Morgunblaðið - 24.11.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.11.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976 Rússar þverbrjóta reglur um möskvastærðir: Togarinn „Golub” tek- inn við Noregsstrendur NORSKA eftirlitsskipið „Heim- dal“ og norski togarinn „Pers- fjord“, komust að þvl I lok októ- ber s.l. að rússneskir togarar þverbrjóta allar reglugerðir um möskvastærðir á botnvörpu, að því að norska blaðið Fiskaren seg- ir fyrir stuttu. Blaðið segir að „Heimdal," hafði stöðvað rússneska togarann „Golub" norðaustur af Vardö, en er menn frá eftirlitsskipinu komu um borð, var þeim tilkynnt, að „Golub“ hefði misst trollið, er verið var að hifa það inn. Togar- anum „Persfjord“, sem var næsr- staddur tókst að finna trollið með sínum tækjum, og ná því um borð. Þegar trollið var komið inn á dekk „Persfjord" kom í ljós, að trollið var allt klætt að innan með fíngerðu neti, og var möskva- stærðin þar 60-—65 millimetrar, en leyfileg lágmarksmöskvastærð MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfiriýsing frá nokkr- um helztu bflasölum Reykjavfk- ur: Við lýsum yfir stuðningi okkar við starfsmenn Bifreiðaeftirlits rfkisins í baráttu þeirra fyrir bættri starfsaðstöðu og breyting- um á skráningu bifreiða. Einnig viljum við lýsa furðu okkar á F.I.B. fyrir afstöðu sina til til- lagna dómsmálaráðherra um breytingar á umferðarlögum. Fróðlegt væri að vita hve margir félagsmenn innan F.I.B. styddu fréttatilkynningu þá, sem F.l.B. hefur gefið út eftir landsþing sfn sfðastliðin tvö ár. Með þeirri af- stöðu, sem fréttatilkynningin fel- ur í sér, teljum við, að félagið sé að vinna á móti hagsmunum hins almenna bifreiðaeiganda. Við álítum okkur þekkja vel þá fyrir- höfn og þau vandamál, sem upp koma vegna núverandi fyrir- komulags á umskráningu bifreiða og erum við sannfærðir um, að Heybruni á Snæfellsnesi Borg, Miklaholtshreppi, 22. nóvember — KLUKKAN um 10 á sunnudags- morguninn var beðið um aðstoð vegna bruna, sem kom upp í þurr- heyshlöðu á Höfða i Eyjahreppi. Hjálp bæ-st fljótlega og einnig kom á staðinn brunabíll, sem hreppsfélög á sunnanverðu Snæfellsnesi eiga saman, og stað- settur er hér í Miklaholtshreppi. Hlaðan, sem eldurinn kom upp í, er stálgrindarbraggi. I öðrum enda braggans var vothey, en það skemmdist ek'-.i, en allt þurrheyið varð ónýt* bæði af eldi og vatni. Hlaðan skemmdist ekki. Alls munu hafa orðið ónýtir um 300 til 400 hestburðir, en heyið var vá- tryggt. Á Höfða búa tveir ungir bændur, sem hófu þar búskap fyr- ir þremur árum. — Páll. Vikan stækkar VIKAN kemur á finn rntuda út i nokkuð breyCurn u lingi. Vikan stækkar að b s ; n álta sfður en viðbót þe.,M i því að öllum mynr ögur.i rikuni iar er safnað saman sér dakle ga i myndasögublað. Ei j< ssi br< sytirig gerð með það í hu endur geti safnað s»man * ;ögun- um. Ymsar fleiri i.r» iða á efni blaó' er 120 mm. Var þetta siðan kært til Norðaustur-Atlantshafsfisk - veiðinefndarinnar. Skipstjórinn á „Heimdal“ Finn Bardsen, sagði að þrfr rússneskir togarar hafi misst trollið, þegar menn frá „Heimdal" hafi verið að koma um borð, skömmu áður en farið var að „Golub“. Segir skip- stjórinn að það sé einkennilegt i meira lagi að rússnesku togararn- ir skuli ávallt missa veiðarfæri sín, er menn frá eftirlitsskipinu séu að koma um borð. Og þá sér- staklega þegar togbotninn sé mjög góður. Fiskaren hefur eftir skipstjór- anum, að einu togararnir sem ekki noti ólögleg veiðarfæri á þessum slóðum og á miðunum við Bjarnarey séu norskir og brezkir. Rússneskir, v-þýzkir, og franskir togarar hafi verið staðnir að verki að nota ólögleg veiðarfæri. breytingar þar að lútandi yrðu til mikils hagræðis og sparnaðar." — Gundelach Framhald af hls. 1. brezka fiskmarkaðinn. John Prescott sagði í dag, að með þessari afstöðu tæki lands- sambandið skakkan pól í hæðina, þar sem fyrri reynsla sýndi að ekki þýddi að sýna Islendingum í tvo heimana. Hann kvaðst þess fullviss, að nú ylti það ekki á öðru en hæfni Gundelachs hvort nýr samningur fengist við tslendinga þegar samningar rynnu út um næstu mánaðamót. Þeir ráðherrar aðildarrfkja EBE, sem fara með sjávarútvegs- mál, koma saman til funda r í Briissel 14. desember til að ákveða hvernig skiptingu afla innan hinnar sameiginlegu 200 mflna lögsögu bandalagsins verði háttað, að þvf er áreiðanlegar heimildir innan bandalagsins skýrðu frá í dag. Helzta ágreiningsefnið, sem taka verður afstöðu til á fundi þessum, er krafa Breta og Ira til 50 mílna einkalögsögu innan EBE-lögsögunnar, en auk þess munu ráðherrarnir freista þess að ná samkomulagi um leyfilegt afla- magn hvers aðildarríkis og hvern- ig hagað verði löggæzlu á miðum Efnahagsbandalagsins. — Rúmenía Framhald af bls. 1. ágreiningur kæmi í veg fyrir sam- vinnu áýmsum sviðum. Stjórnmálaskýrendur líta svo á, að skálaræðurnar hafi verið stað- festing á því að þótt skoðanir leið- toganna séu skiptar f ýmsum mál- um þá muni það ekki standa í vegi fyrir tiltölulega vinsamlegum samskiptum Sovétmanna og Rúm- ena. Eftir því var tekið að Ceausescu lýsti því yfir í ræðu sinni, að Rúmenar byggðu utanríkisstefnu sfna á virðingu fyrir sjálfstæði þjóða og hlutleysi um innanríkis- mál annarra, en Brezhnev minn- ist hins vegar ekki á neitt slíkt. I dag áttu kommúnistaleið- togarnir tvo fundi saman. — Húsleit Framhald af bls. 1. andófsmenn á sfðari árum þar sem yfir völd hafa meinað henni aðgang að nauðsynlegu að kunnur baráttumaður fyrir kristinni trú hafi verið látinn laus. Hann dvaldist f sex vikur á geðsjúkra- húsi þar sem hann fékk lyf er leiddu til krampakasta. — Israel og Líbanon Framhald af bls. 1. leyti en því að forsætisráðherr- ann, Simon Peres, varnarmálaráð- herra, og Mordechai Gur, hers- höfðingi, hefðu gefið skýrslu um ástandið. Hershöfðingi úr varaliði Israelsmanna, Samuel Gonen, hélt því fram í dag, að Arabar væru að undirbúa skyndiáhlaup á Israel, en heimildarmenn innan stjórnarinnar telja ósennilegt að svo sé. Yigal Allon utanrfkisráðherra itrekaði f Hollandi í dag, að Israelsmenn vildu frið, og að hann væri reiðubúinn til að hitta Ismail Fahmi utanrfkisráðherra Egyptalands hvar sem væri, — hvenær sem væri — jafnvel f Kaíró. — Rhodesía Framhald af bls. 1. um bundin áður en hafizt verði handa um undirbúning mynd- unar bráðabirgðastjórnar, en heimildarmenn telja, að þeir geti nú fallizt á að dagsetningu verði frestað þar til bráða- birgðastjórn hefur verið mynduð. Nkomo og Mugabe hafa ekki svarað þessari tillögu brezku stjórnarinnar, en búizt er við að þeir geri það á morgun. Þá herma fregnir, að þeir hyggist leggja til að efnt verði til beinna kosninga f Rhódesíu f nóvember á næsta ári. — Kvóta- viðræður Framhald af bls. 1. í 200 mflur, því að ella gætu allar þjóðir haldið áfram að veiða þar upp að 12 mflum eins og verið hefur hingað til. Þá kann þessi þróun á fundinum i Lundúnum að hafa það f för með sér að Norðmenn eigi ekki annars úrkosta en að færa út f 200 mílur við Svalbarða til að vernda uppeldisstöðvar á þeim slóðum. Að þvf er veiðar Austur- Evrópuþjóðanna á miðum Norðmanna f Norðursjónum áhrærir, þá geta þær haldið áfram eins og áður hefur ákveð- ið, en Norðmenn hafa veitt þeim heimild til að veiða þar rúmlega 100 þúsund tonn á ári. Efnahagsbandalagið heldur þvf fram, að Austur- Evrópuþjóðirnar hafi ekki rétt til veiða innan 200 mílna EBE i Norðursjónum, og gerir því ráð fyrir að togarar þaðan hætti veiðum þar þangað til sam- komulag hefur tekizt um kvóta- skiptingu á vegum Norðaustur- atlantshafsfiskveiðinefndar- innar, en slfk lausn er ekki á næsta leiti. EBE-menn óttast nú að með þvf að fallast á kvótaskiptingu Norðursjávaraflans milli rfkjanna 17, sem aðild eiga að nefndinni, kunni þeir að hafa samið af sér og samþykkt rétt Austur-Evrópurfkjanna til veiða f Norðursjónum. Viðræður á fundinum halda áfram á morgun, en sem fyrr segir bendir allt til þess að þær verði árangurslausar. — Kostnaður Framhald af bls. 32. holan á landinu. Hins vegar er ekkert hægt að segja um afköst hennar á þessu stigi málsins. og mun það ekki koma f ljós fyrr en á næstu dögum. Að sögn Axels Björnssonar, jarðfræðings hjá Orkustofnun, er skjálftavirknin í Kröflu nú í lágmarki, og jarðskjálftar þar fáir um þessar mundir eða færri en fimm á sólarhring. Þó á sér stað núna nokkurt landris, sem greina má með hallamæl- ingum á stöðvarhúsinu f Kröflu. Axel kvað risið hafa verið allört nú um skeið, enda þótt eitthvað hefði .dregið úr þvi nú síðustu vikuna. Hallabreytingin á stöðvarhús- inu framan af þessum mánuði var u.þ.b. 0,2 millimetrar á sólarhring, þ.e.a.s. að norður- endi hússins reis um það miðað við suðurenda þess, en þetta samsvarar þvf að landið milli Leirhnúks og Vítis, þar sem ris- ið hefur verið mest, rísi um 10 millimetra á dag. Axel sagði, að nú sfðustu dagana hefði aftur á móti dregið töluvert úr landris- inu eða jafnvel allt um helm- ing. RISIÐ t HÁMARK UM ARAMÓT Axel sagði, að þessi þróun væri f sjálfu sér ekkert með öðrum hætti en menn hefðu átt von á, þar sem þetta hefði átt sér stað áður — landið lækkaði skyndilega en tæki svo að rfsa að nýju með hægum en jöfnum hraða. Axel kvað erfitt að geta sér til um hvenær landrisið nú yrði komið í það hámark, sem það komst hæst í áður. Miðað við að landið hefði haldið áfram að rfsa með sama hraða og var framan af mánuðinum, hefðu menn átt von á því að hámark- inu væri náð einhvern tima í desember en vegna breyting- anna siðustu daga mætti hins vegar gera ráð fyrir að einhver seinkun yrði á þvf, að landrisið kæmist í þetta hámark en gizka mætti á, að það yrði einhvern tima nálægt áramótunum. Sam- kvæmt þessu mætti ætla að ró- legt yrði á Kröflu fram undir áramót varðandi goshættu. — Kosið Framhald af bls. 15 biðstöðvum stætisvagna og á járn- brautarstöðvum. 1 aðalfyrirsögn á forsfðu var skorað á kjósendur að sitja heima. Jafnframt hækkaði Juan Carlos í tign í dag hershöfðingjann Antonio Aranda Mata, sem er 88 ára og féll i ónáð hjá Franco fyrir 27 árum, þegar hann lagði til að hann segði af sér og Don Juan, faðir núverandi konungs, tæki við. — Maður í höfnina Framhald af bls. 32. haldið áfram með vélum og þegar á sjúkradeild Borgarspftalans kom, var maðurinn farinn að anda reglulega en hafði ekki komið til meðvitundar. Að sögn sjónarvotta kom maðurinn niður á Faxagarð I leigubfl, sté út úr honum, gekk nokkurn spöl eftir bryggjunni en féll svo f sjóinn. Leigubflstjórinn gerði lögregl- unni viðvart. — Mjóik Framhaid af bls. 15 Giovanni Marcora tók í sama streng og kvaðst hafa haft gott af þvi að drekka mjólk frá barn- æsku. Ráðherrarnir voru að ræða til- lögur um að útvega nemendum barnaskóla ódýra mjólk. Einn ráð- herrann sagði að börn sem drykkju mjólk með of miklu fitu- magni fengju hjartakvilla síðar á ævinni. — Viðræður Framhald af bls. 32. Gallagher, einn af framkvæmda- stjórum í utanrfkisnefnd banda- lagsins. Kom hann til landsins f gær, eða einum degi á undan hin- um nefndarmönnunum. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem Mbl. aflaði sér i gær, kemur Gallagher hingað á undan hinum til að undirbúa viðræðurnar. — Olíuhækkun Framhald af bls. 32. hjá stofnuninni á áhrifum verð- hækkunar hráolfu. Samkvæmt henni væri áætlað að 10% hækk- un á hráolfu hefði i för með sér 6 til 7% hækkun á unnum olfuvör- um ef hækkunin kemur strétx að fullu fram í skráningu. Þegar sið- asta hækkun varð fyrir tæplega tveimur árum leið hins vegar nokkur tfmi þar til hækkunin kom fram í markaðsverði. Áætlað er að innflutningur Is- lendinga á olfuafurðum á þessu ári verði að verðmæti um 10 til 10lA milljarður. Ef reiknað er með að 10% hækkun á hráolfu komi strax fram f skráningu, má því búast við að útgjaldaaukning á næsta ári verði 600 til 700 milljón- ir króna. Leggja ber þó áherzlu á að þetta eru fremur ónákvæmar tölur, þar sem ekki er vitað hve mikil oliukaup okkar verða auk þess sem margir markaðsþættir eru mjög óljósir. — Formaður Varðar Framhald af bls. 2 Guðlaugsson fyrir ódýrum utan- landsferðum fyrir félaga, sem margir notfærðu sér, og félagið hafði nokkrar tekjur af. Þá fór fram stjórnarkjör. Kjör- nefnd gerði uppástungu um for- mann og sex stjórnarmenn oog voru þeir allir kjörnir. Björgúlfur Guðmundsson kjörinn formaður, hlaut 149 atkvæði. Uppástunga kom um Bjarna Helgason, sem hlaut 61 atkvæði. I stjórn voru kjörin Áslaug Ragnars með 137 atkvæðum, Brynjólfur Bjarnason með 152 atkvæðum, Guðmundur J. Óskarsson með 149 atkvæðum, Hilmar Guðlaugsson með 156 at- kvæðum, Óskar V. Friðriksson með 125 atkvæðum og Óttar Ottósson með 126 atkvæðum. Uppástungur komu ennfremur um eftirtalda menn: Gústaf B. Einarsson hlaut 77 atkvæði, Sig- ríður Valdimarsdóttir 50, Egill Snorrason 39, Jónas Eliasson 64 atkvæði, Ingibjörg Rafnar 43 at- kvæði. I varastjórn voru kosnir Gústaf B. Einarsson, Gunnlaugur Claessen og Kristfn Sjöfn Helga- dóttir. Endurskoðendur voru endurkjörnir, þeir Hannes Þ. Sigurðsson og Ottó J. Ólafsson. — Einn mesti... Framhald af bls. 15 Malraux kom á fót flugsveit sem barðist með lýðveldissinn- um í borgarastrfðinu á Spáni, fór 65 árásarferðir og sagði frá reynslu sinni í skáldsögunni „L’espoir". Þegar sfðari heimsstyrjöldin hófst gekk hann í skriðdreka- sveitirnar sem de Gaulle var foringi f, var tekinn til fanga af Þjóðverjum, komst undan, gekk í neðanjarðarhreyfinguna og samdi enn eina skáldsögu um reynslu sfna. Hann var aftur tekinn til fanga 1944 þegar hann var fylgdarmaður tveggja brezkra liðsforingja sem var varpað til jarðar f fallhlíf og varðist Þjóð- verjum sem veittu þeim eftir- för til að gera Bretunum kleift að flýja. Hann slapp úr haldi þegar Bandamenn frelsuðu Toulouse og fór til vígstöðv- anna með sveit sjálfboðaliða. Malraux hitti de Gaulle fyrst 1944, var upplýsingaráðherra hans um skeið og hjálpaði honum að skipuleggja gaullista- flokkinn. Jafnframt samdi hann fræga listasögu. De Gaulle skipaði hann upp- lýsingaráðherra 1959 og þvf starfi gegndi hann f 10 ár. Hann stóð fyrir hreinsun bygginga i Píirís, gróf upp gleymd lista- verk úr kjöllurum Louvre og setti þau á sýningu og hafði umsjón með endurreisn Versala. Hann var gagnrýndur fyrir að viðhalda ritskoðun kvikmynda og leikrita af tillits- semi við siðavendni frú de Gaulle og leyfa byggingu skýja- kljúfa f Parfs. Malraux hætti stjórnmálaaf- skiptum þegar de Gaulle dró sig í hlé og einbeitti sér að ævi- minningum sfnum. Fyrsta bindið birtist 1968 og var til- einkað Jacqueline Kennedy, sem skömmu sfðar giftist skipa- kónginum Onassis. Áð 1971 bauðst Malraux til að berjast í stríðinu um sjálf- stæði Bangladesh en boðinu var hafnað. Bílasalar lýsa yfir stuðmngi við starfemenn Bifreiðaeftirlitsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.