Morgunblaðið - 23.12.1976, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1976
^FRJÁLSAR
JÓLAMÓT ÍR
JÓLAMÓT ÍR verður að venju
háð á 2. dag jóla í iR-húsinu við
Túngötu. Hefst mótið kl. 14,30
með keppni I langstökki og há-
stökki án atrennu.
Annars verða keppnisgreinar á
mótinu auk ofangreindra, þri-
stökk án atrennu og einnig há-
stökk með atrennu, ef tfmi gefst
til. Keppt verður í öllum greinum
í bæði karla-og kvennaflokki.
ÍR-ingar verða einnig með jóla-
mót fyrir þá yngri, þ.e. keppend-
ur á aldrinum 7—14, og verður
það einnig í ÍR-húsinu þriðjudag-
inn 28. desember og hefst kl.
18.00. Keppnisgreinar verða lang-
stökk og þrístökk án atrennu svo
og hástökk með atrennu.
1 báðum mótunum eru
keppendur beðnir um að vera
búnir að láta skrá sig 30 mín fyrir
keppni.
GÖTUHLAUP Á GAMLÁRSDAG
iR-ingar hafa ákveðið að gang-
ast fyrir götuhlaupi í Reykjavik á
gamlársdag. Upphaf hlaups og
endamark verður við ÍR-húsið við
Túngötuna, en hlaupið verður alls
um 10 kílómetrar að lengd. Hug-
myndin er að hlaupið verði frá
iR-húsinu um Eiðsgrandann, Sel-
tjarnarnesið, Ægissiðu og Suður-
götu en hlaupinu mun siðan ljúka
á því að hlaupið verður upp Tún-
götuna.
Hlaupið mun væntanlega hefj-
ast kl. 13.30. Öllum er heimil þátt-
taka, en aðeins verður hlaupin
þessa eina vegalengd og um að-
eins eitt hlaup er að ræða.
Væntanlegir keppendur eru
beðnir um að mæta stundvíslega,
en öll búnings aðstaða er til stað-
ar í iR-húsinu.
EFNILEGIR HÁSTÖKKVARAR
VART er komið á keppni I frjáls-
um (þróttum öðru vfsi en að Is-
landsmet f einhverjum flokkin-
Bayern varð
„heimsmeistari"
VESTUR-þýzka liðið Bayern Miinch-
en tryggði sér sigur i hinni óopinberu
heimsmeistarakeppni félagsliða í
knattspyrnu með þvi að gera jafn-
tefli við brasiliska liðið Cruzeiro i leik
sem fram fór i Brasiliu í fyrrakvöld.
Fyrri leikinn, i Þýzkalandi, hafði Bay-
ern hins vegar unnið 2—0. Um sið-
ustu helgi lék Bayern við Unter-
boihingen i þýzku bikarkeppninni i
knattspyrnu og sigraði með 10
mörkum gegn einu. Er Unterboihing-
en-liðið eingöngu skipað áhuga
mönnum. Það vakti mikla kátinu
10 000 áhorfenda að leik þessum að
markvörður Bayern-liðsins Sepp
Maier tók lengst af þátt í sókn liðs
sins og gerði ákafar tilraunir til þess
að komast á blað yfir markaskorara,
en tókst það hins vegar ekki.
um sjái dagsins ljós, eða þá að
aðeins vanti sentimetra eða
sekúndubrot til að svo verði.
Þannig féll Islandsmet sveina f
hástökki á innanféiagsmóti lR f
sfðustu viku, og annar nýliði var
rétt við piltamestið.
Það var Þorsteinn Þórsson,
UMSS, sem setti nýtt tslandsmet
sveina innanhúss er hann stökk
1,86 f keppninni. Er þetta bezti
árangur Þorsteins innanhúss í
þessari grein, en hann á 1,87 utan
húss frá þvf í sumar. Þorsteinn er
ört vaxándi íþróttamaður, sem
vafalaust á eftir að láta að sér
kveða i framtíðinni. Er hann
bróðir Þorvalds Þórssonar, lands-
liðsmanns í grindahlaupum. Á
þessu móti stökk svo Stefán Þ.
Stefánsson, IR, 1,63 m, en það
mun vera rétt við piltametið, en
Stefán er aðeins 13 ára gamall.
Haldi hann sig við þessa grein má
búast við góðum árangri hjá hon-
um þegar fram lfða stundir.
Sigurvegari í hástökkskeppn-
inni varð Guðmundur F. Guð-
Framhald á bls. 25
I.asse Viren, sem sigraði f 5000 metra hlaupi og 10.000 metra hlaupi á
Ólympfuleikunum f Montreal í sumar var kjörinn íþróttamaður ársins
1976 f heimalandi sfnu Finnlandi, en þar er það sérstök nefnd sem
stendur að kjörinu og eiga sæti f henni fulltrúar íþróttasamtaka og
íþróttablaðamanna. Fékk Viren iangflest stig í kjörinu, og þarf engan
að undra slfkt. Viren tók nýlega við þeim verðlaunum sem fylgir
sæmdarheitinu og studdist þá við tvær hækjur. Hafði hann meiðst illa
á fæti í elgsdýraveiðum, og verður frá æfingum um nokkurt skeið.
V_________________________________________________________________
L_"_-J
L L glv Aj*! í* e r
apjjilL K JfPNfe ^0^1
V IÉBBiiM YBatAglS
1 leikhléi f leik íslands og Danmerkur
í handknattleik í Vestmannaeyjum á
laugardaginn sýndu nokkrir hressir
Eyjapeyjar fimleika undir stjórn
Gísla Magnússonar. Var strákum vel
tekið, enda hefur hópur Gísla víðar
vakið athygli en í Vestmannaeyjum.
Fyrir landsleikinn áttust við meist-
araflokkslið Týs og Þórs. Var þar um
ójafna baráttu að ræða, þar sem Týjar-
ar gjörsigruðu andstæðinginn og skor-
uðu 29 mörk gegn 15. Það ber þó að
taka með f reikninginn að f lið Þórs
vantaði þjálfarann og sterkasta leik-
mann liðsins, Framarann fyrrverandi
Hannes Leifsson.
Jan Egil Storholt er
hinn nýi Ard Schenk
TVÆR mestu skautaþjóðir
heims, Noregur og Holland, mætt-
ust f Iandskeppni sem fram fór f
Hollandi um sfðustu helgi. Urðu
úrslit keppninnar þau, að Norð-
menn sigruðu með miklum yfir-
burðum, hlutu 134 stig gegn 94
stigum HoIIendinga. Hafa Norð-
Austurrlska stúlkan Brigitte
Habersatter sigraSi I brunkeppni
sem fram fór I Zell am See I Austur-
rlki I gær, en keppni þessi var liSur I
heimsbikarkeppni kvenna ð sklSum.
Tók hún þar með forystuna I heims-
bikarkeppninni og hefur hún hlotiS
alls 93 stig i keppninni. Landa henn-
ar Annemarie Pröll Moser er I öðru
sæti með 89 stig, en sem kunnugt er
hafði Pröll hætt keppni og var hún
t.d. ekki með á Olympiuleikunum i
Innsbruck [ fyrra. Hún hóf svo aftur
menn ekki unnið slfkan yfir-
burðasigur á þessum helztu
keppinautum sfnum f skauta-
fþróttinni fyrr og var að vonum
gffurlcgur fögnuður f Noregi með
sigurinn og keppnin var sýnd þar
f sjónvarpinu frá upphafi til
enda.
æfingar í sumar og virðist ótrúlega
fljót að ná sér á strik.
í þriðja sæti i keppninni er nú
Hanni Wenzel frá Liechtenstein með
55 stig, en siðan koma Ntcola Spiess
frá Austurríki, með 46 stig, Cindy
Nelsson frá Bandarikjunum með 41
stig, Claudia Giordani, ítaliu með 34
stig, Elena Matous frá íran með 32
stig, Brigitte Kerscher, Austurriki
með 25 stig og Marie Therese Nadig
frá Sviss með 24 stig.
Hetja þessarar landskeppni var
Jan Egil Storholt, sem Norðmenn
segja að sé mesti skautahlaupari
sem fram hafi komið síðan Hol-
lendingurinn Ard Schenk var og
hét. Sigraði Storholt með miklum
yfirburðum í fjórum greinum í
skautalandskeppninni og náði í
þeim öllum betri árangri en náðst
hefur fyrr á braut sem liggur jafn
lágt yfir sjávarmáli og brautin
sem keppt var á í Hollandi.
Eftir keppnina sagði þó Stor-
holt, að hann hefði alls ekki hugs-
að um að setja nein heimsmet i
þessari keppni heldur fyrst og
fremst að sigra. — Heiður norska
landsliðsins skipti mig öllu — það
Framhald á bls. 25
HABERSATTER(FORYSTU
Islenzka liðið sýndi sýnar
beztu hliðar í fyrri hálfleik
en síðan ekki söguna meir og Tennessee vann 84:58
Körfuknattleikslandskiðið fékk
skell f leik sfnum við bandarfska
háskólaliðið frá Tennessee f
fyrrakvöld, en þá mættust liðin f
Iþróttasal Hagaskóla. 84—58 fyr-
ir Bandarfkjamenn urðu úrslit
leiksins, eftir að staðan hafði ver-
ið 36—35 f hálfleik.
Fyrri hálfleikur þessa leiks var
hinn skemmtilegasti og náði þá
islenzka landsliðið oft að sýna sfn-
ar beztu hliðar. Einkum og sér í
lagi var varnarleikur liðsins góð-
ur — Tenessee-leikmönnunum
var haldið í hæfilegri fjarlægð og
hittni þeirra úr langskotum var
ekki sérstaklega góð. Þá kræktu
islenzku leikmennirnir f fjöldan
allan af fráköstum f hálfleiknum,
en í þeim tveimur leikjum sem
Bandarfkjamennirnir höfðu leik-
ið hér fyrir þennan leik, hafði það
heyrt til undantekninga ef Islend-
ingarnir náðu fráköstunum.
Landsliðið hafði yfirleitt foryst-
una í fyrri hálfleik og varð
munurinn mestur 6 stig er staðan
var 22:16. Undir lok hálfleiksins
virtist íslenzka liðið fara að gefa
heldur eftir og þá náðu Banda-
ríkjamennirnir betri tökum á
leiknum og höfðu 1 stig yfir í
hálfleik.
1 seinni hálfleik kom svo ber-
lega I ljós að landsliðsmennirnir
höfðu ekki þolað hina miklu
„keyrslu" í fyrri hálfleik. Banda-
rfkjamennirnir voru allsráðandi á
vellinum og tóku strax að breikka
bilið. Mesti munur var 81—50, en
á iokamfnútunni tókst fslenzka
liðinu aðeins að rétta hlut sinn.
Beztu menn fslenzka liðsins í
þessum leik voru þeir Einar
Bollason og Jón Jörundsson, en
einnig komst Geir Þorsteinsson,
Njarðvákingur, ágætlega frá
leiknum. Einar Bollason var slig-
hæstur islenzku leikmannanna
með 20 stig, en Jón Jörundsson
gerði næst flest stig eða 8.