Morgunblaðið - 05.09.1975, Síða 1

Morgunblaðið - 05.09.1975, Síða 1
201. tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. ísraelar fóru inn í Líbanon Tel Aviv, Beirut 4. sept. Reuter. NTB. tSRAELSKIR landgönguliðar og sjóliðar réðust sfðastliðna nótt til atlögu f suðurhluta Líbanons, skammt frá flóttamannabúðun- um Al-Helweh við Sídon. Fréttum um innrásina ber ekki saman, Líbanir segja að Palestfnumenn hafi hrakið tsraelana á flótta, en ísraelar segja aftur á móti að þeir Dauða- dómar íLaos Bangkok 4. sept. NTB. HÆSTIRÉTTUR Laos hefur dæmt fjóra menn til dauða fyrir undirróðursstarfsemi gegn stjórn landsins, að þvf er útvarpið f Vfentfane sagði frá f dag. t fréttinni var ekki nánar vikið að þvf í hverju starf- semin hefði verið fólgin. Alls var 31 maður leiddur fyrir rétt nú og fimm þeirra fengu lífs- tfðarfangelsisdóma, en aðrir tuttugu ára fangelsi. hafi aldrei komizt jafnlangt inn f Lfbanon. Þá segja tsraelar, að margir Palestfnusækruliðar hafi fallið, en Líbanir segja, að sex skæruliðar hafi særzt, þar af tveir alvarlega. Sjónarvottar segja að um það bil eitt hundrað ísraelskir hermenn hafi gengið á land úr gúmbátum skömmu eftir mið- nætti aðfaranótt fimmtudags, en þeir hafi orðið að láta undan síga og hverfa til strandar á ný tveimur stundum síðar vegna harðrar mótspyrnu Palestínu- skæruliða. ísraelska blaðið Ma- ariv sagði í kvöld, að tsraelar hefðu einnig skotið flugskeytum að ýmsum skotmörkum. Talið er nær fullvíst að það hafi vakað fyrir ísraelum að komast til Al- Helweh flóttamannabúðanna við Sídon, en þær eru stærstu búðir flóttafólks í Lfbanon. Líbanska blaðið Al-Hayat sagði í dag að siendurteknar árásir ísraela á Líbanon bentu til að ísraelar hefðu í hyggju að hernema þessa landshluta. Ýmsir líbanskir stjórnmálamenn hafa staðhæft að ísraelar hafi lengi ágirnzt hið frjósama Suður- Líbanon upp að Litanifljóti. Sérfræðingar í Tel Aviv telja að fyrir Israelum vaki nú að koma skæruliðasamtökunum á óvart Framhald á bls. 20 Spánn: 200 fangar í hu ngunerk falli - vegna dauðádómanna yfír Böskunum tveimur Madrid 4. sept. NTB ÞEKKTASTI pólitíski fangi Spánar, verkalýðsforinginn Marcelino Camacho, hóf í dag hungurverkfall til að mótmæla dauðadómunum yfir Böskunum tveimur en þeir dómar voru ný- lega kveðnir upp. Nú munu um 200 fangar í spænskum fangels- um vera í hungurverkfalli vegna dauðadómanna yfir Böskunum. Dómnum hefur verið áfrýjað. Camacho er að afplána sex ára fangelsisdóm fyrir að hafa skipu- lagt ólöglegt verklýðsfélag. Hann er hjartveikur, en kvaðst engu að síður ætla að sýna andúð á dauða- dómunum með þvi að fara í hungurverkfall. Mjög mikil ólga hefur verið viða á Spáni síðan dómar þessir voru kveðnir upp. Frá undirskrift bráðabirgðasamkomulags Israela og Egypta f Genf f Sviss f gær. Fulltrúar Egypta til vinstri á myndinni, ísraelar hægra megin. Einnig undirritaði samkomulagið Silasvuo hershöfðingi fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna og er hann á myndinni miðri. r Egyptar og Israelar skrifuðu undir í gær Sovétar og Bandaríkjamenn hvergi nærri við athöfnina Sadat forseti harðorður í garð Sovétríkjanna í ræðu Genf, Kairó 4. sept. NTB: REUTER. EGYPTAR og Israelar undir- rituðu- f dag bráðabirgðasam- komulag sitt f Genf f Sviss og var athöfnin stutt óg heldur drunga- legt andrúmsloft yfir henni. Aðilar tókust ekki í hendur að undirskrift lokinni og ræddust ekki við. Athygli vakti sú ákvörðun Sovéta og Bandaríkja- manna að lýsa þvf yfir að þeir yrðu ekki viðstaddir undirritun- ina, en þessar þjóðir eru í forsæti ráðstefnunnar um frið f Mið- austurlöndum. Af hálfu Egypta undirrituðu samninginn Taha E1 Magdoub, hershöfðingi, og Ahmed Osman, sendiherra. Af hálfu tsraela skrifuðu undir Mordechai Gazit, verðandi sendiherra í Frakklandi, og Herzl Shafir, hershöfðingi. Þá skrifaði einnig undir samninginn fyrir hönd S.Þ. Ensio Siilasvuo, yfirmaður gæzlusveita Sam- einuðu þjóðanna í Miðaustur- Tímasprengja við höll krón- prins Japans Tókíó 4. sept. Reuter. LÖGREGLUMAÐUR, sem var að skoða bifreið, sem stóð skammt frá höll Akihitos krón- prins Japana, tók höndum tvo menn og klófesti tíma- sprengju, sem mennirnir höfðu í fórum sínum. Mennirn- ir eru um þrítugt. Þeir hafa verið færðir til yfirheyrslu en hafa neitað að láta neitt uppi. Lögreglan telur vfst, að þeir hafi ætlað að koma sprengj- unni fyrir við höll krónprins- ins. Ringulreið áfram í Portúgal: Goncalves forsætis- ráðherra enn um sinn — Spinola kominn á Lissabon 4. september NTB. Reuter. — I KVÖLD tilkynnti Costa Gomes, forseti Portúgals, að hann hefði ákveðið að Goncalves yrði forsætisráðherra landsins enn um skeið ásamt þeirri stjórn sem verið hefur unz myndun nýrrar rfkisstjórnar Azevedos væri lokið. Stjórnmálafréttaritarar segja að með þessu sé líklega ekki verið að ný til Parísar lýsa yfir stuðningi við Goncalves heldur hafi Azevedo aðmíráli gengið erfiðlegar að mynda stjórn sína en búizt hafði verið við. — Portúgalski sjóherinn lýsti í kvöld yfir stuðningi sfnum við áform um að skipa Goncalves varnarmálaráðherra landsins en flugherinn hafði ekki lokið umræðu um sama efni. Búizt var við að flugherinn vísaði hug- myndinni á bug. — Spinola, fyrrverandi Portú- galsforseti, dvelst nú i Parfs og eru sögusagnir á kreiki um að hann noti tímann til viðræðna við fulltrúa stjórnmálaflokka í Portú- gal og annarra afla og sé hann með þessu að undirbúa endur- komu sína til heimalandsins. Spinola lét bera þetta til baka í kvöld. — Alvaro Cunhal, formaður portúgalska kommúnistaflokks- ins, lýsti því yfir í dag að hann og flokkur hans gætu nú hugsað sér að reynd yrði myndun samsteypu- stjórnar með sósíalistum og alþýðudemókrötum, þó svo að mikill skoðana- og ágreinings- munur væri með þeim. Skýrði Cunhal frá þessu í viðtali við ung- versku fréttastofuna MTI og vakti þessi yfirlýsing mikla athygli. Mario Soares, leiðtogi Framhald á bls. 20 löndum. Athöfnin hófst klukkan sautján og stóð í ellefu mínútur. Að henni lokinni heilsuðu egypzku og ísraelsku fulltrúarnir upp á Siilasvuo sitt í hvoru lagi, en ræddust ekki við. Hvor aðili undirritaði þrjú skjöl — samning landanna, viðbót við samkomu- lagið og uppdrátt að umræddum Framhald á bls. 20 Danmörk: Engin niður- staða á fundum Kaupmannahöfn 4. sept. Reuter. NTB ANKER Jörgensen, forsætisráð- herra Danmerkur hélt í dag áfram viðræðum við forystumenn í dönskum stjórnmálum vegna efnahagsáætlunar þeirra, sem stjórnin hefur á prjónunum, og sætt hefur andstöðu Venstre- flokksins, eins og frá var sagt í Mbl. í gær. I kvöld hafði ekkert verið birt um niðurstöður fundanna, en fram eftir degi virt- ist það trú margra, að Anker Jörgensen myndi neyðast til að boða til nýrra kosninga 2. október n.k. ef hvorki gengi né ræki í viðræðum þessum. Ekki hafði verið kveðið upp úr með það i kvöld, en ef kosningar verða Franthald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.