Morgunblaðið - 24.11.1976, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976
Minning:
Ragnar Jóhannes-
son fv. skólastjóri
F. 14. maí 1913
D. 16. nóv. 1976.
1 dag er til moldar borinn frá
Fossvogskirkju Ragnar Jóhannes-
son, fyrrverandi skólastjóri, sem
andaðist á Borgarspítalanum i
Reykjavík hinn 16. þ.m. eftir
langa og erfiða sjúkdómslegu.
Ragnar var Dalamaður að upp-
runa, fæddur I Búðardal í Laxár-
dal 14. maí 1913, einkabarn hjón-
anna Jóhannesar Jónssonar skó-
smiðs og verzlunarmanns og Guð-
rúnar Halldórsdóttur.
Þegar Ragnar Jóhannesson er
kvaddur hinstu kveðju, er margs
að minnast. Gamlir samferða-
menn muna hann sem óvenjulega
glæstan æskumann í Mennta-
skólanum á Akureyri, þaðan sem
hann brautskráðist stúdent vorið
1934. Hann var svo bráðgjör, að
þegar á unga aldri orti hann ljóð
og samdi sögur. Snemma var
hann listaskrifari og svo snjall
teiknari, að venjuleg pappírsörk
eða jafnvel smámiði gat á svip-
stundu orðið augnayndi í með-
förum hans. Á stúdentsárum
sinum i Háskóla íslands, þaðan
sem hann lauk kandidatsprófi í
íslenzkum fræðum árið 1939, var
hann hrókur alls fagnaðar og átti
mikinn þátt í félgaslífi stúdenta,
orti þá mörg tækifærisljóð, oft
söngtexta, sem lífguðu upp á sam-
kvæmi. Einnig setti hann saman
leikþætti, kryddaða gamansemi,
en einnig með alvarlegu ívafi, ef
svo bar undir. Skólaárin voru
Ragnari jafnan hugstæðari en al-
mennt gerist, eins og bezt sést á
því, hve mikinn þátt hann tók
lengi fram eftir ævi i margvís-
legum félagsskap stúdenta.
Þegar út í lifið kom, leitaði
margt á hug Ragnars. Hér gefst
ekki rúm til að rekja æviferil
hans, enda óþarft um þjóðkunnan
mann, sem lesa má um i hand-
bókum. Þess skal aðeins getið, að
samhliða blaðamennsku, fulltrúa-
störfum og skólastjórn fékkst
hann jafnan við margvisleg rit-
störf, og liggur margt eftir hann á
því sviði, bæði frumsamið og þýtt.
Var mikið af þvi flutt í útvarpi, en
margt hefur einnig birzt á prenti.
I blóma aldurs sins var hann full-
trúí í skrifstofu útvarpsráós um
fimm ára skeið og síðan tólf ár
skólastjóri Gagnfræðaskólans á
Akranesi. Varð hann snemma
þjóðkunnur og vinsæll útvarps-
maður. Naut sin þar vel sköruleg-
ur flutningur hans, og kom
honum þar að góðu haldi listfengi
og staðgóð þekking á bókmennt-
um og sögulegum efnum. Er vafa-
laust stór sá hópur útvarpshlust-
enda víðs vegar um landið, sem
minnist hans með þakklæti frá
liðnum árum. Ragnar hafði einnig
marga ágæta kosti til að bera sem
skólamaður. Sérstaklega hafði
hann gott lag á að umgangast
ungt fólk og setja sig inn í
hugsunarhátt þess. Einnig tók
hann rikulegan þátt i félagslífi á
Akranesi, þar á meðal leiklistar-
starfsemi, enda eignaðist hann
þar trausta vini. Um mörg undan-
farin ár var Ragnar farinn að
heilsu og kröftum.
Eftirlifandi kona Ragnars er
Ragna Jónsdóttir kennari frá
Norðfirði, bæjarstjóra og skatt-
stjóra Sigfússonar og konu hans
Ingibjargar Einarsdóttur. Þau
Ragnar og Ragna bundust ung
tryggðum i Menntaskólanum á
Akureyri, en gengu í hjónaband
11. nóvember 1939. Heimili þeirra
ver lengi að Stóragerði I Reykja-
vík, en nú síðustu mánuðina að
Skjólbraut 10 i Kópavogi. Börn
þeirra eru Ragnar, bygginga-
verkamaður, Ingibjörg, kennari ,
og Guðrún, gift Árna Jónassyni
verkfræðingi. Ragna reyndist
Ragnari hinn traustasti lifsföru-
nautur til hinztu stundar.
Við Kristin sendum Rögnu vin-
konu okkar, bekkjarsystur minni
og sveitunga, börnum hennar og
öðru venzlafólki innilegustu
samúðarkveðju og þökkum þeim
hjónum órofa vináttu og tryggð.
Já, þannig endar lífsins
sólskinssaga.
Vort sumar stendur aðeins fáa
daga.
Á það erum við minnt margan
haustdaginn.
Bjarni Vilhjálmsson.
Veður var kyrrt, himinn heið-
skir og hrimsilfruð fjöll blikuðu i
Pollinum fyrsta morguninn sem
ég vaknaði i heimavist Mennta-
skólans á Akureyri. Það var
haustið 1931. Þá var veröldin svo
fámenn, að leitað var frétta um
hvert nýtt andlit, er fyrir augu
bar. Nokkurt óyndi fylgdi, ef for-
vitni varð ekki svalað. Skólasystk-
in voru heldur ekki fleiri en svo
að læra mátti nöfn alls þorra
þeirra, stöðu og sérkenni á einum
degi eða tveimur, einkum þeirra
er heimavistina byggðu.
Nemendur voru mjög á ferli
þennan morgun, áttu erindi i
bæinn eða róluðu um stéttir skól-
ans og lóð, tveir og tveir eða fleiri
saman. Góða stund fylgdist ég
með þeim, er Eyrarlandsveginn
komu. Ég sé þá fyrir mér og heyri
óm af nöfnum þeirra og tilgreind-
um sérkennum. Láréttir geislar
haustsólar leika um hár þeirra, er
þeir hverfa framhjá mér, bjartir
og örir af göngu upp brekkuna.
Heimildarmaður segir mér nöfn
þeirra: Þetta voru þeir Jón frá
Ljárskógum, það er hann sem
skrifar stóru stundaskrána á
skólaganginum, og Ragnar
Jóhannesson, hann hlaut ágætis-
einkunn í íslenzkum stil á gagn-
fræðaprófinu i vor.
Kynning þessi visaði til list-
fengis beggja. Ágætiseinkunn í
islenzkum stil var svo fágæt i
Menntaskólanum á Akureyri, að I
minnum var haft, er til hennar
var unnið, og ekki þótti heldur
meira vert um neina einkunn, er
þar gefin. RithöntT Jóns var svo
stílfögur, að af bar. Síðar varð
hann þjóðkunnur af ljóðum sin-
um og söngvum, lézt ungur og
varð harmdauði öllum sem hann
þekktu. Báðir voru þeir Dala-
menn, Ragnar og Jón, en þaðan
stafaði ljóma brags og listar.
Kreppa var í landi, fátækt, basl
og harðar sviptingar um lifsskoð-
un og þjóðmálastefnur. En fólkið
i landinu var ekki í kreppu. Æska
þessara ára var getin og alin af
aldamótakynslóðinni nálægt lykt-
um styrjaldar, er binda skyldi
endi á styrjaldir, hún var fóstruð
í ljóma af nýfengnu fullveldi, vax-
in úr grasi í trausti á ævarandi
hlutleysi sjálfstæðrar þjóðar og
ölvuð af afmælisfagnaði þúsund
ára Alþingis á Þingvelli. Sifelld
sjálfsafneitun í hversdagslegum
veraldargæðum beit ekki mjög á
hana. Hversu hart sem gengizt
var á um markmið og leiðir var
bjartsýnin fyrirvaralaus í öllum
fylkingum; Heimur hlaut að fara
batnandi. Þó eigi af því einu, að
æska allra tima er búin til að
berjast fyrir betra heimi, heldur
voru ávextir óskeikulla vísinda,
frelsandi tækni, friðar og mann-
úðar innan seilingar.
Ihugunarefnin voru eftir því:
List og fegurð, ást og dauði,
drengskapur og sómi, sannleikur
og hamingja...
Framtíðar og fyrirheita var beð-
ið með óþoli, því var hver dagur
lengi að líða, á meðan það var.
Fyrirheitin röktust með óvænt-
um hætti. Fyrr en varði dró dökka
flóka hér og þar á himin. Þeir
sortnuðu, uxu og náðu loks saman
svo að skugga virtist bera á alla
framtið og ekki varð undan því
komizt að efast um, að mannlíf og
mannúð ætti lengur von i athvarfi
á jörð. Þetta var fullkomnað á
túnaslætti 1945. Efinn varð því
sárari sem næmleiki á fegurð og
réttlæti hafði verið meiri.
Á minnisblöðum minum göml-
um, sem ég hef stuðzt við í þess-
um fáu línum, segir ennfremur:
„Ef unglingurinn fæðist með því
að finna fegurðina, deyr hann
með hinum vaxna, er hann finnur
ljótleikann.“
En það var eigi aðeins ungling-
urinn, er hlaut að deyja. Bjartsýn-
isskeið I sögu þjóðar og álfu var í
kvöldstað. Einn af öðrum hverfa
þeir nú af sjónarsviðinu, er sjálf-
ir lifðu þetta skeið og urðu nauð-
ugir viljugir áhorfendur og aðild-
armenn að þvi að breyta for-
merkjum á fjölmörgum gildum,
er þeir höfðu fest á mestar vonir.
Ragnar Jóhannesson var fágætt
glæsimenni og eftirminnilegur
fulltrúi þessa skeiðs. Hann var
ástsæll útvarpsgestur á hverju
heimili landsins um árabil og önn-
ur störf hans eru flest þjóðkunn,
afskipti af félags- og stjórnmál-
um, ritstörf hans og ræður,
kennsla og skólastjórn. I minn-
ingu vina lifir hið gáfaða ljúf-
menni og drengilegi sveinn, heill
í fögnuði hvar sem léttast var
kveðið og glaðast sungið, næmur
á réttlæti og fegurð.
I hópi vina var Ragnars og
Rögnu jafnan getið í sömu andrá.
Hvorugs mun verða minnzt án
hins. Við hana og börn þeirra
endurtek ég: Brjóst mitt er fullt
af þökk.
Broddi Jóhannesson.
Ragnar Jóhannesson er fæddur
í Búðardal 14. mai 1913, sonur
Jóhannesar Jónssonar skósmiðs
þar og Guðrúnar Halldórsdóttur,
konu hans. Ragnar lézt þann 16.
þ.m.
Hann varð stúdent frá M.A.
1934 og cand. mag. frá Háskóla
Islands 1939. Að námi loknu
fékkst hann við kennslu og blaða-
mennsku. Þá var hann og starfs-
maður (Jtvarpsins i nokkur ár.
Arið 1947 varð hann skólastjóri
Gagnfræðaskólans á Akranesi og
gegndi því starfi til ársins 1958.
Fluttist hann þá aftur til Reykja-
vikur og fékkst eftir það við
kennslu og þýðingar.
Ragnar kvæntist árið 1939
Rögnu Jónsdóttur ættaðri frá
Norðfirði og eignuðust þau þrjú
börn, Ragnar, Ingibjörgu og Guð-
rúnu.
Ragnar var listfengur I bezta
lagi eins og leikrit hans, ljóð og
sögur svo og þýðingar bera vitni
um.
En áreiðanlega hefur ekkert
verka hans notið annarra eins
vinsælda og „Jólavísur", sem út
komu 1949, prýddar teikningum
eftir Halldór Pétursson. Má segja
að vísur þessar hafi þegar átt hug
og hjarta hvers einasta barns i
landinu, enda er það svo, að enn
þann dag í dag er ekki haldin
jólatrésskemmtun án þess að vis-
ur þessar séu sungnar frá upphafi
til enda.
Ragnar tók einnig mikinn þátt í
félagsmálum bæði i Reykjavik og
á Akranesi, m.a. í stúdentafélög-
unum á þessum stöðum. Þá var
hann virkur félagi í Leikfélagi
Akraness og minnist ég þess t.d.
hve glæsilegur hann var I gervi
Lénharðs fógeta. Einnig gerði
hann revíu um lífið á Akranesi og
hét hún „Kátir voru karlar".
Allt svona starf eins og leik-
starfsemi og revíugerð eru til
þess fallin að hefja lifið upp úr
hinum hversdagslega drunga og
þeir menn sem fyrir svonalöguðu
standa ómetanlegir fyrir sin
byggðarlög.
Hygg ég að lífið á Akranesi á
þessum árum hefði verið æði
miklu snauðara ef Ragnars hefði
ekki notið við.
Ragnar var einnig frábærlega
vel kvæntur, og var Ragna alltaf
hans styrka stoð í lifinu. Aldrei
man ég eftir Rögnu nema glaðri
og skemmtilegri.
Alltaf er það svo þegar vinir og
kunningjar kVeðja að upp í hug-
ann koma minningar tengdar hin-
um látna. Þegar ég frétti lát Ragn-
ars s.l. þriðjudag rifjuðust upp
Systir mín,
JÓHANNA FINNSDÓTTIR.
Vif ilsgötu 1 9,
lézt á Elliheimilinu Grund, 22 nóvember
Maria Finnsdóttir.
t
N aðurinn minn.
AXEL V. TULINIUS, lögfræðingur,
Eskihlíð 10
lést í Borgarspitalanum í Reykjavík að morgni 22. nóvember
Aslaug Tulinius.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR PÁLSSON
skrifstofustjóri,
frá Hrísey,
Lynghaga 1 3,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag miðvikudaginn 24
nóvember kl 13.30
Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir
Hallgrimur Gunnarsson Páll Gunnarsson
Steinunn Helga Jónsdóttir Gunnar Snorri Gunnarsson
Ingileif Bryndís Hallgrimsdóttir Áslaug Gunnarsdóttir.
t
F ginmaður minn, faðir okkar og afi,
GUÐMUNDUR ARNASON,
símamaður,
verður jarðsunginn fimmtudaginn 25 nóv. kl 1.30 frá Dómkirkjunni
Ástrós Jóhannesdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Haraldur Kristjánsson,
Guðný Guðmundsdóttir, Hinrik Hermannsson,
og barnabörn.
Skrifstofum okkar og verzlun
verður lokað í dag
frá kl. 1—4 e.h. vegna útfarar
Gunnars Pálssonar, skrifstofustjóra
H. BENEDIKTSSON HF.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
PAULT WARD,
verkfræðings,
StóragerSi 20.
Ágústa Ward.
Rannveig S. Guðjónsdóttir Gustaf Guðmundsson
Viðar S. Guðjónsson Marla V. Guðmundsdóttir
Guðmundur Viðarsson Páll Tómas Viðarsson
Rannveig Einarsdóttir og aðrir aðstandendur
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinahug við andlát og útför
mannsins mins og föður, sonar og bróðir
ÖLVERS FANNBERG
sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs á deild 3A Landspltalanum
Þóra Fannberg Ólafur Fannberg
Kristjana Fannberg Bjarní Fannberg
Eyþór Fannberg.
Skrifstofa Fiskimálasjóðs
verður lokuð eftir hádegi í dag
vegna jarðarfarar
Gunnars Pálssonar, skrifstofustjóra.
Fiskimálasjóður.