Morgunblaðið - 24.11.1976, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976
LOFTLEIDIR
ZT 2 1190 2 11 88
FERÐABiLAR hf.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hóp*erÓabílar og jeppar.
Kvikmyndir af
fuglalífi í
Norræna húsinu
Fulgaverndarfélag Islands
heldur fræðslufund f Norræna
húsinu annað kvöld fimmtudag
kl. 20.30.
Það verða sýndar litkvikmyndir
af fuglalifi i ýmsum löndum, —
meðal annars myndir frá norður-
strönd Þýzkalands og myndir frá
Disney.
öllum er heimill aðgangur að
fundinum meðan húsrúm leyfir.
20 keppendur á
Unglingameist-
aramótinu í skák
NtJ STENDUR yfir unglinga-
meistaramðt fslands I skák. Mótið
hófst sl. sunnudag og teflt er í
Skákheimilinu við Grensásveg.
Er þetta I fyrsta sinn sem slíkt
mót er haldið, en það er skv. nýrri
skipan á Skákþingi fslands, sem
tók gildi f ár. Þátttaka miðast við
unginga fædda 1956 og sfðar.
Sigurvegarinn hlýtur titilinn
„unglingaskákmeistari fslands
1976“ og fær rétt til þátttöku í
áskorendaflokki á næsta Skák-
þingi, sem haldið verður að venju
um páskana. Sömuleiðis rétt til að
keppa fyrir Islands hönd á alþjóð-
legu unglingaskákmóti í Halls-
berg í Svíþjóð um áramótin.
Skáksamband lslands stendur
fyrir mótinu og greiðir m.a. far-
gjöld fyrir unglinga utan af landi,
sem eru 5, bæði frá Austfjörðum
og Vestfjörðum. Alls eru 20 þátt-
takendur í mótinu. Tefldar verða
7 umferðir eftir Monradkerfi, en
mótinu lýkur nk. laugardag. Móts-
stjórar eru þeir Bjarki Bragason
og Ómar Jónsson, en Guðbjartur
Guðmundsson er skákdómari.
Islendingur for-
seti Evrópu-
stjómar Kiwanis-
hreyfingarinnar
Bjarni B. Ásgeirsson skrifstofu-
stjóri hefur verið kjörinn forseti
Evrópustjórnar Kiwanishreyfing-
arinnar og'tók við störfum 1, okt.
s.l.
Bjarni er annar Islendingurinn
sem kjörinn er til þess starfs. Páll
H. Pálsson forstjóri gegndi þessu
starfi fyrir nokkrum árum.
Einnig tók við störfum sem um-
dæmisstjóri fyrir Island 1. okt. s.l.
Bjarni Magnússon bankastjóri.
Úlvarp Reykjavík
w
MIÐMIKUDKGUR
24. nóvember
MORGUNNINN
7.00 Morguhútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Guðrún Guðlaugsdóttir
les söguna „Halastjörnuna"
eftir Tove Jansson (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45 Létt lög milli
atriða. Drög að útgáfusögu
kirkjulegra og trúarlegra
blaða og tfmarita á fslandi
kl. 10.25: Séra Björn Jónsson
á Akranesi flytur fimmta er-
indi sitt.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Vladimfr Ashkenazý leikur á
píanó „Kreisleriana", átta
fantasfur op. 16 eftir Robert
Schumann / Elly Ameling
syngur úr „ftölsku Ijóðabók-
inni“ eftir Hugo Wolf: Dalt-
on Baldwin leikur á pfanó.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tiikynningar. Við vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Lögg-
an, sem hló“ eftir Maj
Sjöwall og Per Wahlöö.Ólaf-
ur Jónsson les þýðingu sfna
(3).
15.00 Miðdegistónleikar.
Martin Jones leikur á pfanó
Fjögur rómantfsk smálög eft-
ir Alan Rawsthorne. Igor
Gavrysh og Tatjana
Sadovskaja leika Sónötu fyr-
ir selló og pfanó eftir Hinder-
mith.
Fflharmonfusveitin í New
York leikur Klassfsku sin-
fónfuna f D-dúr op. 25 eftir
Prokofjeff; Leonard Bern-
stein stjórnar.
15.45 Frá Sameinuðu þjóðun-
um. Sofffa Guðmundsdóttir
segir fréttir frá allsherjar-
þinginu.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 Utvarpssaga barnanna:
„óli frá Skuld“ eftir Stefán
Jónsson. Glsli Halldórsson
leikari les (14).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ______________________
19.35 Rennsli vatns um berg-
grunn tslands og uppruni
hvera og linda. Dr. Bragi
Árnason prófessor flytur
annað erindi flokksins um
rannsóknir f verkfræði- og
raunvfsindadeild háskólans.
20.00 Kvöldvaka
a. Einsöngur: Engel Lund
syngur fslenzk þjóðlög f út-
setningu Ferdinands Raut-
ers. Dr. Páll Isólfsson leikur
á pfanó.
b. Bóndinn á Brúnum. Sverr-
ir Kristjánsson sagnfræðing-
ur flytur þriðja hluta frásögu
sinnar.
c. Vísur og kvæði eftir Lárus
Salómonsson. Valdimar
Lárusson les.
d. Miðf jarðardfsin. Rósa
Gfsladóttir les sögu úr þjóð-
sagnasafni Sigfúsar Sigfús-
sonar.
e. Kynni mfn af huldufólki.
Jón Arnfinnsson segir frá.
Kristján Þórsteinsson les frá-
sögnina.
f. Haldið til haga. Grfmur M.
Helgason cand. mag. flytur
þáttinn.
g. Kórsöngur: Karlakórinn
Fóstbræður syngur. Söng-
stjóri: Jón Þórarinsson.
Pfanóleikari: Carl BiIIich.
21.30 Utvarpssagan: „Nýjar
raddir, nýir staðir" eftir
Truman Capote. Atli
Magnússon les þýðingu sfna
(9).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Minningabók
Þorvalds Thoroddsens“
Sveinn Skorri Höskuldsson
les (14).
22.40 Djassþáttur. f umsjá
Jóns Múla Árnasonar.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
24. nóvember 1976
18.00 Þúsunddyrahúsið
Norsk myndasaga.
Hola eikin
þýðandi Gréta Sigfúsdóttir.
Sögumaður Þórhallur Sig-
urðsson. (Nordvision —
Norska sjónvarpið)
18.20
Skipbrotsmennirnir. Ástralsk-
ur myndaflokkur.
7. þáttur. Steingervingarnir.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
18.45 Gluggar
Bresk fræðslumyndasyrpa.
Furðuleg listaverk
Sólhlffar úr bambus
Vatnsveitur
Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækni og vfs-
indi
Nýjar gerðir flugvéla
Hávaði, hiti og svefn
Veirurannsóknir
Fornleifarannsóknir neðan-
sjávar.
Umsjónarmaður Örnólfur
Thorlacíus.
21.05 A tfunda tfmanum
Norska popphljómsveitin
Popol Ace flytur rokktón-
list.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
21.50 Undir Pólstjörnunni.
Finnskur framhaldsmynda-
flokkur f 6 þáttum byggður
á samnefndri skáldsögu eft-
ir Váinö Linna.
Leikstjóri Edvin Laine.
Aðalhlutverk Aarno Sulkan-
en, Titta Karakorpi, Matti
Ranín, Anja Pohjola og
Risto Taulo.
1. þáttur. Hjáleígubóndinn.
Rakin er saga Koskela-
ættarinnar frá aldamótum
sfðustu og fram á miðja öld.
Jussi Koskela, sem er vinnu-
maður á prestsetri, gerist
hjáieigubóndi. Lýst er við-
horfum og Iffsbaráttu kot-
bóndans, en jafnframt er
dregin upp mynd af þeim
miklu umbrotum, sem urðu
f finnsku þjóðlffi á fyrri
hluta aldarinnar og hrundu
af stað innanlandsstyrjöld-
inni 1918.
Þýðandi Kristfn Mántylá.
22.40 Dagskrárlok
i ncKHeeo.
Morgun-
tónleikar
Tveir listamenn, sem eru
islendingum ekki ókunnir verða i
morguntónleikum útvarpsins I
dag. kl. 11. Eru það Vladimir Ash-
kenazy og Elly Ameling.
Vladimir Ashkenazy leikur á pianó
„Kreisleriana ", átta fantasíur op 16
eftir Robert Schumann. Elly
Ameling, sem hélt í haust tónleika i
Reykjavík við mikla hrifningu,
syngur úr „ítölsku Ijóðabókinni'' eftir
Hugo Wolf, Dalton Baldwin leikur
undir á píanó.
Hér er Ashkenazy við
hljómsveitarstjórn, en I morgun-
tónleikunum verður hann við
pianóið.
1 ÞÆTTINUM Nýjasta tækni og vfsindi verður m.a. f jallað um nýjar gerðir flugvéla. Margir munu þó
kannast við þær tegundir sem við sjáum á þessari mynd.
Tveir fróðlegir þættir
TVEIR fræðsluþættir eru á
dagskrá sjónvarps f kvöld, ann-
ar kl. 18:45 og hinn kl. 20:40.
Hinn fyrri er fremur ætlaður
yngri áhorfendunum og nefnist
Gluggar. Hefur hann áður verið
á dagskránni og óhætt að segja
að hann sé ætíð forvitnilegur. I
dag verður greint frá furðuleg-
um listaverkum, sólhlífum úr
bambus og vatnsveitum.
Síðari fræðsluþátturinn er
Nýjasta tækni og vísindi. Um-
sjónarmaður hans frá upphafi
hefur verið örnólfur Thor-
lacius ásamt aðstoðarfólki.
Þessi þáttur er ekki siður fróð-
legur en Gluggar og þau efni
sem verða til meðferðar eru:
Nýjar gerðir flugvéla; hávaði,
hiti og svefn; veirurannsóknir
og fornleifarannsóknir neðan-
sjávar.
Erindi um hveri og lindir
ANNAÐ erindi f flokknum um
rannsóknir f verkfræði- og
raunvfsindadeild Háskóla Is-
lands verður flutt kl. 19:35 f
kvöld.
Dr. Bragi Árnason prófessor
mun tala um rennsli vatns um
berggrunn Islands og uppruna
hvera og linda. Hefst það eins
og fyrr segir kl. 19:35 og er um
25 minútna langt.