Morgunblaðið - 14.06.1973, Síða 4

Morgunblaðið - 14.06.1973, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNl 1973 220-22- RAUÐARÁRSTÍG 31 BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 \H 25555 «EMEM BILALEIGA CAR RENTAL BORGARTÚN 29 AV/S SIMI 24460 _LAUGAVEGI 66 BÍLALEIGAN 5IEY5IR CAR RENTAL ÍSLSS" TRAUSTI ÞVERHOLT 15ATEL. 25780 SKODA EYÐiR MINNA. LEIGAN AUÐBREKKU 44 -46. SÍMI 42600. HÓPFERÐIR Til leigu í lengri og skemmri ferðir 8—50 farþega bílar. KJARTAN INGIMARSSON, sími 86155 og 32716. BILALEIGA — CAR RENTAL 7W-1300 1973 GUÐBJARTUR ÞORGIL3SON Unnarbraut 12 — símí 10586 Setjarnarnesi. Geymið augiýsinguna. SAMVINNU BANKINN ínaíkka aif allhuig börrnwn min- um, tengdaíbömum og bama- bömium og öðr'jsm ættiingjum og vimiim, nær og fjær, fyrir gjaifir og hei lilaskcyti á 75 ára aÆmæM mínu. Guð blessd ykkur öll. Guðni frá Brekkum. Frægur að endemum Núverandi meirihluti út- varpsráðs hefur á stundum vakið á sér nokkra athygli með margs konar hætti. Ef- laust finnst mörgum, að út- varpsráðsmeirihlutinn leggl svo mikið upp úr umtali um sjálfan sig, að hann telji það betri kost að vera frægur að endemum en alis ekki frægur. Ekki löngu eftir að núver andi útvarpsráð tók við stjórn útvarpsins lýsti formaður þess yfir því, sem frægt er orðið, að Einar Ágústsson bryti landslög á hverjum degi. Þessi mjög svo harða ásökun kom fram í öðru helzta málgagni rikisstjórnarinanr. Ástæðan var sú, að utanríkisráðherra hefði ekkl gert reka að því að loka sjónvarpsstöð varnarliðs ins á Keflavíkurflugvelli. En útvarpsráðsformaðurinn taldi og telur sennilega enn, að sjón varpsrekstur varnarliðsins sé andstæður islenzkum lögrum. Það er harla fátítt, að opin berir embættismenn ásaki ráð herra um lögbrot, hvað þá heldur, að þeir eigi sökótt við lögin dag hvern. Víðast hvar hefði þess verið krafizt, að réttmæti slíkra ásakana yrði kannað fyrir dómstólum. Það er ekki svo veigalítið mál, þeg ar formaður útvarpsráðs sak ar utanrikisráðherra um lög- brot. En ummæli formannsins voru ekki talin meira virði en svo, að utanríkisráðherra hafði varla svo lítið við að andmæia þeim. Nú hefur það svo gerzt i framhaidi af þessum ásökun um, sem dóu út, rétt eins og enginn tæki mark á orðum út varpsráðsformannsins, að hann ber fram tillögu í ráð- inu, þar sem hann óskar eft- ir þvi, að menntamálaráð- herra láti fram fara opinbera rannsókn á fjölmiðlarekstri varnarliðsins. Nú heyra mál- efni og starfsemi varnarliðs- ins undir utanríkisráðherra. í raun réttri er útvarpsráðsfor maðurinn því að óska eftir op inberri rannsókn á störfum ut ansríkisráðherra, sem ræður því, hvort útvarps- og sjón- varpsstarfsemi varnarliðsins er Ieyfð eða ekki. Annar af fiilltrúum Fram- sóknarflokksins í útvarpsráði, Tómas Karisson greiddi at- kvæði gegn þessu vantrausti á Einar Ágústsson, en hinn, ÓI afur Ragnar Grímsson, stóð með útvarpsráðsformannin- um. I fyrra tók enginn niark á útvarpsráðsformanninum, þegar hann sakaði utanríkis- ráðherra um dagleg lögbrot. Nú verður fróðlegt að fylgjast með þvi, hvort menntamáia- ráðherra tekur mark á for- manninum og lætur fram- kvæma opinbera rannsókn á störfum iitanrikisráðherra. — Eða ætli Magnúsi Torfa sé líka sama um, hvort Njörður P. Njarðvík verður aðeins frægur að endemum? Ritskoðun? Þá hefur einnig vakið nokkra athygli sú ákvörðim út varpsráðs, að framvegis skull aðeins geta í sjónvarpsfrétt- um þeirra bóka, er teljast hafa listrænt eða fræðilegt gildi. Þessi frétt hefur ekkl vakið athygli eingöngu fyrir þá sök, að hin nýja ljóðabók útvarpsráðsformannsins var fyrsta bókin, sem þótti verð- ug umtals, heldur fyrir hitt, að útvarpsráðsmanni er falið að meta, hvaða bækur séu þess virði, að á þær sé minnzt i sjónvarpsfréttum. Með öðr- um orðum, fréttastofu sjón- varpsins er ekki treyst til þess að meta fréttagildi bókaút- gáfu eins og í öðrum efnum. Ef svo heldnr áfram, má ef til vill vænta þess, að blaða- fulltrúi rikisstjórnarinnar verði látinn meta, hvaða stjórnmálaviðbiirðum sjón- varpið skýrir frá. Sjá þá aUir hvert stefnir. spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS ilringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi tii föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins. FRÍTT ÁR 1 TKYGGI.NGUM Leifur Steinarsson, Hof- teigi 14 spyr: Ætla Samvinnutryggingar að bregðast þeim bifreiðaeig- endum, sem í ár eiga rétt á marglofuðum og margauglýst um frium tryggingum að lokn um 10 ára tjónlausum við- skiptum hjá félaginu? Skýring: Félagið sendi mér tilkynningu um að þenn- an rétt ætti ég nú. Er ég ætl- aði að sækja tryggingarskil- ríkin, var mér gert að greiða fyrir maimánuð, og sagt að svo hefði verið ákveðið að all ir gerðu. Yfirstandandi trygg ingarári lýkur svo í marz næstkomandi, svo hið marg- lofaða „fría ár“ verður þá eft ir allt aðeins níu mánuðir. Jón Rafn Guðmundsson hjá Samvinnutryggingum svarar: Vegna ákvarðana varð þetta tryggingarár aðeins níu mán- "ðir, en hins vegar mun fyr- irspyrjandi fá þá þrjá mán- uði, sem upp á vantar á frla áirið við næstu endumýjun tryggingarinnar. VERÐGILDI KRÓNUNNAR Katrin Davis, búsett í Hull í Bretlandi, spyr: Hvaða upphæðar myndu 180 kr. frá 1907 svara tH í dag? Ólafur Tómasson, Seðla- banka íslands, svarar: Frá aldamótum og fram til 1914 voru 100 gullaurar í einni krónu, en í dag eru 1,96 gullaurar í krónunni. Það jafngildir því, að krón- an sé rúmlega 50falt minni í dag að verðgildi, heldur en hún var árið 1907. 180 kr. frá 1907 myndu því i dag vera rúmlega 9000 krónur. VEGATÁLMANIR Jón Sturlaugsson, Austur brún 2, spyr: Hvers vegna er ekki hægt að tilkynna, að vegarkaflinn á Borgartúni frá væntanlegri Kringlumýrarbraut og eitt- hvað inn eftir, er lokaður ura- ferð? 2) Var ekki búið að segja að höfð væru samráð milli allra aðila, sem yliu öll- um vegarskemmdum eða vega tálmunum? Ingi Ú. Magnússon, gatna- málastjóri, svarar: TMIkynningar e<ru settar í morgunútvarp um lokun ým- issa gatna eða gatnahluta vegna malbikunarfram- kvæmda, til þess að vara öku menn við lokunum gatna og benda þeim á að velja sínar akstursleiðir með tllliti til þeirra. Ekki hefur verið far- ið út í að tilkynna um tíma- bundnar lokanir vegna fram- kvæmda armarra borgarstofn- ana en gatnagerðarinnar eins og t.d. Rafmagnsveitunn- ar, sem var að leggja há- spennulinu við umrædd- an götukafla á Borgartúni. Hætta er á, að tilkynningam ar yrðu það umfangsmiklar, að erfitt yrði fyrir viðkom- andi að muna eftir þeim stöð- um, sem einkum þarf að sneiða framhjá. VÖRUMERKINGAR Á HEIMILISSÝNINGU Sigurður Einarsson, Tún- götu 37, spyr: Hvers vegna voru vörur ekki merktar á sýningurmi „Heimilið ’73“? Að visu var fólk til að gefa upplýsingar, en það tók yfirleitt langan tíma, þegar margt var fólk- ið. Að vísu var þama ein undantekning, Bræðurnir Ormson. Ingvi Hrafn Jónsson, blaða fulltrúi sýningarinnar „Heim- ilið ’73“, svarar: Hér er um að ræða mismun andi sölutækni og var hverj- um aðila í sjálfsvald sett, hvernig upplýsingunum um vörurnar var komið til skila. Sumir kusu að merkja vör- ur sinar, aðrir höfðu fólk til leiðbeiningar. LANDHELGISBÆKLINGAR Hildegard Þórhallson, Karfa vogi 54, spyr: Hvers vegna gefur utanrík isráðuneytið aðeins út bæki- inga á ensku til kynningar á málstað Islendiniga í landhelg ismálinu erlendis, en ekki einnig á þýzku t.d.? Hannes Jónsson, blaðafuli- trúi ríkisstjómarinnar svar- ar: Forsendur þessarar spum- ingar eru rangar, þvi ríkis- stjómin hefur gefið út bækl- ing á þýzku. Hins vegar hafa einnig verið gefnar út 6 upp lýsiingagreinargerðir á ensku og auk þess 2 litprentaðir kynninigarbæklingar á ensku. Væntanleg er norsk útgáfa af þessum kynningarbækling- um. Þýzka kynningarbækling inn er hægt að fá hjá Hanm- esi Jónssyni. Suzi Quatro ★ Suzi Quatro Myndarleg hnáta, hún Suzi Quatro, og ekki ætti útlitið að skaða feril hennar í popp- heim'num. Reyndar virðist hún vera búin að koma sér all vel fyrir, því að þessa dagana trjónar lag hennar, Can the can, efst á brezka vinsælda- listanum. Hún er frá Detroit í Bandaríkjunum, en hefur að undanfömu verið á hljómleika ferðalagi i Bretlandi með hljómsveit sína. Sjálf leikur hún á bassagítar. Hún hefur verið í hljómsveitum allt frá sex ára aldri, er hún byrjaði að spila með hljómsveit föður síns, og lék þá á bongótromm ur. Maurice Gibb dæmdur Maurice Gibb, einn Gibb- bræðranna í Bee Gees, var fyrír skömmu dæmdur í 109 sterlingspunda sekt og svipt- ur ökuleyfi í eitt ár fyrir að hafa ekið bifreið sinni ölvað- ur. Hann var gripinn eftir að hafa ekið konu sinni Liilu og vintim hennar 100 metra spöl að hóteli að ioknu sam- kvæmi. Við mælingar á blóði hans, reyndist áfengisinni- hald þess vera 2,62 pró mille, en leyfilegt hámark í Bret- landi er 0,8 pró miUe. Á Is- landi er leyfilegt hámark 0,5 pró mille. — Þess skal og get- ið, að þau Lulu og Maurice búa ekki lengur saman, en lög skilnaður er ekki fenginn ennþá. ★ Enn ein hljóm- leikakvikmyndin 1 Bandaríkjunum haía menn verið sérlega iðnir við að gera kvlkmyndir um popp hljómleika eða popphátíðir, því að gróðinn er vís, ef vel tekst ttL, samanber „Wood- stock”. Og ekki hafa brezkir kvikmyndaframle.ðendur stað izt mátið og ixú nýverið var lokið við að setja saman kvik mynd um hljómieika, sem haldnir voru árið 1970 í Gast onbury, og nefnist myndin Gastonbury Fayre. Hljómleik ar þessir, eða popphátíð, voru sérstæðir að þvi leyti, að að- gangur var ókeypis. Meðal hljómsveita og listamanna, sem þar komu fram, voru: — Traffic, Axthur Family, Linda Lewis, Terry Reid, Fairport Convention, Arthur Brown’s Kingdom Come og Quintess ence.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.