
tízkuleguim húisakynnum og inn-
réttin'gar í nýtízkulegum stíl,
mikið áf stónim rúðum og fáar
mnihurðir með læsinguim. Hefiur
verið brotizt inn í apótekið
nokkrum sinnum áður og lyfj-
um stolið, en sömu sögu má
reyndar segja um fjestöll önnur
apótek á höfuðborgarsvæðinu.
Yfirleitt hefur lítið eða cíkkert
verið sagt frá siííikuim lyfja-
þjófnuðum í fjölmiðluim, þar
sem talið hefur verið, að siMikt
væri til þess eins fallið að leiða
aðra þjófa í freistni. Var lyfja-
magnið, sem stolið var að þessu
sinni, ekkert mieira en í mörg-
um þeirra þjófnaða, en vegna
eiturefnanna hefur verið vakin
sérstök at'hyg'i á þessum þjófn-
aði.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið gaf í gær út frétta-
tilikynningu um þetta mál, þar
sem almenningur var varaður
við eiturefnunum og foreldrar
hvattir til að hafa gát á börnum
sínuim í þessu sambandi. Jafn-
framt var eindregið til þess
mælzt, að efnunuim yrði s'kilað
hið bráðasta til lögreglunnar.
Mál þetta er í rannsókn hjá
rannsóknarrjögreg'iunni í Reyikja-
vík, en í gærkvöldi höfðu þjóf-
arnir ekki fundizt eða eiturefnin
og lyfin.
degi í gær, fóru fiskibátar frá
Skagen, Hirtshals óg að koma
til Esbjerg og sjómenn á þess-
um bátum ætla að varna Skip-
inu ásamt starfsbræðrum sinum
í Esbjerg að komast út úr höfn-
inni, en samtalis vörnuðu 150 bát-
ar skipinu að komast úr höfn.
Forráðamenn Grindstedværk-
ets segja, að þeir geti ekki losn-
að við úrgangsefnin á annan hátt,
og ef ekki verði búið að koma
þessum efnum í hafið eftir yiku,
þá muni verksmiðjan stöðvast.
Grindstedværket framleiðir aðal
lega hiina frægu P-piMu, og ýms-
ar vitammpiliur.
Allar líkur eru á, að eiturískip-
ið Grindal fari ekki úr höfninni
í Esbjerg með þehnan farm.
Flestir undirmenn skipsins sögðu
upp störfum i gær, og sögðu, að
þeir styddu kröfur danskra fiski-
manna. — Þá má geta þess, að
íslenzk síldveiðiiskip hafa oft
fengið síidarafla á Doggerbanka
á haustin.
ÞESSI niynd er af Ágústi Fjeld
sted, sem drukknaði í Goole vií
Humberfljót í Bretlandi fyrii
nokkrum dögum. Ágúst var skij
verji á Laxá, en ekki Langá, eiiu
og misritaöist í blaöinu i gær.
Olíumöl á götur Aust-
fjarðabæja komin
- norskt f yrirtæki leggur göturnar
Eskifirði, 12. júní
HINGAÐ kom í dag norskt skip,
Polarfrakt með 1000 tonn af olíu
möl frá Noregi, en olíumölina á
að legigja á götur hér í sumar.
Það er norskt fyrirtæki, sem legg
ur olíumölina hér oig í átta öðr
um bæjum hér austanlands.. Von
er á 1500 tonnum í viðbót við það
sem komið er.
Mikið er um bygginigafratn-
kvæmdir hér í sumar. Mest er
byggt af einbýlishúsum. Þá er
unnið að stækkun á frystihúsinu
og Friðþjófur h.f. er að reisa
stórt fiskverkunarhús. Aflahæsti
netabátur hér í vetur var Frið-
þjófur. Afiaði hann um 670 lest-
ir. 3 bátar stunda nú humarveið
ar og einn fer í Norðursjóinn. Þá
landar Hólmatindur 120 lestum
í dag eftir viku útivist. Þessa
daga er kalt í veðri hér og lítið
sumarlegt — Fréttaritari.