Morgunblaðið - 14.06.1973, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.06.1973, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNl 1973 Mér fannst syrta í lofti er ég fékk tilkynniingu um lát frænda míns og vinar Ólafs Sigurþórs- sonar. Alvarleg veikindi hans örfáa siðUstu daga höfðu þó vissule'ga leitt huganm að þeim sannindum að „eitt sinn skal hver deyja“. Fundum okkar bar fyrst sam- an á fermingarvori hans, fyrir 51 ári. Þá vorum við ís- lendingar ennþá svo nærrl land mámstíð, að ekki þótti nema sjálf sagt (kannski nauðsynlegt) að sveitabændur færu á hverju vori 10—14 daga skreiðarferð til að afla heimi'ld sínu sjófangs fyr ir næsta vetur. Það var venja Sigurþórs í Kol'labæ að fara suð- ur með sjó, út að Járngerðarstöð um í Grindavík í slifcar ferðir og tók þá gjama syni sina með sér að lokinni fermimgu. Það var æiskilegt að venja piltana við harðrétti sldkra langferða, gott að hafa röska sveina við hesta- gæzdu og ömmur störf á liangri reisu, en jafnframt var þetta for viítnilegt ævintýri og skoðunar- ferð, farið um margar sveitir, höfuðborgln Reykjavik skoðuð og margt merkilegt séð og heyrt. Á ákvörðunarstað á Jám gerðarstöðum beið þeirra svo amma og allt ættfólkið, sem oflt hafði borið á góma siðustu dagama fyrir brottför frá KoMa- bæ. Á þessum fáu fögru vordög um I Grindavik var grunnur- inn lagður að æfilangri órjúf- anlegri vimáttu. Ekki var það þó vegna jafnræðds. Ólafur var algjör veitandi, forframaður ferðaliangur, skólagenginn og komimn í kristinna manna tölu, en svo ljúfur og elskuilegur við Grettisgötu 46 - ® 25580 Ólafur Sigurþórsson gjaldkeri — Minning I dag verður til moldar bor- inn Ólafur Sigurþórsson gjald- beri Mjólkursamsölunnar í Reykjavik. Hann lézt 6. þ.m. á Landako tsspí talan um, eftir stutta legu. Ólafur fæddist 22. febrú- ar 1908 að Hlíðarendakoti i Fljótshlíð. Foreldrar hans voru hjónin Sigriður Tómasdótt iír og Sigurþór Ólafsson, sem lengst af voru kennd við Kolla- bæ og bjuggu þar frá 1911. Þar ódst Ólafur upp i stórum systk- imahópi, á góðu menning- arheimiii. Foreldrarnir farsælt gáfufólik, enda Sigurþóri falin ýmis trúnaðarstörf fyrir 6veit sina og hérað. 1 bemsku hófust störfin við búskapinn og umgur fór Ólafur i ver, eins og þá var venja ungrá og hraustra pilta, fyrst til Vestmannaeyja og síðar til Grindavikúr. En brátt lá leiðin til Reykjavikur. Hinn 7. okt. 1933 kvæntist Ólafur eftirlifandi konu sinni Ragnheiði Aradóttur, ágætri konu frá Stöðvarfirði og bjuggu þau í Reykjavík alla tíð. Þau eignuðust einn son, Ara, sem nú er verkfræðingur hjá Reykja- víkurborg. Hann er giftur Þóru Óskarsdöttur og eiga þau tvö böm, Magnús og Ragnheiði. Ari var snemma mikilil yndisauki á heímilinu, bæði fyrir foreldr- ana og okkur, sem vorum þar tíðir gestir, sem bezt má nema af Aravísum, sem Stefán Jóns- son skáld orti um hann, og nú eru víðkunnar. Ólafur hóf starf hjá Mjólkur- samsölunni 1935 og vann þar upp frá þvi. Hæfileikar og mannkostir ýttu honum þar upp mammvirðingasitiigamn og frá 1954 var hann aðalgjaldkeri þesisa risafyrirtækis. Hann var traustur og trúr og fór alit vel úr hendi er hann lagði hönd á. Hann hafði ekki metnað eða sikapgerð til að láta mlkið á sér bera, en alilir sem umgengust hann fundu fjölþætta mannkosti hans og inni'leik, svo að öllum leið vel , návist hans. Hans verð ur því sárt saknað af vinmufé- lögum og öllum er höfðu af hon um nokkur kynni. okkur börnin að æ síðan var munað. Sömu hughrifum lýsir skáldið Jónas Hallgrímsson svo fagur- lega í þessari visu: Sem þá á vori Sunna hlý sólgeislum lauka nærir og fíifilfcalli innan i óvöknuð blöðin hrærir: Svo vermir fögur minning manns margt eitt smáblóm um sveitir lands frjóvgar og blessun færir. Við andlát Ólafs koma mér í huga ótal hugljúfar mimningar. Verður mér þá efst i huga þakk læti til hanis og konu hams fyr- ir vinarhug og hjálpsemi þegar ég, mánuðum saman, þurfti að vera undir læknishendi í Reykja vik. Þá koma fram í hugann myndir frá sumarferðum okkar, ýmist gangandi á fjöll eða með- fram ströndinni og síðan akamdi um sveitir iandsins. Veiðiferðir I ár og læki og skíðaferðir á vetr um. Ekki gleymist heldur sam- starfið við sjómennskuna. Sjó- sókn á opnum báti á vetrarver- tíðum var vissulega vettvanigur ti!l að efla samstöðu og samhug. Öli hans framganga örvaði til dáða og drengskapar hvort held ur var í leik eða starfi. Með slíkum mönnum er gott að eiga samleið. Það er líka huggun harmi gegn að mannkostir Ólafs munu verða honum fararheill um fagrar lendur nýrra heim- kynna. Einlæga samúð votta ég Ragn heiði konu hans, Ara og fjöl- skyldu hans, einnig öllum Kolla ba:jarsvst.kinun um og öðrum ást vinum hans. ,lón Tómasson. Hinn 6. júní s.l. andaðist Ólaf ur Sigurþórsson frá Kollabæ í Fljótshlíð. Við Ólafur höfðum þá verið samstarfsmenn í næst- um 20 ár og var samstarf okkar lengst af mjög náið. Ég viidi því gjarnan minnast hans með nokkr um hlýlegum orðum, en trúlega verður mér vant þeirra orða, sem bezt eru við hæfi. Þannig er það oft þegar vel skyldi mælt. Ólafur Sigurþórsson var fæddur 22. febrúar árið 1908 að HWðarendakoti í Fljótshlíð. For eldrar hans voru hjónin Sigríð- ur Tómasdóttir og Sigurþór Ól- afsson. Sigurþór var kunnur fyr ir störf sln að félagsmál- um. Hann var oddvitd sveitar sinnar uin langt skeið og gegndi ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Árið 1911 fluttust þau hjónin búferlum að Koliabæ í sömu sveiit og bjuggu þar á meðan kraftar entust. Þarna ólst Ólafur upp á myndariegu heim ili foreldra sinna. I byrjun maímánáðar ‘ 1935 réðist Óiafúr í þjónustu Mjóikur- samsölunnar í Reykjavik, en hún hafði verið stófnuð hinn 15. jam. sáma ár. Nærri lætur því, að hann hafi starfað hjá Mjólkursamsölunni frá stofnun hennar til síns skapadæguris. Vafalítið var gildasti sjóður- inn, sem Ólafur flutti með sér úr sveitinni sinni, mannkostir af ýmsu tagi, þar á meðal hinn góði hæfileiki að kunna að starfa. Það kom því líkt og af sjálfu sér, að hann fór jafnt og þétt hækkandi, honum voru smátt og smátt falin umfangs- meiri og ábyrgðarmeiri störf. Ár ið 1941 gerðist hann bókari hjá fyrirtækinu og gegndi þvi starfi til ársins 1954, er hann varð aðalgjaldkeri Mjólkursamsölunn ar og það starf hafði hann svo á hendi, þar til hann lézt. Ég hefi gefið það í skyn hér að framan, að Ólafur Sig- urþórsson var góður starfsmað- ur og ágætlega dagfarsprúður maður, en trúlega eru þessir mannkostir vænn hluti af þvi, að vera góður maður. 1 orðunum „góður starfsmað- ur“ tel ég að felist mjög margt. Ég geri ekki tilraun til að telja það allt upp hér. Aðeins nokk- ur atriði skulu nefnd. Ólafur Sigurþórsson var sér- stakiega trúr og traustur starfs maður. Hann hafði fulia reglu- semi 1 starfi sínu og geymdi eijki til morguns það, sem gera átti i dag. Það er mikið fé, sem fer daglega um hendur aðalgjald kera Mjólkurísamsöiunnar og það er ærið starf að hafa þar fulikomna reglu á hverjum hlut. Það er mikið traust, sem aðal- gjaldkeranum er sýnt og margra ára reynzla hefur staðfest, að Ólafur var þessa trausts full- komlega verður. Óiafi Sigurþórssyni skulu þvl vottaðar miklar og góðar þakk- ir fyrir starfið og samstarfið. Þetta eru snauð orð, en verið getur, að á bak við þau felist dulin minniing, einlæg og sönn. Eftiriifandi eiginkonu Ólafs, Ragnheiði Aradóttur og syni hans, Ara Ólafssyni, verkfræð- ingi, tengdadóttur hans, Þóru Óskarsdóttur og barnabörnum tveiimur, votta ég innilega sam- úð. Ég veit að þau hafa misst of mikið of snemma. Stefán Björnsson. Látið ekki sambandið við viðskiptavinina rofna — Auglýsið — Bezta auglýsingablaðið Útför eiginkonu minnar, GUÐRÍÐAR INGIBJARGAR GÍSLADÓTTUR, fyrrum húsfreyju á Skúfslæk, verður gerð frá Villingaholtskirkju laugardaginn 16. júní kl. 14. Magnús Eiríksson. HÚSIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.