Morgunblaðið - 24.11.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976
7
Litasjónvarp
Ellert B. Schram hefur
flutt tillögu til þingsálykt-
unar, þar sem Alþingi
skorar i rfkisstjómina að
stuðla að þvl, að Islenzka
sjónvarpið geti hafið
reglulegar litaútsending-
ar. Tillagan gerir ráð fyrir
þvi að þetta gerist með
þrennum hætti:
1) með þvi að sam-
þykkja áætlun. sem Sjón-
varpið hefur látið gjöra
hvern veg staðið skuli að
þessari framkvæmd I
áföngum.
2) að gefa innflutning á
litasjónvarpstækjum
frjálsan.
3) ákveða að tolltekjum
af innflutningi slikra
tækja verði varið til
endurbóta á tækjum og
dreifikerfi sjónvarps.
Rökstuðningur
Rökstuðningur
flutningsmanns var efnis-
lega þessi:
A) Innflutningur 2000
litasjónvarpstskja á ári
þýddi um 200 milljónir
króna I gjaldeyriseyðslu,
sem er Iftið brot af heildar
gjaldeyriseyðslu okkar á
ári, sem eru u.þ.b. 60.000
m.kr. Hinsvegar gæfi slfk-
ur innflutningur f sköttun
(tollum) tekjur, sem flýtt
gætu verulega fyrir þvf að
sjónvarp næði til landsins
alls og fiskimiðanna um-
hverfis það.
B) Drjúgur hluti inn-
flutts sjónvarpsefnis er
þegar f litum og eðlilegt
að landsmenn fái að njóta
þess sem slfks. Innlent
sjónvarpsefni (sjónvarps-
þættir) væri og auðveld-
ara erlendum sjónvarps-
stoðvum, unnið í lit. Ekki
þyrfti þó að hverfa alfarið
að litunnu efni, heldur
láta fjárhagsgetu ráða
ferð f þvf efni.
C) Eðlilegt er að hver og
einn ráði þvf, hvort hann
horfir á sjónvarp f lit eða
„svart-hvftu" sem og
hvaða efni hann horfir á.
Þar ráði persónulegur
smekkur og mat hvers og
eins en ekki stjórnun
„ofan frá".
D) Óeðlilegt er að
banna innflutning á sjón-
varpstækjum, þegar nær
allur annar innflutningur
er leyfður, þ.á.m. á áfengi
og tóbaki, þó eðlilegt sé
að setja slfkum innflutn-
ingi eitthvert hámark á ári
hverju, fyrst um sinn.
Mótrökin
ÞaS einkennilega skeði,
er mál þetta var rætt á
Alþingi, að andstaSan.
sem heyranleg var, kom
Ellert B. Schram
alfarið úr röSum AlþýSu-
bandalagsins. Rökin voru
efnislega þau, aS „opnun
flóðgáttar" I þessu efni'
kostaði gjaldeyri. Auki
þess væri sjónvarp plága
víSa um heim. sem vinna
þyrfti gegn að færði út
hviar hér. Kostir sjón-
varps hér væru einkum
þeir, hve stuttan tlma
dags, viku og árs útsend-
ingar stæðu. Litir væru af-
skræmdir og bjagaðir i
sjónvarpi. þjóðhöfðingar
birtust jafnvel með „græn
nef" á skjánum. Að siS-
ustu komu svo fjárhags-
leg mótrök, en litt tölum
studd.
Otvarpið fékk hliSstæS-
ar móttökur á sinum tima
— og einhverjir ömuðust
við sima. ef rétt er mun-
aS. Undir það skal aS visu
tekið aS sjónvarpsdagskrá
þarf betur að vanda en nú
er gert, gjöra meira af inn-
lendu efni úr daglegu lifi
og starfi til sjós og lands.
auka á fróðleik og upp-
byggjandi efni og Jleira
mætti til tina. En það þarf
einnig að vanda betur
svokallaða „skemmti-
þætti" í rikisfjölmiðlum,
sem oft á tiðum hafa
reynst hrútleiðinlegir og
fjölhæfa efnið að sem
flestra smekk og áhuga.
Siðan verða menn að læra
að velja og hafna. En rétt-
urinn til að velja og hafna
á að vera ótvirætt i
höndum fólksins sjálfs, ef
rétt er að málum staðið.
Enginn dómur
álagður
Hér skal enginn dómur
lagður á ágæti eða glalla
litasjónvarps sem sllks.
Hitt virðist raunhæft að
meta mál svo, að innflutn-
ingur litasjónvarpa, miðað
við 2000 tæki sem
hámark á ári, hafi engin
afgerandi áhrif á gjald-
eyrisstöðu okkar út á við,
en getur hins vegar flýtt
verulega fyrir dreifingu
sjónvarpsefnis til landsins
alls sem og nauðsynleg
umbótum á dreifikerfinu
Nú, þegar kemur að
endurnýjun þorra
sjónvarpstækja I landinu,
væri og ranglátt, ef menn
ættu þess ekki kost að
skipta yfir í litasjónvarp,
ef hugur þeirra stendur til
slíks. í því efni hlýtur vilji
hvers og eins að ráða, en
ekki „sérvizka" þeirra,
sem „ráða vilja fyrir"
sauðsvartan almúgan ein-
angra hann frá þróuninni I
heiminum.
FFL/Ð STYRKASTA STJÓRNMÁLAAFUÐ
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
INNTðKUBEIÐNI
Ég undirritaður óska hér með að gerast meðlimur i:
P] Landsmálafélaginu Verði, sambandi félaga Sjálfstæðis-
manna í hverfum Reykjavíkur:
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Nes-og Melahverfi
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Vestur-og Miðbæjarhverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Austurbæ- og Norðurmýri
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Langholti
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi
I I Félagi Sjálfstæðismanna í Smáibúða- Bústaða- og Foss-
vogshverfi
| l Félagi Sjálfstæðismanna í Árbæjarhverfi
I | Félagi Sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi
| [ Félagi Sjálfstæðismanná í Fella-og Hólahverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi
□ Heimdalli, samtökum ungra Sjálfstæðismanna (16—35
ára)
| j Hvöt, félagi Sjálfstæðiskvenna
Málfundafélaginu Óðni
Reykjavik_______19 _
Undirskrift
Fullt nafn:
Heimilisf: ---------------------------------------------------simi:
Fæðingard. og ár: ______________________ Nafnnúmer:--------------
Staða: ----------------------------------------------------------
Vinnust./simi: --------------------------------------------------
V.
Sendist:
Skrifstofu Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna I Reykjavik Bolholti 7, slmar 82900 — 82963.
/
Seinustu forvöð
Að fá saumuð föt fyrir jól.
Kjólfataefni fyrirliggjandi á hagstæðu verði.
G. Bjarnason & Fjeldsted
Klæðaverzlun
Veltustundi 1. Simi 13369.
MEDAL
BETRI KOICUR
BETRI BRAUÐ
•'SK Hveiti
Heilhveifi
i 1 00 Ibs sekkjum 2*
— Fyrirliggjandi — f ’ \
H. BENEDIKTSSON h.f
Suðurlandsbraut 4 simi 38300 /
Kjólaefni í úrvali
Slétt flauel
einlitt og mynstrað
Riffíad f/aue/
einlitt og mynstrað