Morgunblaðið - 25.06.1980, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1980
Þorgerður Ingólfsdóttir, söng-
stjóri.
Hljóðvarp kl. 21.30:
íslensk þjóðlög
Á dagskrá hljóðvarps kl. 21.30 er kórsöngur, — Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð syngur undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur. Kórinn mun syngja nokkur
íslensk þjóð- og alþýðulög. „Þessi þáttur er gott
sýnishorn af efnisvali okkar," sagði Þorgerður Ingólfs-
dóttir, söngstjóri, „við höfum lagt áherslu á að æfa
íslensk þjóðlög og gerum mikið af því að kynna þau
erlendis á ferðum okkar. Eitt af lögunum sem við
flytjum í kvöld, Móðir mín í kví kví, hefur aldrei áður
verið flutt í þeirri raddsetningu sem við notum. Þessi
raddsetning er eftir Wilhelm Lanzky-Ottó. Önnur
raddsetning í prógramminu var sérstaklega gerð fyrir
Hamrahlíðarkórinn, — „Blástjarnan þó skarti skær“,
Jón Þórarinsson raddsetti."
Kór Menntaskólans við Ilamrahlíð syngur við opnun Listahátiðar 1980.
í þættinum verður fjallað um steypuskemmdir i húsum.
Sjónvarp kl. 20.45:
Ný byggingaraðferð
Á dagskrá sjónvarps í kvöld kl. 20.45 er þátturinn
Nýjasta tækni og vísindi. „Að þessu sinni erum við með
íslenskt efni,“ sagði Örnólfur Thorlacius, umsjónarmaður
þáttarins. „Hér á Islandi hefur verið allmikið um sprungur
og steypugalla í útveggjum. í þættinum verður rætt við
Sturlu Einarsson sem hefur unnið talsvert að tilraunum í
byggingariðnaði. Einnig er rætt við Óttar Halldórsson,
prófessor, sem hefur fylgst með þessum tilraunum. —
Útveggir íslenskra húsa verða að þola miklar hitasveiflur.
Þannig er þensla í 30 m vegg hérlendis um 1 cm, —
veggurinn er fastskorðaður við gólf og því mjög hætt við að
hann spryngi. Hin nýja byggingaraðferð sem Sturla hefur
rannsakað felst í því að einangrunin er höfð utar í veggnum,
— þannig heldur útveggurinn sama hitastigi og er inni í
húsinu. Útveggirnir draga einnig síður í sig raka sé þessi
aðferð höfð.
Þessari byggingaraðferð fylgja ýmsir kostir s.s. meiri
ending og minni hætta á sprungum, lægri hitunarkostnaður
og ódýrari mótauppsláttur. Tvö hús, sem byggð eru á
þennan hátt, eru til hérlendis."
Úlvarp Revkjavík
/VIIÐMIKUDKGUR
25. júni
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Frásagnir af hvutta og
kisu“ eftir Josef Capek. Hall-
freður örn Eiriksson þýddi.
Guðrún Ásmundsdóttir les
(6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Frá tónleikum Drengja-
kórs Dómkirkjunnar i
Gautaborg í Háteigskirkju i
júnímánuði i fyrra. Organ-
leikari: Eric Persson; Birg-
itta Persson stj.
11.00 Morguntónleikar.
Max Lorenz og Kari
Schmitt-Walter syngja atriði
úr óperunni „Tannháuser“
eftir Wagner / David Oi-
strakh og Sinfóníuhljóm-
sveit franska útvarpsins
leika Fiðlukonsert i D-dúr
op. 77 eftir Brahms; Otto
Klemperer stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SÍODEGID
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa. Tónlist úr
ýmsum áttum, þ.á m. létt-
klassisk.
14.30 Miðdegissagan: „Söngur
hafsins“ eftir A.H. Rasmus-
sen. Guðmundur Jakobsson
þýddi. Valgerður Bára Guð-
mundsdóttir les (7).
15.00 Popp.
Dóra Jónsdóttir kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Leon Goossens og Gerald
Moore leika á óbó og pianó
„RoundeIay“ (Hringdans)
eftir Alan Richardson /
Strengjakvartett Björns
ólafssonar leikur Strengja-
kvartett nr. 2 eftir Helga
Pálsson / Emelia Moskvitina
og félagar í Filharmoniu-
sveitinni í Moskvu leika Inn-
gang og allegro fyrir hörpu,
flautu, klarfnettu og
strengjakvartett eftir Maur-
ice Ravel / Guy Fallot og
Karl Engel leika saman á
selló og píanó Sónötu í A-dúr
eftir César Frank.
17.20 Litli barnatíminn.
Stjórnandinn, Oddfriður
Steindórsdóttir, leggur leið
sina i skólagarða Hafnar-
fjarðar.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDID_____________________
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Einsöngur i útvarpssal:
Þórunn Ólafsdóttir syngur
lög eftir Jón Björnsson,
Mariu Brynjólfsdóttur og
Sigvalda S. Kaldalóns. Ólaf-
ur Vignir Albertsson leikur
með á pianó.
20.00 „Sök bftur sekan“, smá-
saga eftir Vincent Starrett.
Ásmundur Jónsson þýddi.
20.25 „Misræmur“
25. júni
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Kalevala.
Myndskreyttar sögur úr
Kalevala-þjóðkvæðunum
finnsku.
Annar þáttur.
Þýðandi Kristin Mántylá.
Sögumaður Jón Gunnars-
son.
(Nordvision — Finnska
sjónvarpið)
20.45 Nýjasta tækni og vís-
indi.
Kynntar verða nýjungar i
byggingariðnaði og rætt
við Sturlu Einarsson og
óttar Halldórsson.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.15 Milli vita.
^^SjöundU>áttur^^^^^^^
Efni sjötta þáttar: Karl
Martin gerist einrænn og
drykkfelldur og Mai fer frá
honum. En þau taka saman
að nýju og giftast. Hún
verður þunguð og nú er
ekki minnst á fóstureyð-
ingu.
Þjóðverjar ráðast inn i
Noreg, og Karl Martin
slæst í för með norsku
stjórninni.
Þýðandi Jón Gunnarsson.
(Nordvision — Norska
sjónvarpið)
22.25 Fiskur á færi.
Kvikmynd, gerð á vegum
Sjónvarpsins, um laxveiðar
og veiðiár á Islandi.
Úmsjónarmaður Magnús
Bjarnfreðsson.
Áður sýnd 16. september
1973.
22.55 Dagskrárlok.
Tónlistarþáttur í umsjá
Ástráðs Ilaraldssonar og
Þorvarðs Árnasonar.
21.05 „Mjór er mikils vísir“
Þáttur um megrun i umsjá
Kristjáns Guðlaugssonar.
M.a rætt við Gauta Arnórs-
son yfirlækni og Myako
Þórðarson frá Japan, útv.
30. f.m.
21.30 Kórsöngur: Kór Mennta-
skólans við Hamrahlið syng-
ur islenzk þjóðlög og alþýðu-
lög. Söngstjóri: Þorgerður
Ingólfsdóttir.
21.45 Útvarpssagan: „Fugla-
fit“ eftir Kurt Vonnegut.
Hlynur Árnason þýddi.
Anna Guðmundsdóttir les
(11).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 „Öxar við ána“
Arnar Jónsson leikari les
kvæði tengd Þingvöllum og
sjálfstæðisbaráttunni.
22.50 „Hátíðarijóð 1930.
Kantata fyrir blandaðan
kór, karlakór, einsöngvara,
framsögn og hljómsveit eftir
Emil Thoroddsen við ljóð
Daviðs Stefánssonar frá
Fagraskógi. Óratóriukórinn,
karlakórinn Fóstbræður,
Elisabet Erlingsdóttir,
Magnús Jónsson, Kristinn
Ilalisson, óskar Halldórsson
og Sinfónfuhljómsveit ís-
lands flytja; Ragnar Björns-
son stjórnar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.