Morgunblaðið - 05.09.1975, Síða 5

Morgunblaðið - 05.09.1975, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975 5 4% hækkun hjá IATA FLUGFARGJÖLD á Norður- Atlantshafsleiðinni hækka um 4% hjá aðildarfélögum IATA 1. nóvember n.k. Er hækkunin til komin vegna aukins rekstrar- kostnaðar. Að sögn Sveins Sæ- mundssonar blaðafulltrúa Flug- leiða hf. hefur engin ákvörðun verið tekin um hækkun hjá félag- inu, en eins og kunnugt er standa Loftleiðir utan við IATA. Um 60 flugfélög eiga aðild að IATA. Chekhov heims- meistari í skák Tjentiste, Júgóslavíu, 1. sept. AP. Reuter SOVÉTMAÐURINN Valery Chekhov sigraði á heimsmeistara- móti unglinga í skák, sem lauk f Júgóslavíu f dag. Annar varð Bandaríkjamaðurinn Larry Christiansen. Chekhov hlaut 10 vinninga, en Christiansen 9,5 Þriðji varð Englendingurinn Mestel með 9 vinninga. Margeir Pétursson hlaut 6 vinninga á mót- inu og varð f 25.—33. sæti. Árangur Chekhovs tryggir honum alþjóðlegan meistaratitil f skák. Peningum stolið ÞJÓFNAÐUR var framinn í verzluninni Basar í Hafnarstræti um síðustu helgi. Maður nokkur kom þá í verzlunina og óskaði eftir því að fá að hringja. Var það leyft og honum hleypt inn í bak- herbergi. Utsala var í verzluninni og mikið að gera og því upp- götvaðist það ekki fyrr en nokkru seinna að 60 til 90 þúsund krónur voru horfnar úr veski sem var í herberginu. Maðurinn er ófund- inn enn. Þá tók lögreglan í Reykjavík tvo 13 ára pilta í fyrra- dag, sem höfðu stolið 20.600 krón- um frá afgreiðslustúlku hjá Kyndli f Keflavík. Höfðu þeir engu eytt af peningunum. Vitni vantar MÁNUDAGINN 1. september, rétt fyrir klukkan 18 sfðdegis var ekið á bifreiðina R-31819, þar sem hún stóð fyrir framan verzlanir við Álfheima 2—4. Hægra aftur- bretti var dældað og hægri aftur- lukt brotin. Bifreiðin er Citroen GS, hvít að lit. Vitni að ákeyrsl- unni eru beðin að gefa sig fram. Ekið á bíl FÖSTUDAGINN 29. ágúst, um klukkan 16,30 var ekið á bifreið- ina R-34686, Volkswagen drapp- lituð, þar sem hún stóð við Berg- staðastræti lOa. Vinstri hurð er skemmd. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið eru beðnir að hafa samband við rannsóknar- lögregluna. Flakið fannst 1971 Skúli Jón Sigurðsson hjá Flug- málastjórn kom að máli við Morg- unblaðið og bað um að komið yrði á framfæri f blaðinu athugasemd vegna fréttar Mbl. 3. september um fund Flugbjörgunarsveitar- manna á braki úr flugvél á Eyja- fjallajökli. Skúli sagði, að í fyrsta lagi bæri að leiðrétta það, að vélin hefði farizt 16. maf 1952, en ekki 1953 eins og sagt var í Morgun- blaðinu. I öðru lagi, sem væri aðalatriðið, væri það ekki rétt að brakið hefði fundizt núna. Fjórir félagar úr Ingólfi, björgunarsveit Slysavarnafélagsins hefðu fundið þetta brak 1. júnf 1971 er þeir voru við æfingar á jöklinum og hefði það þá legið miklu ofar. Síðan hefði það borizt áfram með skriðjöklinum og væri miklu neð- ar en þá. „Þetta var því ekki merkilegur fundur þann 24. ágúst s.l.“ sagði Skúli. HUGSA AÐ VORUURVALIÐ í KARNABÆ HAFI ALDREI VERIÐ GLÆSILEGRA ^ G NU! !! TROÐFULLAR BÚÐIR NÝJUM STÓRGLÆSILEGUM HAUSTVÖRUM I I ■ ■ AF FATNAÐUR T SKÓR SNYRTIVÖRUR HLJÓMPLÖTUR HLJÓMTÆKI Athugio: Opið til hádegis á morgun rjTTDvP LÆKJARGÖTU 2 SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.