Morgunblaðið - 22.07.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ1981
HH' •''BBitwP. - j
Yfir 30 uppsagnarbréf
hafa borist stjórninni
„YFIR 30 uppsaKnarbréí hafa nú
þexar burist stjórn Oliuverslunar
Islands hf. Starfsmenn munu
mæta til vinnu á morgun, mið-
vikudasrfnn 22. júli,u seKÍr i
fréttatiíkynningu frá starfs-
mönnum aðalskrifstofu OLÍS, sem
MorKunblaðinu barst i xær.
Starfsmenn aðalskrifstofu OLÍS
héldu i Kær fund. þar sem þessi
ákvörðun var tekin. Samkvæmt
heimildum MorKunblaðsins hafa
nú þe^ar 32 starfsmenn aðal-
skrifstofunnar ritað uppsaKnar-
bréf ok munu starfsmennirnir
vinna út uppsaKnarfrestinn en
hætta síðan. hafi viðunandi lausn
ekki fundist að þeirra mati.
„Ég held að það sé leitun að
svona mikilli samstöðu og samhug
í fyrirtækjum hér innanlands, eins
og hjá starfsfólki aðalskrifstofu
OLÍS,“ sagði örn Guðmundsson
skrifstofustjóri OLÍS í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Þar er valinn
maður í hverju rúmi og stjórn
Önundar Ásgeirssonar fyrrverandi
forstjóra hefur verið með því móti
að hann hefur viljað láta einstakl-
ingana njóta sín. Þar eru allir
jafningjar og menn ræða þar málin
sín á milli á málefnalegan hátt,
hvort sem um yfir eða undirmenn
er að ræða. Besta reynsla mín
þessa síðustu erfiðu 30 daga er að
finna samhuginn í hópi samstarfs-
fólksins," sagði Örn Guðmundsson.
Sjá yfirlýsingu önundar Ásgeirs-
sonar á bls. 5.
Viljum eindregið fá
fólkið aftur til starfa
Fjöldi Kópavogsbúa brá á leik í Hlíðargarði í gærkvöldi og var þar að
finna fólk á öllum aldri. Það var Vinnuskólinn í Kópavogi sem stóð fyrir
þessari samkomu og rennur það fé, sem safnaðist til byKKÍngar
elliheimilis. Meðal annars var keppt í eKKjakasti ok höfðu keppendur
jafnt sem áhorfendur hið mesta gaman af. (Ljósm. Guðjón).
Meðvitundarlaus eftir að
hafa klemmst undir bíl
UNGUR maður frá Selfossi ligK-
ur meðvitundarlaus á gjörgæslu-
deild Borgarspitalans, eftir að
hann varð undir bifreið er hann
vann við i gærmorgun. Slysið
varð i bilskúr við ibúðarhús á
- segir Gunnar GuÖjónsson, stjórnarformaður OLIS
Kvennafram-
boð á Akureyri
ÁKVEÐIÐ var á fundi á Akureyri í
fyrrakvöld. að stefna að sérstöku
kvennaframboði við bæjarstjórn-
arkosningar í kaupstaðnum á vori
komanda.
Jafnframt var samþykkt að reyna
að stuðla að slíku framboði við
borgarstjórnarkosningar í Reykja-
vík.
Selfossi um klukkan 11.30 i
gærmorgun. Maðurinn hafði
tjakkað fólksbifreið upp að fram-
an. og stóð hún á tjakknum og
þremur hjólum. Vann maðurinn
að viðgerðum undir bilnum, er
tjakkurinn eða bifreiðin virðist
skyndilega hafa hreyfst til með
þeim afleiðingum. að maðurinn
klemmdist undir bifreiðinni.
Er að var komið var hann
meðvitundarlaus, og var hann
þegar í stað fluttur á sjúkrahúsið
á Selfossi. Þaðan var hann síðan
fluttur á gjörgæsludeild Borgar-
spítalans, sem fyrr segir, og hafði
hann ekki komist til meðvitundar
í gærkvöldi er Morgunblaðið fór í
prentun, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Árnessýslu.
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra:
Ákvörðun um skipan
nef ndar ekki tekin
„ÞAÐ SEM ég get sagt er að i
þeirri þrigKja manna ráðherra-
nefnd sem fjallaði um málið i
siðustu viku var rætt um væntan-
lega nefndarskipan til viðræðna
við Alusuisse og hvort rétt væri að
skipa nefnd fagmanna. Ákvörðun
um tilhögun hefur ekki verið tek-
in,“ sagði dr. Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra, er Mbl. spurði
hann álits á skipan fagnefndar til
könnunar svonefnds súrálsmáls, en
Mbl. er kunnugt um að forsætisráð-
herra ræddi hugsanleKa skipan
slikrar fagnefndar á þingflokks-
fundi Sjálfstæðisflokksins i fyrra-
dag.
Forsætisráðherra vildi ekki tjá
sig um sína afstöðu til málsins og
fullyrti að enginn ágreiningur væri
um málið innan ríkisstjórnarinnar,
en eins og fram kom í Mbl. í gær
lýsti Friðjón Þórðarson dómsmála-
ráðherra því yfir á þingflokksfund-
inum í fyrradag, að ályktun ríkis-
stjórnarinnar í máli þessu fæli ekki
í sér mat á niðurstöðum rannsókna
sem iðnaðarráðuneytið hefur látið
gera.
Forsætisráðherra var þá spurður
hvort iðnaðarráðherra væri einn á
báti í rikisstjórninni í aö lýsa sekt á
hendur Alusuisse. Hann vildi heldur
ekki svara þeirri spurningu.
„FÓLKIÐ nýtur fyllsta trausts
okkar i stjórninni og við viljum fá
það aftur til starfa, við óskum
eindregið eftir því,“ sagði Gunnar
Guðjónsson, stjórnarformaður
OLÍS í samtali við Morgunblaðið,
en í Kær hitti Morgunblaðið nokkra
stjórnarmenn OLÍS að máli.
í samtali við stjórnarmenn OLlS
kom það fram að enginn hefði verið
settur inn í störf þeirra sem ekki
hafa mætt til vinnu á aðalskrifstof-
um fyrirtækisins að undanförnu,
skrifborð starfsfólksins væru eins og
það hefði skilið við þau og sýndi það
m.a. þann vilja stjórnarinnar að
starfsmennirnir kæmu aftur til
starfa í fyrirtækinu. Ætti það við
um alla starfsmennina, þar væri
enginn undanskilinn.
Spurningu Morgunblaðsins, um
hvort stjórnin telji sér ekki fært að
ganga að tillögum starfsmanna um
að Önundur Ásgeirsson haldi áfram
störfum um hríð og að Svan Frið-
geirssyni verði vikið úr starfi, víki úr
stjórn og hætti afskiptum af málefn-
um fyrirtækisins, svöruðu stjórn-
armenn þannig að þeir hefðu fallist
á fyrri liðinn, hvað önund varðaði,
stjórnin hafnaði því algerlega að
víkja Svan úr starfi. Hins vegar væri
það ekki á valdi stjórnarinnar að
víkja manni úr stjórn, slíkt gæti
einungis aðalfundur gert, en hann
yrði ekki haldinn fyrr en á næsta
ári. Hins vegar væri hægt að kalla
saman hluthafafund, en hann væri
ekki bær til að taka slíkar ákvarðan-
ir. Þá væri heldur ekki hægt aö
meina hluthafa að hafa afskipti af
fyrirtæki, slík krafa væri út í biáinn.
Þeir stjórnarmenn OLÍS sem
Morgunblaðið ræddi við, sögðu að
þeir væru hlynntir því að önundur
Ásgeirsson fyrrverandi forstjóri
starfaði við fyrirtækið um tíma, með
hinum nýráðna forstjóra, Þórði Ás-
geirssyni, sem ráðgjafi, enda hefði
Önundur starfað við fyrirtækið um
áratuga skeið og hefði hann yfir-
gripsmikla þekkingu á starfsemi
OLIS.
„Við viljum hafa góð samskipti við
starfsmenn okkar og það fer fjarri
því aö við viljum ekki taka tillit til
óska þeirra," sagði Gunnar Guð-
jónsson stjórnarformaður OLÍS.
„Hef ekki grafið und-
an einum eða neinum“
- segir Svan Friðgeirsson stjórnarmaður og stöðvarstjóri
„ÉG IIEF reynt aö vinna mitt starf
hjá Olíuversluninni eftir bestu
getu. þó starfið útheimti það
kannski að maður þurfi vð veita
aöhald. en ég reyni að vera ekki
ósanngjarn,” sagði Svan Frið-
geirsson stjórnarmaður i OLÍS i
gær. „Ég þekki margt af þvi fólki,
sem nú deilir á mig. harla litið,
enda er margl af þvi nýlega byrjað
f fyrirtækinu. En ég verð að reyna
að trúa þessu fólki og reyna að
bæta mig.“
Spurningu Mbl. um hvað hann
vildi segja um kröfur þær, sem
starfsmenn aðalskrifstofu hafa gert,
um að hann hætti störfum hjá
fyrirtækinu, hann hætti í stjórn og
hætti einnig afskiptum af málefnum
fyrirtækisins, sagði Svan að hann
skildi ekki slíkan hugsunarhátt.
„Eftir íslenskum lögum er ekki hægt
að reka menn úr stjórnum fyrir-
tækja og það er ekki hægt að láta
mig hætta afskiptum af málefnum
fyrirtækisins nema með þvingunum,
en ég hef boðist til að hætta störfum
hjá OLÍS, leysi það einhvern vanda,“
sagði Svan.
Um ástæður samstarfserfiðleika
við Örn Guðmundsson, skrifstofu-
stjóra OLÍS, sagði Svan að hann ætti
ekkert sökótt við Örn, þeir hefðu
lengi veri góðir vinir. „Eg hef ekkert
undan Emi að kvarta og skil ekki
þessa afstöðu hans, sem fram hefur
komið síðustu daga,“ sagði Svan.
í fréttatilkynningu frá starfs-
mönnum aöalskrifstofu OLÍS, sem
birtist í Morgunblaðinu í gær, segir
að Svan sé í oddaaðstöðu í stjórninni
og hafi grafið undan Önundi Ás-
geirssyni fyrrverandi forstjóra.
„Þetta eru bæði ágiskanir og ósann-
indi. Ég hef ekki grafið undan einum
eða neinum. Ef hægt er að ásaka mig
um eitthvað, þá held ég að það væri
frekar fyrir hreinskilni, fyrir að vera
of opinskár. Ég hef ekki baktalað
einn eða neinn. Samskipti okkar
Önundar Ásgeirssonar hefa verið
góð í gegnum tíðina. Að vísu hefur
samstarfið gengið örðuglega síöustu
2—3 árin og má segja að ekki hafi
verið fullt samstarf okkar í milli. En
ég mótmæli því að ég hafi ekki verið
forstjóranum tryggur. Mín afstaða
til Önundar hefur verið sú, að hann
sé forstjórinn og hef ég komið fram
við hann sem slíkan. Uppsögn hans
er ekki undan mínum rifjum runn-
in,“ sagði Svan Friðgeirsson.
Heildargjaldeyrístekjur af ÍSAL 236,5 millj. $:
Búrfellsmannvirki að
ftillu greidd á 20 árum
Venjulegur afskriftatími vatnsaflsstöðva 40 ár
Heildargjaldeyristekjur þjóð-
arinnar vegna íslenzka álfélags-
ins hf. í Straumsvik frá upphafi
til 31. desember 1980 nema
236,9 milljónum dollara. Af
þessari upphæð nema tekjur
Landsvirkjunar af orkusölu
46,5 milljónum dollara og munu
raforkusolutekjur af ÍSAL til
Landsvirkjunar hafa að fullu
borgað upp fjármagnskostnað
við Búrfellsmannvirki 1988 eða
1989. Það þýðir, að Búrfells-
mannvirki verða að fullu greidd
á 20 árum, en venjulegur af-
skriftatimi vatnsaflsstöðva er
40 ár, samkvæmt upplýsingum
frá Jóhanni Má Mariussyni hjá
Landsvirkjun.
Ofangreindar tölur um gjald-
eyristekjur þjóðarinnar eru
fengnar frá Seðlabankanum og
að sögn Ólafs Tómassonar eru
þær byggðar á verðlagi hvers árs
fyrir sig og yfirfærðar úr ís-
lenzkum krónum í meðalgengi
dollara á hverju ári.
Meginhluti gjaldeyristeknanna
eru vegna rekstrar ÍSAL, þ.e.
206,3 milljónir dollara. Þar eru
vinnulaun stærsti hlutinn eða
89,7 milljónir dollara, orkukaup
46,5 milljónir, skattar 15 milljón-
ir og annað, svo sem flutnings-
kostnaður o.fl., 55,1 milljón doll-
ara. Vegna fjárfestinga urðu
gjaldeyristekjurnar 30,6 milljón-
ir dollara.
Jóhann Már Maríusson hjá
Landsvirkjun sagði í viðtali við
Mbl. að ekki væri í niðurgreiðsl-
um fjármagnskostnaðar Búr-
fellsmannvirkja tekið tillit til
sölu raforku til almennings, en
Búrfellsvirki hefðu, þrátt fyrir
mikla sölu til ÍSÁL, nýst til
þeirra hluta einnig.
Sjá töflu og linurit á mið-
opnu.