Morgunblaðið - 05.09.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.09.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975 „Nauðungarsamningar” — segja Flugleiðir h.f. „Langlundargeð þrotið” — segja flugfreyjur SAMKOMULAG var I fyrradag gert f kjaradeilu Flugleiða hf og Flugfreyjufélags Islands. Féllust Flugleiðir á kröfu flugfreyja sem þær höfðu sett fram f þremur liðum þennan dag, eftir að flug- freyjur höfðu tilkynnt að þær myndu leggja niður störf ef ekki yrði gengið að kröfunum. Eina krafan var sú, að Flugleiðir hf. féllu frá þvf máli sem nú er rekið fyrir Félagsdómi. Morgunblaðinu barst í gær fréttatilkynning frá Flugleiðum Kópavogur: Gæzluvarðhald- ið framlengt SAKADÓMUR Kópavogs kvað í gær upp þann úrskurð að gæzlu- varðhald mannsins, sem grunaður er um kynferðisafbrot gagnvart unglingum, skuli fram- lengt um 30 daga. Við upphaf rannsóknarinnar var maðurinn úrskurðaður f 30 daga gæzluvarð- hald og rann varðhaldstfminn út f gær. Að sögn Sigurgeirs Jónssonar bæjarfógeta í Kópavogi stendur rannsóknin á máli manns þessa enn yfir og þótti því nauðsyn á að úrskurða hann í áframhaldandi gæzluvarðhald. Maðurinn hefur ekki tekið um það ákvörðun hvort hann áfrýjar úrskurðinum um gæzluvarðhald til Hæstaréttar. Eins og fram kom i fréttum á sínum tíma er hér um að ræða 65 ára gamlan Kópavogsbúa sem handtekinn var vegna gruns um kynferðisafbrot gagnvart unglingum. Hafði lögreglan haft manninn grunaðan um nokkurn tíma. Af rannsókn málsins má ráða að um vfðtæk afbrot sé að ræða, en lögregluyfirvöld hafa rannsóknarinnar vegna ekki viljað tjá sig um málavexti. hf. vegna þessa máls. Birtist hún hér orðrétt: Þá ræddi Mbl. við Erlu Hatle- mark, formann Flugfreyjufélags- ins, í gærkvöldi. Hún kvað það rétt vera, að flugfreyjur hefðu ákveðið að leggja niður vinnu ef ekki yrði gengið að kröfunum. Sagði Erla, að það hefði verið samþykkt á félagsfundi, enda langlundargeð flugfreyja í þessu máli löngu þrotið. „Flugleiðir leit- uðu eftir samningum,“ sagði Erla, „og við höfðum gengið til móts við félagið eins langt og hugsazt gat og lengra en samvizka okkar bauð að gera. En við gerðum það samt til þess að forðast málaferli og leiðindi. Við þessu tilboði fengum við ekki svar f heila viku og var því engin furða að við reiddumst. Þessi framkoma Flugleiða hleypti Framhald á bls. 20 Þessi mynd var tekin opnunina f kvöld. f Oðali I gær og er þar verið að leggja sfðustu hönd á undirbúninginn fyrir Niðurstaða Blaðaprents: VÍSIR PRENTAÐIJR Á l'MIAN Gerðadómur sker úr um ágreining — Lögbann ekki sett á prentun Dagblaðsins, segir fulltrúi Reykjaprents EFTIR 18 klukkustunda Iangan stjórnarfund f Blaðaprenti hf, sem Iauk um klukkan 6 f gær- morgun, tókst samkomulag um prentun Vfsis og Dagblaðsins. Rituðu allir aðilar undir sam- komulagið í gær nema fulltrúar Vfsis, en þeir munu rita undir það í dag. Ólafur Eyjólfsson fram- kvæmdastjóri Blaðaprents tjáði Morgunblaðinu f gær, að sam- komulagið væri f þvf fólgið, að Vfsir yrði prentaður á undan Dag- blaðinu en mætti ckki fara f sölu fyrr en prentun blaðsins lyki, en frá þeim tíma munu lfða 15—30 mfnútur þar til Dagblaðið fer í Tækniskóladeilan: Árangurslaus fundur FULLTRtJAR Fjármálaráðu- neytisins og kennara við Tækni- skóla tslands héldu með sér fund f gær um kjaradeilu aðilanna. Varð fundurinn árangurslaus. Kennarar við Tækniskólann hafa sem kunnugt er ekki mætt til vinnu vegna deilu þessarar, en kennsla áttl að hefjast f skólanum á þriðjudaginn. Höskuldur Jónsson ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu sagði í samtali við Mbl. í gærkvöldi, að fundurinn hefði verið stuttur. Höskuldur sagði, að deilan snerist nú aðallega um stundakennara skólans sem eru í miklum meiri- hluta meðal kennara hans. Sagði Höskuldur, að stundakennararnir væru ekki ánægðir með þann launaflokk sem þeir hefðu verið í. Kvað hann það skoðun ráðu- neytisins, að engin launaflokks- hækkun gæti orðið á þessu stigi, því í hönd færu samningavið- ræður um kaup og kjör og þar á meðal við kennarastéttina. prentun. Fer Vísir fyrr f prentun en verið hefur eða klukkan 11,15 f stað 12,30 til 13 áður. Prentun blaðsins tekur tvo klukkutfma og þvf mun prentun Dagblaðsins ekki hefjast fyrr en klukkan 13,30 til 13,45 en Vfsir verður væntanlega kominn á götuna klukkan 13,15. Þá varð um það samkomulag, að deilan um það hvort blaðið ætti rétt á þvf að verða prentað á kostnaðarverði yrði vfsað til gerðardóms. Það blaðið, sem gerðardómurinn telur að eigi ekki þann rétt, verður að greiða prentunina samkvæmt taxta, en hann er um 70% hærri. Er von á niðurstöðu gerðardóms- ins innan mánaðar, og gildir sam- komulagið fram til þess tfma. MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gærkvöldi til Sigfúsar Sigfús- sonar, stjórnarmanns í Reykja- prenti hf., sem gefur út Vísi, og innti eftir áliti hans á framan- greindum málalokum. Sigfús sagði: „Ég tel að við megum vel við una. Það hefur ekki verið ráðizt á okkar rétt í Blaðaprenti og við Framhald á bls. 20 Óðal opnar diskótek í kvöld Veitingastaðurinn Öðal opnar að nýju i kvöld eftir miklar breyt- ingar og endurbætur. Staðurinn hefur verið stækkaður til muna og nær núna yfir alla aðra hæð hússins Austurstræti 12a og einnig Austurstræti 12. Komið hefur verið fyrir mjög fullkomnu diskóteki sem brezkur plötusnúð- ur mun stjórna og staðurinn verið innréttaður að nýju á mjög smekklegan hátt. Ætlunin er að þarna verði hægt að fá keyptan mat eins og verið hefur og hlýða á Framhald á bls. 20 Hugleiðingar um prestkosnincju: Nafn höfundar féll niður ÞAU mistök urðu í blaðinu í gær, að nafn höfundar greinar- innar „Hugleiðingar um prests-. kosningu í Nessókn" féll niður. Höfundur greinarinnar er Guð- mundur Marteinsson, raf- magnsverkfræðingur, Bauga- nesi 34, Skerjafirði. Morgun- blaðið biður höfundinn og les- endur velvirðingar á þessum mistökum. Að jafnaði hefur Morgun- blaðið haft þann hátt á, við prestskosningar að kynna fram- bjóðendur en leyfa að öðru leyti ekki umræður um kosn- ingar í blaðinu. Með frétt Morg- unblaðsins um dreifibréf í Nes- prestakalii voru umræður um þær kosningar, sem þar standa fyrir dyrum hins vegar opnaðar og er Morgunblaðið að sjálf- sögðu opið fyrir frekari umræð- um um þær, en blaðið væntir þess, að þær umræður haldi áfram að vera málefnalegar. ____________________ Ritstj. Eftir 15. september verða allir að verðmerkja vörur og þjónustu 1 LÖGBIRTINGABLAÐINU 29. ágúst s.l. er auglýsing frá verð- lagsstjóranum og er þar gefið I „Illa komið fyrir inu ef það þolir dagblað fjalli um — segir Þorsteinn Pálsson ritstjóri Vísis „MÉR ÞYKIR illa komið fyrii stjórnarsamstarfinu ef það þol ir ekki að frjálst dagblað fjalli um landbúnaðarmál eins og önnur málefni," sagði Þor- steinn Pálsson ritstjóri Vfsis er Morgunblaðið bar undir hann ummæli Gunnars Guðbjarts- sonar í blaðinu f gær, að stjórn- arsamstarfið væri f hættu ef Vísir héldi áfram skrifum sínum um landbúnaðarmálin. Þorsteinn sagði ennfremur: „Ég átel enn harðlega afstöðu Gunnars Guðbjartssonar í Laugarvatnsræðunni en vilji ■ hann kynna sér afstöðu Vísis til stjórnarsamstarf- ekki að frjálst landbúnaðarmál” um ummæli Gunnars Guðbjartssonar landbúnaðarmála kemur hún fram í leiðurum blaðsins sem skrifaðir eru á ábyrgð núver- andi ritstjórnar Vísis til land- búnaðarmála kemur hún fram í leiðurum blaðsins sem skrifaðir eru á ábyrgð núverandi rit- stjórnar Vísis. Gunnar verður að átta sig á því, að það er sitthvað að banna opinberar umræður um landbúnaðarmál og að rökræða um það hvað þurfi að gera til þess að efla landbúnað á íslandi. Það sem Gunnar ræðir um í sinni grein eru feiðarar sem birtust í blað- inu áður en núverandi ritstjórn tók við því og eru henni alger- lega óviðkomandi." Þorsteinn Pálsson. skyn, að framvegis verði betur fylgzt með því en verið hefur að kaupmenn og aðrir verðmerki vörur sfnar og þjónustu. Orðrétt er tilkynning verðlags- stjóra þannig: Samkvæmt heimild í 9. gr. laga nr. 54/1960 um verðmerkingu, eru svohljóðandi fyrirmæli gefin út: Aflír þeir, sem selja vörur og þjónustu beint til neytenda, skulu, að svo miklu leyti sem því verður við komið, merkja vörur sínar og þjónustu með útsölu- verði, eða auglýsa útsöluverðið á svo áberandi hátt á sölustaðnum, að auðvelt sé fyrir viðskiptamenn að lesa það. Þetta á undantekningalaust við vörur, sem eru til sýnis í búðar- gluggum, sýningarkössum eða á annan hátt. Verðið má setja á vöruna sjálfa, á viðfestan miða eða á umbúðir vörunnar.' Lestaði loðnumjöli Siglufirði 4. september. BRÚARFOSS lestaði hér frosinn fisk á Ameríkumarkað í gær, og í dag er Skógarfoss að lesta loðnu- mjöl á Rússlandsmarkað, og er þar með talið loðnumjölið sem Tilkynning þessi tekur gildi 15. september 1975. Reykjavík 15. ágúst 1975. Verðlagsstjórinn. Morgunblaðið hafði sam- band við Georg Ólafsson verðlags- stjóra. Hann kvað það rétt vera, að eftir 15. september yrði gengið harðar eftir þvf að ákvæðum laga um verðmerkingar vöru og þjón- ustu yrði fylgt. Næði þetta til verzlana og annarra svo sem veit- ingahúsa, sem framvegis verða að auglýsa utan dyra hvað þau hafa á boðstólum svo og verð þess. Sagði Georg að frá þessu vrði nánar skýrt siðar. unnið var f sumar. m.j. Alþýðublaðið: Nýr ritstjórnar- fulltrúi ráðinn ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrir frá þvf í gærmorgun, að Bjarni Sigtryggs- son hafi verið ráðinn ritstjórnar- fulltrúi við blaðið. Bjarni er 29 ára gamall hóf störf að blaða- mennsku árið 1964. Árin 1969 til 1974 vann hann við Alþýðublaðið, síðast sem ritstjórnarfulltrúi. I sumar hóf hann starf á blaðinu að nýju eftir rúmlega árs hlé.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.