Morgunblaðið - 05.09.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975
11
Rauða kross
deild í
A-Hún.
STOFNFUNDUR Rauða kross
deildar Austur-Húnavatnstýlu
var haldinn í barnaskólanum á
Blönduósi 30. ágúst s.l.
I stjórn voru kjörin: Séra Árni
Sigurðsson formaður, Hávarður
Sigurjónsson gjaldkeri, Ingvi Þór
Guðjónsson ritari, Eyrún Glsla-
dóttir og Valur Snorrason og I
varastjórn Margrét Hafsteinsdótt-
ir, Pétur Agnar Pétursson og Kol-
brún Ingjaldsdóttir.
Á fundinum voru mættir þeir
Björn Tryggvason formaður
Rauða kross Islands og Eggert
Ásgeirssön framkvæmdastjóri fé-
lagsins.
Urðu miklar umræður um fyrir-
huguð verkefni deildarinnar sem
munu einkum verða á sviði neyð-
arvarna og námskeiðshalds.
Stofnendur deildarinnar voru
80.
Skátakveðja til:
Jóns Oddgeirs Jóns-
sonar á sjötugsafmœli
Gamlir Væringjar og vinir
senda þér einlægar kveðjur sínar
Jón og þakka þér margvísleg störf
í þágu skátahugsjónarinnar, i
þágu Væringja „hér á árunum"
og í þágu okkar, sem vorum hluti
félagsins, er þú varst einn af
traustustu foringjum þess. Þökk
sé þér fyrir vináttu þína og leið-
sögn I því að njóta lífsins á skáta-
vísu, langt fram á fullorðins ár.
Jón Oddgeir gerðist skáti árið
1921 og eins og aðir, sem gengið
hafa skátahreyfingunni á hönd I
alvöru, hefir hann lifað eftir orð-
takinu: „Eitt sinn skáti, ávallt
skáti“. Um Jón má segja, án þess
að lasta nokkurn annan góðan
skáta, að hann hafi meir en aðrir
á Islandi gert „scouting“ að lffs-
starfi sínu og skátahugsjónina sér
að leiðarljósi. Skal vikið að þvl
nánar síðar.
Skátaferill Jóns einkennist I
höfuðdráttum af tvennu; annars-
vegar af skjótum frama innan
hreyfingarinnar, þar sem hann
velst ungur að skátaaldri til
æðstu foringjastarfa, og hinsveg-
ar af löngum starfstíma sem virk-
ur skáti, ekki aðeins meðan Vær-
ingjar störfuðu, heldur og eftir
1938 þegar þeir gengu til sam-
starfs við skátafélagið Erni og
stofnuðu Skátafélag Reykjavíkur,
— en það er annar kapítuli.
Skátafélagið Væringjar, sem
var stofnað 1913 af séra Friðrik
Friðrikssyni, á sér merka sögu,
sem auðvitað lýsir bæði upp-
gangs- og erfiðleikask’eiðum eins
og gengur, og árið eftir inngöngu
Jóns var eitt slíkt erfiðleikaár. En
með nýju afmælisári 1923 og með
vali margra nýrra foringja, þar
sem Jón var einn, brá skjótt til
hins betra. Næstu 15 ár var Jón
einn meðal mikilvirkustu for-
ingja skátahreyfingarinnar á Is-
Iandi, og voru þó margir góðir
drengir meðal Væringja á þeim.
árum. Jón var skipaður flokksfor-
ingi 1. flokks Væringja 1923,
sveitarforingi 1925, kjörinn I
stjórn Bandalags Isl. skáta 1926, I
stjórn Væringja 1927, varð móts-
stjóri á landsmóti I Laugardal
1928, stofnaði Rover-skátadeild
sama ár með nokkrum eldri skát-
um og var foringi hennar lengi.
Hann var I fararstjórn
Jamboreefara til Englands 1929
og aftur 1937 til Hollands. Með
breytingum á félagsformi Vær-
ingja 1936 varð Jón félagsforingi
og var það þar til enn voru gerðar
breytingar 1938. Jón var alltaf
boðinn og búinn til starfa fyrir
skáta og hefir svo verið fram á
þennan dag, en hér verður staðar
numið með upptalningu á störf-
um hans og embættum innan
hreyfingarinnar, aðeins því bætt
við, að mjög vlða liggja eftir hann
greinar og prentaðar frásagnir af
skátastörfum, sem annars hefðu
farið I „glatkistuna“.
I sjötta lið skátalaganna segir
m.a.: „Skáti er hjálpsamur", og
fyrir utan margt annað gott, sem
þau lög geyma, og flestir sannir
skátar hafa tileinkað sér, er þetta
það boðorð, sem Jón hefir gert að
meginstoð starfsævi sinnar. — Að
loknu Verzlunarskólanámi 1924
og eftir kynni af hjálparstörfum
skáta ( en Jón var einn af stofn-
endum Hjálparsveitar skáta I
Reykjavlk og blóðgjafarsveitar
skáta siðar) Iagði hann land undir
fót, kynnti sér slysavarnir og
skyndihjálp bæði vestan hafs og
austan og lagði síðan fyrir sig
fræðslustörf á þessu sviði. Hann
hefir skrifað margar bækur og
fjölda greina I blöð og tlmarit um
þessi efni: lífgun úr dauðadái,
hjálp I viðlögum slysavarnir
á sjó og landi, umferðarreglur
o.fl. o.fl. Sem starfsmaður Slysa-
varnafélags Islands slðar Rauða
kross Islands og loks Krabba-
meinsfélagsins, hefir hann verið
óþreytandi og kappsamur fræðari
til verndar llfi og limum með-
bræðra sinna, kennari og einskon-
ar „námsstjóri" á þessu sviði um
þvert og endilangt Island. Auk
allra sinnaferðaframogaftur um
landið I þeim erindum að fræða
um björgun, hjálp og slysavarnir,
hefir hann haldið tryggð við gaml-
ar skátadyggðir. Skíðaferðir, úti-
legur og holl glíma við íslenzkt
veðurfar og landshætti hafa hald-
ið Jóni ungum I anda og treyst
tryggðarbönd hans við gamla fé-
laga. Við sem kynntumst Jóni á
svona ferðalögum nutum reynslu
hans og þekkingar og virðum
hann sem leiðtoga, þrautseigan,
árvakran félaga og „fjallaskáld"
hið bezta, því margra fumorta vís-
una Iét hann flakka á ferðum okk-
ar fyrr og síðar. Gaman væri að
rekja sögur úr ferðum I gamla
Væringjaskálann, I Þrym, I Tind-
fjallasel eða ævintýri á snjóbreið-
um milli Haukadals og Haga-
vatns, en slíkt er betur fallið til
upprifjunar á öðrum vettvangi.
Verður því hér staðar numið.
— 0 —
Já, Jón. Gamlir Væringjar og
vinir þlnir frá árum fyrr jafnt og
hinir síðari senda þér hugheilar
heillaóskir. Lifðu lengi enn með
landsins börnum, ungum sem
öldnum. Áfram skáti eins og fyrr,
ávallt viðbúinn. Megi þrek þitt
endast enn til margra ferða, þvl
fjöllin heilla eins og áður og
skátaandinn endist vel þótt æviár-
um f jölgi.
Þ. Sand.
Lágu haustfargjöldin
okkar
lengja sumarió
hjá þér
30% lækkun á fargjöldum býöur upp ásumarauka fyrir
okkartil Evrópu á tímabilinu þig í stórborgum Evrópu.
15. september til 31.október,
FLUCFÉLAG LOFTLEIDIR
/SLAJVDS
\
Félðg með eigin skrifetofur í 30 stórborgum erlendis