Morgunblaðið - 05.09.1975, Page 24

Morgunblaðið - 05.09.1975, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975 24 raðauglýsingar - - raðauglýsingar — raðauglýsingar tilkynningar Lögtaksúrskurður Hér með úrskurðast lögtak fyrir gjaldfölln- um og ógreiddum þinggjöldum ársins 1 975, álögðum í Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu, en þau eru tekjuskattur, eignar- skattur, kirkjugjald, slysatryggingagjald v/heimilisstarfa, iðnaðargjald, slysa- tryggingagjald atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr. 67/1971, lífeyristrygginga- gjald skv. 25. gr. sömu laga, atvinnuleys- istryggingagjald, almennur og sérstakur launaskattur, kirkjugarðsgjald og iðnlána- sjóðsgjald. Ennfremur fyrir bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bifreiða og slysatrygginga- gjaldi ökumanna 1975 og vélaeftirlits- gjaldi, söluskatti af skemmtunum, gjöldum af innlendum tollvörutegundum, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, sölu- skatti, sem í eindaga er fallinn, svo og fyrir viðbótar- og aukaálagningum sölu- skatts vegna fyrri tímabila. Má vænta að lögtök fari fram án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birt- ingu úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið gerð. Sýs/umaðurinn í Mýra- og Borgarf/arðarsýslu. Borgarnesi, 28. ágúst, 1975. Ásgeir Pétursson. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Frá Gagnfræðaskólum Reykjavíkur Skólarnir verða settir mánudaginn 8. september sem hér segir: VÖROUSKÓLI: Allar deildir kl. 1 1:00 HAGASKÓLI: 1 . bekkur kl. 9:00 2. bekkur kl. 1 0:00 3. og 4. bekkur kl. 1 1:00. ÁRMÚLASKÓLI: 4. bekkur kl. 9:00 3. bekkur kl. 1 0:00 Landsprófsdeildir kl. 1 1 :00 VOGASKÓLI: 1., 2., 3. og 4. bekkur kl. 14:00. LAUGALÆK JARSKÓLI: 1 . bekkur kl. 1 0:00. 2. bekkur kl. 11:00 3. bekkur kl. 1 3:00 4. bekkur kl. 1 4:00 kennarafundur kl. 14:30 Gagnfræðadeildir Austurbæjarskóla, Lang- holtsskóla, Hlíðaskóla, Álftamýrarskóla, Árbæjarskóla, Fellaskóla og Hvassaleitisskóla: 1. bekkur kl. 9:00 2. bekkur kl. 10:00 Gagnfræðadeild Breiðholtsskóla og Æfinga- skóla K.H.Í. v/Háteigsveg komi kl. 1 0:00. RÉTTARHOLTSSKÓLI: 1. bekkur kl. 14:00, 2., 3. og 4. bekkur kl. 14:30. 3. BEKKUR í BREIÐHOLTI: Nemendur komi í Hólabrekkuskóla kl. 14:00. Skólastjórar. Skólasetning I framhaldsdeildum gagnfræða- stigs (5. og 6. bekk) í Lindargötuskóla og Laugalækjarskóla verður auglýst síðar. Lögtaksúrskurður Hér með úrskurðast lögtak fyrir gjaldfölln- um og ógreiddum þinggjöldum ársins 1975 álögðum í Bolungarvík, en það eru: Tekjuskattur, eignarskattur, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, slysatryggingargjald vegna heimilisstarfa, iðnaðargjald, slysa- tryggingagjald atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr. 67/1971, lífeyristrygginga- gjald skv. 25. gr. sömu laga, atvinnuleys- istrygginga gjald, almennur og sérstakur launaskattur, iðnlánasjóðsgjald og skyldusparnaður skv. 29. gr. laga nr. 1 1 /1975. Ennfremur fyrir skipaskoðunargjaldi, lesta- og vitagjaldi, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bifreiða og slysatrygginga- gjaldi ökumanna 1975, vélaeftirlitsgjaldi, svo og ógreiddum iðgjöldum og skrán- ingargjöldum vegna lögskráðra sjó- manna, söluskatti af skemmtunum, gjöldum af innlendum tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktar- sjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af ný- byggingum, ógreiddum tollum og sölu- skatti, sem í eindaga er fallinn, svo og fyrir viðbótar- og aukaálagningum sölu- skatts vegna fyrri tímabila. Einnig fyrir dráttarvöxtum og kostnaði. Verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en á ábyrgð ríkissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið gerð. Bæjarfógetinn í Bolungarvík 25. ágúst 1975 Barði Þórhallsson — Samningar Framhaldaf bls.14 tima. Helztu keppinautar okkar hafa þvl náð undir sig fyrri mörk- uðum okkar og kemur það því ekki á óvart, þótt það sé nokkrum erfiðleikum bundið að vinna þessa markaði á ný. Hin takmarkaða veiðiheimild nú er fyrst og fremst ákveðin með það fyrir augum að hefja á ný uppbyggingu markaða fyrir salt- aða sild frá Islandi. Söltuð síld hefir flest ár aldarinnar verið ein af höfuðútflutningsvörum lands- manna og ekki þarf að veiða til söltunar nema örfá prósent af aflamagni góðu síldaráranna til þess að verðmæti saltsfldarút- flutningsins geti numið mörgum milljörðum króna. Enda þótt flest bendi til þess að íslenzki sumar- gotssíldarstofninn hafi aukizt verulega síðustu árin, telur Síld- arútvegsnefnd að fara beri var- lega I sakirnar, er veiðarnar verða auknar og að ekki verði leyft að veiða síld nema til manneldis og beitu. Þá er áríðandi að Hafrannsókn- arstofnuninni verði gert kleift að hafa a.m.k. eitt rannsókna- og síldarleitarskip með fiskifræðing- um um borð á miðunum meðan veiðarnar standa yfir, og verði fiskifræðingunum heimilað að loka tafarlaust þeim svæðum, sem ókynþroska síld heldur sig á. Verði unnið rétt að þessum mál- um, er þess að vænta, að næstu árin geti síldveiðarnar á ný orðið veruleg lyftistöng fyrir söltunar- stöðvarnar og hluta íslenzka fiski- skipaflotans. Flutningaskip á vegum Sildar- útvegsnefndar eru væntanleg til hafna á Austur-, Suður- og Vest- urlandi í lok þessarar viku með tunnur og síldarsalt. Þeir, sem pantað hafa vörur þessar frá skipshlið, fá þær keyptar á mun lægra verði en ef flytja þarf þær fyrst i birgðaskemmur Sildarút- vegsnefndar og afgreiða þær það- an. Með því að kaupa tunnur og salt frá skipshlið flutningaskipa nefndarinnar, komast saltendur á þeim stöðúm sern Sildarútvegs- nefnd á engar birgðaskemmur, auk þess hjá því að greiða auka flutningskostnað milli hafna.“ — Göfugmenni og barátta Framhald af bis. 18 mannorðsníði því sem blaðið ástundar. Það er nauðsynlegt að fara að öllu með gát og ráðást ekki af fljótræði I það að milda refsi- löggjöf. Hún hefur sitt giidi eins og dæmin sanna. Ágætt dæmi um nauðsyn strangrar refsilöggjafar eða a.m.k. ekki of mildrar refsilöggjafar má finna I Þjóðviljanum 3. marz 1974. Þann dag birtist grein eftir Friðrik Þórðarson háskóla- kennara i Ósló, en greinin bar yfirskriftina: „Bréf um bæna- skrá o.fl.“. Friðrik Þórðarson segir frá viðskiptum sínum við „strákgopa" sem hann kallar og bauð honum að undirrita áskor- un Varins lands. Hann segir m.a.: „Ég þarf ekki að taka það fram, að hann átti því fjör sitt að iauna, að norsk hegningar- lög setja ströng viðurlög við manndrápum, jafnvel þótt rétt- mæt séu; annars hefði ég fleygt honum niður stigann og háls- brotið hann.“ Hér verður greinilega ógn refsiákvæða þyngri á metunum en menning- arleg reisn og sjálfsvirðing. Þeir sem berjast af hugsjón fyrir mildari refsilöggjöf ,yerða einnig að taka mið af stað- reyndum, annars er hætt við því að þeir vinni málstað sínum ógagn. Hinir sem heimta mild- ari refsilöggjöf í þeim tilgangi einum að geta sjálfir misbeitt frelsi sinu til að niða náungann eru ekki svaraverðir. 1. september 1975. — Landsfundur Framhald af bls. 13 mannaeyjum. Þau mynda svo landssambandið. Hliðstæð samtök á Norðurlönd- um, Red barnet, hafa nýlega boð- ið L.I.B. til samstarfs, og eru það dönsku Red barnet-samtökin, sem senda nú Jens Donner héraðs- lækni í Árósum til að kynna sér starf félaganna hér og flytja er- indi á landsfundi þeirra. Þess má geta, að norrænu barnaverndarsamtökin söfnuðu allmiklu fé, þegar eldgosið varð í Vestmannaeyjum og gáfu álitlega fjárhæð eða andvirði dagheimilis til að reisa heimili fyrir börn, sem flýja þurftu heimili sín. Var það byggt í Keflavík fyrir framlag barnaverndarfélaga í Danmörku, Noregi og Sviþjóð. Aðalstjórn L.I.B. skipa nú: Kristinn Björnsson, Pálína Jóns- dóttir, bæði frá Reykjavík, Stefán Júlfusson, Hafnarfirði, Helga Jónsdóttir, Keflavík, Sigrún Gunnlaugsdóttir, Akranesi, Ragn- hildur Helgadóttir, Isafirði og séra Björn Jónsson, Húsavík. — Reyðarfjörður Framhald af bls. 19 skák, svo ekki sé hér rætt um skipulagða „pendlun" til atvinnustaðar 34 km frá bústað. Meðan bygging stórvirkjana, meginhafna og verksmiðja stendur sem hæst vila menn aldrei fyrir sér hér að sækja atvinnu sina langleiðis að. Fram mætti telja margt í við- bót, sem sýnir mikilvægi þróaðs „upplands“ í borgsýslunni, svo jafnvægi hagkerfis náist, hvorir veiti öðrum taisvert öryggi. Lítum þarna einnig á dæmi um velferðarþátt, sem ekki er einber hagfræði. Það má heita samkenni á öllum fiskiþorpum fyrir norðan og austan, að kaupstað eins og Eskifirði með- töldum, að konur og þó sérlega þær ógefnu og gjafvaxta eru furðulega fáar móts við karlkyn á sama aldri. I mótsögn við þetta er jafnt af hvoru kyni á Egilsstöðum, Akranesi, í Kefla- vik, Hafnarfirði og víðar þar, sem iðnaður og þjónustuhlut- verkin laða ungar konur til sín. Það gæti skipt ýmsa miklu, ef i miðstöð Austurlands væru búsettar 237 konur umfram karla, en sú var umframtala Akureyrar af konum við mann- tal 1974. Meðal velferðarþátta er mikið rætt i „áætlunum" um sem mesta fullkomnun á tæki- færum fólks, eigi sizt ein- hleypra, til að eyða aflafé sinu á (mannbætandi?) hátt. Um félagslegar breytingar, sem orðnar verða f þeim efnum að 10—15 árum liðnum, geta ekki einu sinni slyngustu verzlunar- menn spáð af viti. Miklu mótaðri þróunarlínur um menntunarþörf og starfsnám er hægt að rissa upp. Þar eru f jöl- brautarskólar stefnuorðið, sem ég veik áðan að meðal fleiri sköpunarkrafta i smáborg. Tökum það gilt, til að stytta mál vort, að i miðstað Austur- lands bregðist hvorki aðlög- unargeta ungs fólks úr fjöl- brautarskólum að nýjum (eða gömlum) störfum, siaukin tækni né nægt fjármagn, senn hvað liður. Hve margt þarf þá af aðfluttu fólki úr öðrum fjórðungum til þess, að tugur þúsunda verði að liðnum 9. tugi aldar kominn í botna Reyðarfjarðar til að veita borgsýslunni hæfilegan kjarna? I spurninni geng ég út frá, að hugsanlegt sé að lita á Reyðar- f jörð — Eskifjörð sem komandi tvístirnisborg, þar sem hvor hlutinn haldi sinum sérlegu bæjarfélagsréttindum, að sjálf- sögðu með sameiginlegan bæjarfógeta, en einnig með samstjórn á hafnarmála- og skólasviði og yfirleitt hvar sem löggjafinn vill framkalla sam- einaða borgarstefnu, án hættu á að hinn stærri kúgi hinn smærri stað. 12 km munu vera i milli, og til sjósóknar er Eski- fjörður betri, enda stærri i svip- inn og er setur sýslustjórnar- innar. .Eigi er samsteypa þessi neitt stóratriði fyrir mér. Það þurfa að vera minnst 5 þúsundir, sem flytjást langt að í Reyðarfjörð auk Austlendinga, er koma þangað á sama skeiði, að viðbættri allörri barnfjölg- un, sem líkleg er, þar sem margt aðfluttra er á þeim aldri að vera að festa ráð sitt. Fyllist þá brátt 10 þús. lágmarkið. Ibúar „tvístirnisins" I Reyðar- fjarðarbotnum eru e.t.v. 1700 I haust, þ.e. jafnir Norðfirði einum, en með hægri fjölgun þýðir það fátt yfir 2 þúsund að áratug liðnum. Einsætt er þvi, að milli tveggja mjög ólikra framtíðarstefna ber að velja á þessum stað. Valið getur ekki gerzt viljalaust, hvað þá blint og ósjálfrátt. Án vilja á staðn- um þokast ekki úr sporum, en væri hann fyrir hendi, verður úr þessu landsmál frekar en héraðs. Sjáum, hvað setur, enn um stund. Björn Sigfússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.