Morgunblaðið - 14.09.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
65
Fljúgandi konur
ÞÆR VORU að leggja upp í
fluKÍerð norður á Blonduós o«
til baka í vikunni konurnar. er
Ólafur K. Magnússon Ijósmynd-
ari Mbl. rakst á þær úti á
Reykjavíkurflugvelli. Til
vinstri er Jytte Marcher. flug-
kennari hjá flugskóla Ilelga
Jónssonar. og til hægri er nem-
andinn, Selma Hannesdóttir.
Selma er með svokölluð sóló-
réttindi og er langt kominn
með að Ijúka einkaflugprófi.
Að sögn Helga Jónssonar hóf
Selma flugnám fyrir rúmu ári og
hefur hún þegar lokið bóklegu
námi, sem er hluti af einkaflug-
mannsprófi. Selma er húsmóðir,
og sagði Helgi, að færst hefði í
aukana að undanförnu að full-
orðið fólk byrjaði flugnám sér til
ánægju. Um þessar mundir væru
þrjár konur í flugnámi hjá
flugskólanum, og í gegnum árin
hefði ein og ein kona útskrifast
úr skólanum.
Fyrrverandi þingmaður
hreppti lystisnekkju
MEÐAL vinninga í fjórða
flokki Happdrættis DAS
var skemmtisnekkja með
öllum búnaði til úthafs-
siglinga.
Snekkjan kom á miða
númer 57656 í umboði
Hreyfils, og reyndist eig-
andinn vera Steingrímur
Aðalsteinsson, fyrrver-
andi alþingismaður. Hér
sést hann ásamt eigin-
konu sinni og syni taka
við bátslyklunum úr hendi
framkvæmdastjóra happ-
drættisins, Baldvins
Jónssonar.
Málverkasýning á
afmœli Kekkonens
í TENGSLUM við áttra'ðisafmæli
Uhro Kekkonens. forseta Finn-
lands. hinn 3. þessa mánaðar. var
þessum þremur virðulegu konum
boðið á málverkasýningu hjá próf-
essor Aimo Kanerva. i Galerie
Finnforum í Helsinki. Myndirnar
eru vatnslitamyndir, og voru á
sýningunni meðal annars myndir
sem hann málaði hér á landi í júní
síðastliðnum. t bakgrunni má til
dæmis sjá myndir af Esju og frá
Hveragcrði.
Konurnar eru, talið frá vinstri:
frú Kristín, eiginkona Guðmundar
Benediktssonar ráðuneytisstjóra,
frú Hólmfríður, kona Ingva Ing-
varssonar sendiherra, og frú Vala
Thoroddsen forsætisráðherrafrú,
eiginkona dr. Gunnars Thoroddsens.
Forsíða handaríska hlaðsins Ballet News. en þar er sem sjá má stór
mynd af Helga Tómassyni.
Helgi Tómasson:
,JVánast
fullkominn “
HELGI Tómasson er vafalaust
einn kunnasti núlifandi íslend-
ingurinn. og hrttður hans fer
víða um heim. Helgi er af
gagnrýnendum talinn einn
allra besti ballettdansari heims
um þessar mundir og hann er
einn helsti burðarás hins kunna
halletts New York City Ballet í
New York.
A forsíðu nýjasta tölublaðs
Ballet News sem gefið er út í
Bandaríkjunum er stór litmynd
af Helga og inni í blaðinu er
grein um hann upp á sjö síður,
prýdd fjölda litmynda. Meðal
annars er í miðopnu blaðsins
stór litmynd af „dansstjörn-
unni“, eins og blaðið orðar það.
Viðtalið, eða öllu heldur greinin
um Helga í blaðinu, er skrifuð af
Eric Taube, og ber fyrirsögnina
„Just about perfect" — „Nánast
fullkominn".
Pétur meö pizzu
PÉTUR Sveinbjarnarson. veit-
ingamaður á Aski. er orðinn
einn umsvifamesti maður í
þeim „bransa“, en áður hefur
hann getið sér orð fyrir að
kenna íslendingum að aka á
ha'gri vegarkanti og vekja at-
hygli á gæðum islensks iðnaðar.
Hér er Pétur annars að hand-
leika pizzu upp á ítalskan máta í
einu af þeim eldhúsum, sem
Askur rak á sýningunni Heimil-
ið ’80 í Laugardalshöll fyrir
skömmu.