Morgunblaðið - 05.09.1975, Side 14

Morgunblaðið - 05.09.1975, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975 35 sóttu um söltunarleyfi: Samningar um sölu á saltsíld hafnir EINS OG fram hefur komið í fréttum verður leyft að veiða milli 7000 og 8000 þúsund lestir af síld f herpinót f haust. t upp- hafi auglýsti sjávarútvegsráðu- neytið eftir umsóknum og sóttu alls um 80 skip um þessar veiðar. Sjávarútvegsráðuneytið ákvað sfðar, að sfldveiðileyfin yrðu bundin þvf skilyrði, að sfldin yrði söltuð um borð f veiðiskipunum. Kom þá f ljós, að einungis útgerð- ir hinna stærri skipa töldu sig geta fullnægt þessum skilyrðum og þegar frestur til að skila um- sóknum rann út 28. ágúst s.I. höfðu einungis borizt umsóknir frá umráðamönnum 35 veiði-. skipa. Sfldarútvegsnefnd hefur nú sent frá sér fréttatilkynningu um síldveiðarnar f haust og fer hluti hennar hér á eftir.: „Síldarútvegsnefnd hefir undanfarna mánuði gert ítarlega könnun á mörkuðum saltaðrar síldar og samningaumleitanir við kaupendur í þessum löndum eru ýmist hafnar eða um það bil að hefjast. MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi álytkun, sem sam- þykkt var á fundi framkvæmda- stjórnar Verkamannasambands tslands 2. september 1975. „Stjórn Verkamannasambands Islands vekur athygli launþega á afar ósmekklegri ályktun, sem Stéttarsamband bænda lét frá sér fara um síðustu helgi. Þar er komist svo að orði, að fundurinn lýsti „furðu sinni á þvf, að rfkis- stjórnin skyldi við gerð síðustu kjarasamninga hafa ljáð máls á því að veita óviðkomandi aðilum aðstöðu tii þess að hafa áhrif á lagasetningu, sem lífsafkoma bændastéttarinnar grundvallast á.“ Það fer ekki á milli mála að þessir óviðkomandi aðiiar eru að mati bændasamtakanna verka- lýðshreyfingin í landinu. Stjórn Verkamannasambands Islands átelur harðlega þennan hugsunarhátt og minnir á að það hlýtur einkum að snerta laun- þega, neytendur í Iandinu, hvernig verðlagningu land- búnaðarafurða er háttað, enda eru landbúnaðarafurðir með brýnustu lífsnauðsynjum heimilanna. Telur stjórnin að þessi ályktun Stéttarsambands bænda hljóti að vekja verkalýðs- hreyfinguna til virkari umræðna um verðlagskerfi landbúnaðarins, sem greinilega er úr sér gengið og óraunhæft." Tveir skotnir í Argentínu Buenos Aires, Argentínu, 3. sept. AP. HRYÐJUVERKAMENN skutu til bana liðsforingja og lögreglufor- ingja f borginni La Plata á mið- vikudag, sinn í hvorri árásinni. Fimm menn og ein kona vopnuð vélbyssum stöðvuðu herflutninga bfl og stálu úr honum byssum, eftir að hafa skotið á hermenn sem f bílnum voru. Að sögn lög- reglunnar máluðu árásarmenn- irnir vígorð á bflinn, áður en þeir flýðu. Leiðrétting I myndatexta í blaðinu á mið- vikudaginn misritaðist nafn ann- ars eiganda Þaks hf. Hann var sagður heita Sigurður Elímars- son, en hið rétta er að maðurinn heitir Heiðar Elimarsson. Er hann beðinn velvirðingar á mis- tökunum. & Þar sem bannað hefir verið að veiða sild með herpinót undanfar- in 3 ár, hefir síldarsöltun hér á landi verið mjög óveruleg þann Framhald á bls. 24 Verkamannasambandið: Samþykkt Stéttarsam- bandsins ósmekkleg Frá sýningu Gunnars Hjaltasonar í Eden. Gunnar Hjaltason sýnir í Eden FJÖLDI málverkasýninga hefur verið í Eden í Hveragerði í sumar og hefur það mælzt vel fyrir. Núna um þessar mundir sýnir Gunnar Hjaltason þar. 58 myndir eru á sýningu hans, mest akríl- myndir. Mikil aðsókn hefur verið að sýningunni, sem stendur fram yfir helgi. Björn Matthíasson: Aumlegt yfirklór upplýsingaforstjórans Agnar Guðnason forstjóri Upplýsingastofnunar landbún- aðarins skrifar grein í Morgun- blaðið f gær, þar sem hann heldur því blákalt fram, að það sé fullkomlega eðlilegur og heiðarlegur viðskiptamáti fyrir Framleiðsluráðið að auglýsa 45% verðlækkun á nautakjöti og miða þá við, að núverandi verð, sem gildir til 14. sept. n.k., sé 45% lægra en nýtt og hærra verð, sem taka á gildi eftir þann tíma! Ekki er annað að sjá á grein Agnars, að honum þyki sjálf- sagt að Framleiðsluráðið láti þess vegna hvergi getið í aug- lýsingum sínum eða landbúnað- arráðherra í sínum yfirlýsing- um, að verðlækkunin sé reikn- uð út á þennan undarlega máta. Agnar reynir að láta I það skfna, að tafla sú, er ég birti hér í Mbl. sl. þriðjudag, þar ég sýni, að verðlækkunin f heildsölu var ekki nema 30—31%, sé byggð á „gömlu verði“, eins og hann orðar það, og þvf ekki mark á slíkum útreikningum takandi. Agnar lætur hins vegar undir höfuð leggjast að segja, hversu gamalt umrætt verð er. Það var nefnilega ekki eldra en svo, að það gilti frá 2. júnf fram til 31. ágúst sl., eða fram á síðasta söludag, þar til hið nýja og lægra verð tók gildi. Svokallað haustverð, sem Framleiðsluráð miðar sfna 45% lækkun við, hefur aldrei verið auglýst, hef- ur aldrei birzt í fjölmiðlum fyrr en Agnar Guðnason birtir það nú og ekkert einasta kjötkfló hefur verið selt á þvi verði. Vill nú ekki einhver greindur Framsóknarmaður (hann hlýt- ur að fyrirfinnast) taka að sér að útskýra grundvallarreglur heiðarlegra viðskiptahátta og landslög um leyfilega viðskipta- máta fyrir þeim Framleiðslu- ráðsmönnum? Þeim virðist ekki vanþörf á. Hið alvarlegastavið hugsunar- hátt upplýsingaforstjórans virðist þó vera, að honum finnst fullkomlega eðlilegt, að gerðar séu aðrar og lægri kröfur um viðskiptasiðferði til þeirra, er framleiða og selja Iandbúnaðar- afurðir, heldur en gerist í öðr- um daglegum viðskiptum. Ég hefði kosið bændum ann- að og betra hlutskipti en að hafa slfkan aðila að talsmanni. 4.9. 1975. 77/ sölu notaöir bílar Fiat 125 P árgerð 1972 Fiat 125 P árgerð 1973 Fiat 125 P station árgerð 1973 Fiat 128 árgerð 1973 Fiat 125 P árgerð 1974 Fiat 132 GLS árgetð 1974 Fiat 132 GLS árgerð 1975 Góðir greiðsluskilmálar. Davíð Sigurðsson hf. Fiat einkaumboð á Islandi Síðumúla 35, símar 38845 — 38888. Bangladesh vill meiri tengsl við stjórn Kína Hong Kong, 2. september. Reuter. HINN nýi forseti Bangladesh hef- ur látið í ljós von um að auka megi tengsl landsins við Kína, að sögn kínversku fréttastofunnar Nýja-Kína. Fréttastofan segir að hinn nýi forseti, Ahmed, hafi fagnað þvf innilega að stjórnin í Peking hafi ákveðið að viður- kenna stjórn hans. AlKiI.ÝSINCÍASÍMINN ER: 22480 Jtt»rí)xinblnt)ib R:©

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.