Morgunblaðið - 14.06.1973, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.06.1973, Qupperneq 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1973 JMragwtfrfafrtfr Otgefandi hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthlas Johannessen, Eyjólfur Kor.ráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltról Þorbjðrn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjórl Arni Garðar Kristinsson. Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, slmi 22-4-80. Askriftargjald 300.00 kr. á mánuði innanland*. 1 lausasðlu 18,00 kr. elntakið. FJORÐA GENGISFELLING VINSTRI STJÓRNARINNAR ]|/feð sanni má segja, að rík- isstjórnin hafi nú staðið að fjórum gengislækkunum og einni gengishækkun á tæplega tveggja ára valda- ferli sínum. Nú hefur komið á daginn, að gengishækkun sú, sem ákveðin var í lok aprílmánaðar, hefur með öllu étizt upp. Frá því að gengi krónunnar var hækkað hefur staða hennar sífellt versnað gagnvart gjaldmiðli Evrópu, en staðan gagnvart Banda- ríkjadollar hefur þó haldizt óbreytt þennan tíma. Til marks um þessa þróun má nefna, að gengi krónunnar hækkaði gagnvart vestur- þýzkum mörkum um 5,86% í apríllok, en hefur nú lækk- að um 7,47% og sterlings- pundið hefur lækkað um 3,4%. Þegar ríkisstjórnin tók við völdum var lýst yfir því í stjórnarsáttmálanum, að ekki yrði gripið til gengisfellinga til lausnar á aðsteðjandi efnahagsvandamálum. Þetta var auk þess eitt helzta kosn- ingaloforð stjómarflokkanna. Engu að síður hefur gengi íslenzku krónunnar nú fallið fjórum sinnum á valdatíma vinstri stjómarinnar. Ríkis- stjórnin hefur tvívegis látið fella gengi krónunnar í sam- ræmi við fall Bandaríkjadoll- ars, fyrst í árslok 1971 og síðan í febrúar sl. Þá greip ríkisstjórnin til þess ráðs í desember sl. að fella gengið í því skyni að greiða úr þeim efnahagsvanda, sem sprottið hefur upp af þenslustefnu hennar. Þegar gengislækkunin var ákveðin í desember sl., voru engar ráðstafanir gerðar til þess að koma í veg fyrir, að hún hefði veruleg áhrif á víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags. Því var fyrirsjáan- legt, að um skammtímaráð- stöfun var að ræða, en ekki frambúðarlausn. Nú hefur einnig komið á daginn, að verðbólguhjólið hefur snúizt hraðar á þessu ári en dæmi eru til um fyrr. Jafnvel þing- menn stjórnarflokkanna segja, að slík óðaverðbólga hafi ekki átt sér stað frá stríðslokum. Gengislækkanir vinstri stjórnarinnar eiga sér stað á sama tíma og verðlag út- flutningsafurða á erlendum mörkuðum hefur aldrei verið hærra. Gengisfellingarnar 1967 og 1968 voru gerðar, eftir að afli hafði dregizt gíf- urlega saman og verðhrun orðið á erlendum mörkuðum. Ytri aðstæður hafa hins veg- ar verið hinar hagstæðustu sl. tvö ár, og ekki hafa þær orsakað gengislækkanir vinstri stjórnarinnar. Stjómin hefur að vísu tví- vegis lækkað gengi krónunn- ar til jafns við lækkun á gengi Bandaríkjadollars. En á það hefur jafnan verið bent, að slíkt hefði verið óþarfi vegna hins háa verð- lags á sjávarafurðum í Bandaríkjunum um þessar mundir. Verð á fiskblokk þar er nú t.a.m. um þrisvar sinn- um hærra en það komst lægst á erfiðleikaárunum. Það var því algjör óþarfi að láta krónuna fylgja til fulls lækkun Bandaríkjadollars. Miklu mun skynsamlegra hefði verið að fara þar milli veg eins og stjórnarandstað- an benti raunar á, þegar þessar ákvarðanir voru tekn- ar. Gengishækkunin í apríl var staðfesting á því, hversu óráðlegt það var að láta krón- una lækka til jafns við Bandaríkjadollar, enda var hún rökstudd með því, að verðlag á útflutningsafurð- um hefði farið stöðugt hækk- andi. Sú verðlagsþróun var þegar augljós í febrúar, þeg- ar gengið var fellt. Fyrir rúmum mánuði reyndi ríkisstjómin að endur vekja traust sitt meðal þjóð- arinnar með aðgerðum, er miða áttu, að sögn stjórnar- innar sjálfrar, að því að lækka verðlag í landinu. Lýst var yfir því, að gengishækk- unin ætti að leiða til um það bil 6% lækkunar á verði innfluttrar vöm. Nú hefur gengishækkunin hins vegar étizt að mestu upp á sex vik- um. Alit tal ríkisstjómarinn- ar um verðlækkun í þessu sambandi hefur því að engu orðið og í raun og veru verið blekking ein. Á sama tíma setti ríkis- stjórnin bráðabirgðalög, sem mæltu svo fyrir, að vísitölu- uppbætur á kaup skyldu mið- aðar við 2% lækkun alls verðlags í landinu. Lítið hef- ur þó farið fyrir verðlækk- unum af þessum sökum. Síð- ustu daga hefur þvert á móti hver verðhækkunin rekið aðra. Þenslustefna ríkis- stjómarinnar hefur leitt til síaukins framleiðslukostnað- ar, sem að lokum hlýtur að lenda í verðlaginu. Sú stað- reynd, að gengishækkunin er að engu orðin á sex vikum, varpar enn skýrara ljósi en fyrr á það öngþveiti, sem þjóðin býr nú við í efnahags- málum. Sex nýjar AB-bækur; Manillareipið eftir Meri Nýr bókaflokkur og Maigret-sögur Simenons Þessa da.grana konia út hjá Al- menna bókafélag-inu sex nýj ar bækur af ýmsu tagi. Er j»ar á meðal skáldsaga eftir Finnann Veijo Meri, er hlaut nú síðast bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs, tvær bækur í vasa- broti í nýjum bókafiokki um þjóðfélagsmál, ný útgáfa á Fuglabók AB og ioks tvær Mai-« gTetsögur Simenons í vasabrots- útgáfu. Almenna bókaféiagið hefur fyrr á árinu gefið út fjór ar bækur, þannig að alls hafa komið út hjá félaginu 10 bæk- ur fyrrihluta ársins. Hins veg- ar liggur fyrir útgáfuáætl- un fram í mai á næsta ári, og samkvæmt henni verða gefnir út um 40 bókatitiar á þessu ári, sem eru nærri helmingi fleiri titlar en komu út hjá AB á si. ári. MANILLAREIPIÐ Manillareipið nefnist skáld saga Veijo Meri, sem nú kemur út í íslenzkri þýðingu þeirra Magnúsar Joehumssonar og Stefáns Más Ingólfssonar. Þeir hafa báðir lagt stund á finnsku hjá finnska sendikennaran- um við Háskólann, og er sagan þýdd úr frummálinu undir hand leiðslu hans. Veijo Meri hefur á fáum árum komizt i hóp víðkunn ustu skáldsagnahöfunda, og í fyrra hlaut hann bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu sína Son liðþjálfans. Manillareipið er engu að síður ,sú bók sem aflað hefur honum hvað mestrar frægðar, enda ver ið þýdd á 15 tungumál og nú siðast á islenzku. Meri á til her- manna að telja og segist honum sjálfum svo frá, að í 17 ár hafi hann átt heimili sitt innan her- búðasvæðis. Svo að segja allar sögur hans eru sóttar í þá lífs- reynslu, sem honum er þaðan komin. Svo er einnig um Man- iliareipið, en hún er engin róm- antísk hetjusaga, heldur er hún miklu fremur skrifuð i hálfkær- ingi — „jafnvel stundum í fár- ánlegum skopstíl, sem helzt minnir á Góða dátann Svejk eft ir Hasek eða hinar þöglu mynd ir Chaplins", eins og segir i kynningu Almenna bókafélags- ins. Manillareipið er 148 bls., bókin er sett, prentuð og bund- in i Prentsmiðju Hafnarfjarðar en kápa er teiknuð í Auglýs- ingastofu Torfa Jónssonar. NÝR BÓKAFLOKKLTR Þá hefur Almenna bókafélag- ið byrjað útgáfu sérstaks flokks vasabrotsbóka um þjóðfélagsmál, efnahagsmál, menningarmál o.fl. Sagði Baldvin Tryggvason, framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins, á fundi með blaða mönnum, þar sem hinar sex nýju bækur voru kynntar, að hug- myndin með þessum bóka- flokki væri að gefa út bækur erlendra og innlendra höfunda um þau málefni, sem snerta vandamál Mðandi stundar. Fyrstu tvæir bækumar fjalla annars vegar um framtið mann- kynsins og hættur þær, sem að þvi steðja, en hins vegar um þjóðféiagsástandið í Eistlandi undir járnhæi Sovétrikjanna. Heimur á helvegi nefnist fyrri bókin, og hefur dr. Bjami Helgason þýtt hana. Bók þessi kom fyrst út í Bretlandi á sið- asta ári undiir nafninu A Blue- print for Survival. Birtist efni bókarinnar upphaflega í janúar hefti brezka tímaritsins The Eco logist 1972, en segja má að höf- undamir séu margir. I formála komast höf undar m.a. svo að orði: „Könn- un á þeirri vitneskju sem fyrir hendi er, hefur sannfært okk- ur um hið ógnvekjandi ástand, er við heiminum blasir. Ef nú- verandi þróun mála er látin af- skiptalaus, er hrun siðmenning- arinnar og varanleg eyðilegging á lífskerfum þessa hnattar á næsta leiti, e.t.v. þegar um næstu aldamót, en að öðrum kosti á næsta mannsaldri," Þýðandinn, dr. Bjami Helga- son sagði á fyrmefndum fundi með blaðamönnum, að kannski væri það hvað athyglisverðast við þessa bók, að höfundamir létu sér ekki nægja að lýsa þeirri vá sem fyrir dyrum vseri heldur legðu þeir fram ákveðn- ar tillögur um það hvemig stýra mætti fram hjá þeim ógöngum, sem mannkynið virtist nú stefna í. Þannig taka þeir mannfjölg- unarvandann fyrir og lýsa þeirri hugmynd sinni að óæski- legt sé að hjón eigi meira en tvö böm. Eins setja þeir fram ákveðnar kenningar um orku- þörfina samfara auknum mann- fjölda, og hvemig hún geti haft hinar afdrifarikustu afleiðingar fyrir mannkynið. Margar kenn- ingar bókarinnar og tillögur til úrlausnar ganga í berhögg við viðurkenndar hagfræðikenning- ar nútímans, og hefur bókin þar af leiðandi orðið harla umdeild. Síðan bókin kom út hefur hún þó verið þýdd á a.m.k. 14 tungu mál, m.a. verið gefin út á öll- um Norðurlöndunum. Heimur á helvegi er 175 bls. sett í Prent- stofu G. Benediktssonar, prent- uð og bundin í Leiftri. Hin bókin nefnist Eistland — smáþjóð undir oki eriends valds — er eftir Andres Kúng en þýð- andi er Davíð Oddsson. Um hana segir svo í AB-fréttum: Höfundur þessarar bókar, Andres Kúng, er ungur mennta maður, eistlenzkur að uppruna. Hann hefur lengi verið búsett- ur í Svíþjóð og auk þess sem hann hefur látið málefni útlægra landa sinna til sin taka, hefur hann ferðazt víða um heim og ritað í blöð og tímarit fjölmarg- ar greimar um alþjóðleg stjóm- mál, efnahagsmál og þjóðfélags- Vísindi. Þá hefur hann einnig stjómað fréttaskýringaþáttum í sænska sjónvarpinu. Hér á landi er hann mörgum kunnur af greinum, sem Morgunblaðið hefur birt eftir hann, og loks má geta þess, að hann mun nú vera að vinna að ritun bókar um ísland. Fáar þjóðir hafa lifað jafn geigvænleg örlög og fólkið í Eystrasaltsiöndunum þrem- ur, sem eftir margra alda kúgun öðluðust sjálfstæði sitt í líkan m-und og ísland, en voru að styrj aldarlokum aftur lögð undir jámhæl ofbeldis og áþján ar. Mörgum hefúr þótt sem hinn „frjálsi heimur" hafi verið helzt til sinnulitill um það, sem þar hefur farið fram í skjóli pólitískrar myrkvunar, og fyrir þá sök á bók þessi, Eistland — smáþjóð undir oki erlends valds, erindi við hvern hugsandi mann. En kannski á hún þó ekki sízt erindi við okkur íslendinga, af því að hún vekur til alvariegr- ar umhugsunar um það, hver orð ið gætu öriög þjóðar vorrar, ef vér létum hjá líða að standa traustan vörð um virð- ingu hennar, öryggi og frelsi. Bókin Eistland — smá- þjóð undir oki eriends valds er 192 bls., sett í Prentstofu G. Benediktssonar, prentuð og bundin í Leiftri h.f. Auglýsinga stofa Torfa Jónssonar gerði kápu. MAIGRETSÖGUR Almenna bókafélagið hefur einnig byrjað útgáfu á leynilög- reglusögum belgiska rithöfund- arins Georges Simenons. Bæk- ur hans um Maigret lögreglufor- ingja í frönsku rannsóknarlög- reglunni eru nú orðnar um 70 talsins og hafa þær lengi notið mikilla vinsælda um allan heim. Almenna bókafélagið hefur fyr- ir nokkrum árum tryggt sér ú*- gáfurétt á mörgum þessara bóka, Veijo Meri. og fyrstu bækumar, sem félag- ið gefur nú út eru Taugastríð- ið og Skuggar fortiðarinn- ar. Báðar þessar bækur komu út hér fyrir nokkrum áratugum, og eru þær þýðingar nú notað- ar aftur. Taugastríðið er 164 bls. og Skuggar fortíðarinnar 144 bls. Báðar bækumar eru i vasa broti, unnar í Prentsmiðjunni Eddu hf. FUGLABÓK AB Fuglar Islands og Evrópu kem ur nú út í þriðju útgáfu. Fyrsta útgáfan kom út 1962 og önnur tveimur árum síðar. Að sögn Baldvins Tryggvasonar hefur eftirspum eftir þessum bókum verið geysilega mikil, og hún selzt i meira en 10 þús. eintök- um það sem af er. Finnur Guð- mundsson, fuglafræðingur, sem upphaflega þýddi bókina og stað færði, hefur haft umsjón með þriðju útgáfunni og aukið efnl hennar með nýjum upplýs- ingum. 1 bókinni er fjallað um alls 573 tegundir fugla og lýst háttum fuglanna, útliti og lífs- venjum. Rúmlega 1200 fugla- myndir eru i bókinni, um 650 þeirra litmyndir og auk þess 380 útbreiðslukort. NÝJAR BÆKUR 1 HAUST Bjöm Bjarnason, útgáfustjóri Framh. á bls. 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.