Morgunblaðið - 13.12.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1975 3
Gunnar Ólafsson skipherra í brú Ægis við komuna f gær.
Bretarnir sigla i í okkur,;
þótt við eigum bóginn
— segir Gunnar Ólafsson,
skipherra á Ægi, í viðtali við Mbl.
VARÐSKIPIÐ Ægir kom í gær
til Revkjavíkur eftir 22ja daga
gæzlustörf. Rétt áður en Ægir
sigldi upp að Ingólfsgarði og
lagðist utan á togarann Baldur,
lét Oðinn úr höfn undir stjórn
Höskuldar Skarphéðinssonar,
sem tekið hefur við skipinu
vegna veikinda Sigurðar Arna-
sonar. Skipherra á Ægi er
Gunnar Ólafsson og Morgun-
blaðið hitti hann að máli f brú
Ægis 1 gær, en eins og kunnugt
er var Gunnar fvrsti skipherr-
ann sem klippti á togvfra eftir
að freigáturnar komu á miðin.
Á meðan gengið var frá Ægi
utan á Baldri. hinkruðum við
og fvlgdumst með skipherr-
anum sem gaf fvrirskipanir til
manna sinna. Um leið og Gunn-
ar leit út um gluggann vfir
Baldur brosti hann og sagði að
þegar Baldur kæmi f gagnið —
mættu Bretarnir fara að vara
sig, þvf að fvrst þeir viiltust á
Ægi og togara, gætu þeir hæg-
lega villzt á Baldri og einhverj-
um Bretanum.
Gunnar sagði að f þessari
gæzluferð hefðu þeir á Ægi
aldrei lent f verulegri ásigl-
ingarhættu, en hann kvað hegð-
an brezku freigátanna og drátt-
arbátanna á miðunum vera
mjög ruddalega, þeir virtu
engar siglingareglur og treystu
þvf greinilega f gegnum þykkt
og þunnt, að varðskipin beygðu
alltaf undan. „Þetta gera þeir,
þótt við eigum bóginn,“ sagði
Gunnar og bætti við að freigát-
urnar lékju sérstaklega þennan
leik og þá einkum til þess að
varðskipin gætu ekki siglt á
fullri ferð. Kæmu þá dráttar-
bátarnir þeim að gagni, en þeir
hafa alls ekkí þann hraða, sem
varðskipin hafa.
Þá spurði Morgunblaðið um
atvikið, er Ægir klippti á tog-
vfra togarans William
Wilberforce hinn 25. nóvem-
ber, rétt við nefið á freigátunni
Leopard. Gunnar Ólafsson
sagði: „Við vorum búnir að
miða út herskipið og vissum f
hvaða átt það stefndi. Við vor-
um þarna f miðjum togarahóp
og sigldum á Iftilli ferð. 1 hópn-
um voru auk herskipsins, Star
Aquarius, Llovdsman og Star
Sirius, sem var næst togaranum
og varði hann lengst. Star
Aquarius sem augsvnilega
hefur verið sendur á móti
okkur til þess að kanna hverjir
þar væru á ferð, þvf að hann
kom á móti okkur. Þar með var
það skip úr leik, þar sem það
hafði ekki hraðann til þess að
komast samtfmis okkur að
togaranum. Llovdsman komst
aldrei svo nálægt okkur f þessu
tilviki að hann gæti ögrað
okkur með ásiglingu og fram-
hjá honum komust við. Star
Sirius var sfðan þétt upp við
togarann, við settum klipp-
urnar út og vfrarnir fóru I
sundur. Sirius gerði enga ásigl-
ingartilraun, þótt honum hefði
f raun verið það f lófa lagið að
reyna hana. Hið eina, sem
Sirius revndi var að komast á
milli togarans og okkar.“
Alls klippti Ægir í þessari
ferð á togvfra fjögurra togara,
Ross Sirius, sem jafnframt var
sfðasta klipping áður en frei-
gáturnar komu á vettvang,
William Wilberforce, sem áður
er nefndur, Boston Comanche
og Kingston Jacinth. Gunnar
sagði að hann hefði aðeins náð
öðrum togvfrnum hjá Ross
Sirius og sagði hann það hafa
verið fvrir það að klippurnar
hafi verið orðnar lélegar og
einn armur þeirra brotnað.
Þegar klippt var á togvfra
Kingston Jacinth sagðist
Gunnar aðeins hafa náð f sund-
ur forvfrnum og hefði hann svo
gert tvær tilraunir til viðbótar
til þess að ná hinum. t báðum
tilraununum festist klippan f
einhverju, sem hann taldi hafa
verið troll skipsins. Fundu
skipverjar á Ægi hvernig troll-
ið rifnaði. „Eg hafði svo ekki
brjóst i mér til þess að gera
fjórðu tilraunina við aftur-
vfrinn eftir að hafa rifið trollið
svona,“ sagði Gunnar og hló
við.
Gunnar sagði að yfirleitt
tækju togaraskipstjórarnir
klippingunum með jafnaðar-
geði, en oft stvkkju menn þó
upp á nef sér og kvaðst hann
ekki lá þeim það. Einn skip-
stjóranna kallaði til Gunnars er
hann hafði klippt á vfra hans:
„Þú getur ekki logið til um
hæfni brezkra sjómanna."
Yfirlýsingar
vegna fjárhags-
mála Air Viking
og greinar-
gerðar Guðna
VEGNA frétta af fjárhagsstöðu
Air Viking og f tilefni af
greinargerð Guðna Þórðarsonar
hafa Morgunblaðinu borizt tvær
fréttatilkynningar — frá
Samvinnubankanum og Alafossi.
Vegna fréttar í Þjóðviljanum og
sfðar í Morgunblaðinu og
Sjónvarpinu um stórkostlegar
skuldir Air Viking við
Samvinnubankann vill Sam-
vinnubankinn taka eftirfarandi
fram:
Það er ekki rétt að Flugfélagið
Air Viking skuldi bankanum tugi
milljóna króna. Hvorki Guðni
Þórðarson eða fyrirtæki hans
hafa haft viðskiptareikninga f
Samvinnubankanum. Hinsvegar
er rétt, eins og upplýst var strax
og blaðaskrif hófust um þessi
mál, að Samvinnubankinn er f
ábyrgðum fyrir erlendum lánum,
sem tekin voru vegna kaupa á
þotum Air Viking. Fyrir þessum
ábyrgðum er fyrsti veðréttur f
þotum félagsins auk annarra
trygginga. Lán þessi voru til fimm
ára og ábyrgð bankans hefur
lækkað vegna afborgana sem
þegar hafa farið fram af þessum
lánum.
Abyrgð þessi er þau einu
viðskipti sem Samvinnubankinn
hefur átt við Air Viking.
Forstjóri Alafoss hefur beðið
Morgunblaðið að koma eftirfar-
andi á framfæri:
I tilefni að greinargerð Guðna
Þórðarsonar frá 9. þ.m., þar sem
m.a. er vikið að þvf, að
„Seðlabanki Islands hafi veitt
Alafoss h/f fyrirgreiðslu, sem
nemi ársumsetningu fyrirtækis-
ins“ viljum vér taka fram eftirfar-
andi til þess að forða því að al-
menningur fái rangar hugmyndir
um fyrirgreiðslu til Álafoss h/f:
Álafoss h/f hefur aldrei fengið
lán hjá Seðlabanka Islands.
HP 1125
Bestu kaupin i milliverðflokki rafmagns-
rakvéla. Hún er með rakhaus með 3
rakhnífum, sem tryggir frábæran og
mjúkan rakstur Þessa vél er hægt að nota
á ferðalögum um viða^.-------
veröld, þar sem búry^@§ífe
er með •nnbvggðumi(^^gjn^^^™í^'l\
straumbrevtí.____já\j<í™%||IWí^.
HP 1124 G
Þetta er vélin fyrir þá, sem kjósa ódýra en góða
rafmagnsrakvél.
Þessi vél er eins og allar aðrar gerðir af Philips
rakvélum með 90 super rakhnifum.
Nýtt og endurbætt lag orsakar að vélin fer betur i
hendi en áður.
Þessi 2 rakhnifa vél er tæknilega
alveg eins og HP 1124. Eini munurinn
er sá, að þessi vél er geymd I
mjúkum gervileðurpoka en HP 1124
er i plastkassa. -
Rakvél með hleðslutæki
og rakhaus með 3
stillanlegum rakhnifum.
Þetta er rakvélin fyrir
þá. sem vilja aðeins það
besta. Þessi rakvél sam-
einar alla kosti
s í einnr vél — 1
fullkomna
^™KWvtælln^G®a
ft^xh önnnn,
/ I stillan -
, /yjy/JJ lega
^S^ÍjöSOáfrakhnifa
11 f11'LLIhleðslu
tæki.
HP 1119
Þessi nýja 3 rakhnifa vél er
með innbyggðum bart-
skera, samskonar og er i
Philips Exclusive.
Og vitaskuld er hún líka
með hinum nýju
90 super
rakhnífum
HEIMILISTÆKISF
HAFNARSTRÆTI 3 s: 20455
SA.TÚNI 8 s: 15655
Rakvólin með stillanlegum rakhnifum og
bartskera. Karlmenn hafa misjafna húð og
skeggrót. Philips sendir þvi nú á markað-
inn Philips Exclusive rakvélina, mað rak
hnífum, sem hægt er að stilla eftir
þörfum hvers og eins.
FULLKOMIN VARAHLUTAÞJÓNUSTA
SÆTÚNI 8 s: 13869
kann tökin
á tækninni