Morgunblaðið - 14.09.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
45
Grinifangabúðirnar
Einn daginn var ég kallaður út
úr klefanum og tilkynnt að dvöl
minni þarna væri lokið. Ekki
hvarfiaði annað að mér en að nú
væri ég orðinn frjáls maður aftur
— en þar skjátlaðist mér hrapal-
lega. Ég var ásamt nokkrum
öðrum föngum rekinn upp í bifreið
og eftir hálftíma akstur var numið
staðar við Grinifangabúðirnar —
alræmdustu fangabúðir Þjóðverja
í Noregi.
Þetta var um miðjan janúar
1943 og voru það harkaleg við-
brigði að koma úr fangaklefanum
í Grinifangabúðirnar þar sem við
vorum hafðir í þrælkunarvinnu
úti alla daga — hvernig sem
viðraði. Fyrsta daginn sem ég var
í skála þeim, sem ég bjó í þar, tók
ég eftir að veggurinn í horni
skálans varð alveg hvítur af
hrími. Ég hugsaði með sjálfum
mér að þarna myndi ekki of heitt
og það rættist því miður alltof vel.
I febrúarmánuði var jafnan 15—
20 stiga frost og skálarnir óþéttir
þannig að ískalt varð í þeim
jafnskjótt og kulnaði í ofninum.
Þarna var farið með fangana
eins og skepnur og allt gert til að
lífið yrði þeim sem erfiðast. Við
fengum rétt nóg að borða til að
geta dregið fram lífið og liðum
stöðugt hungur.
Skemmtanir yfir-
mannsins
Þegar yfirmaður fangabúðanna
hélt veizlur, sem oft kom fyrir,
gerði hann það sér og gestum
Einu sinni um vorið voru um
fimmtán fangar úr „yfirstéttinni"
að gera hegningarleikfimi. „Yfir-
stéttin" voru þeir fangar sem
unnu skrifstofustörf. Voru þeir
látnir skríða á maganum í blautu
moldarflagi og á milli þeirra og
„slátrarans", þýzka SD-mannsins
sem stjórnaði æfingunum, var
moldarhaugur. Skaut maðurinn
yfir höfuð fangana ef honum
fannst þeir ekki skríða nógu flatir.
Auk þessarar hegningarleikfimi
voru menn oft barðir og þeim
misþyrmt svo blóðið lagaði úr
þeim. Bareflin, sem varðmennirn-
ir notuðu, voru venjulega bara
einhverjar spýtur sem þeir rákust
á en auk þess beittu þeir höndum
og fótum af miklu kappi. Þetta var
þó aðeins forsmekkurinn að því
sem ég síðar átti eftir að kynnast í
Þýzkalandi.
Til Þýzkalands
Þrældómurinn, hungrið og kuld-
inn varð mér ofraun, og ég fékk
lungnabólgu eftir að hafa verið
þarna í nokkurn tíma. Það hefur
líklega orðið mér til lífs, þótt
undarlegt kunni að virðast, því
annars hefði ég verið fluttur til
Þýzkalands þegar um veturinn. Að
lenda í „transport" til Þýzkalands
um hávetur, þreklaus af hungri og
illa klæddur, var það sem við
óttuðumst mest á Grini. Sá ótti
var síður en svo ástæðulaus því
mikill fjöldi manna fórst í þessum
vetrarflutningum. Vegna veikind-
anna komst ég hjá því að vera
fluttur þar til um sumarið.
Frá Osló vorum við sendir með
fangaskipinu Monte Rosa til Ar-
ósa í Danmörku en þaðan fórum
Litandi beínagrind
sínum til skemmtunar að reka
Gyðinga í fangabúðunum út um
miðja nótt til þess að gera hegn-
ingarleikfimi. Voru þeir látnir
ganga „froskagang" eða stökkva
„krákustökk" sem er alveg ótrúleg
áreynsla — ég get dæmt um það
því ég reyndi hvoru tveggja í
Þýzkalandi. Og væru Gyðingarnir
ekki nógu snarir í snúningum, var
sparkað milli fóta þeirra aftanfrá
eða eins og gestirnir hittu í ölæði
sínu. Kvenfólkið, „dömurnar",
meðal gestanna, skemmtu sér
prýðilega við þetta. Morgnana
eftir svona aðfarir mátti sjá
blóðpolla á vellinum.
við með járnbrautarlest til Flens-
borgar og svo áfram til Sachsen-
hausen-fangabúðanna við Orani-
enburg í Þýzkalandi. Frá járn-
brautarstöðinni til fangabúðanna
var um það bil tuttugu mínútna
gangur. A leiðinni sáum við fyrstu
fangana þar — grindhoraða vesal-
inga sem varla minntu á mennska
menn. Þeir voru berhöfðaðir og
snoðklipptir, skeggjaðir og hræði-
lega óhreinir — þeir höfðu ein-
hverntíma verið í röndóttum föt-
um sem ekki voru orðin annað en
óhreinar druslur. Skömmu síðar
komum við auga á fangabúðirnar.
Umhverfis þær var samfelldur
tveggja metra hár múr en ofan á
honum var gaddavírsgirðing.
Hingað og þangað voru varðturn-
ar þar sem vopnaðir verðir höfðu
aðsetur sitt. Við fangelsishliðið,
sem var geysirammgert járn-
grindarhlið, stóðu SS-menn vörð.
Verðirnir sem með okkur komu
sýndu skilríki sín og hliðinu var
lokið upp. Þar með vorum við
komnir í forsal helvítis — því ef
nokkru má líkja við helvíti hér á
jörð þá eru það tortímingarfanga-
búðir nazista.
Sachsenhausen
Sacsenhausen fangabúðirnar
voru einhverjar elztu og illræmd-
ustu tortimingarbúðir nazista.
Siðari hluta stríðsins breyttist þó
aðbúðin þar og var þeim breytt í
þrælkunarvinnubúðir eins og fjöl-
mörgum öðrum fangabúðum, eftir
að skortur varð á vinnuafli í
Þýzkalandi. Þeir skiptu tugum
þúsunda sem létu lífið og dóu með
harmkvælum í þessu víti nazism-
ans. Gamlir fangar, sem höfðu
dregið fram lífið þarna í tíu ár,
sögðu mér að hlaupandi númer
fanganna hefðu einu sinni verið
komin yfir 100.000 en þá var
byrjað frá einum á nýjan leik.
Þegar ég slapp eftir tveggja ára
fangelsisvist var talan komin upp
i 140.000 svo ekki er ósennilegt að
þarna hafi farist um hundrað
þúsund manns — að ótöldum þeim
sem urðu heilsulausir vesalingar
ævilangt af vistinni þarna — þau
tólf ár sem „þúsund ára ríki“
nazismans stóð.
í Sachsenhausen kynntist ég
öllum tegundum mannlegrar
eymdar og svo viðbjóðslegri
grimmd að engin orð ná þar yfir.
Ljót
sar
Nokkru eftir að ég kom til
Sachsenhausert fékk ég kvalafulla
ígerð í annan fótinn og bólgnaði
hann allur upp. Ég reyndi í
lengstu lög að komast til vinnu og
vann við mikil harmkvæli um
nokkurn tíma. Loksins komust
læknarnir að þeirri niðurstöðu að
ég væri óvinnufær og lá ég þá
umhirðulaus í skálanum um hálfs-
mánaðar tíma. Þegar loksins var
gerð aðgerð á fætinum batnaði
mér tiltölulega fljótt og var orðinn
rólfær eftir mánaðar legu á
sjúkrahúsinu. Það kom oft fyrir,
þegar sjúklingarnir voru farnir að
hressast, að hjúkrunarmennirnir
leyfðu þeim að hjálpa til í sjúkra-
sölunum, svo þeir lentu ekki strax
í erfiðisvinnu. Þessi vinna var
fólgin í því að þrífa til á sjúkra-
húsinu auk tveggja tíma vakta,
fimm nætur í viku. Þennan mán-
aðartíma, sem ég var þarna, sá ég
marga ljóta sjón. Ég aðstoðaði
stundum við að búa um sár og
fékk þá oft tækifæri til að kynn-
ast, hvað menn urðu og gátu þolað.
Þó manni þætti þröngt í sjúkra-
skálanum var vistin þar himnaríki
á móts við „schonungs“-skálana.
Þeir voru fyrir sjúklinga sem ekki
voru mjög þungt haldnir eða voru
að ná sér. Þar voru þrengslin
ægileg, sóðaskapurinn keyrði úr
hófi fram og eftirlitið var ekkert,
því læknar og hjúkrunarmenn
voru allt of fáir. Versnaði ein-
hverjum sjúklinganna skyndilega,
var venjulega um seinan að veita
honum hjálp, þegar þeir komust
um síðir að því.
Þjóðverji, Bráuer að nafni, lá á
stofunni sem ég sá um. Hann
hafði marga skurði á handleggj-
unum sem öllum var haldið opnum
sextugt. Magi hans var eitt opið
sár. Hann hafði fengið mikla ígerð
sem skorið var í. Hafði húö verið
tekin af maga hans og strekkt yfir
sárið til þess að gréri fyrir, en það
misheppnaðist alveg. Var maður-
inn nærri dáinn af völdum þess
mikla sárs sem hlaust af þessari
aðgerð. Hann lá rúmfastur í ár en
þegar hann komst loks á fætur var
hann sendur áleiðis til pólsku
landamæranna með 14 öðrum
Norðmönnum. Þetta var veturinn
1945 þegar Rússar sóttu inn i
Þýzkaland og Þjóðverjar byrjuðu
að rýma fangabúðirnar. Voru
fangarnir fluttir í opnum járn-
brautarvagni í fimm sólarhringa
samfleytt og fraus Norðmaðurinn
þá í hel ásamt fimm norskum
félögum sínum. Það virtust vera
örlög þessa manns að hann fengi
ekki að hverfa aftur heim til
Noregs. Læknarnir sögðu það
hreinasta kraftaverk að hann
skyldi lifa það af sem hann varð
að þola í veikindum sínum. Vegna
kuldans í svona vetrarflutningum
afklæddu hinir fangarnir jafnóð-
um þá sem dóu til að afla sér meiri
klæðnaðar.
Hegningar
Auk barsmíða og allskonar mis-
þyrminga var einkum beitt
tvennskonar refsingum í búðun-
um: dauðarefsingu og að senda
menn í aðrar fangabúðir sem
oftast jafngilti dauðarefsingu. Það
voru flutningarnir sjálfir sem
menn óttuðust mest — þeir voru
með þeim hætti að oft lét stór
hluti fanganna, sem fluttir voru,
lífið. Hengingar voru daglegur
viðburður. Fyrst þótti manni þær
voðalegar en sú tilfinning dofnaði
Fré svefncal í einum skéla Sachsenhausenfangabúðanna
Þau tvö ár sem ég var þarna voru
hryllilegur tími. Við urðum sífellt
að stríða við hungur, vosbúð og
þrælkun en sættum misþyrming-
um ef nokkuð bar útaf. Oþrifnað-
urinn var yfirgengilegur og sjúk-
dómar, sem af honum leiddu,
drógu þúsundir manna til bana.
Maturinn, sem okkur var borinn,
myndi ekki vera talinn skepnum
bjóðandi, enda var hann það alls
ekki. En hungrið, sem sífellt þjáði
okkur, gerði það að verkum að við
hámuðum hann í okkur.
Það yrði alltof langt mál að gera
grein fyrir öllum þeim hörmung-
um sem við gengum í gegn um þar.
Ég hef skrifað bók um fangavist
mína í Sachsenhausen (I fangab-
úðum nazista, Helgafell útg. 1945)
þar sem ég lýsti öllu í smáatrið-
um. Bókina skrifaði ég meðan
atburðirnir voru mér enn í fersku
minni, en einnig studdist ég við
litla dagbók, sem mér tókst að
halda mér til minnis við og við,
meðan ég var í fangabúðunum. Ég
tel þó rétt að bregða upp nokkrum
myndum frá Sachsenhausen til að
lesendur geti gert sér grein fyrir
hvers konar víti þessar fangabúðir
voru.
til að sárin gætu hreinsast. Eina
nóttina rifnuðu sáraumbúðirnar
og manninum blæddi svo mikið að
rúmið varð einn blóðpollur. Hann
var svo máttfarinn að hann gat
ekki látið vita hvernig komið var.
Síðar varð að taka af honum
höndina og var hann að því búnu
sendur til annarra fangabúða.
Um sama leyti var lagður inn
annar Þjóðverji frá “schonungs"-
skálanum. Hann var kominn yfir
fimmtugt, ákaflega magur og svo
máttfarinn að hann gat ekki
borðað hjálparlaust. Ég mataði
hann og sá aðeins eina tönn uppi í
honum. Hann hafði verið lagður
inn í „schonungs“-skálann þrem
vikum áður, af því að hann hafði
verk í sitjandanum. Þar hafði
honum hríðversnað en enginn
sinnt honum og þegar hann kom
til okkar var um seinan að hjálpa
honum. Allur sitjandinn var eins
og leðja og húðin umhverfis ljós-
græn eins og mosi. Það var ekki
hægt að sjá að þetta hefði nokkru
sinni verið mannlegt hold. Hann
rotnaði lifandi og lyktin var eftir
því. Eftir þrjá daga var hann
látinn.
Þarna lá einnig Norðmaður um
furðu fljótt. Hengingarnar fóru
venjulega fram á kvöldin meðan á
liðskönnun stóð. Gálginn var eins
og stór rammi í laginu og var
hægt að hengja í honum tvo menn
í einu, en milli hengingardaga var
hann venjulega tekinn niður.
Flestir þeir, sem dæmdir voru
til hengingar, höfðu verið staðnir
að matarþjófnaði eða gerst sekir
um skemmdir á vélum eða verk-
færum fangabúðanna. Einnig voru
menn hengdir fyrir að gera til-
raun til flótta úr fangabúðunum.
Yfirmönnum fangabúðanna þótti
stundum ekki nóg að hengja fanga
heldur létu þeir hýða þá fyrst.
Einu sinni hafði fangi nokkur
stolið leðurtösku og skorið sér
skósóla úr henni. Var þetta álitið
skemmdarverk af versta Lagi og
fanginn settur í SK-hegningars-
veit en síðan átti að hengja hann.
Brátt rann upp sá dagur að hann
skyldi tekinn af lífi. En áður en
aftakan færi fram var vesalings
maðurinn hýddur fimmtíu högg á
sitjandann og síðan hengdur að
okkur öllum ásjáandi. Uppi í
gálganum hékk leðurtaskan sem
hann hafði stolið, okkur hinum til
viðvörunar.
Hengdur félagi