Morgunblaðið - 05.09.1975, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1975
Stefán 2 brotum
frá Olympíu-
lágmarkinu
EINS og skýrt var frá ! Morgunblaðinu ! gær setti Stefán Hallgrímsson, KR.
nýtt glæsilegt Islandsmet I 400 metra grindahlaupi á innanfélagsmóti KR
sem fram fór á Laugardalsvellinum. Hljóp Stefán á 51,8 sek. og bætti þar
með eigið íslandsmet um 6/10 úr sek. og var hann aðeins 2/10 úr sek. frá
Olympiulágmarkinu ! þessari grein, en það er 51,6 sek. Afrek Stefáns er
þeim mun betra, að brautirnar á Laugardalsvellinum eru nú mjög þungar eftir
langvarandi rigningu.
I byrjun hlaupsins i fyrrakvöld fylgdust þeir að Stefán og Vilmundur
Vilhjálmsson og héldu uppi miklum hraða. Vilmundur hætti síðan hlaupinu
eftir 200 metra, en Stefán hélt sinu striki og kom vel frá seinni hluta
hlaupsins þótt keppnislaus væri. Annar ! hlaupinu varð Þorvaldur Þórsson,
UMSS, sem hljóp á sinum bezta tima, 59,0 sek., þriðji varð Gunnar Árnason,
UNÞ, á 62,4 sek og Stefán Gislason, HSS, varð fjórði á 62,8 sek.
Skemmtileg keppni var i 100 metra hlaupinu á móti þessu, en i þvi sigraði
Sigurður Sigurðsson A, sem varð sjónarmun á undan Vilmundi Vilhjáimssyni,
KR. Báðir hlupu á 10,8 sek. Björn Blöndal, KR, varð þriðji á 11,3 sek.
í kúluvarpinu náði svo Stefán Hallgrimsson sinum langbezta árangri. Hann
átti fjögur köst yfir 15 metra og eitt, sem var dæmt ógilt. var um 15,40
metrar. Lengsta löglega kast hans i keppninni var 15,22 metrar. Guðni
Halldórsson, HSÞ, Sigraði i kúluvarpinu. varpaði 15,88 metra. Stefán varð
annar, Vilmundur Vilhjálmsson þriðji, varpaði 13,16 metra og Valbjörn
Þorláksson, KR, varð fjórði, varpaði 12,34 metra.
f stangarstökki börðust þeir Stefán og Valbjöm jafnri baráttu og stukku þeir
báðir 4,00 metra. Valbjörn sigraði. f þriðja sæti varð Gunnar Árnason, UNÞ,
sem stökk 3,00 metra. —
Á mótinu var svo keppt i siðustu grein fslandsmeistaramótsins, 3000 metra
hlaupi kvenna. I þvi sigraði Anna Haraldsdóttir, FH, sem hljóp á 11:49,2
min.. en Sólveig Pálsdóttir úr Stjörnunni varð önnur á 11:49,5 min.
Sjálfsagt má eitthvað að stíl þeirra ungu manna sem þarna spreyta sig f grindahlaupi finna, en allt
stendur til bóta, og þessir ungu piltar eiga framtfðina fyrir sér.
GÓÐUR ÁRANGUR UNGA FÓLKSINS
Stefán keppir á tveimur mótum á Bislet f Osló á næstunni og er Ifklegt að þar nái hann
Olvmpfulágmarkinu.
UNGHNGAKEPPNI Frjáls-
fþróttasambands tslands fór fram
á Laugardalsvellinum um sfðustu
helgi. Þrátt fyrir erfið skilyrði,
kulda og regn náði unga fólkið
góðum árangri, og þarna mátti sjá
í keppni margan efnilegan ungl-
ing sem vafalaust á eftir að láta
að sér kveða í framtfðinni.
Annars hefur það viljað brenna
við, að margir fslenzkir unglingar
hafa aldrei náð að verða annað en
efnilegir f frjálsum fþróttum.
Þegar alvara æfinganna tekur við
virðist svo sem alltof margir helt-
ist úr lestinni, og sést þetta bezt
þegar úrslit úr unglingamótum
fyrri ára eru athuguð. Þar má sjá
nöfn margra ungmenna er náðu
bærilegum árangri, en sfðan
hefur ekkert heyrzt frá meira.
1 unglingakeppni FRÍ voru
veitt sérstök verðlaun þeim þrem-
ur einstaklingum sem stighæstir
urðu. Hlaut Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir verðlaun þessi í stúlkna-
HSI á alla sökina segja forystumenn FH
t tilefni fréttar f Morgunblaðinu
2. september sl. hefur blaðinu
borizt svohljóðandi yfirlýsing frá
stjórn handknattleiksdeildar FH:
„í Morgunblaðinu þann 2.
september s.l. er birt frétt frá stjórn
HSÍ, þar sem segir að staðfest sé að
FH fái að taka þátt i Evrópukeppni
bikarmeistara, en tilkynning frá FH
hafi ekki komið á réttum tima. Allt er
þetta gott og blessað en neðan við
þetta er svo bætt að stjórn HSI sé
ekki á nokkurn hátt ábyrg vegna
hinnar siðbúnu þátttökutilkynningar
FH, sem eingöngu stafi af mistökum
forráðamanna FH. Einnig er þess
getið að undanfarin ár hafi þau félög
sem tekið hafi þátt i Evrópu-
keppninni sent sinar þátttökutil-
kynningar sjálf og stjórn HSÍ aðeins
lagt blessun sina yrir þær, „formsins
vegna".
Þar sem við i stjórn handknatt-
leiksdeildar FH viljum ekki liggja
undir þessum ásökunum, visum við
þeim beint til föðurhúsanna og lát-
um það koma fram sem rétt er i
þessu máli.
Alþjóðahandknattleikssambandið
hefur í allmörg ár annast fram-
kvæmd Evrópukeppninnar og svo er
einnig i ár. Evrópukeppnin í ár var
auglýst i bréfi dagsettu 30. júni til
allra handknattleikssambanda. í þvi
bréfi segir að nú fari fram i fyrsta
skipti Evrópukeppni bikarmeistara,
jafnhliða keppni meistara hvers
lands, bæði i karla og kvennaflokki,
og er handknattleikssambandið
beðið um að bjóða bæði meisturum
og bikarmeisturum að taka þátt i
viðkomandi keppni. Einnig er þess
getið, að með bréfinu fylgi reglur
keppninnar, þátttökubeiðnir og leik-
mannaskrár. Allt er þetta sent i 5
eintökum (til þess að sjálfsögðu að
viðkomandi samband geti sent þeim
félögum sem unnið hafa sér rétt til
þess að taka þátt i keppninni). Allt er
þetta mjög skýrt tekið fram í um-
ræddu bréfi, þannig að ekkert hefur
átt að fara á milli mála.
En hvað gerist svo?
i viðtali við framkvæmdastjóra
HSf þann 25. ágúst sagði hann við
undirritaðan að hann hefði sent bæði
Viking og Val. sem eru íslandsmeist-
arar i karla- og kvennaflokkum, þau
skjöl sem til þarf, til að geta sótt um
þátttöku i Evrópukeppninni. Hins
vegar var honum ekki kunnugt um
að nokkur slik gögn hefðu borizt
vegna þátttöku i keppni bikarmeist-
ara. Bað þá undirritaður fram-
kvæmdastjórann að lesa aftur um-
rætt bréf. sem hann og gerði og
komu þá mistökin i Ijós. Nú voru góð
ráð dýr, þvi að i bréfinu stóð að
tilkynningar yrðu að berast i siðasta
lagi 15. ágúst.
Krafðist undirritaður þá að málin
yrðu leiðrétt svo fljótt sem unnt væri
og kvaðst framkvæmdastjórinn
myndu gera allt sem I hans valdi
stæði, þar sem mistökin væru greini-
lega af hálfu HSÍ. en bréfið hefði
verið lagt fyrir fund HSf, en enginn
tekið eftir þvi að þarna var einnig um
að ræða þátttökutilkynningar i
Evrópubikarkeppni bikarmeistara.
Sendi hann samdægurs telexskeyti
til aðalstöðva alþjóðahandknatt-
leikssambandsins og i þvi skeyti
tekur hann þrisvar sinnum fram að
mistökin séu af HSI hálfu og biður
hann alþjóðasambandið að bjarga
málinu, þar sem það geti haft
„óheppilegar afleiðingar" i för með
sér HSf vegna.
Gott og blessað!
En ekki er látið staðar numið við
svo búið heldur er hringt i einn af
stjórnarmönnum alþjóðasambands-
ins, Erik Larsen og hann beðinn um
að hafa samband við skrifstofu al-
þjóðasambandsins og leggja inn góð
orð.
En ekki ef allt búið enn!
Þennan sama dag er haldinn
fundur i stjórn HSf og eftir að honum
er lokið kemur einn af stjórnarmönn-
um HSf til undirritaðs, þar sem hann
var að fylgjast með æfingu hjá FH,
og afhendir þau gögn sem berast
áttu i júli Fylgdi gögnunum sú
beiðni frá þessum fundi HSI að FH
sendi strax i skeyti beiðni um að fá
að taka þátt í keppninni og að upp-
haf skeytisins yrði þannig orðað:
„Vegna óskiljanlegra mistaka af
hálfu HSf. hefur þátttökutilkynning-
in ekki borizt á réttum tima," og
urðum við að sjálfsögðu við þeirri
beiðni.
Snemma morguns næsta dag
barst svo telexskeyti frá alþjóðasam-
bandinu þar sem staðfest er að FH
fái að taka þátt i keppninni og beðið
er um skriflega umsókn. Voru nú
allir glaðir og ánægðir, hver með sitt
við FH-ingar yfir þvi að fá að taka
þátt i keppninni og þeir HSÍ menn
yfir að hafa fengið mistök sin leið-
rétt. Tekizt var i hendur og skilið i
sátt og samlyndi.
Á fundi stjórnar handknattleiks-
deildar FH að kvöldi þess 26. ágúst
var samþykkt að gera ekkert veður
út af málinu, þar sem svo skjótt var
við brugðið af hálfu HSf en áður
höfðu menn verið bæði hissa, sárir
og reiðir. Féll svo málið niður. Það
var þvf að vonum að okkur brá illi-
lega er frétt þessi birtist i Morgun-
blaðinu 2. september s.l. og héldum
við reyndar fyrst að þarna væri ein-
hver vitleysa á ferðinni þar sem
þetta var eina blaðið er birti þessa
„frétt frá HSÍ". En hún reyndist
komin frá HSf. það fór ekkert á milli
mála. En hvað hafði valdið þessum
stökkbreytingum hjá stjórn HSf á
einni viku? Þvi verður stjórn HSf að
svara. Ef hún stafar af þvi að þeir
hafa glatað bréfunum frá alþjóða
sambandinu þá höfum við eintök
sem við getum Ijósritað og látið þá
fá. og sömuleiðis getum við látið
þeim i té Ijósrit af skeytum sem fóru
milli HSf og alþjóðasambandsins. —
En hvað sem þvi liður, þá kærum við
okkur ekki um að vera bornir
ósannindum, og töldum nauðsynlegt
að almenningur fengi að vita það
sem sannara væri.
Þetta er ekki í fyrsta og alls ekki í
síðasta skipti sem FH tekur þátt i
Evrópukeppni og munum við hér eft-
ir sem hingað til hafa þann hátt á að
biða þess að HSI tilkynni félaginu
um þátttöku og sendi viðeigandi
gögn. Við vitum að mistök eru mann-
leg og treystum þvi lika að menn
læri af mistökunum.
Með vinsemd og virðingu,
f .h. handknattleiksdeildar FH
Ingvar Viktorsson."
flokki, Einar P. Guðmundsson,
FH, f drengjaflokki og Jakob
Sigurólason í sveinaflokki.
Meðal úrslita í mótinu má nefna
að í stúlknaflokki sigraði Ástá B.
Gunnlaugsdóttir, IR, í 100 metra
hlaupi á 13,0 sek., Þórdís Gfsla-
dóttir, IR, í hástökki, stökk 1,60
metra, Ingibjörg Ivarsdóttir,
HSK, í 400 metra hlaupi á 63,3
sek., Björk Eiríksdóttir, IR, í 100
metra grindahlaupi á 18,2 sek.,
Ásta B. Gunnlaugsdóttir í
kringlukasti, kastaði 27,95 metra,
Sigríður Kjartansdóttir, KA, í 200
metra hlaupi á 25,9 sek., María
Guðnadóttir, HSH, í spjótkasti,
kastaði 33,32 metra.
I sveinaflokki sigraði Jakob
Sigurólason, HSÞ, í 100 metra
hlaupi á 12,3 sek., og í 400 metra
hlaupi á 54,0 sek., Gunnar Þ.
Sigurðsson, FH, sigraði f 1500
metra hlaupi á 4:28,6 mín.,
Guðmundur R. Guðmundsson,
FH, f hástökki, stökk 1,80 metra,
Jónas Kristófersson, HSH, í lang-
stökki, stökk 5,78 metra, Stefán
Halldórsson, iR, í spjótkasti,
kastaði 58,30 metra., Guðmundur
R. Guðmundsson FH, sigraði í 100
metra grindahlaupi á 15,3 sek.,
Jónas Kristófersson HSH, í þrí-
stökki, stökk 12,16 metra, Jakob
Sigurólason, HSÞ, f 200 metra
hlaupi á 23,9 sek., Óskar
Reykdalsson, HSK, í kúluvarpi,
varpaði 15,33 metra, Vésteinn
Hafsteinsson, HSK, í kringlu-
kasti, kastaði 55,52 metra og
Ásgeir Þ. Eiríksson, IR, f stangar-
stökki, stökk 3,10 metra, en þá
hæð stökk einnig Eggert
Guðmundsson, HSK.
I drengjaflokki sigraði Sig-
urður Sigurðsson, A, í 100 metra
hlaupi á 11,8 sek. og í 400 metra
hlaupi á 51,8 sek. I langstökki
sigraði Rúnar Hjartar, UMSB,
stökk 6,57 metra, Einar P.
Guðmundsson, FH, sigraði í 1500
metra hlaupi á 4:28,3 mín., Ólafur
Óskarsson, Á, í hástökki, stökk
1,75 metra, en þá hæð stökk Sig-
urður Sigurðsson einnig. Sig-
urður P. Sigmundsson, FH,
sigraði í spjótkasti, kastaði 42,80
metra Sigurður Sigurðsson, A,
sigraði í 200 metra hlaupi á 22,7
sek., Ágúst Gunnarsson, UBK, í
3000 metra hlaupi á 10:16,2 mín.,
Einar P. Guðmundsson, FH,
sigraði í kringlukasti með 28,10
metra kasti og í kúluvarpi sigraði
Kristján Bjarnason, UMSB,
kastaði 11.19 metra.
Fram
Aðalfundur knattspyrnufélagsins
Fram verður haldinn 18. september
n.k. i hinu nýja félagsheimili Fram-
ara við Álftamýri. Hefst fundurinn kl.
20.
Unnið við grasvöll FH
NU ER langt komið að vinna hinn
nýja Kaplakrikavöll FH-inga und-
ir þökur, en sem kunnugt er, er
völlurinn þessi við hlið malar-
vallarins sem leikið hefur verið á
f sumar.
— Það stendur til að ljúka við
undirbúninginn nú í þessari viku,
og hefjast síðan strax handa við
að koma þökum á völlinn, sögðu
þeir Árni Ágústsson og Bergþór
Jónsson, tveir hinna ötulu FH-
inga sem unnið hafa að undirbún-
ingi vallarins.
Búast má við því að hinn nýi
grasvöllur FH-inga verði mjög
skemmtilegur þegar fram líða
stundir, en áhorfendasvæðin
verða steypt í hraunkambana sem
eru umhverfis völlinn.
Þegar á heildina er litið verður
ekki annað sagt en að betur hafi
tekizt en á horfðist að leika á
malarvellinum í Kaplakrika i
sumar. Hafa FH-ingar lagt
áherzlu á að hafa völlinn eins
góðan og malarvöllur getur
framast orðið, og reynt að hafa
sem bezta aðstöðu fyrir áhorf-
endur. Þá má ekki gleyma að geta
þess, að FH-ingar hafa komið upp
ágætri blaðamannastúku við
malarvöllinn, — og er Kapla-
krikavöllurinn eini völlurinn
utan Reykjavíkur, þar sem blaða-
menn hafa einhverja aðstöðu.
Fyrir slfkt ber að þakka, og er
vonandi að fleiri félög fylgi for-
dæmi FH-inga á þessu sviði.
— stjl.
Heimsþekktur hlaupaþjálfari
þjálfar hérlendis um tíma
DAGANA 4.—7. september n.k.
mun frjálsíþróttadeild IR gangast
fyrir námskeiði fyrir millivega-
lengda- og langhlaupara og þjálf-
ara þeirra.
Til námskeiðsins hefur deildin
fengið Gordon Surtees, sem um
þessar mundir er einn af þekkt-
ustu hlaupaþjálfurum Englands,
og mun hann, ásamt þjálfara ÍR-
inga, Guðmundi Þórarinssyni,
leiðbeina þátttakendum um
æfingar og skipuleggja æfinga-
kerfi þeirra fyrir komandi vetrar-
æfingar.
Mikill kostnaður fylgir slíku
framtaki, þótt námskeiðið sé
stutt, og þvi munu væntanlegir
þátttakendur þurfa að taka þátt í
honum með þvf að greiða krónur
2.500.00 í þátttökugjald f upphafi
námskeiðsins.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að tilkynna sig til Guð-
mundar Þórarinssonar, eða Sig-
fúsar Jónssonar, sem veita munu
allar nánari upplýsingar um
námskeiðið.