Morgunblaðið - 31.01.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANUAR 1981
Frá fundi rafveitustjóra í gær.
Fjárhagsörðugleikar rafveitnanna:
Ljósmynd Mbl.: Emilía
Dalvikurapótek:
Kona metin hæf-
asti umsækjandi
- en Svavar Gestsson vill ekki
veita henni embættið
HEILBRIGÐIS- og trygRÍnga- veitt leyfi til reksturs Dalvikur-
málaráðherra, Svavar Gestsson, apóteks. Umsækjendur voru þrír
hefur gert um það tillögu til og mæltu bæði lyfjafræðinga-
forseta tslands, að óla Þ. Ragn- nefnd og landlæknir með því, að
arssyni, yfirlyfjafræðingi Vestur- Freyju V.M. Frisbæk Kristensen,
bæjarapóteks í Reykjavík, verði yfirlyfjafræðingi í Kópavogi,
__________________ yrði veitt embættið á Dalvik.
Þriðji umsækjandinn var Magn-
ús Jónsson, forstöðumaður lyfja-
heildsölunnar Hermes.
RR skortir 2,5 milljarða
gkr. til að ná endum saman
Á FUNDI, sem SÍR hélt í gær
með öllum rafveitustjórum á
landinu, kom fram að fjárhags-
staða rafveitnanna væri mjög
slæm og stafaði það aðallega
vegna þess að nauðsynlegar
hækkanir hefðu ekki fengist að
undanförnu. Það kom einnig
fram, að kostnaður rafveitnanna
vegna orkukaupa hefði að undan-
förnu hækkað um nær 20% og að
vegna þessa væri fyrirsjáanlegt
að þær hefðu ekki fjármagn til
nauðsynlegra framkvæmda og
gæti það stefnt rekstraröryggi
þeirra í hættu.
í máli Aðalsteins Guðjónsens,
forstjóra Rafmagnsveitu Reykja-
víkur, kom það fram, að þessa
dagana blasti það við, að taka yrði
bráðabirgðalán að upphæð 10
milljónir nýkróna til að fleyta
Rafmagnsveitunni yfir erfiðleika
næstu vikna og að óbreyttu
ástandi vantaði 25 til 26 milljónir
nýkróna til að ná saman endum
þetta árið. Hann kvað þetta stafa
af því að engar hækkanir hefðu
fengist síðan 1979, nema skertar
vegna heildsöluverðshækkana.
Aðaisteinn sagði ennfremur, að
um áramótin hefði legið fyrir
hækkunarbeiðni frá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur upp á 28,6%, en
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfé-
laganna á Akranesi efnir til
almenns fundar í Sjálfstæðishús-
inu, Heiðargerði 20 nk. mánu-
dag 2. febrúar kl. 20.30. Fundar-
Tómas utan á
bankaráðsfund
TÓMAS Árnason. viðskiptaráð-
herra fór i gær utan til Finn-
lands, þar sem hann mun sitja
hankaráðsfund Norræna fjárfest-
ingahankans. Gert er ráð fyrir að
Tómas komi aftur heim næstkom-
andi fimmtudag.
þau 10%, sem fengist hefðu, væru
aðeins örlítið brot af hækkunar-
þörfinni.
Hann kvaðst hafa rætt málið
við iðnaðarráðherra, en aðeins
fengið þau svör að bilið yrði að
brúa með láni, þó ráðherra hefði
áður lýst því yfir að ekki væri
grundvöllur fyrir rekstri rafveitna
með lántökum.
Aðrir rafveitustjórar höfðu
svipaða sögu að segja, en bjuggust
þó ekki við að þurfa að brúa bilið
með lántökum. Þá kom það fram
hjá fundarmönnum, að þær hækk-
anir sem fengist hefðu, ykju að-
eins á vanda rafveitnanna vegna
þess að þær skiluðu sér ekki fyrr
en að þremur mánuðum liðnum,
en engu að síður þyrfti, strax og
hækkun væri samþykkt, að greiða
hærra verð fyrir aðkeypta raf-
orku.
í lok fundarins var samþykkt
svohljóðandi ályktun:
Afgreiðsla stjórnvalda á beiðn-
um rafveitna um leiðréttingar á
gjaldskrám hefur verið með þeim
hætti um langt skeið að nú horfir
til algerra vandræða. Er þess
skemmst að minnast, að um ára-
mót ákvað ríkisstjórnin 10%
hækkun á opinberri þjónustu,
þ.á m. á verði raforku til notenda.
Innan þeirrar hækkunar átti að
efni er: Ilvað er framundan í
flokks-óg þjóðmálum. Geir Hall-
grimsson. formaður Sjálfstæðis-
flokksins flytur framsöguræðu.
Á fundinum mæta alþingis-
mennirnir, Jósef H. Þorgeirsson
og Friðjón Þórðarson, dómsrhála-
ráðherra.
rúmast 16% hækkun til heildsölu-
aðila, þ.e. þeirra virkjanafyrir-
tækja sem selja rafveitum orku.
Þetta þýðir, að útgjöld flestra
rafveitna vegna orkukaupanna
einna saman aukast meira en
gjaldskrárhækkuninni nemur. Er
þetta svipuð afgreiðsla og rafveit-
ur hafa fengið síðustu 12—15
mánuðina og sígur því sífellt á
ógæfuhliðina.
Á þessu tímabili hafa rafveitur
engar hækkanir fengið til að
mæta auknum kostnaði við aðra
þætti í rekstri og uppbyggingu
dreifikerfanna í þeirri verðbólgu
sem geisað hefur. Kostnaður raf-
veitna við orkukaup á undanförn-
— VIÐ þurfum um 1200 þúsund
nýkrónur í nýtt hlutafé til þess
að geta lokið við byggingu hótels-
ins og tekið i notkun fyrstu og
aðra hæðina, en það er orðið
brýnt að hótelið taki til starfa og
þegar farnar að berast fyrir-
spurnir, sagði Fylkir Ágústsson
formaður stjórnar Hótels ísa-
fjarðar er Mbl. ræddi við hann.
Stærstu hluthafarnir í hótel-
byggingunni eru bæjarsjóður ísa-
fjarðar, Flugleiðir og frystihúsin
auk ýmissa annarra fyrirtækja og
almennings. Sagði Fylkir að nauð-
synlegt væri að hluthafar ykju við
hlut sinn um 50% og reynt yrði að
fá lán á móti hjá Ferðamálasjóði,
en rætt verður um þessi mál á
framhaldsaðalfundi nú í byrjun
febrúar. Byggingarkostnaður er
talinn verða 792 milljónir gkr.
um árum hefur verið milli 40 og
50% af orkusölutekjum þeirra.
Hefur hann farið vaxandi og er nú
kominn upp í 60—65% að jafnaði.
Senn fer sá tími í hönd, sem
notaður er til framkvæmda við
dreifikerfi í nýjum byggingahverf-
um auk viðhalds og lagfæringa á
eldri kerfum. Ekki er fyrirsjáan-
legt, að rafveitur geti keypt nægi-
legt efni til þessara framkvæmda
né greitt laun vegna þeirra. Má
því gera ráð fyrir miklum sam-
drætti í starfseminni á þessu ári,
sem getur stefnt rekstraröryggi í
hættu og er ófyrirsjáanlegt hverj-
ar afleiðingarnar kunna að verða
m.a. fyrir húsbyggjendur.
þegar húsið verður tekið í notkun.
Á neðstu hæðinni eru móttaka,
matsalur og eldhús og 11 gistiher-
bergi á næstu hæð með 22 rúmum.
Á framhaldsaðalfundinum verður
einnig ákveðið hvort stjórn hótel-
byggingarinnar tekur sjálf að sér
að sjá um reksturinn eða hvort
hann verði leigður.
— Ljóst er að mikil þörf er fyrir
hótelið hér á ísafirði, en pantanir
eru þegar farnar að berast. Hótel
Edda, sem hér hefur starfað á
sumrin, mun ekki verða starfrækt
í sumar þar sem ráðgert er að við
opnum, en Eddu hótelin hafa ekki
keppt við önnur hótel. Hugsanlegt
er þó að við myndum reka Eddu
hótel í og með ef ástæða þætti til,
en aukin umferð kallar á aukið
hótelrými og ýmis félög vilja
gjarnan halda hér ársfundi sína.
Nefnd, skipuð tveimur lyfja-
fræðingum; Stefáni Karli Sigurðs-
syni og Erni Ævari Markússyni,
mat hæfni umsækjenda og setti
Freyju númer eitt, Óla númer tvö
og Magnús númer þrjú. Land-
læknir, Ólafur Ólafsson mat alla
umsækjendur hæfa, setti Freyju
númer eitt vegna lengstrar starfs-
reynslu, en gerði ekki upp á milli
hinna umsækjendanna.
Stofnað nýtt
félag um flug-
og sam-
göngumál
FORSAGAN er sú, að eftir að
Flugleiðir hófu að segja upp fólki
bæði endanlega og með loforðum
um endurráðningu fóru menn að
ókyrrast og raddir heyrðust um
að stofna þyrfti til samtaka. sem
staðið gætu fastar á rétti manna
en einstaklingarnir og nú i janú-
ar hafa verið haldnir tveir stofn-
fundir Sameignar hf„ sagði
Martin Petersen, sem sæti á i
stjórn. félagsins, en það er stofn-
að af starfsfólki, sem vinnur og
unnið hefur að flug- og sam-
göngumálum.
— Á þessum tveimur stofnfund-
um voru alls 95 manns og komnar
eru 211 þúsund nýkrónur í sjóð og
loforð um hlutafé, en stjórninni var
gefin heimild til að auka það í allt
að 3 milljónir nýkróna á árinu,
sagði Martin ennfremur. — Til-
gangur þessa félags er að tryggja
atvinnu þeirra, sem vinna nú að
flugmálum og samgöngumálum og
hafa gert það, en þarna er um að
ræða fólk, sem starfað hefur á
þessum vettvangi í allt að 36 til 38
ár, flugmenn, flugvirkjar, flugfreyj-
ur, skrifstofufólk og verkamenn.
Þetta er hópur með mikla reynslu,
fært starfsfólk á sínu sviði, sem býr
yfir þekkingu, sem við viljum nýta.
Með hvaða hætti atvinna fólksins
verður tryggð á eftir að koma í ljós
ög á næstu stjórnarfundum verður
rætt um möguleika á verkefnum og
hlutafjáraukningu, én félagið er
opið öllum áhugamönnum á þessu
sviði.
Aðspurður sagði Martin Petersen
að menn einblíndu ekki á neinn
ákveðinn möguleika, heldur væru
opnir fyrir öllum, hugsanlegt væri
samstarf við Flugleiðir, íscargo eða
Arnarflug eða stofnun nýs félags,
sem þó væri að hans mati fjarlægur
draumur. í stjórn Sameignar voru
kjörin auk Martins Baldur Odds-
son, Kristjana Milla Thorsteinsson,
Islaug Aðalsteinsdóttir og Einar
Guðmundsson, sem kjörinn var
formaður.
Piltur fyrir bíl
UMFERÐARSLYS varð í Garða
bœ klukkan 21.45 í gærkvöldi. 16
ára piltur. sem var að koma úr
strætisvagni. varð fyrir bifreið á
Hafnarfjarðarvegi á móts við
strætisvagnaskýlið Ásgarð. Pilt-
urinn var fluttur á slysadeildina
en ekki var kunnugt um meiðsli
hans er blaðið fór i prentun.
Manntal 1981:
Teljarar ganga í hús á
laugardag og sunnudag
AÐALMANNTAL fer fram í
dag, laugardag, en á morgun
munu teljarar ganga í hús og
safna saman einstaklings-
skýrslum á höfuðborgarsva-ð-
inu og Akureyri, en viðast
annarsstaðar munu þeir hefja
störf þegar i dag. Vill Hagstofa
íslands hvetja fólk til að Ijúka
skýrslugerðinni í dag en séu
einhver atriði óljós, þá að bíða
með þau þar til teijari kemur
og fá aðstoð hans. Þá er þáttur
á dagskrá sjónvarps kl. 4,
endurtekinn frá föstudags-
kvöldi, þar sem fjallað er um
hvernig færa skal einstök atriði
skýrslunnar og er þannig upp-
byggður að hentugt er að fylla
út skýrsluna á meðan á útsend-
ingu hans stendur.
Þá vill Hagstofan benda á að
hentugt er fyrir fólk að biðja
teljara að taka húsaskýrsluna þó
frestur sé til að skila henni til 5.
febrúar því annars verða menn
að sjá um að skila henni sjálfir.
Teljarar munu fylla út svo-
nefnda íbúðarskýrslu á staðnum
eftir fyrirsögn heimilismanna og
er því mikilvægt að einhver
fullorðinn sé heima til að af-
henda teljara einstaklingssk-
ýrslur og veita upplýsingar.
Akranes:
Geir Hallgrímsson á
fundi á mánudagskvöld
Nýtt hótel opnaö á Isafírði í vor:
Pantanir þegar
teknar að berast