Morgunblaðið - 22.07.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ1981
19
Sjópróf í Kanada í gær:
Áhöfn Berglindar við góða heilsu
- segir Sævar Guðlaugsson skipstjóri,
en áhöfn kemur til íslands á föstudag
„ALLIR í áhöfninni eru við góða heilsu og ómeiddir og gekk
björgun manna vel,“ sagði Sævar Guðlaugsson skipstjóri á
Berglind, sem sökk út af Nova Scotia sl. mánudag eftir
árekstur við danskt skip. Áhöfnin telur 12 menn og sagði
Sævar að þeir kæmu flugleiðis heim um New York á
fimmtudag og verða þeir komnir til íslands á föstudagsmorg-
un. Sjópróf stóðu yfir í Sydney í gær og bjóst Sævar við að
þeim lyki um kvöldið, en síðan myndu fara fram sjópróf
hérlendis.
Sævar Guðlaugsson skipstjóri á
Berglind.
Gámar dregnir í land
Sævar Guðlaugsson sagði helm-
ing áhafnarinnar hafa farið um
borð í danska skipið, að Berglind
hefði verið fullhlaðin stykkjavöru
í gámum og að þoka hefði verið
þegar áreksturinn varð, en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um mála-
vöxtu, það yrði að bíða sjóprófa.
Gámar, er voru á dekki, hefðu
flotið upp, og hefðu þeir verið
dregnir til hafnar og í skeyti
AP-fréttastofunnar segir, að þar
hefði verið um að ræða gáma með
matvælum, bílavarahlutum o.fl.
Nokkur olíubrák er á sjónum. Hún
hefur þó ekki valdið tjóni þar sem
hún er alllangt frá landi.
Bílar og búslóðir
Hjá Eimskipafélaginu fékkst
upplýst, að meðal varnings hefðu
t.d. verið bílar, búslóðir, matvæli,
vélar, varahlutir, byggingarefni
og ýmsar vörur fyrir varnarliðið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun íslenzk fjölskylda,
sem búsett hefur verið í Banda-
ríkjunum og var að flytjast heim,
hafa misst alla búslóð sína, sem
var um borð í Berglind, þar á
meðal nýjan bíl, sem hún hafði
nýlega keypt.
Fjölmargir aðilar, fyrirtæki og
einstaklingar, áttu varning með
Berglind. Hjá nokkrum trygg-
ingarfélögum fékk Mbl. þær upp-
lýsingar, að beðið væri farmbréfa
og upplýsinga frá sendendum
varnings um hvað verið hefði með
skipinu, en mörg fyrirtæki hafa
svokallaðan opinn samning.
Tryggía Þau aUan flutning sinn og
segja farmbréf til um hvað hefur
verið flutt. Af þeim sökum fengust
ekki nánari upplýsingar um tjón
einstakra aðila er áttu vörur með
skipinu og í mörgum tilfellum
tryggir sendandi vöruna og kemur
það tjón því ekki fram hjá íslenzk-
um tryggingarfélögum.
Meðal þeirra fyrirtækja er áttu
varning má nefna íslenzka aðal-
verktaka, sem tryggt höfðu farm
fyrir um 150 þúsund Bandaríkja-
dali eða um 1,1 milljón króna og
hjá Agli Vilhjálmssyni var upp-
lýst, að fyrirtækið hefði átt bæði
bíla og varahluti, en beðið var
eftir upplýsingum um hve marga.
Danska skipið Charm, sem lenti
í árekstri við Berglind átti aö
halda frá Sydney í gærkvöld.
Fyrirtækið Islenzk kaupskip,
dótturfyrirtæki Eimskipafélags
íslands, gerði út Berglind og hefur
Sævar Guðlaugsson verið skip-
stjóri í 5 ár. Skipið er skráð í
Singapore og hjá Eimskipafélagi
íslands fengust þær upplýsingar,
að fyrri eigendur skipsins, sem
voru kanadískir, hefðu skráð það
þar og því hefði ekki verið breytt
eftir að íslendingar keyptu það,
þar hefðu m.a. fjárhagslegar
ástæður legið að baki.
Berglind tryggð
fyrir 2 millj. dala
Berglind er tryggð hjá brezkum
aðilum fyrir 2 milljónir Banda-
ríkjadala og upplýsti Eimskipafé-
lagið að þegar á mánudag hefði
verið byrjað að kanna hvort fáan-
leg væru önnur leiguskip og var
ekki búist við teljandi erfiðleikum
á að halda uppi nauðsynlegum
flutningum frá Bandaríkjunum.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Bátur dregur gám úr Berglind til hafnar í Sydney. en með skipinu var margs konar stykkjavara.
matvæli, vélar, bílar og búslóðir. simamynd ap.
Pinotex grund
Þessi Pinotex-viðarvörn er ætluð
til að grunna ófrágenginn við.
Seld í 1, 2V4 og 5 lítrum litlaus
og svört.
Pinotex extra
Nýjung á Pinotex-sviðinu. Þessi
viðarvörn lekur ekki niður, er
óvenjulega litheld og að auki
búin mikilli endingu og varnar-
hæfileika. Seld í 1, 214 og 5
lítrum. Níu litir og auk þess
litlaus.
Pinotex struktur
Þessi Pinotex-viðarvörn skýrir
og varðveitir fagra og eðlilega
æðagerð og byggingu viðarins.
Seld í 1, 2'A, 5 og 25 lítrum í 28
litum og litlaus.
FÆST í ÖLLUM HELZTU
MÁLNINGARVÖRUVERZLUNUM LANDSINS.
smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Ljósritun — Fjölritun
Fljót afgreiösla Bílastæöi Ljós-
fell. Skipholtl 31, sími 27210.
Ljósborg hl. er flutt
aö Laugavegi 168, Brautar-
holtsmegin. Ljósprentun — tjöl-
ritun. Síml 28844.
Innheimtustofa
Þorvaldur Ari Arason hrl..
Smiöjuvegi D-9, Kópavogl.
S: 45533, box 321, 121 Reykjavfk.
Til sölu
baöker, hitakerfisdæla og galv.
þensluker. selst ódýrt. Baökeriö
er hvrtt úr þykku steypujárnl.
Hentar vel sem skolker f þvotta-
hús, eöa fyrir olíubööun véla-
hluta. Siml 12890.
Njaróvík
Tll sölu tokhelt einbýlishús viö
Kópubraut, kominn sðkkull fyrlr
bilskúr
Fasteignasala Vilhjálms Þór-
hallssonar, Vatnsnesi 20, Kefla-
vik. Sími 1263.
Skip óskast til leigu
Tveir amerískir vísindamenn
óska eftir bát til leigu, til þess aö
tlytja sig til Kulusukk á Qræn-
landi svo fljótt sem auöiö er.
Lysthafendur sendi nöfn sín og
símanúmer inn á augl.deild Mbl.
lyrir 25. júli nk. merkt: „B —
1510".
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld kl. 8.
UTIVIST ARF E RÐIR
Miövikudagur 22. júli kl. 20.
Mosfell og nágrennl, létt kvöld-
ganga. Ver kr. 40, frítt f. börn m.
fullorönum Farlö frá BSÍ, vest-
anveröu.
Um næstu helgi:
1. Þórsmörk.
2. Fimmvöröuháls.
Verslunarmannahelgi: Horn-
strandir, Þórsmörk, Dalir —
Akureyjar, Snæfellsnes, Gæsa-
vötn — Vatnajökull.
Ágústferöir: Hálendishringur,
Borgarfjöröur eystri, Grænland,
Sviss.
Upplýsingar og farseölar á
skrifstofunnl Lækjargötu 6a,
síml 14606.
Útlvlst.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11796 og 19533.
í kvöld kl. 20. — Kvöldferö i
Viöey, fariö frá Sundahöfn. Verö
kr. 30.-. Fritt fyrir börn i fyigd
meö fullorönum.
Ferðafélag islands.
Kristniboóssambandið
Almenn samkoma veröur (
kristniboöshúsinu Betania, Lauf-
ásvegi 13, í kvöld kl. 20.30
Jóhannes Ólafsson kristniboös-
læknir talar. Tekiö veröur á mófl
gjöfum til krlstniboöslns.
Allir velkomnír.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferöir 24.-26. júlí:
t. Þórsmörk - Skógá - Kverná.
Gist í húsi.
2. Þórsmörk - Fimmvöröuháls.
Gist í húsi.
3. Hveravellir. Gist í húsi.
4. Landmannalaugar - Eldgjá
(ef færö leyfir). Gist í húsi.
Farmiöar og allar upplýsingar á
skrifstofunni. Öldugötu 3.
Feröafólag íslands.