Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 15 um eina fegurstu eyna í Elliðaán- um tel ég fjarstæðu og versta kostinn. Ofanbyggðarvegur liggur að mestu um ósnortið land og ekki síður viðkvæmt en stíflusvæðið. Hann mundi líka liggja um land Kópavogs og því ekki á valdi Reykvíkinga einna. Auk þess sem þetta er þjóðvegur, sem rikið á að leggja, og þykir mér ólíklegt að það yrði hvort eð er brýnasta verkefnið á þjóðvegum landsins næstu áratugi. Hann gæti því ekki komið í stað Höfðabakkatenging- ar. Náttúruverndarnefnd Kópa- vogs og Umhverfismálaráð Reykjavíkur hafa farið skoðunar- ferð um hugsanlegt vegarstæði Ofanbyggðarvegar. Þarna er ósnortið land og vinsælt útivist- arsvæði. Hestamenn fara þar mik- ið á reiðskjótum sínum og brekkan ofan við Breiðholtin er mikið notuð af börnum sumar sem vetur. Með tilliti til allra þátta, þá held ég að þrátt fyrir allt sé tengingin yfir Höfðabakkann skynsamlegust. Þar er mannvirki fyrir, gamla stíflan 1921. Hún er óneitanlega nokkurt haft í dalnum. Skiptir svæðinu þegar að nokkru í neðra svæði og efra svæði. Ef hátt verður undir brúna eins og nú er gert ráð fyrir, með göngum í uppfyllingu beggja vegna, þá truflar hún ekki umferð útivistarfólks. Hún er miklu hærri en Elliðaárbrúin, sem laxveiði- menn veiða ótruflaðir undir, sem kunnugt er. Eg sannfærðist enn betur um rættmæti þessara athug- ana á sl. ári, þegar ég vegna biðar eftir flugvél í Luxemburg brá mér með bók í gjána, sem liggur gegnum miðja borgina. Luxem- burgarmenn hafa leyst málið með brúm yfir þetta útivistarsvæði þar sem umferðin fer hátt yfir. Ég undi mér vel við bókarlestur þarna í grasinu og umferðin truflaði mig ekkert. • Umferð nú svipuð og á Tjarnarbrú Ég skil vel að borgarminjavörð- ur og þjóðminjavörður kjósi helst að sem minnst sé komið nálægt Árbæjarsafni. Það er yndislegt að vera þar með útsýni yfir borgina, en jafnframt í ró eins og langt uppi í sveit. En ég er að velta því fyrir mér nú, hvers vegna þau lögðu á sínum tíma til við okkur að staðsetning Vopnafjarðarskemm- anna yrði færð af holtinu ofan við safnið og niður, undir þennan fyrirhugaða veg, og þá i \mestu nálægð við hann. Sjálf held ég að fyrir safngesti kunni það að vera til bóta og auka aðsókn að safninu að fá í nánd góðar samgöngur og strætisvagnaferðir á staðinn. Nú hefur verið komið til móts við óskir borgarminjavarðar og þjóð- minjavarðar og vegurinn færður fjær safninu, en þá nær byggðinni. Húsin verða í svipaðri fjarlægð frá veginum og Sogavegarhúsin eru frá Miklubrautinni. En umferð um veginn yrði nú svipuð og er á Tjarnarbrúnni. En á árinu 1995 er reiknað með að hún verði orðin svijiuð og nú er á Grensásvegi. I áætlun um umhverfi og útivist var Ártúnsholtið skoðað sem ein heild frá Höfðabakka og niður á Rafstöðvarveg. Var þannig hug- myndin að steypa saman í eina heild svæði Árbæjarsafns og al- mennu útivistarsvæði. Á undan- förnum árum hefur verið unnið eftir því, sléttaðar gamlar gryfjur til að fá skjólgóðan dal og plantað 9000 stálpuðum trjáplöntum í holt- ið. Mér finnst því skjóta skökku við að vilja heldur skera þetta svæði í tvennt með vegi að Kermóafossi heldur en að fá veg utan við svæðið. Nú hefi ég líka séð birtar í blöðum frá ekki-brúarmönnum mynd sem sýnir að verði Höfða- bakkavegi sleppt, þá verði svæðið milli safnsins og byggðarinnar í Árbæ tekið undir íbúðarhús. Og jafnframt að af útvistar- og safn- svæðinu verði skorið holtið norðan við undir byggð. Væri það dálítið meinlegt á ári trésins að byrja á því að höggva niður „skóginn okkar". Þetta skyldi þó ekki allt vera einn liðurinn í örvæntingar- fullri leit að lóðum á fráteknum útivistarsvæðum, vegna þess að aðalskipulagið hefur verið látið liggja í skúffu og brátt eru engar byggingalóðir til? En það er annað mál, sem sjálfsagt á eftir að skýrast. Það er mikið vandamerk að samræma mannlíf í borg og nátt- úruvernd. Það er eins og að ganga á streng og auðvelt að detta öðru hvorum megin út af línunni. í borg, þar sem fjöldi fólks þarf að lifa og starfa, er það enn meiri vandi. Hverfin beggja vegna Ell- iðaáa sækja ýmislegt hvert til annars. Fólk mun í æ ríkara mæli sækja vinnu handan árinnar úr Breiðholti. Þörfin fyrir þá umferð mun aukast, þegar Reykjanesbraut kemur neðan Breiðholtanna og við bætist umferðin sunnan úr ná- grannabæjunum. Utreikningar á umferðinni um sl. áramót segja ekki mikla sögu, enda byggir enginn dýra brú og vegatengingu fyrir eitt ár. Ég get ekki séð með því að skoða hin nýju gögn, að forsendur hafi breyst frá 1977. Tel enn að tenging yfir Elliðaárdalinn sé og verði óhjákvæmileg og sé þá farsælast frá umhverfissjónarmiði að sú tenging verði í einni brú yfir hjá stíflunni sem fyrir er, hátt yfir ánum og aðalæð hitaveitunnar felist þar í. Jafnframt því sem að sjálfsögðu sé við vegar- og brúar- gerðina lögð áhersla á að það valdi sem minnstri röskun á Elliðaár- dal. - E. Pá. Þórður Jónsson. saman og allt fór út af geymun- um, svo sambandið var farið við umheiminn. Ég kom ekki veðr- inu, en sendi það því í Moggann. Það kemst til veðurstofunnar næstu daga ef betur viðrar, en það voru 10—11 vindstig kl. 18. Fyrr um daginn mun það hafa farið töluvert yfir 12 vindstig með aftaka hafróti, snjóéljum og frosti. Sprengdi upp kirkjuna Kl. 21.00. Rafmagnið komið aftur, náði í síma til Breiða- víkur, þar hafði verið ofsalegt rok, reif nokkuð af járni í íbúðarbyggingunni, sprengdi upp kirkjuna og gerði á henni nokkrar skemmdir. Þá reif rokið hurðir frá hlöðu í Breiðavík, heyvagn fauk einnig og varð alónýtur, og fleiri skemmdir. Ekki kom ég veðrinu kl. 21.00, og sendi það því einnig í Moggann, þar sem ég er með tilskrif til hans. Þá var veðrið hér komið niður í átta vindstig með hafróti og fimm stiga frosti og kominn alveg hátt vestan. Kl. 24.00 allt við það sama, fer að hátta. 26. 2., kl. 9.00. Veðrið hefir aðeins gengið niður, eru nú sjö vindstig, en hvassara í éljunum, þó er ennþá hafrót. Á ekki von á að frétta meira í bili, þar sem símalaust er nema við Breiðavík. Á von á póstinum um hádegið og læt því þessu sérstæða fréttabréfi lokið. Þórður. Erik Söderholm: Kemst þótt hægt fari Opið bréf til Magnúsar Kjartanssonar Kæri Magnús Kjartansson! í grein þinni í Mbl. 23. febr. spyr þú þess, hvort fatlaðir séu ekki norrænir. Þú vitnar þar í bréf mitt til Gísla Sigurbjörns- sonar, forstjórá Elliheimilisins Grundar, en í því kemur fram, að við álítum fatlaða vera alveg jafnnorræna og aðra Islendinga og viljum því byggja varanlega uppakstursskábraut við Nor- ræna húsið. Þessu til áréttingar ætla ég rétt að geta þess hér, að 31. 10. 1979 sendi ég sundurliðaða og vandlega rökstudda umsókn til Menningarmálaskrifstofunnar í Kaupmannahöfn um aukafjár- veitingu til að láta gera við tröppurnar upp að húsinu og til að byggja skábrautina. Steinteg- und sú, er nota skal, kostar um 10 millj. ísl. krónur og þegar þar ofan á hefur verið lagður tollur og önnnur aðflutningsgjöld, verður sú upphæð orðin talsvert hærri en nemur fjárveitingu þeirri, sem ætluð er til viðhalds hússins á þessu ári. Ofan á verð steinsins bætast svo vinnulaun, leiga á vélum og margt annað, og viðgerðin ásamt skábraut er talin munu kosta a.m.k. 18 millj. ísl. krónur. Þannig er ekki nokk- ur leið að leysa vandann, nema til komi aukafjárveiting frá Norðurlandaráði. í bréfi dags. 7. 2. 1980 svaraði Klas Olofsson, forstjóri Menn- ingarmálaskrifstofunnar því til, að Norræna húsið gæti ekki vænst neinnar aukafjárveitingar vegna þessa verks, og hann stingur upp á því að vandinn verði leystur með því að fram- kvæma verkið í þremur áföng- um. Leggi Norræna húsið sjálft fram 6 millj. árið 1980 og 1981 og síðan muni Menningarmála- skrifstofan reyna að leggja fram þær 6 millj., sem á vantar, árið 1982. Áætlað er, að reynt verði að kaupa steininn á þessu ári — jafnvel þótt vitað sé, að hann kosti meira en 6 millj. — og láta síðan hefja verkið sumarið 1981. Það er Norræna húsinu ekki síður hryggðarefni en þér, að Norðurlandaráð hafi ekki efni á að greiða fyrir það viðhald og viðbyggingar, sem til þarf, vegna húsa, sem það rekur á Norður- löndum. Sem stjórnmálamanni er þér ljóst að hér er um að ræða pólitíska ákvörðun, sem við í Norræna húsinu fáum engu um ráðið. En af því, sem hér að ofan hefur verið sagt, sem og af bréfinu, sem þú vitnar í, ætti að vera ljóst, að af hálfu Norræna hússins er unnið af fullri alvöru að því að leysa vandann. Vinsamlegast Erik Sönderholm, forstjóri Norræna hússins. ALLAR STÆRÐIR a< PHILIPSog PHILCO KÆLISKÁPUM heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚN 8 - 15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.